Vísir - 03.09.1942, Page 3
V ISIR
Ung stúlka
frá góðu heimili iá Akureyri óskar eftir herbergi í Reykjavík í
vetur. — Til mála gæti komið að sá er herbergið útvegar gæti
fengið gott herbergi á Akureyri, ef svo stæði á að þannig skipti
væri hagstæð fyrir viðkomanda. Tilboð, merkt: „Pósthólf 123,
Akureyri“, sendist fyrir 7. sept.
Samningstakar
um ílutninga á vörubílum.
Samningstökum þeim um flutninga á vörubílum, sem geta
útvegað þrjátiu (30) eða fleiri 2% til 3ja tonna vörubíla i góðu
standi, er hér með boðið að senda tilboð i að annast flutninga
á vörubílum fyrir Bandaríkjaherinn. Samningar munu verða í
gildi frá 1. október 1942 fram að 31. desember 1942. — The
Office of the Engineer, Bandarikjaherinn, Camp Curtis, veitir
frekari upplýsingar alla daga frá kl. 8.00 f. h. til kl. 5.00 e. h.
— Innsigluðum tilboðum verður veitt móttaka í the Office of
the Engineer, hvenær sem er fyrir kl. 2.00 e. h., föstudaginn
11. sept. 1942, og munu þau þá verða opnuð í allra viðurvist.
Hús
í Þingholtunum er til sölu.
3ja herbergja íbúð er laus í því frá 1. október n. k. —
Sem ja ber við
Kri§t|án Knðlangf§son
hæstaréttarlögmann.
Hverfisgötu 12. — Sími: 3400.
Tilkyimiiig:
Frá og með deginum í dag hækka fargjöld með vögn-
um vorum sem hér segir:
Á leiðinni Læk jartorg — Kleppur
- ---- ------- — Rafstöð
- —r- -------- — Fossvogur
------" --- — Seltjamarnes
- ---- ------- — Sólvellir
- ---- ------- — Njálsgötu-Gunnarsbraut.
Hækkar 20 aura gjald í 25 aura
--- 30 — — í 40 —
--- 40 — — í 50 —
Á leiðinni Læk jartorg — Sker jaf jörður
hækkar 20 aura gjald í 25 aura
--- 25 — — í 30 —
---1 30 — — í 35 —
Ath. Fargjöld barna verða eins og verið hefir % far-
gjald miðað við fullorðna, nema innanbæjar 10
aurar í stað 12% eyrir, og í Sker jaf jörð 15 aurar,
en ekki 17% eyrir.
Reykjavík, 2. sept. 1942.
STRÆTISYAGNAR REYKJAVÍKUR H.F.
L ' ------------
Kventöskur
úr gervileðri, ÓDÝRAR, fyrirliggjandi.
HEILDVERZLUN KR. BENEDIKTSSON.
(Ragnar T. Amason).
Garðastræti 2. Sími: 5844. '
Bökin
sem KOMMÚNISTUM er svo vel við, heitir:
Hlekkjuð þjöð.
Fæst í bókaverzlunum.
Hálfdán Helgason próíastur kjörinn
.formaður Prestafélags Suðurlands.
Ársfundur að Þingvöllum 30. og 31 ágúst s. 1.
Prestafélag Suðurlands hélt
ársfund sinn dagana 30.—31.
ágúst síðastl.
Sunnudaginn 30. ágúst sungu
félagsmenn messu í söfnuðum
Reykjavíkur og Mosfellspresta-
kalls, svo og í Þingvallakirkju.
Að guðsþjónustum loknum
héldu fundarmenn til Þingvalla,
og fóru fundahöldin fram i
Þingvallakirkju. Var þar flutt
um kvöldið af sr. Sigurði Páls-
syni erindi um Kristið tíðahald.
Síðan annaðist kvöldbænir sr.
Brynjólfur Magnússon í Grinda-
vík.
Á mánudagsmorgun hófst
fundur með morgunbæn, er sr.
Bjarni Jónsson vigslubiskup
annaðist. Þá minntist fonuaður,
sr. Guðmundur Einarsson á
Mosfelli, látinna bræðra, þeirra
dr. Jóns Ilelgasonar biskups og
sr. Gísla Skúlasonar prófasts, og
vottuðu fundarmenn minningu
þeirra virðingu sína með þvi að
rísa úr sætum.
Þá er ársreikningur hafði verið
samþykktur, var félagsstjórn
kosin. Sr. Guðm. Einarsson,
sem verið liefir formaður félags-
ins fná stofnun þess við hinn
bezta orðstir, skoraðist undan
endurkosningu. Var sr. Ilálfdan
Helgason prófastur, sem verið
hefir féhirðir, kosinn formaður
í hans slað. Ritari var endurkos-
inn sr. Sigurður Pálsson og fé-
hirðir var kosinn sr. Garðar
Svavarsson. Meðstjórnendur
þeir prófastarnir Jón Þorvarðs-
son í Vík, og Sveinbjöm Högna-
son á Breiðabólsstað voru end-
urkosnir.
Þá var einhljóða samþykkt
að gera sr. Guðmund Einarsson
að lieiðursfélaga. Að loknum
þessum hluta fundarstarfanna
var ÞingvöIIur skoðaður undir
leiðsögn sr. Guðm. Einarssonar,
sem liefir rannsakað mjög ræki-
lega staðinn og sögn hans.
Síðari hluta dags fóru svo
fram umræður um trú í kristi-
leg-um skilningi. Framsögu
liöfðu sr. Sigurbjörn Einarsson
og sr. Árni Sigurðsson. Að
loknum erindum þeirra urðu
talsverðar umræður, sem komu
víða við, eins og vænta mátti,
þar sem um svo víðtækt efni var
að ræða. Einstök minniháttar
deiluatriði trúmálastefnanna í
landinu hai’ á góma, en yfirleitt
virtust fundarmenn og ræðu-
menn fremur líta svo á, að önn-
ur verkefni kristinnar kirkju
væru stærri og merkilegri en
smávægilegur fræðilegur á-
greiningur einstalcra þjóna
hennar. Munu þeir og margir
innan Prestafélags Suðurlands,
sem telja félagið til þess stofnað,
að styðja bróðurlega einingu og
samstörf félaganna. Og í þeim
einingar og samstarfsanda hefir
félaginu verið stjórnað af þeim,
sem einkum hafa borið hita og
þunga forustunnar í fram-
kvæmdinni. Er full ástæða til að
treysta því að svo verði fram-
vegis.
Fundinum lauk með bróður-
legu ávarpi hins nýkjörna for-
manns.
Iiéldu svo fundarmenn heim
til sín á mánudagskvöld.
Á. S.
ALÞINGI
Framsóknarflokkurinn
og ríkisstjórnin.
Þrír framsóknarmenn, J. J.,
S. H. og J. B. liafa borið fram
þingsályktunartillögu í samein-
uðu þingi, varðandi núverandi
ríkisstjórn og segja þeir í grein-
argerð, að það sem nú skipti
„meginmáli sé, að alþingi marki
henni (þ. e. ríkisstjórninni)
réttan bás.“
Tillagan, en hennar verður
nánar getið síðar, hljóðar svo: .
„Sameinað Alþingi ályktar
að lýsa yfir því, að með því að
vitanlegt er, að núverandi ríkis-
stjórn liefir ekki lengur meiri-
hluta þings að baki sér, sam-
kvæmt yfirlýsingum þriggja
þingflokka hér nýverið á Al-
þingi, og vegna þess, að ekki er
sjáanlegt, eins og málum nú er
komið, að meirihlutastjórn
verði mynduð á þessu þingi, en
kosningar fara í hönd, þá verði
að svo stöddu að líta á ríkis-
stjórnina sem starfandi til
bráðabirgða.“
MiIIiþinganefnd til þess að f jalla
um skipulagningu vinnu-
aflsins o. fl.
Allsherjarnefnd sameinaðs
þings ber fram eftirfarandi til-
lögu til þingsályktunar:
„Alþingi álylctar að fela rík-
isstjórninni að skipa 4 menn i
nefnd eftir tilnefningu þing-
flokkanna, 1 mann frá hverjum
flolcki, til þess að semja tillög-
ur og frumvörp fyrir næsta Al-
þingi um það, er hér greinir:
1. Skipulagningu vinnuaflsins
og vinnumiðlun, er byggist á
rannsókn á því, hve margir
vinnufærir karlar og konur eru
i landinu og hvernig vinnuafl
þeirra er nú hagnýtt, eiinfremur
á rannsókn á vinnuþörf at-
vinnuveganna. Slculu tillögurn-
ar miða að þvi, að unnt verði
að vinna nauðsynleg fram-
leiðslustörf, verklegar fram-
kvæmdir og gera öryggisráð-
stafanir sakir ófriðarins, eftir
því sem vinnuaflið endist til,
og leitað um þær samkomulags
við verkalýðssamtökin.
2. Tillögur um samninga milli
ríkisstjórnarinnar og verkalýðs-
samtakanna um samræmingu á
kaupi og kjörum og vinnutíma
í þeirri vinnu, er ríkið og stofn-
anir þess láta framkvæma.
3. Frv. til 1. um vinnutima i
ýmsum atvinnugreinum, svo og
úm vinnuvernd og aukið öryggi
og góðan aðbúnað verkalýðsins.
Kostnaður við störf nefndar-
innar greiðist úr ríkissjóði.“
VIL SKIPTA
4 teiidfii Itíð
í bænum gegn leigu eða
lcaupi á litlu húsi í umhverfi
bæjarins. Tilboð, merkt:
„Strætisvagnasamband“
sendist afgr. Vísis.
gr;< i iPpi^HiTT .i
verður til Vestfjarða á föstu-
dag 4. þ. m. — Tekið á móti
vörum til hádegis sama dag.
Til sölu
húsgögn og áhöld í veitinga-
stofu. Til sýnis á Laugaveg
68, ki. 121/2—iy2.
[
NOLD
CHAIN DRIVES
Keðjnr og tannfeijól fym
Stelnsteypihrærtitélar
íyrirliggjandi
AÐALUMBQÐ Á ÍSLANDl FYRIR:
The Renold anrt Coventry
Chain Co. Ltd.
Manchestex’ — England.
Laugaveg 24 Reykjavik
IIÚK
Til sölu er, ef viðunandi tilboð fæst, vanttað 3ja íbúða-
hús, hver ibúð 3 herbergi og eldlur; með nútíma
þægindum. — Trjágarður er j kringum húsið. 1 ibúð
laus 1. október eða síðar. Tilboð leggi.S't inn á afgr.
Vísis, merkt: „I útjaðri bæjar:íns“. “ * '■
Vegna skemmtíferðar
verður skrifstofum, verzlun og verksmiöju vorri
LOKAÐ allan fösindaginn 4« þm 1
Verzlunin Edinborg
Veiðarfæragerð íslands
Heildverzlun Ásgeirs Sigarðssonax hJL
TÖLUR
Lækjavgötu 4 Simi 4557
Dömur! notið Créme Sixnon snyrti^örur
Fóst viða.
f
'"i.
Heildsölubirgðír. j.
EWALD BERNÐBEN & CDl
Bankastræti 7.
Jarðarför móður okkar og ömmu,
Jafetínu Jónasdóttux*
fer fram föstudaginn 4. september og hefst með bæn á heim-
ili sonar hennar, Drafnarstig 3, kl. 1 e. h.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna.
Öskar Þorateinsson.
w Konan min,
Ragnheiður Sigfúsdóttir Thorarensea
verður jarðsungin frá dómkirkjunni laugardaginn 5. þ. m.
Athöfnin hefst með húskveðju að heimili okkar, Revni-
mel 45, kl. 3 síðdegis.
Guðmundur Agústsson.
1«