Vísir - 25.06.1942, Síða 3

Vísir - 25.06.1942, Síða 3
V I S IR Simi 2339. Látið skrifstofuna vita um það fólk, sem er farið burt úr bænum. — Opið 9-8 og 2-5 á sunnudögum. — Sími 2339. — Kjósið bjá lögmanni í Miðbæjarbarnaskólianum Opið ÍO 12 f. h. og 1-5 og 8-9 e. li og á laugardögum 1-5 og sunnudögum 3-5. D-listi er listi Sjálfstæðisflokksins FAXAFLÓASÍLDIN. Frh. af 1. s. og endurból á frystiliúsinu okk- ar. Um kofann uppfrá skulum við tala seinna. Eg veit eklti al- mennilega sjálfur hvað bað á að vera.“ Eg sá að þarna komst eg hvergi. „En hvernig gengur með Fáxaflöasíldlna?“ Eg fann þegar, að þarna var Haraldur viðráðanlegri. „Það gengur nú eiginlega smátt með hana. En það er skömm að þvi, því að nú er loks- ins búið að slá því föstu, að hún er hin ágætasta verzlunarvara, —- eins og eg hefi alltaf haldið fram. Nú vilja t. d. Bretar enga aðra síld en Faxaflóasild, og þeir vilja kaupa allt það sem við getum aflað. Við söltum hana en þeir reykja hana síðan. Og til þeirra hluta vilja ])eir ekki líta við Norðúrlandssíld.“ „Er þetta þá ekki allt í himna- lagi?“ „Nei, það er nú öðru nær en það sé í himnalagi. Við byrjuð- um síldveiðarnar talsvert fyrr en undanfarin vor eða um mán- aðamótin maí-júní, en í fyrra var ekki byrjað fyrr en 24. júní. Við ætluðum að gera út 12 báta, en það hefir ekki verið liægt að liafa þá nema 5 og 6 — liklega fást ekki skipshafnir nema á 5 bóta framvegis. Þeir fara 8 bát- arnir norður og með þeim um 120 sjómenn. Og þetta kemur sér illa, þegar maður er nú loks- ins búinn að fá góðan og all- rúman markað.“ „Kemur þetta þá ekki illa nið- ur á kaupstaðarbúum líka?“ „Það er einmitt það sem ger- ist. Þessir 120 menn, sem fara norður hafa að vísu, — eða ef til vill — atvinnu fyrir sjálfa sig, en ef þeir væru heima, og hægt væri þá að gera út fleiri báta á flóa-síld, sköpuðu þeir atvinnu mörgu fólki öðru. Við höfum nóg af tunnmn og um 60 stúlkur höfum við til að vinna að söltun, og þér vitið, hvernig aðbúnað fólkið hefir hér. Það hefir það ekki betra eða jafngott fyrir norðan.' Þess vegna þykir manni það ekki gott, að geta ekki sett „fullan kraft“ á þennan atvinnuveg,“ „En hvemig hefir verið um veiðina?“ „Veðráttan hefir verið frem- ur óhagstæð til þessara veiða, fram að þessu, — kalt i sjóinn og ógæftasamt. Bátarnir hafa veitt þetta 50—150 tunnur í róðri, og við erum búnir að salta um 3000 tunnur. En það er nóg af síldinni í flóanum, — og við erum að vona að nú fari að hlýna og þá eigum við víst að veiðin eykst.“ „Hvemig atvinna er þetta fyrir hásetana?“ „Eg býst við að hún geti orðið býsna góð, ekki sízt ef veiðin eykst. Þeirra hlutur er fyrst um sinn kr. 1.21 á tunnu, en búist við nokkurri hælckun á næst- unni.“ „En hvernig er svo með söl-. una?“ „Ja — það er nú ]>að!“ segir Haraldur og hleypir brúnum. „Eg vissi ekki fyrri til, en ríkis- stjórain var búin að fela Síldar- útvegsnefnd einkasölu á allri síld, héraa á dögunum. Ætli við lendum ekki í einhverju klúðri við hana, eins og fyrri daginn. Það ei’ ]>ó ekki vert að segja neitt | um það, að óreyndu. Við sjáum í hvað setur.“ j Haráldur brosti sínu notalega }>rosi, um leið og hann tók í i hendina á mér að skilnaði, — i eg held að hann hafi alltaf sitt fram sá maður, þó að ekki sé as- inn á lionum. Th. Á. Aðalfundur, Prestafélags íslands. var haldinn á laugardaginn 20. þ. m. og hófst með guðsþjón- ustu, þar sem sr. Bergur Björns- son í Stafholti prédikaði. Formaður félagsins Ásm. Guðmundsson prófessor setti fundinn, og stýrði honum. Fundarskrifarar voru sr. Árni Sigurðsson og sr. Gisli Brynj- ólfsson. Fundarstaður var kennslusalur Guðfræðideildar. 1 fundarbyrjun minntust fé- lagsmenn látinna samherja, og síðan flutti formaður skorinort ávarp. Síðan var flutt skýrsla um störf félagsins á liðnu ári, bæði þau er varða stéttarmálefni presta og hin andlegu og kirkju- legu mál. Félagið liefir gerst meðlimur i Bandalagi starfs- manna rikis og bæja. Hagur fé- lagsins fer nú batnandi. Kaup- endum ársrits þess, Kirkjurits- ins, fjölgar. Félagið hefir nú bráðum starfað í 25 ár. Árs- reikningur félagsins var eftir nokkrar umr. samþykktur í einu hljóði. Aðalmál fundarins var efling kristindómsfræðslunnar. Hálf- dán prófastur Helgason hóf um- ræður með stuttu, en glöggu er- indi. Siðan fóru fram miklar umræður um málið, og nefnd kosin til að ganga frá tillögum til fundarálvktunar. Þá ernefnd- in hafði lýst tillögum sinum, urðu enn allmöklar umræður þar til gengið var til atkvæða. Hér verður birt aðaltillagan, sem samþykkt var, og er hún á þessa leið: „Aðalfundur Prestafélags Is- lands telur brýna nauðsyn þess, að kristin fræði verði gjörð ein af höfuðnámsgreinum í barna- skólum landsins, og að þessu beri að vinna með því: 1. Að kennslustundum í kristnum fræðum verði fjölgað að miklum mtm. 2. Að bamakennarar fái meiri fræðslu i kristnum fræð- um við undirbúningsnám sitt í kennaraskóla, og eigi kost á að auka nám sitt síðar á námsskeið- um. 3. Að sérkennarar í kristn- um fræðum annist, ef þörf gjörist, kennsluna í stærstu barnaskólunum, og liafi prestar kennsluna á hendi, þar sem kennarar óska þess, svo fram- arlega sem því verður við kom- ið. 4. Að samdar verði og gefnar út á hausti komanda Bibliusög- ur, sniðnar við sálarlíf og náms- þroska barna.“ — Samþykkt var tillaga um nokkra hækkun árgjalds félags- manna. Undanfarið hefir verið unnið að undirbúningi nýs hugvekju- safns eftir presta landsins. Nú var samþykkt að hefjast handa sem fyrst og stjórninni faldar framkvæmdir málsins. Félagsstjómin var öll endur- Vélavanar, nngur maðor i óskast sem nemi við kolakrana vorn. Væntanlegir umsækjend- ur gefi sig fram á skrifstofu vorri í dag frá kl. 3—5 eða á morg- j un á sama tíma. /’ i H.f. K«I A SaU j Tryggrið yðiii* okkar fegnritn bókmenntir I næstu 10 daga geta menn geret áskrifendur að Landnámu í bókaverzlunum Eymundsen, Isafoldar, Heimskringlu og KRON og fengið um leið afhent 1. bindi af verkum Gunnars Gunnarssonar, Skip heiðrikj- unnar. Ef til vill eigið þér ekki síðar kost á að eignast þessi verk, sem einungis eru prentuð fyrir áskrifendur, öll tölusett og afhent meðlimum á kostnaðarverði. — Kókaiítgáfiiii Landnáma Iþróttamót Borgrarfjarðar verður haldið við Hvítá n. k. sunnudag. Hefst kl. 1 e. h. Til skemmtunar verður: 1. Allskonar íþróttakeppni. 2. Ræða: Þórir Steinþórsson, skólast jóri. 3. Söngur: Tvöfaldur kvartett úr Reykjavik. 4. Lúðrasveitin Svanur leikur. 5. Dans. Mótið er aðeins fyrir Islendinga. Ölvaðir menn fá ekki aðgang. Ungmennasamband Borgarfjarðar. kosin í einu hljóði og skipa hana þessir menn: Próf. Ásm. Guðmundsson, sr. Friðrik Hallgrímsson, sr. Árni Sigurðsson, sr. Guðm. Einarsson og sr. Jakob Jónsson. í fundarlok ávarpaði formað- ur fundarmenn. Síðan var geng- ið í Háskólakapelluna til guðs- þjónustu og prédikaði þar sr. Jóhann Briem á Melstað. Fundai-menn voru nær 50 að tolu. Síðar um kveldið váru prestar í boði biskups að heimili hans í Vestnrhlíð við Öldugötu. Stúlku vantar til skrifstofnstaria hjá heildverzlup i Reykjavík. Vélritunar- og enskukmmátta nauðsynleg. Meðmæli æskileg. — Tilboð, merkl: „HeildverzJun“, sendist Visi. Ódýrir kjolar Seljum í dag kvenkjóla. Verð frp kr. 45.00. §parta Laugavegi 10. BEZT AÐ AUGLÝSA 1 VÍSL Nokkurar stúlkur geta fengið atvinnu við saumaskap í Vinim- fatagerð íslands. — Húsnæði getur fylgt. Upplýsingar hjá verkstjóranum í verksmiðjunni, Þverholti 17. Jarðarför Theodórs Jakobssonar # skipamiðlara fer fram fösludaginn 26. þ. m. kl. 3 frá dómkirkjunni- Börn og móðir hins látna.. Jarðarför mannsins rníns, Hinriks Halldórssonar fer fram frá fríkirkjunni föstudaginn 26. þ. m„ kl. 2 e. h. Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði. Fyrir mína hönd, fósturbarna, systkina og viua. María Jónsdóttir. f* I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.