Vísir - 25.06.1942, Blaðsíða 1

Vísir - 25.06.1942, Blaðsíða 1
rtitstjórar: Kristján Guðiaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjóri Blaðamenn Símii Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 linur Afgreiðsla 32. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 25. júní 1942. 119. tbl. INNRASIN EGIPTALAND HAFIN. Bretar yfirg^efa Soll- iirib Og: Sidi Omar. Egiptar geta lagt til 500.000 menn ef I harðbakka slær. Hersveitir Rommels hafa nú byrjað innrás í Egiptaland og hafa hersveitir Ritchies hörfað undan og yfirgefið Sollum og Sidi Omar. Hádegistilkynning Breta frá Kairo hermdi, að framvarðasveitir möndulherjanna væri komnar suðaustur fyrir Sidi Barrani. Eru þær þá komnar 50—100 km. inn fyrir landamærin. Ðaily Telegraph ritaði um það í gær, að það væri ó- víst, hvort Ritchie mundi legg.ja áherzlu á vörn landa- mæranna sjálfra, fremur en Wavell, þegar Italir byrj- uðu í stríðinu. Er það nú komið á daginn, að Bretar munu að líkindum leggja fyrst um sinn áherzlu á að ver ja Mersa Matruk, sem er endastöð jámbrautarinnar frá Alexandríu og því afarmikilvæg borg. Er hún 200 km. innan landamæranna. Nahas pasha, forsætisráðherra Egipta, hefir haldið ræðu í egipzka þinginu. Sagðist hann hafa sannfærzt um það, að Bret- ar mundu verja landið af öllum mætti, og ef þess gerðist þörf mundu Egiptar geta lagt fram 500.000 hermenn. Þjóðverjar liafa skýrt frá því, að i bardögunum í Libýu frá 26. maí hafi þeir tekið um 50 þús. fanga og auk þess um 1000 skriðdreka, fallbyssur og bíla i hundraðatali og ógrynni annars herfangs. Hemaðarsérfræðingar í Lon- don felja það misskilning, að tala ,um að 8. herinn bíði í „varnarlínu“, þvi að öll þróun í þessum ófriði hefir sýnt og sannað, að varnarlínur sem slik- ar eru gagnslausar. Hinsvegar var varnakerfi það, sem Ril- cliie hershöfðingi skipulagði gegn sókn Rommels lialdgott og tafði framsókn hans til muna, þótt það bilaði að lokum. IJr þvi að Ritchie ætlar ekki að verjast öxulherjunum á landamærunum, virðist það ein- sætt, að hann hafi ekki getað komið sér upp álíka breiðu varnabelti á þessum stutta tíma, en slikt belti byggist á þeirri grundvallarhugmynd, að hægt sé að gera snarpar atlögur að óvinunum, lialda uppi hreyfing- arstríði og vera fljótur að grípa til annarra ráða, ef hin fyrstu misheppnast Hernaðarsérfræðingar eru á •einu máli um það, að Rommel hafi unnið sigi'a sína vegna þess, hver meistarí hann er í hreyf- ingarstríði og hversu fljótur hann er að breyta um bardaga- aðferð, ef á liggur. Sem stendur virðist um tvennt að ræða í því skyni að forða Egiptalandi og þar með Suez- skurðinum og undirbúa nýja sókn gegn Rommel: 1) Að búast til varnar til • að geta lialdíð undan með meg- inherinn austur á bóginn, til að forðast eyðileggíngu hans og treysta varnir Kaíró, Alexandr- íu og Suez-skurðaríns. 2) Að mæta Rommel á breiðu varnarbelti með hreyf- anlegum vömum og leggja allg áherzlu á undirbúning og að- drætfi fyrir nýja sókn, eftir þeim aðferðum, sem Rommel Iiefir beitt. Fregnir næstu daga munu ’því sýna, hvað brezkir Iiershöfð- ingjar liafa lært af snjölluni -andstæðingL Svo sem vænta mátti, hefir ósigur Breta í Libíu orsakað harða gagnrýni gegn herstjórn- inni. Munu umræður fara fram i þinginu bráðlega, þar sem m. a. verður til umræðu vantrausts- tillaga, sem er rökstudd með þvi, að stjórnin reki elcki hern- aðinn með tilhlýðilegri hörku og framsýni. 100 ílugvellir á 3 mánuðum. Undanfarna þrjá mánuði hafa 100 flugvellir verið gerðir víðs- vegai' um Ástralíu. Harold Brett, yfirmaður flug- hers bandamanna á • Anzac- svæðinu, hefir skýrt blaðamönn- um frá þessu. Jafnframt sagði hann frá þvi, að straumur nýrra flugvéla til Ástralíu og bæki- stöðva bandamanna á eyjunum þar í kring færi ört vaxandi. Frá vígstöðvunum í Rússlandi. Allar fregnir frá Rússlandi benda til þess, að Þjóðverjar færist jafnt og þétt í aukana í Ukrainu og við Sebastopol. Sókn von Bocks austan við Kharkov er sú þriðja í röðunni, sem þar er hafin af hálfu Þjóð- verja. Rússar geta þess ekki, að þeir hafi hörfað neitt, eftir að þeir urðu að láta undan síga fyrst. Við Sebastopol tefla Þjóð- verjar jafnt og þétt fram nýj- um sveitum. Segjast þeir hafa náð nokkrum stöðvum af Rúss- um sunnan og austan borgar- innar. Vegirnir til borgarinn- ar eru stráðir líkum þýzkra hermanna, sem liafa orðið fyr-ir fallbyssuhríð Rússa, en þeir beina henni m. a.- á vegina til að tefla aðflutningana. III Forsetinn segir af sér. Fulltrúadeild ai-gentinska þingsins hefir samþykkt álykt- un um það til ríkisstjórnarinn- ar að hún slíti stjómmálasam- bandinu við öxulríkin. Ýms önnur öfl í landinu eru óánægð með undanlátssemi stjórnarihnar. Hefir forsetinn — Ortiz — sagt af sér, vegna þess að liann lítur svo á, að Castillo varaforseti, sem hefir gegnt störfum í veikindum lians, hafi ekki sýnt nóga feslu gagnvart ofbeldisríkjunum. Það, sem veldur því, að Argen- tinar cru að færast nær banda- ChurchiU j Churchill mun sitja fund styrjaldarráðsins fyrir Kyrra- hafið í Washington í dag. ) Roosevelt forseti hefir kallað ráðið saman til fundar sérstalc- lega vegna dvalar ChurchiIIs í Bandarikjunum. Fundurinn er talinn svo mikilvægur, að Mac- lcenzie King, forsætisráðherra , Kanada, hefir gert sér ferð til Washington til þess eins að sitja hann. Myndin er af þeim þrem mönnum, sem sjá um skipasmíðar Bandaríkjanna og þeir liafa fyrir framan sig „model af þeim skipategundum, sem þeir láta smíða. Mennirnir eru frá vinstri: Lewis W. Douglas, Howard L. Vickery, flotaforingi og Emory S. Land flotaforingi. Faxaílóasíldin. Viðtal við Harald útgerðarm. Böðvarsson. Alþingis minnst í blöðum vestan hafs. I Amerískur blaðamaður, Fred- erick Haskin, hefir ritað grein- ar í mörg amerísk blöð vegna J þess, að 1012 ár eru nú liðin síðan Alþingi íslendinga var stofnað. Segir Haskin fyrst frá stofn- un Alþingis og kemur siðan að atburðum siðustu ára í sam- bandi við styrjöldina og her- námið. Er greinin — þvi að hér eif að ræða um sömu greinina í um 100 blöðurn, viðsvegar i Bandaríkjunum — skrifuð i vin- samlegum anda. mönnum, er að fjórum skipum þeirra hefir verið sökkt og því síðasta — Rio Telegro — í s.l. viku. Var þar greinilega þýzkur kafbátur að verki, þvi að skip- verjar á Rio Teraero sáu að „Innsbruck" var málað á turn- inn. Þjóðverjar liöfðu afsakað það mjög nýlega, að þeir höfðu sökkt skipinu Victoria, og lof- uðu þá ,að þetta skyldi ekki koma fyrir aftur. Rio Telegro var á leið til Buenos Aires með kol, póst og ýmiskonar varning, svo að skipið var ekki á leið lil lands hernaðaraðila. Útgerðarmenn við Faxaflóa vita það, að hægt er að veiða mikla síld í flóanum. En það hefir til skamms tíma verið al- mennt álitið, að Faxaflóasild væri léleg. verzlunarvara. Akur- nesingar hafa verið á annari skoðun og þá einkum hinn mikli atorku- og athafnamaður Har- aldur Böðvarsson. Hann hefir liaft trú á því, að þessi sild væri einmitt ágæt vara, ef rétt væri á lialdið, og að hægt væri með fyrirhyggju að koma síldveið- um við Faxaflóa í það liorf, að Akranesbátarnir I. d. þyrftu alls ekki að leita norður til síldveiða á sumrin, né fólk þaðan i atvinnuleit. Eg var um tíma á Akranesi, fyrir tveim árum og kyntist' þessu máli þá nokkuð. Þá lagði Haraldur og nokkrir aðrir útgerðarmenn allmikið kapp á síldveiðarnar í flóanum og aflaðist þá talsvert mikið. Nokkuð af aflanum var þá sent ísað til Þýzkalands og Englands. Og mun síldarútvegsnefnd lítið hafa skipt sér af því. En annars átti Haraldur í sífeldum brösum við þessa nefnd út af söltun og sölu. Sturlaugur sonur Haraldar og meðeigandi í útgerðinni fór utan (til Ameriku og Englands) og kynnti sér rækilega markaði og markaðshorfur fyrir Faxa- flóasíldina, meðal annars. En það var eins og að Síldarútvegs- nefnd vildi ekkert af Faxaflóa- sild vita, —- Haraldi var bannað að salta og honum var bannað að selja — eg get vel hugsað mér að lionum hafi líka verið bannað að láta veiða síldina! En Haraldur Böðvarsson er maður þéttur fyrir og þeir feðg- ar. Þeir fóru nokkuð sínu fram. Þetta er mikið atriði fyrst og fremst fyrir kaupstaðinn Alcra- nes, ef skapast gæti veruleg at- vinna af Jæssari veiði þar heima á sumrin, þegar vorvertið lýkur. Það yrði miklu ábyggilegri og frádráttarminni atvinna, þegar komnar væru í skipulagt horf veiðarnar, heldur en að leita norður, i óvissxina. Mig langaði til að foiwitnast um það, er eg var staddur á Akranesi um síðastl. helgi, hvernig þessum málum væri komið nú, og arkaði af stað til þess að hitta Harald Böðvars- son að máli. En það er ekki hlaupið að því, að hafa hendur í hári hans. Hann er mikið úti við um þessar mundir, liefir mörg járn i eldinum og litur eftir öllu vandlega sjálfur. Loks sá eg hann tilsýndar uppi á þaki á frystihúsinu, sem hann er að láta byggja, — viðbót við vandað og allstórt frystihús, sem fyrir var. Eg varð að bíða góða stund, því að hann var eitthvað að segja fyrir verkum. „Hvað er að frétta af fram- kvæmdum yðar í sumar?“ spyr eg, þegar við höfðum heilsast. „Það er aldrei neitt að frétta hér,“ svarar Haraldur glottandi. „Vist er margt að frétta, t. d. eru þér nú að byggja eitthvað þarna, og mér er sagt að þér eig- ið stórhýsið, sém verið er að byggja í kartöflugarðinum ykk- ar við Vesturgötu.“ „Þetta er bara dálítil viðbót Frli. á 3. s. Íbátí Fregn frá Rio de Janeiro í Brasilíu hermir, að lögreglan hafi fundið leyni-bækistöð fyrir kafbáta þar í landi og var hún í alla staði vel útbú- in, svo að það var auðséð, að það hafði tekið langan tíma að koma henni upp. Þetta er önnur bækistöð fyrir kafbáta, sem finnst í Brasilíu, en fleiri og fleiri njósnarar möndulveldanna eru handteknir vikulega. Háfa þau auðsjáanlega skipu- lagt stai-fsemi sína þarna með vísindalegri nákvæmni. SíldlB veðnr norðan Samkvæmt fregnum, sem Vísir he.yrði um hádegið frá áreiðanlegum heimildum, er síldin nú farin að vaða fyrir norðan. Það fylgdi ekki fréttinni, hvar á veiði- svæðinu hennar héfði orðið vart, en torfurnar munu hafa verið allstórar. Bretar búast við víkinga- ferðum þýzkra herskipa Bretar búast nú við því, að hin stóru herskip Þjóðverja — Tirpitz, Liitzow og Hipper — verði send til víkingaferða gegn skipalestum bandamanna. Það er nú komið fram yfir miðsumar og þegar daginn fer að stytta aftur, minnka jafn- framt mögúleikarnir til jæss að víkingaferðirriar beri mikiriri árangur. I Danmörk hefir fyrir skemmstu byrjað mjög víðtæk- ar samgöngubætur í samvinnu við Þjóðverja, í þeim tilgarigi, að bæta sambandið milli Þýzka- lands og Noregs og Svíþjóðar. Jafnframt hafa Þjóðverjar hafið framkvæmdir í Norður-Þýzka- landi, sem miða að hinu sama. Samgöngubætur þær, sem hér um ræðir, eru fólgnar i þvi, að lögð verði járnbraut og bíla- braut (auto strada) suður Faist- ur og Láland, en þaðan verði ferja yfir til Fehmern og þar taki aftur við járnbi-aut og bíla- braut. Danir eru þegar byrjaðir á lagningu bílabrautarinnar, sem verður eins vönduð og kostur er á. Kostnaðurinn verður meiri en kostnaðurinn við Litla.Beltis- og Stórstraurnsbrýrnar samanlagt. Þjóðverjar verða að leggja 80 km. langa bílabraut frá Lubeclv til ferjustaðarins á Fehmern. Gunnar Larsen, samgöngu- málaráðherra, lagði frumvarp um þetta fyrir þingið, sem sam- þykkti það breytingalaust, enda eru þessar framkvæmdir hin bezta ráðstöfun gegn atvinnu- leysinu. Gunnar Larsen hóf líka verkið með fyrstu skóflustung- unni. Braut hann skófluna, og þykir það ills viti i Danmörku. Þcgar verki þessu verður lok- ið, verður járnbrautarferð frá Kauþmannahöfn lil helztu borga sunnar í álfunni nokkurum klukkustundum styttri en áður. Full not verða þó ekki af þessu fyrir Noreg og Svíþjóð, fyrr en brú hefir verið byggð yfir Eyrar- sund. Um hana er ekki hugsað nú, en danskt verkfræðingafé- lag hefir birt teikningar, sem það liefir gert af þessari fyrir- lniguðu brú.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.