Vísir - 24.06.1942, Blaðsíða 1

Vísir - 24.06.1942, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hsð). 32. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 24. júní 1942. Ritstjórl Blaðamenn Slml: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S linur Afgreiðsla 118. tbl. Capuzzo-virkið kemur aftur^við sögu Þannig leit Cappuzzo-virkið út, jjegar bandamenn tóku það í vetur sem leið. Nú kemur virkið aftur við sögu, en hvergi nærri eins mikið og þá. Búizt við árás Rommels á hverri stundu. Övíst hvort áherzla verður lögð á vörn landamæranna sjálfra. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Herst.jómin í Kairo býst við því, að Rommel leggi tií atlögu við 8. herinn þá og þegar, en bryn- sveitir Itala og Þjóðver ja hafa verið að færa sig austur á bóginn frá Tobruk síðustu sólarhringa. Ennþá hefir ekki komið til neinna verulegra bardaga á landamærunum, en báðum aðilum kemur þó saman um það, að framvarðasveitir, sem sé í njósnaleiðöngr- um, lendi í skærum við og við. Herstjórn Þjóðverja tilkynnti í morgun, að tala fanga jjeirra, sem teknir voru í Tobruk sé nú komin upp í 33.000. Hergagnaflutningum til átt- unda hersins er hraðað eftir mætti og hersveitir streyma einnig vestur á bóginn frá Alex- andríu og Kairo. Ber allt merki þess, að hætt sé við árás af liálfu Rommels fyrr en varir. Skilst mönnum í Kairo, að hann muni vilja láta til skarar skríða aftur, meðan hann telur Breta vanbúna eftir ósigurinn. Bretar búast við árás Romm- <els milli Sollum og Halfaya. Dingle Foot þingmaður, sem er ráðhei’ra viðskiptastyrjald- arinnar, sagði frá þvi í gær, að Rommel fengi ýmsar birgðir hergagna og nauðsynja frá ný- lendum Frakka í Norður- Afriku. Lét Foot þess jafnframt getið, að Rommel mundi ekki fá neinar birgðir beint frá Frakk- landi sjálfu um þessar mundir. Daily Telepragh ber saman aðstöðu áttunda hersins nú und- ir stjórn Auchinlecks og að- stöðu Wavells í upphafi styrj- aldarþátttöku ítala. Þá var að- staðan eins og nú, að landa- mærin skildu milli liermanna, og Wavell hafi þá kosið, að láta ítali fá hluta af egipzku eyði- mörkinni bardagalaust. Sé ekki víst að Auchinleck sjái fremur hag í því að berjasl til þrautar þama og muni hann þá e. t. v. stytta flutningaleiðir sínar íneð því að gera Mersa Matruh að aðalbækistöð. Fluglið beggja heldur uppi viðtækum njósnaferðum og beinir árásum sínum einkum að flutningaleslum hvors annars. Flotamálaráðuneytið i Lon- don liefir lýst því, er sjóliðar hafi eyðilagt hólvirki í Tobruk og ýmsar hirgðir þar við höfn- ina. Sprengdli þeir hafnarmann- virkin og lögðust síðan til sunds út að skipum þeim, sem biðu þeirra. Times er all-þungort í morg- un vegna styrjaldarrekslursins. Segir blaðið, að gera verði gagn- gerar breytingar á her- og fram- leiðslustjórn, án þess að taka til- lit til þess, hverjir eigi í hlut. Lágmarkslaun brezkra námamanna. Brezkum námamönnum eru nú tryggð lágmarkslaun, sam- kvæmt samkomulagi, er náma- eigendur . og. samband náma- manna hafa nýlega gert með sér. Lágmarkslaun þessi nema 4 sterlingspundum og 3 shilling- um (83 sh.) á viku, en ef fram- leiðslan fer fram úr vissu marki í einhyerri nárnu eða námum, Iiækka laun þeirra, sem þar starfa, um tvo og liálfan shill- ing á viku. Er þelta gert í þeim tilgangi, að reyna að örfa framleiðsluna, .sem liefir dregizt sarnan af þeim sökum, að mikill fjöldi ungra og duglegra námamanna Iiefir verið lekinn í herinn. Tilkynning hefir verið gefin um það, að þeir Churchill og Roosevelt hafi rætt um siglinga- málin og skipabyggingar. Fundur þessi er afar mikil- vægur og bafa þeir leiðtogarnir kallað til aðstoðar á sérfræðinga í skipasmiðum og öðrum mál- um, sem lúta að flutningum með skipum. Viðstaddir voru Harry Hopkins, Emory Land, flotaforingi, sem er forinaður siglingaráðs Bandaríkjanna og sér því um framkvæmd skipa- smíðaáætlunarinnar, og Ernest King, yfirmaður ameríska flot- ans. Flutningaöröugleikar Þjóðverja. Fundur i Berlin. Samkvæmt fregnum frá London hefir samgöngumála- ráðherra Þjóðverja, dr. Dorp- miiller, kallað saman ráðstefnu járnbrautarstarfsmanna til að ráða fram úr örðugleikum sam- gangnanna. Stafa örðugleikarnir af því, að styrjöldin hefir gert stóruni auknar kröfur til vagna og eimreiða, en þeim hefir ekki fjölgað i hlutfalli við þá þenslu á landinu, sem þau verða að fullnægja. Til dæmis um þessa örðugleika er það, segir Lond- on, að kolaflutningar til Sví- þjóðar eru 8 mánuði á eftir tím- anum. Þetta hefir leitt til þess, að flutningar á sjó, fljótum og slcipaskurðum hafa farið vax- andi, en þeir eru oft miklum hættum bundnir, sérstaklega, þegar siglt er um Norðursjó, norður með Noregi eða íun Ermarsund. Þar má ávallt bú- ast við loftárásum, en auk þess stafar mikil hætta af tundur- duflum. Tod Bock leitar að veik- om bietti hjá Kharkov. Von Bock gerir nú víða árásir á víglínu Rússa í Ukrainu til þess að reyna að finna veikan blett á vörn þeirra. Játa Rússar, að á einum stað hafi þessar árásir Þjóðverja borið þann árang- ur, að þeir — Rússar — hafi orðið að hörfa til nýrra varnar- stöðva. Þjóðverjar minnast ekkert á þessar árásir sínar. Samkvæmt fregnum frá New York hefir talsmaður herstjórn- ar Rússa játað, að setuliðið í Sebastopol eigi „í vök að verj- j ast“. Hafa Þjóðverjar mjakað j sér áfram við borgina, en Rúss- ar segja að þeim takist jiað að- eins vegna þess að þeir hafi ó- grynni liðs og neyli liðsmunar. Sækja Þjóðverjar ekki aðeins á að norðan og sunnan, eins og oð undanförnu, heldur og að aust- an. Á tveim stöðum liafa Rúss- ar orðið að hörfa undan. Þreng- ist hringurinn um borgina smáni saman, sainkvæmt fregn frá rússneskum fréttaritara í lienni. Norðan við Severnaja-flóann Árásir á tvær skipalestir. 5 skipum sökkt. Tundurskeytaflugvélar Breta og amerískur kafbátur hafa sökkt fimm skipum úr skipa- lestum og laskað tvö að auki. Flugvélarnar voru frá Malta og gerðu þær árás á skipalest, sem var á ferð skammt frá eynni. Sökktu þær flutninga- skipi af meðalstærð, en liæfðu að auki annað flutningaskip og tundurspilli, þótt ekki sé vitað að jiau skijj liafi sokkið. Ameríski kafbáturinn. var að verki undan ströndum Kína og liitti þar lest sjö skipa, sem voru á leið frá Slianghai til Hong- kong. Sökkti kafbáturinn fjór- um skipanna. — á Batenjavka-tanga — verst lítill hópur rússneskra her- manna ennþá. Það hefir verið tilkynnt í Moskva, að flestir óbreyttir Iiorgarar í Sebastopol liafi verið fluttir á brott, þar á meðal næst- um öll hörn borgarbúa. Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi kveikt í eftirlitsskipi og laskað tvö önnur í höfninni í Se- bastopol. 100 rússneskar flug- vélar liafi verið eyðilagðar fyrir 5 þýzkar. Þjóðverjar tilkynna og, að þeir hafi sökkt 6 kafbát- um og tveim litlum skipum, en 43.000.000.000 doll. á eiuu ári. I gær samþykkti fulltrúa- deild Bandaríkjaþingsins 43.000.000.000 — f jörutíu og þriggja milljarða — dollara fjárveitingu til eflingar Bandaríkjahersins (flotinn ekki meðtalinn) á 12 mánuð- um. Er þetta stærsta fjár- veiting í mannkynssögunni og er hærri en allt fjárfram- lag Bandaríkjanna til síðustu styrjaldar. Þessu fé verður meðal ann- ars varið til að láta smíða 23.550 flugvélar fyrir land- herinn, að auki við þær, sem þegar er búið að gera ráð fyr- ir og skýra frá. Er hemum þá ætlaðar 148.000 flugvélar. Hernaðarútgjöld Banda- ríkjanna nema nú 150.000 dollurum á hverri mínútu. auk þess liafi þeir laskað 7 kaf- báta og 5 skip önnur. Danlr geia Bretnm £ 38.300 til flngjvélakanpa. Dauir liér gjáfu riiml. 30.000 kr. Fyrstu 3 Spitfire-flugvélapnap teknar í notkun. Danir víða um heim hafa afhent Bretum 38.300 sterlings- pund til kaupa á Spitfire-orustuflugvélúm handa brezka flughernum. Hafa þegar verið afhentar þrjár orustuflugvélar, sem nú er stjómað af dönskum flugmönnum, en fleiri verða afhentar dönsku sveitinni eftir því sém henni bætast æfðir flugmenn og vélamenn. Blaðamenn útilokaðir frá þingsölum. i Blöð Ástralíu og þingmenn eiga nú í deilu um það, hvaða orð sé viðurkvæmilegt að hafa um þingið og störf þess. Deila þessi stafar af því, að í blaðinu Sunday Telegraph (Sydney) birtist grein undir fyrirsögninni: „Afskiptasemi gamalmennanna í öldunga- deildinni“. Forseti öldunga- deildarinnar krafðist þess, að Daily Telegraph birti afsök- un vegna þessa, en það blað hafði ekki birt greinina, þótt það væri eign sama fyrirtæk- is og Sunday Telegraph. Rit- stjórinn neitaði að gera þetta, en bauðst til að birta svar for- setans. Var þá öllum Can- berra-fréttariturum beggja blaðanna bannað að koma í þingsalina. Formaður blaða- útgáfufélagsins mótmælti því og við það situr nú. Er búizt við, að þetta mál veki miklar deilur, þegar ’ ingfundir byrja aftur í ágúst. Uppliaf þessa máls er það, að eflir að Danir í Englandi, Skot- landi og N.-írlandi höfðu stofn- að með sér félagsskap (Danish Council) leituðu þeir til Dana í samveldislöndum Breta og stofnuðu samband við þá. Að því búnu gerðu þeir út sendihoða til flestra ríkja i Ameriku til þess að fá Dani þar til að leggja fram krafta sina i þágu bandamanna. Leiddi þetta til þess, að stofnaður var sjóður til að kaupa orustuflugvélar handa Bretum. Jafnframt var þess óskað, að danskir flug- menn yrði látnir stjórna þeim flugvélum, sem þannig yrði afl- að, ef þess væri kostur. Söfnunin gekk vel og fyrir nokkuru var Churchill afhent 38.300 sterlingspund. Hefir inestur liluti fjárins safnazt í Stóra Bretlandi eða 16.125 pund, en álitlegar upphæðir kómu frá Öðrum löndum, þar sem Danir eru búsettir. Danir í Argentínu gáfu 6877 pund, Danir í Brasilhi 1503, í Chile 500, Uruguay 680 o. s. frv. Argentína var hæst af löndúm utan Bretlands sjálfs. Danir hér á landi gáfu 800 pund eða rúmlega 20.000 kr. Eins og áður getur voru til að byrja með keyptar 3 Spitfire- flugvélar fvrir söfnunarféð. Þessar þrjár flugvélar heitá Niels Ehbesen, Valdemar Atter- dag og Skagen ind. Forseti danska ráðsins er F. Kröyer-Kielberg, en formaður Spitfire-sjóðsins er K. G. Anker- Petersen. 74151 kjósandi á öllu landinu, Kjósendur á öllu landinu, sem kosningarétt liafa við næstn alþingiskosningar, eru 74.151. Þetta er þó ekki endanleg tala kjósenda, því að hér eiga kærur eftir að koma fram, sem búast má við að verði að einhverju leyti .teknar til greina. Kjósendatölur i einstökum kjördæmum er sem hér segir: Reykjavík ............ 25.142 Gullhr.- og Kjósarsýsla . 3060 Borgarf jarðarsýsla .... 1894 Mýrasýsla .............. 1152 Snæfellsnessýsla ...... 1838 Dalasýsla ................ 866 Barðastrandarsýsla ..... 1768 Vestur-ísafjarðarsýsla ... 1292 ísafjörður .............. 1565 Norður-ísafjarðarsýsla . 1640 Strandasýsla ............. 1124 Vestur-Húnavatnssýsla , 944 Austur-Húnavatnssýsla . 1340 Skagafjarðarsýsla ........ 2534 Akureyri ................. 3371 Eyjafjarðarsýsla ........ 4750 Suður-Þingeyjarsýsla .. 2459 Norður-Þingeyjarsýsla . 1087 Norður-Múlasýsla ......... 1606 Seyðisf jörður ........... 537 Suður-Múiasýsla .......... 3160 Austur-Skaftafellssýsla . 762 Vestur-Skaptafellssýsla . 985 Vestmannaeyjar .......... 2055 Rangárvallasýsla ....... 2003 Árnessýsla ............... 3014 Hafnarfjörður ............ 2203 Næturlæknir. María Hallgrímsdóttir, Grundar- stíg 17, sími 4384. — Næturvörður í Laugavégs apóteki. Samtals 74.151 Knattspyrnukappleikur. Starfsmenn hjá tollstjóra sigruðu í gærkvöldi prentara með 5:1.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.