Vísir - 15.07.1942, Blaðsíða 4
VISIR
Gamla Bíó
Virginía
Axnerisk stórmynd, tekin í
eðlilegum litum.
FRED MACMURRY.
MADELEINE C ARROLL.
Sýnd kl. 7 og 9.
FRAMHALDSSÝNING
kl. 3V4-^3y2.
ISII
með Jeam Hersholt.
2ja tisrbereia ibðö
'óskast strax eða í. október. í
heimili er aðeins ein kona og
1 9 ára telpa. Eips árs fyrir-
framgreiðsla ef óskað er. —
Paula Bteidon,
p. t. Skíðaskálanum.
;
í fja»*vepu
minni til 15. ágúst gegnir hr.
læknir Þórður Þórðarson
læknisstörfutn mínum. Við-
talstimi lians er kl. 1—3,
Austurstræti 4. —
Óskar Þórdarson
lækntr.
I
Skipti.
Hús, má vera í útjaðri
bæjarins, óskast í skiptum
fyrir lítið hús i itænum. Til-
boð, merkt: „Skipti“ sendist
Vísí fyrir laugardagskvöld.
SEtOchrome
— Selókróm—filmur
seldar í Etæstu búð.
Gólfdúkar
JHroinar
1ér€ftsin»kur
kaupir hæste verCi
Félagsprentsmiðjan %
Í2 naaauiia
Bakelite-glös (stór og lítil
með mvndum) , ralcvélar og
fleira.
Galvaneseraðaryfötur, balar
<og margtfleira. —
WmJ, Mutla
iLaugaveg 68.
Tilkyiming
irá Viðskiptaneínd
Frá 15. þ.m. og til næstu mán-
aöarmóta verður skrifstofa
Viðskiptanefndarinnar aöeins
opin kl. 10-12 f. h.
Reykjavík 14. júlí 1942
VIÐSKIPTANEFNDIN
KAUPAMAÐUR
óskast nú J>egar á gott sveitaheimili niálægt Reykjavík. Hátt
kaup. — Röskur unglingur vanur sveitavinnu getur komið til
greina. — Uppl. í síma 1054. .
GASTON LERROUX:
LETND ARDOMUR
GULA HERBERGISINS
og morðinginn komið út. En
bér verðum við að gera ráð fyr-
ir, að Stangerson hafi haft
knýjandi ástæður til að stöðva
ekki morðingjann eða leyfa hon-
um að komast undan, fyrst
hann hefir hleypt honum út um ,
gluggann á anddyrinu og lokað
honum á eftir honum! En nú ,
1
mátti liann búast við Jaques
gamla inn á hverri stundu, og
hann varð að finna allt í sömu
skorðum og fyrr. Hefir liann
vafalaust grátbænt dóttur sína ,
um að loka aftur hurðinni að
„gula herherginu", bæði með
lykli og slagbrandi, og hún not-
að til þess síðustu krafta sina,
þrátt fyrir sárin, og lniígið að
því búnu deyjandi niður á gólf-
ið. Við vítum ekki, hver liefir
framið glæpinn. Við vitum elcki,
hver það er, sem hefir Stanger- j
son og dóltur lians svo á valdi !
sínu. En á því er enginn efi, að
þau vila það! Það lilýtur að vera
ægilegt leyndarmál, sem knýr 1
föður til að skilja deyjandi dótt- j
ur sína eftir á hak við hurð, og
sjá þana loka sig inni, og láta
svo morðingjann sleppa. En
önnur skýring er alls ekki til á
þvi, hvernig morðinginn hefir
komizt út úr „gula herberg-
inu“!“
Það var ónotaleg þögn, sem
fylgdi þessari áhrifamiklu og
snilldarlegu skýringu. Við
kenndum §árt í brjósti um hinn
víðfræga prófessor, sem Frédé-
ric Larsan knúði með sinni
vægðarlausu rökvísi til að játa
fyrir okkur sannleikann um
píslarvætti sitt, eða þá til að
þegja, en það var i rauninni enn
átakanlegri játning. Hann reis á
fætur, sem sannkölluð ímynd
sorgarinnar, og rétti út hönd-
ina með svo hátíðlegu látbragðí,
að við lutum allir höfði, líkt og
við stæðum, frammi fyrir
heilagri sýn. Hann mælti þessi
orð með liárri röddu, sem virt-
ist tæma síðustu krafta hans:
„Eg legg eið út á það, og sver
það yfir höfði dauðvona dóttur
minnar, að eg vék ekki frá þess-
ari hurð frá þvi augnahliki, er
eg heyrði örvæntingaróp barns-
ins míns, að þessi hurð opnaðist
eklci, meðan eg var einn í rann-
sóknarstofunni og loks að morð-
inginn var ekki inni í „gula her-
berginu“, þegar eg og vinnuhjú
min þrjú komum inn í það. Eg
sver það, að eg þekki ekki morð-
ingjann!“
Það er víst óþarfi að taka það
fram, að þrátt fyrir þennan há-
tíðlega eið Stangersons trúðum
víð ekki meira en svo orðum
hans. Frédéric Larsan var að
enda við að gefa okkur hug-
mynd um sannleikann i máli
þessu, og við vildum ekki láta
taka hann frá okkur svona um
leið.
De Marquet lýsti því yfir, að
„umræðunum“ væri lokið, og
við hjuggumst öll til að fara út
úr rannsóknarstofunni. En hald-
ið þið ekki, að ungi fréttaritar-
inn, þessi snáði hann Joseph
Rouletabille, gengi þá til Stang-
ersons, taki í hönd honum með
liinni mdstu virðingu, og eg
lieyri hann segja:
„Eg trúi yður, herra m,inn!“
Eg læt hér lokið þeim kafla,
sem eg hefi talið mér skylt að
tilfæra úr frásögn herra Mal-
eine, réttarskrifarans í Corbeil.
Eg þarf varla að bæta því við,
að Rouletabille sjálfur sagði
mér þegar í stað allt það, sem
fram hafði farið i rannsóknar-
stofunni.
XII.
Göngustafur Frederics Larsan.
Eg hjóst til að fara úr höll-
inni klukkpn um, sex um kvöld-
ið, og var eg með grein, sem
vinur minn hafði liripað í flýti
í litla salnum, sem Rohert Dar-
zac hafði fengið okkur til af-
nota. Fréttaritarinn ætlaði að
sofa í höllinni, og naut hann
þar þessarar óskiljanlegu gest-
risni, sem Robert Darzac lét
Bcej ar
fréttír
Gangleri,
I. hefti XVI. árg., flytur m. a.:
Af sjónarhóli: Herra Jón Jónsson
og ódauöleikinn, Bókstafurinn og
andinn, Dulfræöi og dulspeki, allar
greinarnar eftir Grétar Fells. Enn-
íremur: Hljómkviöan helga eftir
Kristmund Þorleifsson, Meistarar
eftir Þorlák Ófeigsson, Ferðin upp
fjalliö eftir Víglund Möller, Innri
leiöin eftir P. Brunton, þýtt af
Guörúnu Indriöadóttur, Lýöræöiö
og forskólar þess eftir Jón Árna-
son prentara, o, fl. o. fl.
íþróttaxáð Reykjavíkur
biður þess getið, að allir vænt-
anlegir keppendur í allsherjarmót-
inu veröi að sýna formanni ráös-
ins læknisvottorð sitt áður en mót-
iö hefst. Læknisvottorð frá heim-
ilislækni gilda, ef vottorö frá í-
þróttalækni er ekkí fyrir hendi.
Trúlofun.
Nýlega hafa .opinberaö trúlofuil
sína ungfrú Borghildur Asgeirs-
dóttir, Mánagötu 3 og Sergeant
Kenneth Hollinson í brezka flug-
hernum.
Töður
hrekjast nú mjög á Norðurlandi
vegna sífelldra óþurrka. Liggja
þær undir stórskemmdum, að því
er fréttaritari Vísis á Akureyri
hefir símað.
Frá Sumardvalarnefnd.
Nefndin hefir nú þessa daga
haft samband viö öll barnaheim-
ilin. Heilsufar og liðan barrtanna
er yfirleitt ágæt, öll börnin vel
frísk.
83 ára
er í dag ekkjan Sigríöur Þor-
láksdóttir, til heimilis á Shellveg
4- —
Hjónin,
sem tóku úrið hjá úrsmiönum
í gær, eru vinsamlega beðin aö
skila því í dag, svo aö ekki veröi
íariö til lögreglunnar.
Næturlæknir
Karl Sig. Jónasson, Kirkjustræti
4, sími 3925. Næturvöröur í Ing-
ólfsapóteki.
Útvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Söngvar úr
óperum. 20.CX) Fréttir. 20.30 Er-
indi: Um áfengismál (Felix Guö-
mundsson umsjónarmaður). 20.50
Hljómplötur: Orgellög. 21.00 Tak-
iö undir! (Þjóðkórinn — Páll Is-
ólfsson stjórnar).
r\r
SHIPAUTGE
Es|a
Burtferö
kl. 12
í kvöld
Komplett
golftæki
ásamt poka, til sölu. Uppl. í
síma 1015 ld. 5—1 í dag.
Félagslíf
ÆFING i kvöld kl. 8V2 hjá
meistaraflokki og 1. og 2. flokki.
Mætið allir. — Stjórnin. (263
^ruNDiŒmrih
STÚKAN EININGIN NR. 14.
Fundur í kvöld! kl. 8 >/2. Að lokn-
um fundi dans. Góð músik. (259
TEKNIR menn í þjónustu. —
Uppl. Grettisgötu 45, kjallara.
(255
TVÆR stúlkur óska eftir
léttri vinnu (ekki vist), helzt á
sama stað. Tilhoð sendist Vísi
fyrir föstudagskvöld, merkt
„Létt vinna“. (257
TAU tekið til þvotta og
strauningar. Þvottahúsið Vest-
urgötu 32. (268
STÚLKA, sem hefir herbergi,
óskast til lieimilisstarfa hálfan
eða allan daginn Fátt fólk. —
Uppl. Öldugötu 19. (258
RÁÐSKONU vantar í sveit.
Má vera með stálpað barn. Gott
kaup. Uppl. Laufásvegi 25,
(kjallara). (262
KAUPAKONA óskast austur
í Laugardal. Uppl. á Laugavegi
63, 2. hæð. (266
ITtPAOTHNDTO]
IvARLMANNS-armbandsúr
tapaðist s.I. laugardagskvöld,
sennilega frá Landspitalanum
að Skólavörðustíg 36. Finnandi
vinsamlegast skili þvi gegn
fundarlaunum á Skólavörðu-
stíg 36. Sími 5594. (267
Nyja Bíó
tmii
(Diamond Frontier).
Spennandi og æfintýrarík
mynd. Aðalhlutverkið leika:
VICTOR McLAGLEN,
ANNE NAGEL
og JOHN LODER.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára fá
ekki aðgang.
IKADPSKAPIIKI
Vörur allskonar
HEIMALITUN heppnast bezt
úr litum frá mér. Sendi um all-
an bæinn og út um land gegn
póstkröfu. Hjörtur Hjartarson,
Bræðraborgarstío 1. Sími 4256.
NÝ myndavél til sölu, stærð
6x20. Urðarstig 7 B._____(256
NÝ vindsæng til sölu. Uppl.
gefur Kristján Sigurðsson á
Þórsgötu 20, frá 8—9 í kvöld.
(265
POIvAR. Nokkur hundruð
hálftunnupokar á I kr. stk„ ný-
ir og hreinir. VON, simi 4448.
________________________ (271
TIL SÖLU gasapparat. Uppl.
síma 4304. (272
TIL SÖLU ný veiðistöng, á-
samt hjóli, ferðagrammófónn
og tjald. Uppl. í síma 5588, Há-
vallagötu 45 (kjallara). (273
Notaðir munir til sölu
TVÖ karlmannsreiðhjól til
sölu á Sólvallagötu 18. (254
TIL SÖLU rykfrakki á kven-
mann og ný kvenkápa. Uppl.
á Leifsgötu 18 (neðstu hæð).
__________________________(261
ÚTVARPSTÆKI til sölu. Skó-
vinnustofan, Barónsstig 18. —-
Sími 5175. (264
Notaðir munir keyptir
VIL KAUPA waterproof
veiðistakk, meðalstærð. Uppl. í
síma 3479. (269
NOTUÐ borðs tof uhúsgögn
óskast keypt. Uppl. í síma 9290.
(276
KIIUSNÆfilÍ
íbúðir óskast
UNG HJÓN óska eftir 1—2
herbergjum og eldhúsi sem
fyrst, eða í haust. Tilboð merkt
„íbúð“ sendist afgr. Vísis. (260
JoJtMon
apa.-
TEIKNARI: STEEÁvN JÓNSS0N
Np, 28
Um langa hríð lágu sóldýrkend-
urnir í felum, meðan einn þeirra
leitaði. En svo kom hópurinn fram
úr fylgsnum sínum, þegar leitar-
maðurinn kom aftur, eftir að hafa
livorki fundið mann eða dýr. Svo
héldu villimennirnir áfram ferða-
lagi sínu og Nína litla með.
Þegar aóldýrkendurnir voru
horfnir, tóku Kalli og Nonni á-
kvörðun um að fylgja þeim eftir.
„Þetta er stúlkan, sem var rænt,“
sagði Kalli, „oé við verðum að
hjarga henni. Það er eina leiðin
til þess að bjarga Tarzan. Eg hata
að sjá hana með þessum djöflum.“
„Kannske þetta séu mannætur
og 'að þeir ætli að éta hana,“ svar-
aði Nonni, „við verðum að finna
einhver ráð. Einhver ráð — en
hver? Ef við reynum að stela henni
frá þeim, þá talca þeir okkur líka.
En við verðum að reyna — það er
eina leiðin. Áfram!“
Þeir flýttu sér og hugsuðu ekk-
ert um sín eigin Iíf, heldur aðeins
um að bjarga stúlkunni og Tarzan.
Þeir voru tveir á móti tuttugu: En
þeir voru svo hraustir og kjark-
miklir og ákváðu að tefla upp á
lif og dauða — enda var um ekk-
ert annað að ræða.