Vísir - 20.08.1942, Blaðsíða 1

Vísir - 20.08.1942, Blaðsíða 1
 Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Btaðamenn Simi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 32. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 20. ágúst 1942. 166. tbl. Novorossisk og Tuapse í aukinni hættu. Stntt ogr lasrgrott. Venezuela og Rússland liafa ekki haft með sér stjórnmála- samband síðan fyrir byltinguna. JNTú er liklegt að það verði tekið upp. • Hollendingar liafa nú eignazt annan tundurspilli í stáð „Jan A^an Galen“, sem var sökkt í Rolterdam í maí 1940. Er nýja skipið komið til Ástraliu. • Hermálaráðuneytið í Wash- ington skýrir frá því, að flutn- ingaflugvélar ameríska hersins hafi flutt 5000 særða menn til Indlands frá Burma, þegar bar- izt var þar. Flugvélar voru stundum, með 3svar þyngri farm <en venjulega. Fregnii- hafa borizt um það til London, að Christiansen liershöfðingi, er stjórnar setu- liði Þjóðverja, hafi fengið skip- un um að flytja aðalbækistöðv- ar sinar frá Haag og lengra inn i land. • Arthur Hepburn, flotaforingi ameríska flotans, hefir látið svo um rnælt, að herskipatjón Jap- ana — talið í smálestum — muni vera allt að fimrn sinnum meira en tjón Bandaríkjanna. • Siðan 18. marz hafa yfirvöld Brazilíu tekið rúml. 400 njósn- ara höndum. Eru þeir hafðir í lialdi víða um landið, m. a. í fangabúðum á evnni Ilha das Elores i Rio-liöfn. á • Tass-fréttastofan rússneska •skýrir frá því, að milljónum flugmiða frá rússnesku her- stjórninni hafi verið varpað niður að baki víglína Þjóðverja. Á flugmiðunum voru bændur hvattir til að fylla þýzku her- mennina með blýi en ekki brauði. • Lauglilin Currie, einkaerind- reki Roosevelts, sem hefir verið í Kina og Indlandi, er nú lagður -af stað heimleiðis frá New Delhi. • Tveir háttsetlir menn i Peru liáðu einvígi í siðustu viku. Annar — Guillermo Garido — er ráðherra, en hinn — Arturo Galvez — þingmaður. Einvígið var hað á engi fyrir utan Lima. Yar notast við skammbvssur, en hvorugur reyndi að hæfa hinn og þá var heiðrinum borgið. • ítalir í öllum löndum Amer- íku, sem hafa með sér „sam- band frjálsra Itala“, hafa haldið þing i Montevideo og krafizt þess, að þeir, sem fremji glæpi í nafni ítalíu, verði látnir sæta ábyrgð eftir stríðið. • Réttarhöld fara nú fram gegn Gerhard Kunze, fyrrum for- manni þýzk-ameríska sam- ■ bandsins. Hefir liann skýrt frá þvi, að hann hafi búizt við árás Japana þegar í janúar 1941. • Japanir hafa byrjað sókn á ný til að reyna að lirekja Iíín- verja alveg frá Chekiang — Kiangsi-brautinni. Hafa þeir gert mörg áhlaup á Ilengfeng, en Kínverjar hrundið j>eim öll- um. Litlar breytingar yfirleitt á vígstöðvunum. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Rússar hafa nú tilkynnt, að þeir liafi hörfað úr borginni Krasnodar, en Þ jóðverjar tilkynntu fyrir einni til tveimur vikum, áð þeir hefði tekið hana. Með þessu móti nálgast mjög hættan, sem hefir vofað yíir hafnarborginni Novorossisk, en hún var stærsta bækistöð rússneska flotans við Svartahaf. Hafnarborgin Tuapse er líka í m jög aukinni hættu, þar eð Rússar urðu að yfirgefa Maikop fyrir fáeinum dög- um. • Fregnir bera það yfirleitt með sér frá austurvígstöðvunum, að um litlar breytingar er að ræða. Þó virðist Þjóðverjum hafa miðað eitthvað austur á hóginn þar sem þeir eru komnir syðst í Kákasus —• í áttina til Grosny-olíulindanna. Suðaustur af Kletskaya í Don- bugðunni lcveðast Rússar liafa hrundið mörgum áhlaupum Þjóðverja, þar sem bæði var heitt skriðdrekum og fótgöngu- liði. í einni árásinni segja Rúss- ar að hafi verið um 100 skrið- drekar og voru 31 þeirra eyði- lagðir eða skemmdir. II já Kotelinkovo er enn bar- izl af miklu kappi og segjast Rússar ekki hafa hörfað þar neitt síðast liðna viku. Tass-fréttastofan rússneska lieldur því fram, að Þjóðverjar liafi að undanförnu flutt mikið lið frá öðrum löndum Evrópu austur til Rússlands. Segir hún að 22 herdeildir (um 400.000 menn) hafi verið fluttar frá' Frakklandi, Belgíu og Hollandi. en auk þess liafi Þjóðverjar fengið 70 hcrdeildir (1.4—1.5 rnillj. manna) frá Ítalíu, Rúm- eníu, Ungverjalandi og Slovakíu. Jafnframt hafa verið myndaðar nýjar sjálfboðaliðasveitir í Belgiu, Hollandi og Spáni. — Vegna þessa mikla liðsauka geta Þjóðverjar teflt fram meira liði víða á vígstöðvunum, en Rússar hafa á að skipa og því hafa þeir getað sótt fram og tekið mikið lanj syðst á vígstöðvunum. — Miklu hefir tekizt að koma und- an af vélum úr þeim héruðum, sem Þjóðverjar hafa vaðið yfir, segir að lokum í tilkynningunni, en þó hafa Rússar orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Brezkir kafbátar að verki. Brezkum kafbátum hefir orð- ið nokkuð ágengt í hernaðinúm gegn skipum möndulveldanna að undanförnu. Herstjórnin í Kairo skýrir frá því, að kafbátar, sem eru að verki i Miðjarðarhafi, hafi sökkt einu stóru flutningaskipi og næstum því sé víst, að öðru hafi verið sökkt, en auk þess hafi tvö laskazt af tundurskeyt- um. Við Noreg hefir brezkur kaf- bátur sökkt tveim skipum af þrem, er voru vernduð af her- skipum. Stjórnin í Eire skýrir'frá því, að níu brezkir striðsfangar hafi ! sloppið úr fangabúðum í fyrra- dag og leiki sex þeirra enn laus- um liala. Stærsta tsprengjuflugvél í Iieimi Aströlsku beiti- skipi sökkt. Það er tilkynnt í Ástralíu, að beitiskipinu Canberra hafi ver- ið sökkt við Salomonseyjar. Skipinu var sökkt í fyrstu við- ' ureigninni við japönsk lierskip þar — aðfaranótt þ. 8. ágúst — og af 816 manna áhöfn fórust 84, en rúmlega 100 særðust. Litlar fregnir berast enn af bardögunum á eyjunum, en fréttritari U. P. í Auckland — aðalbækistöð Bandaríkjaflotans á Anzac-svæðinu ^— símar, að þar telji menn ekki ósennilegt, að sveitir úr hernum liafi verið sendar til liðveizlu við land- göngulið flotans. Bandaríkj aherinn í Evrópu fær eld- skírnina. Aðalliðið var á landi í níu klst. Strandhöggið í gær, sem var það lengsta, er Bretar hafa framkvæmt, var eldskírn Bandaríkjahersins í Evrópu. Franskar sveitir tóku einnig þátt í strandhögginu og var þeitta í fyrsta skipti sem þær höfðu barizt við Þjóðverja á franskri grund síðan í júní 1940. Stærsta sprengjuflugvél í heimi, Douglas B-19, sem hér sést mynd af, er ekki eins þekkt og „fljúgandi virkin" eða Liberator-flugvélarnar, en menn geta gert sér nokkra liugmynd um stærðina með því að bera hana saman við manninn og litlu flugvélina við hliðina á. Þesi vél kost- aði 31/2 millj. dollara og vængjahafið er meira en hæð 17 hæða liúss. Forseti €liile beimsækir U.S. Juan Antonio Rios, forseti Chile, er væntanlegur í heim- sókn til Bandaríkjanna innan skamms. Cordell Hull utanrikisráð- herra, liefir skýrt blaðamönnum frá því, að sambúð ríkjanna muni verða rædd á mjög breið- um grundvelli, og fyrst og fremst talað um viðskipti og fjármál. Chile hefir ekki enn fengizt til að slíta stjórnmálasambandi við öxulríkin, en þessi heim- sókn mun styrkja mjög sam- lieldni Ameríkuríkja. Verkaiýðssam- bönd U.S. semja í Bandaríkjunum er búizt við, að verkalýðssamböndin þar semji frið á næstunni. Samkeppni þeirra um hylli verkalýðsins liefir jafnan stofn- að vinnufriðinum i hættu. Nú hefir forseti Congress for In- dustrial Organization stungið upp á því, að haldin verði frið- arráðstefna í næsta mánuði og American Federation of Labor hefir fallizt á það. Ef friður semst mun það liafa mjög örvandi áhrif á alla fram- leiðslu til styrjaldarþarfa. Brezka herliðið eyðilagði fall- byssustæði, skotfærabirgðir og radiómiðunarstöð og var það til- gEfngur fararinnar, en auk þess fékkst þarna ómetanleg reynsla i að flytja þung hergögn og mik- ið lið til innrásar. Notaðar voru nýjar tegundir innrásarbáta og munu þeir hafa reynzt vel. . Fluglið tók mikinn þátt í bar- dögunum af beggja hálfu og hafa ekki verið háðir aðrir eins , loftbardagar í Veslur-EvrópXi, síðan orustan um Bretland fór fram fyrir tveim árum. Bretar kveðast hafa skotið niður 91 þýzka flugvél og misst sjálfir 98, en 30 flugmenn liafa bjargazt. Auk þess telja þeir sig hafa laskað og e. t. v. eyðilagt 100 þýzkar flugvélar að auki. Farið var til loftárása á ýmsa staði í námunda við Dieppe, svo sem Abbeville, en þar gerðu fljúgandi virki mikla árás. Brezk blöð fagna strandhögg- inu og segir t.d.News Chronicle, að þetta sé aðeins undanfari stærri atburða. FRÁSÖGN ÞJÓÐVERJA. Þjóðverjar halda því fram, að Bx-etar hafi verið að reyna inn- rás og hafi um 20.000 manns vei-ið sendir suður yfir sundið i 300—400 innrásarbátum. Af lxessum mönnum hafi 1500 ver- Brostu of mikið til piltanna! • Boeing-flugvélafélagið (það smíðar fljúgandi virkin) hef- ir ákveðið að láta kvenfólk hætta að starfa með karl- mönnum í verksmiðjum. — Þvkir stjórn félagsins sumar þeirra gera of mikið af því að gefa piltunum hýrt auga og hjá sumum fari meiri tími í þetta en sjálfa vinnuna. ið teknir til fanga, en af skrið- drekunum, senx. liðið hafði með- fcrðis, liafi 28 verið eyðilagðir. Þá segja Þjóðverjar, að mikill skipafloti hafi verið innrásar- liðinu til varnar, og hafi lxann líka orðið að gjalda mikið af- hroð. Sjö skipum var sökkt, segja Þjóðverjar, þ. e. 3 tundur- spillum, 2 tundurskeytabátum og 2 flutningaskipum. Auk þess löskuðust 5 beitiskip eða stór- ir tundurspillar og 2 litlir tund- urspillar. Loks voru 83 flugvélar skotnar niður, segja Þjóðverjar. Bretar segja hinsvegar, að hér liafi alls ekki verið um innrás að ræða, því að liðið hafi verið flutt burt á fyrii’fram. ákveðnum tíma, eða aðeins sex mínútum á eftir áætlun. STALIN HEIMTAR AÐRAR VlGSTÖÐVAR. Þýzka útvarpið segir, að til- efni þessarar innrásartilraunar hafi verið það, að i byrjun þessa mánaðar hafi Stalin krafizt þess skilyi-ðislaust, að nýjar víg- stöðvar yrði stofnaðar. Tilkynnti Maiski þetta í Lon- don og Litvinoff í Washington. Þetla varð til þess, að Churchill fór til Moskva til að fá Stalin til að falla frá þessari kröfu, en við það var ekki komandi. Var því lagt í þessa innrásartilraun. Wenchow á valdi Kín- verja. Kínverjar hafa tekið hafnar- borgina Wenchow í Chekiang- fylki, hermir .tilkynning .frá Chungking. Undanfarna 2—3 mánuði hef- ir þessi box-g verið lil skiptis í höndum Japana og Kínverja. Japanir tóku liana til að stöðva um hana vopnasmygl, en Kín- verjar náðu lienni aftur. Tólf stundum eftir að Iíinverjar höfðu tekið hana, lögðu Japanir aftur til atlögu og sigruðu. En nú liafa Kínverjar náð henni enn einu sinni. Ævintýri olíu- skipsins. Bretar misstu fjögur herskip í skipalestarorustunni á Mið- jarðarhafi í síðustu viku. Búið var.að tilkynna um tvö skipin, Eagle og Manchester, en að auki var sökkt tundurspill- inum Forsight og' loflvarnaskip- inu Cairo. I skipalestinni var m. a. ainer- iskt olíuskip, Ohio, með brezkri áhöfn. Var búizt við að gerðar yrði sérstaklega hai'ðar tilraunir til að sökkva því og reyndist sii. tilgáta rétt. Tundurskeyti liæfði skipið snemma í orustunni og varð það að heltast úr lestinni. Skipverjar komu vélinni aftur af stað og gat skipið náð skipalestinni, en litlu siðar lenti á þilfari þess steypiflugvél, sem skotin hafði verið niður. Kviknaði þá i skip- inu og það heltist á ný úr lest- inni. Skipverjum tókst að ráða niðurlögum eldsins og koma skipinu af stað, en nú var hrað- inn aðeins 2 milur. Þá kom enn flugvélahópur og sprengja, senx hæfði skipið, eyði- lagði vélina, svo að ekki varð við hana gert. Tundurspillar höfðu fylgt skipinu og þeir reyndu nú að draga það til lands. Gátu þeir dregið j>að 20 mílur,en hættu þá við það, vegna þess, hve gífurlegum loftárásum var haldið uppi i sífellu. Mennirnir af Ohio voru teknir 1 m borð i tundurspillinn og sið- an var þvi sökkt með tundur- skeyti. ferðarbðno f Þýzka útvarpið skýrir frá því, að skæruflokkar sé mjög uppi- vöðslusamir víða í Júgóslavíu, en þó einkurn í Bosníu. í Zagrcb, liöfuðborg Króatíu, hefir verið sett umferðarbann vegna margra liex-mdarverka, sem unnin hafa verið gegn fylgismönnum Pavelitsch, sem er forsætisráðheiTa stjórnarinn- ar. ( I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.