Vísir - 07.07.1942, Page 3
VtSIR
20 ára hlj ómlistar star f
Lúðrasveitar Reykjavíkur.
Lúðrasveit Reykjavíkur er 20 ára í dag. Hún var stofnsett hér
í bæ 7. júlí 1922 fyrir milligöngu nokkurra áhugasamra manna
úr lúðrasveitunum „Gígja“ og „Harpa“, sem starfað höfðu hér
um nokkurra ára skeið. Var ákveðið að sameina báðar lúðra-
sveitirnar í eina, og hlaut hún nafnið Lúðrasveit Reykjavíkur.
Vísir hefir snúið sér til Guð-
jóns Þórðarsonar, sem um
nokkur undanfarin ár hefir ver-
ið formaður félagsins, og fengið
lijá honum eftirfarandi upplýs-
ingar um starfsemi sveitarinnar
undangengin 20 ár.
Fyrsta verk sveitarinnar var
það, að fá hæfan kennara og
stjórnanda á hlásturshljóðfæri
og naut tii þess aðstoðar Jóns
Leifs tónskálds. Fyrir valinu
varð ungur Þjóðverji, Otto
Böttscher að nafni. Stjórnaði
1936. Mun öllum, sem viðstadd-
ir voru, vera sú athöfn minnis-
. stæð.
I
| Sumarið 1937 fór Lúðrasveit-
in í aðra hljómleikaför út á land
og var þá farið alla leið norður
i Ásbyrgi, með A. 'Klahn sem
stjórnanda, en Pál ísólfsson
sem fararstjóra. Þriðja ferðin
var farin árið eftir til Bíldudals
M. a. var Jeikið í þeirri ferð á
fjöhnennri útisamkomu, sem
Jialdin vaV, þegar verksmiðjur
Gísli Guðmundsson
formaður
Pétur Helgason
gjaldkeri
Óskar Jónsson
ritari
Fyrsta
stjórn
Lúðrasveitar
Reykjavíkur.
Björn Jónsson
Karl 6. Runólfsson
hann sveitinni um tveggja ára
bil og má segja, að miklar fram-
farir hafi orðið hjá sveitinni á
þessum árum.
Það sem háði starfsemi svei't-
arinnar mest á þessum árum,
var húsnæðisskortur, en Lúðra-
sveitin Harpa hafði þá hafið
undirbúning að byggingu
Hljómskálans, en nú tók Lúðra-
sveit Rvíkur framkvæmd máls-
ins í sínar hendur og kom skál-
anum upp, fullgerðum, haustið
1924. Hafði einn félagsmanna,
Signrður Hjörleifsson múrara-
meistari, yfirbyggingu skálans
á hendi, en aðrir félagar að-
*
stoðuðu eftir föngum.
Árið 1924 tók Páll ísólfsson
við stjóm Lúðrasveitar Reykja-
víkur og stjórnaði henni sam-
fleytt i tólf ár. Fyrstu hljóm-
leikaförina, sem sveitin fór út á
land, fór.hún undir stjórn Páls,
árið 1925. Fór þá til ísafjarðar,
Siglufjarðar og Akureyrar. Hélt
hvarvetna hljómleika fyrir,
troðfullum húsum og hlaut hin-
ar ágætustu viðtökur. Helming-
ur sveitarinnar hélt landleiðis
heim á hestum, og lék á sveita-
bæjum, þar sem, þvi varð við
komið á leiðinni.
Þá má geta þess, að Láiðra-
sveit Reykjavíkur hefir látið til
sín heyra við allar konungs-
lcomur og ýms fleiri hátiðleg
tækifæri, þar sem bær eða ríki
hafa átt hlut að máli. Auk þess
hefir Lúðrasveitin leikið endur-
gjaldslaust fyrir ýmsar góð-
gerða-stofnanir og -félög.
Á alþingshátíðinni 1930 var
leikur Lúðrasveitarinnar ekki
hvað minnsti liðurinn í hátíða-
höldunum, hún lék þar oft á
hverjum degi m. a. við guðs-
þjónustuna í Almannagjá, kon-
ungsglímuna o. fl.
Árið 1936 lét Páll ísólfsson
af stjómandastörfum, en við
tók Albert Klahn hljómsveitar-
stjóri frá Hamborg. Fyrsta
skiptið, sem liann stjórnaði
sveitinni, var við jarðarför sjó-
liðanna af Pourqui Pas?, sem
fórst úti fyrir Mýrum haustið
Gísla Jónssonar tóku til starfa
ú Bildudal.
Fjórða og stærsta hljómleika-
förin var farin 1939, undir
stjórn A. Klahns en forystu Sig.
Baldvinssonar póstmeistara.
Var þá farin hringferð, fyrst
með skipi til Seyðisfjarðar, en
þaðan vestur um i bifreiðum.
Var leikið á öllum viðkomu-
stöðum skipsins, en allstaðar
þar sem því varð við komið á
leiðinni suður um, og hvar-
vetna endurgjaldslaust.
Það sem háir starfsemi sveit-
arinnar nú, er fyrst og fremst
það, að hun hefir sem stendur
hvergi neinn ákveðinn stað fyr-
ir útihljómleika sina. Næsta á-
tak sveitarinnar verður því það,
að koma upp söngpalli, helst i
skemmtigarði bæjarins, þar sem
Lúðrasveitin getur í ró og næði
og án allra umferðatruflana,
leikið fyrir bæjarbúa.
S.l. laugardag hélt Lúðra-
sveitin hóf fyrir félaga sína og
gesti í Golfskálanum. Þar voru
fyrstu heiðursfélagar sveitar
innar kjörnir, þeir Hallgrímur
Þorsteinsson söngkennari, Páll
ísólfsson tónskáld og Kjartan
Guðmundsson innheimtumað-
ur. í tilefni af 20 ára afmælinu
var minning Eggerts Jóhannes-
sonar, er lézt fyrir tveimur ár-
um, heiðruð með því, að ákveð-
ið var að reisa honum minnis-
varða.
Um síðustu áramót lét Albert
Klahn af stjórn Lúðrasveitar-
innar en við tók Karl Ó. Run-
ólfsson tónskáld. Stjórn sveitar
innar skipa: Viggó Jónsson for-
maður, Magnús Sigurjónsson
ritari, Oddgeir Hjartarson gjald-
keri og meðstjórnendur Guð-
laugur Magnússon og Magnús
Jósefsson.
Frú Guðrún Signrðardóttir,
kona Einars hreppstjóra Hall-
órssonar á Kárastöðum i Þingvalla-
sveit, á fimmtugsafmæli í dag. Hún
er mikil mætiskona, kvenna fríðust
og bezt að sér ger og öllum kær,
þeim, er henni hafa kynnzt.
Börn! Börn!
Komið og vinnið ykkur
inn peninga
Berið Visi til kaupenda
. Talið §trax vid afgrciðslnna
Höfum einkaumboð fyrir
BISSEL-Teppahreinsara
Gerið pan\anir yðar sem fyrst.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Grjótagötu 7. — Sími 3573.
Ttlkyiming
um kaup á vélum.
Allir þeir, sem hafa i hyggju að flytja inn gufuvélar
eða mótorvélar á síðari hluta þessa árs og tímabilinu
frá 1. janúar til 30. júni 1943, skulu tilkynna það Við-
skiptanefnd eigi síðar en 15. þ. m.
Tekið skal fram hver sé stærð vélanna, gerð þeiiTa og
til hvers þær eigi að notast.
lnnflytjendum skal á það bent, að áríðandi er að
upplýsingar þessar berist Viðskiptanefnd í tæka tíð,
því ella má búast við að afgreiðsla fáist ekki á þeim er-
lendis.
Viðskiptamálaráðuneytið, 7. júlí 1942.
STAÐASTAÐARKIRKJA.
Frh. af 2. síðu.
munduð vilja vera með í þvi að
skapa sem bezt skilyrði fyrir
fagnaðar og friðaráróður krist-
innar kirkju liefi eg beðið bisk-
upinn Sigurgeir Sigurðsson, frú
Lofteyju Káradóttur, Skóla-
vörðustíg 15, Rvik og Valdemar
Long kaupmann í Hafnarfirði,
að taka á móti gjöfum og áheit-
um til Staðastaðarkirkju. Og
hafa þau góðfúslega orðið við
þeim tilmælum.
Að lokum vil eg segja ykkur
draum, sem mann hér í sveit-
inní dreymdi: Hann þóttist
staddur í Staðarstaðarkirkju á-
samt fleirum. Sá hann hvar eld-
ur kom upp í kirkjunni fram við
dyrnar og þóttist hann óbeint
vera valdur að ikveikjunni.
Reyndi hann nú að slökkva, en
eldurinn magnaðist þeim mun
meira sem hann lagði meira að
sér að slökkva hann. Honum
leið þvi mjög illa þar sem hann
taldi sig valdan að ikveikjunni.
En þessi eldur orsakaði engan
bruna, en kirkjan fylltist dýrð-
legum, heilögum loga, sem ylj-
aði og lýsti en brenndi ekki. Er
hann varð þess var breyttust á-
liyggjur hans í fögnuð því að
hann fann, að þetta var loginn
helgi. Það kynlega við þennan
draum er það, að þessi maður
byrjaði í gær að rífa kirkjuna
og hóf verkið á sama stað og
eldurinn kom upp. Þennan
draum dreymdi hann fyrir um
ári síðan og voru þá engar lik-
ur til, að hann *mundi vinna
þetta verk.
Og i þeirri trú, að „loginn
helgi“ eigi að lýsa og ljóma í
nýju kirkjunni á Staðastað — í
nafni Jesú Krists hefjumst við
handa.
Svo kveð eg ykkur gömlu
Staðsveitungar og ykkur öll sem
þessar línur Iesið og óska þess,
að loginn helgi megi lýsa ykkur
öllum æfinlega.
Guðmundur Helgason.
Sóknarprestur.
Bæjap
fréttír
Nætnrlæltnir.
Úlfar Þórðarson, Sólvallagötu
18, sími 441 r. —- Næturvörður er
í Lyfjabúðinm Iðunni.
Jón frá Hvoli
biður þess getið, að hann sé flutt-
ur á Skólavörðustíg 22 A.
Bílslys
, all-alvarlegt, varð á sunnudags-
morgun í brekkunni hjá Ártúni. Ók
vörubifrelðin R-261 út af vegbrún-
inni og valt niður alla brekkuna,
sem er mjög brött og 40—50 metra
löng. Hermann björguðu bílstjór-
anum út úr stýrishúsinu. Heitir
hann Ari Agnarsson og er mikið
meiddur, aðallega innvortis. Var
hann fluttur á Landsspitalann og
þar liggur hann nú þungt haldinn,
að því er blaðið fregnaði í morg-
un, er leitað var upplýsinga um líð-
an hans á spítalanum.
Áætlunarbíll
til Hólmavíkur féll nýlega niður
um ræsi, skammt frá Stórholti í
Dölum og sat þar fastur í 2 klukku-
stundir. Einn unglingspiltur skrám-
aðist lítillega, en annars var mildi,
að ekki hlauzt af alvarlegra slys.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Lög úr
óperettum og tónfilmum. 20.00
Fréttir. 20.30 Erindi: Um sprengi-
efni (Bjarni Jósepsson cand. polyt.)
20.55 Tuttugu ára afmælisminning
„Lúðrasveitar Reykjavíkur": a)
Avarp: Páll ísólfsson. b) Lúðra-
sveitin leikur. c) Áva^>: Óskar
Jónsson prentari. d) Lúðrasveitin
leikur (stjórnandi Karl O. Runólfs-
son). 21.35 Hljómplötur: Píanó-
konsert eftir Liszt. 21.55 Fréttir.
V eitinga§aliriiii'
í Oddfeliowlmsinu
opnaöir annað
kvöld 8. þ. m.
Hljóm§veit Aa^e Loraii^e spilar
Iðnfpírtæki
Af sérstökum ástæÖmn er til sölu stórt iðn-
fyrirtæki í fullum gangi. Ekki veittar upplýs-
ingar í síma.
Egill Siguxgeirsson
hæstaréttarlögmaður.
Austurstræti 3.
Allskonar
skófatnaður
Karla
kvenna
og barna
fyrirliggjandi í mikln úrvali
Ásbjörn ÓlafssoiD
HEILDVERZLUN.
Einbýlishús
á göðum stað i bænum óskast keypt. Væntaníegur selj-
andl getur fengið leigða, eða keypta, 5 herbergja ibúð
í liúsi á bezta stað í bænum. Geiur einnig fengið keypt
hálft húsið, ef það hentar. Nafn og heimilisfang væntan-
legs seljanda óskast sent blaðinu, merkt: „Einbýlishús‘\
Stdlku vantar
í eldhúsið á Kleppi.
Upplýsingar hjá ráðskonunni. Sími 3099.
Síiilkii
vantar að Vífilsstöðum.
Upplýsingar hjá yfirh iúkrunarkonunni.
Sími 5611.
Systir okkar,
Vilhelmína Bernhöít
verður jarðsungin í dómkirkjunni fimmtudaginn 9. júlí kl.
IV2 eftir hádegi.
Franciska Olsen. Daníel Bernhöft.
' *