Vísir - 10.09.1942, Síða 2
V I S I R
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjúrar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengíð inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
iiSjúkdómseinkenni
niöurlægingarinnarcc.
iy| ARGT er skrítið í Harmo-
níu. Tíminn birti nýlega
liatrama árásargrein gegn Sjálf-
stœðisflokknum, er liann nefndi
„Sjúkdómseinkenni niðurlæg-
ingarinnar.“ Ritstj'órhm var svo
lirifinn af þessu slagorði, að
hann veifaði þvi sjö sinnum i
greininni, samkvæmt því lög-
máli, að þvi oftar sem endur-
tekning á sér stað, því minnis-
stæðari verða orðin eða atburð-
irnir þjóðinni. Og það eitt var
ekki nóg að birta hugtakið
„Sjúkdómseinkenni niðurlæg-
ingarinnar“ sjö sinnum í sama
hlaði og sömu grein. Framhald-
ið kom í næsta blaði og nefndist
sama nafni, er var enn oft end-
urtekið i framhaldsgreininni.
En það er J>etta með Tímann.
Þjóðinni er ekki allt bjóðandi
á þann veg sem blaðið vill. Hún
skilur auðveldlega, að með orð-
unum „sjúkdómseinkenni niður-
lægingarinnar“ hefir kjöftug-
um ratast satt á munn. Meðan
að' Framsóknarflokkurinn réð
lögum og lofum í landi hér var
niðurlægingin i almætti sínu.
Síðar liefir borið nokkuð á sjúk-
dómseinkennum niðurlægingar-
innar, og það svO, að þegar er
um greinilegan bata að ræða. Ef
svo heldur fram um nokkurt
skeið eru ekki lítil líkindi til að
þjóðinni auðnist að komast á
það stig, að orðið „niðurlæging“
finnist ekki i hennar orðabók,
eins og einn mérkur þingskör-
ungur komst að orði við ein-
stakt og annað tækifæri.
I niðurlæginguxmi hefir
Framsóknarflokkurinn oft sleg-
ið sín eigin met, — fyrst undir
forystu Jónasar Jónssonar, síð-
an undir handleiðslu Hermanns
Jónassonar. Handleiðsla Her-
manns er rétta orðið, þótt
heppnin réði þvi stundum, að
nokkuð bólaði á hugsun á bak
við alla handleiðsluna, þar til
ráðherrann gerði sig frægan að
endemum síðustu daga ráð-
herradómsins. Meðan Hermann
Jónasson átti forsæti í ríkis-
‘ stjórninni tók að bera á „sjúk-
dómseinkennum niðuriægingar-
innar“, en þá höfðu fulltráar
Sjálfstæðisflokksins einnig tek-
ið sæti í ríkisstjórninni. Sjuk-
dómseinkennin hafa einnig á-
gerzt síðan, og aldrei komið ljós-
ar fram en nú á Alþingi, — eink-
um er Hermann hamaðist gegn
hagsmunum íslenzku þjóðar-
innar í sjálfstæðismálinu, og
reisti sér þar og niðurlæging-
unni óbrotgjarnan bautastein.
Það spáði beztum bata í íslenzku
þjóðlífi.
Þegar einstakar nauðir ber
að höndum er almenningur oft
varaður við hættunni. En slíkar
nauðir þekkjast, að engin áslæða
er að gefa út frá opinberri hálfu
slíkar aðvaranir, og þess eðlis
eru sjúkdómseinkenni niðuriæg-
ingar Hermanns og Framsókn-
arflokksins. Pestin lyktar ög
pestin sést. Framsóknarflokkur-
inn kaus heldur að veifa röngu
tré en öngu, og aldrei hefir enn
í manna minnum meir unnið
sér til óhelgis íslenzkur stjórn-
málaflokkur, en hann kýs ann-
ars vegar að beita andstyggilegu
I málþófi, en hinsvegar að sitja
hjá og verða „stik og stik“, er á-
kveðin eru örlög mesta hags-
munamáls Islendinga í nútíð og
framtíð.
ALÞINGI
Þingroí. Nýjar kosn-
ingar 18. og 19. okt.
Þinglausnir fóru fram síðdeg-
is í gær. Las ríkisstjóri upp bréf
þess efnis, að þar sem frumvarp
til stjómskipunarlaga um breyt-
ingu á stjórnarskrá ríkisins hafi
verið samþykkt á Alþingi, jTði
yrði Alþingi nú rofið, en þing-
rofið er ekki framkvæmt þann-
ig, að umboð þingmanna falli
niður þegar, heldur frá þeim
degi að telja, er almennum þing-
kosningum lýkur í haust,
Að svo búnu flutti ríkisstjóri
stutt ávarps er Svo hljóðar:
„Samkvæmt bréfi því, er eg
hefi lesið, fara nú fram nýjar
almennar kosningar til Alþingis.
Á kjörtímabili hins nýkosna Al-
þingis má búast við því, að þing-
ið þurfi að ráða fram, úr meiri
og alvarlegri vandamálum en
nokkru sinni áður.
Það er því einlæg ósk mín, að
hver einstakur kjósandi liafi
þetta í huga, er liann gengur að
kjörborðinu, og að hann láti sér
svo annt um val þingfulltrúa, að
þjóðin geti borið fullkomið
traust til J>ess, að hið nýja Al-
þingi verði þess megnugt að ráða
svo ráðum • sínurn, að borgið
verði sem bezt og farsællegast,
á þeim hættulimum, er nú
ganga yfir, frelsi og öryggi þjóð-
arinnar nú og í framtíðinni.
Með því að Alþingi hefir nú
lokið störfum að þessu sinni,
segi eg þingi slitið.“
Að svo mæltu bað ríkisstjóri
þingmenn að minnast ættjarð-
arinnar og risu þeir úr sætum
sínum og lirópuðu ferfalt liúrra.
Kosningar til Alþingis fara
fram 18. október, sem ber
upp á sunnudag, og 19.
október, en eins og kunn-
ugt er var þannig frá kosn-
ingalögunum gengið á
þinginu, að kjördagar í
sveitum verða tveir.
Áður en forseti Sþ. gaf ríkis-
stjóra orðið, gaf hann yfirlit um
störf þingsips. Það stóð 37
daga og voru haldnir 70
þingfundir. Borin voru fram
35 frumvörp, 19 stjómar-
og 16 þingmannafumvörp. Alls
voru afgreidn 10 lög, þar af
voru 4 þingm.frumvörp. Auk
þess er svo stjómarskrárfrum-
varpið, sem lagt verður fyrir
næsta Alþingi. 53 þingsályktun-
artillögur voru bornar fram.
Voru 22 afgreiddar til rikis-
stjórnarinnar. Þrjár fyrirspurn-
ir komu fram, en voru ekki
ræddar.
Vörubill
2y2 tonna, til sölu og sýnis
á Káratorgi kl. 7—8 í kvöld.
Aknrneiingfar býggja:
Sundlaug, bátabryggju
og gagnfræðaskóla.
Akurnesingar eru athafnamenn miklir og leggja þessi árin
í hverja stór-framkvæmdina á fætur annarri. Nýlega hafa þeir
lagt vatnsleiðslu ofan úr Akrafjalli, á þeim mun að verulegu
leyti hvíla virkjun Andakílsárfossa, ef í hana verður ráðizt,
í haust ætla þeir að byggja sundlaug og gagnfræðaskóla, en
koma upp hjá sér bátabryggju að ári, ef allt gengur sam-
kvæmt áætlunum.
Vísir hefur átt tal um þess-
ar fyrirætlanir við Ólaf B.
Björnsson, kaupmann og út-
gerðarmann á Akranesi, og
sagðist hann vonast til að bæði
sundlaugin og gagnfræðaskól-
inn kæmist upp í haust.
Sundlaugin verður 16,67 X 8
m, stór. I haust er ætlunin að
koma þar upp nokkurum klef-
um til að klæða sig úr og í,
og ef til vill gufubaðsklefa, en
það sem ekki verður byggt í
haust, verður byggt seinna, eða
sem sagt við fyrsta tækifæri
sem gefst. Laugin er byggð
þannig, að byggja megi yfir
hana ef þörf krefur, eða ástæða
þykir til. Verður hún hituð upp
með kælivatninu frá ljósamót-
ornum, sem nú er, og verður
þar af leiðandi ekki neinn sér-
stakur kostnaður af því að
hita laugina upp. Afrennslis-
vatnið er 45—50 stiga heitt, en
live heitt það verður, er í laug-
ina kemur, er ekki vitað.
Gagnfræðaskólamálið er svo
langt komið, að þessa dagana
er verið að ákveða skólabygg-
ingunni stað, og jafnframt unn-
ið skipulagningu þess svæðis,
sem skólinn á að standa á. Er
\
líklegt, að þegar þetta er gert,
muni vinna liefjast við bygg-
ingu skólahússins.
Er gert ráð fyrir því, að 60
—80 nemendur geti stundað
þar nám í einu, og verður sér-
staklega lögð stund á ýmsa
verklega kennslu, eins og t. d.
meðferð véla, allskonar smíði
og ennfremur leiðbeint um ým-
islegt það í útbúnaði og vinnu-
brögðum, sem að sjómennsku
lýtur. Áætlað er, að byggingin
kosti 150 þús. kr.
Er hér um nýmæli í skóla-
málum að ræða, og er vel til
fallið, að Akurnesingar, sem
hafa orð á sér sem sérstakir at-
hafnamenn, bæði til lands og
sjávar, ryðji þessu máli braut.
Hin fyrirhugaða bátabryggja
er þó langstærsta fyrirtækið og
það, sem er ef til vill mest að-
kallandi, því að á þessu velt-
ur framtíð sjávarútvegsins á
Akranesi að nokkuru leyti.
Hafa undanfarið verið mikil
vandræði hvað plássleysi við
höfnina snertir, því það er
mjög takmarkaður fjöldi báta,
sem kemst þar að í einu, en
hinir verða þá að bíða.
Við hina liýju bátabryggju
á að vera hægt að afgreiða 8
báta í einu. Er búizt við, að
bryggja þessi muni koma til
með að kosta 800—900 þús. kr.
og að vinna verði hafin við
liana á vori komanda. Eru Ak-
urnesingar um þessar mundir
að tryggja sér efni i bryggj-
una.
„Ourem“ veröur dreg-
ið til Englands
Vísir hafði tal af Kristjáni
Bergssyni í morgun og spurðist
fyrir um hvernig viðgerð á skip-
inu „Ourem“ gengi, en hann er
einn af eigendum þess.
Sagði Kristján, að skipið
myndi verða dregið út til Eng-
lands einhverntíma á næstunni
og myndi viðgerðin fara fram
þar. Skipið er mikið skemmt og
mundi það taka mjög langan
tíriia að láta gera við það hér í
Slippnum, jafnvel allt að þvi
heilt ár. Þótti því ekki tiltækilegt
að setja skipið í Slippinn hér,
þvi miklar annir eru þar núna
eins og sakir standa og mundi
viðgerðin á þvi tefja mikið fyrir
lagfæringu á öðrum skipum.
Var þvi það ráð tekið, að draga
það út, þegar tækifæri verður til.
Skipið „Ourem“ strandaði eins
og kunnugt er hér fyrir utan
Reykjavik í ofviðrinu mikla ár-
ið 1940 og sökk þá að mestu í
sjó. Náðist það út i vor og var
það Markús ívarsson i Héðni,
sem stóð fyrir björgunarstarf-
inu. Var skipið dregið upp i
Slipp og fór þar fram bráða-
birgðaviðgerð á þvi. Skipið er
mikið skemmt. Botninn er al-
veg úr, innréttingar allar ónýtar,
cn vélin, ketillinn og skrokkur-
inn eru í sæmilegu ásigkomu-
lagi.
Kostnaður við lagfæringu á
skipinu hefir verið áætlaður um
800 þúsund krónur, en þó er það
alls ekki áreiðanlega tala.
„Ourem“ var smíðað i Eng-
landi seinast í fyrra stríðinu og
var fullgerð árið 1919. Skip-
ið er 650 brúttó smálestir að
stærð.
Setuliðs vinnan:
Enn unnið skv.
gamla taxtanum
Áíramhald á sam-
komulagumleitunum
Eins og kunnugt er, hafa
samningar ekki tekizt á grund-
velli hins nýja samnings Dags-
brúnar og Vinnuveitendafélags-
ins, milli Dagsbrúnar og setu-
liðsstjómarinnar, sem hefirhaft
þessi mál til athugunar, en
verkamenn hafa sætt sig við að
vinna samkvæmt gamla taxtan-
um, meðan samkomulagsum-
leitanir fara fram, ef þær drag-
ast ekki úr hófi fram. Nokkurr-
ar óánægju mun farið að verða
vart hjá verkamönnum yfir
drættinum, en ekki mun sú ó-
ánægja hafa leitt til þess, að
verkamenn hyrfu úr setuliðs-
vinnunni, þótt þeim sé i sjálfs-
vald sett að skifta um vinnu-
stað, ef þeirn býður svo við að
horfa.
.Sennilegt er, að eitthvað fari
að gerast í þessum málum. —
Fundur var haldinn milli full-
trúa setuliðsstjórnarinnar og
fulltrúa verkamanna fyrir tveim
dögum, og náðist ekki sam-
komulag þá, en fulltrúar setu-
liðsstjórnarinnar báru þá fram
ósk um, að frekari viðræður
færu fram. Nýr fundur hafði
þó ekki verið ákveðinn um 10
leytið í morgun. Hann mun þó
verða haldinn bráðlega.
Haraldur Blöndal
60 ára.
60 ára er í dag Haraldur
Blöndal, fyrrv. ljósmyndari. Eg
frétti það alveg nýverið, en ótt-
aði mig ekki á þvi í svip, að
þessi gamli góði samverkamað-
ur minn væri orðinn svo gam-
all að árum til, jafnungur sem
hann er i anda og allri um-
gengni, en satt mun það samt
vera, því fæddur er hann 10.
sept. 1882, að Komsá i Húna-
vatnssýslu, en sonur hinna stór-
merku hjóna Lárusar sýslu-
manns Blöndal og frú Kristínar
Ásgeirsdóttur, yngshir 'allra
þeirra mörgu og merku syst-
lcina. Svo sem Haraldur á ætt til,
er liann mjög listfengur um
marga hluti, og hefir unnið að
ýmsum störfum um æfina.
Nam hann á unga aldri Ijós-
myndasmiði á ísafirði hjá Birni
heitnum Pólssyni, vann um
tíma hér hjá Magnúsi |Ólafssyni
ljósmyndara, en setti síðar upp
sjálfstæða Ijósmyndastofu og
starfrækti hana hér í mörg ár;
var hann ágætur ljósmyndari
og naut almennra vinsælda.
Um nokkur ár bjó hann á Eyr-
arbakka og stundaði þar ljós-
myndasmiði og verzlunarstörf,
fluttist svo aftur til Reykjavík-
ur og gerðist forstjóri þvotta-
hússins „Mjallhvít“ um nokkur
ár, en vinnur nú hjá Rafveitu
Reykjavíkur. Þetta er í stórum
dróttum starfsbraut hans. Svo
sem ætmenn hans margir eru,
er hann ágætis söngmaður,
söngelskur mjög og leikur
prýðilega á hljóðfæri, og fáa
ménn hefi eg séð hafa glæsilegri
rithönd. Honum hefir orðið vel
til vina um æfina, og munu nú
margir þeirra minnast hans á
þessum tímamótum með þakk-
læti fyrir góða og gamla við-
kynningu. Honum var vel til
vina fyrir margra hluta sakir,
því hann er prýðilegum gáfum
gæddur, gamansamur og mein-
fyndinn, ef svo ber við, og
hrókur alls fagnaðar, er kemur
hverjum manni í gott skap, er
nálægt honum er. Við Haraldur
höfum nú þekkzt í nærfellt 40
ár, og minnist eg nú með þakk-
læti allra þeirra mörgu ánægju-
stunda, er við höfum ótt sam-
an; þær minningar eru allar
bjartar og hlýjar.
Giftur var Haraldur Margréti
Auðunsdóttur frá ísafirði, en
hún dó árið 1936. Fimm böm
þeirra eru á lifi: Lárus bóka-
vörður við Landsbókasafnið,
Sölvi liagfræðingur, dvelur i
Svíþjóð, Kristín, hjúkrunarkona
í Danmörku, og Böm og Gunn-
ar, er stunda nám við Mennta-
skólann.
Lifðu svo heill, gamli, góði
vin, og þökk fyrir allar gamlar
og glaðværar samverustundir.
Þinn C. ÓI.
Skrifstofu-
stúlka
vön bókfærslu óskast. Hátt
kaup. Tilboð merkt: „600“
sendist Vísi fyrir 13. þ. m..
Ibúð
óskast 1. október. Uppl. í
sima 1159 og 4505.
BUl
Ford, 5 manna, model 1935
og vörubíll, Ford, 2ja tonna,
model 1931, nýuppgerður.
Til sýnis og sölu Nönnugóttt
16, kl. 6—9 e. h.
vörubíll
óskast til kaups nú þegar.
Uppl. i sima 1467.
Vatt
í mjólkursigtí
120,140,170,180 og 250 mm.
rJLi v p rp a a l ^
Viðgerðin á togaran-
um „íslending"
Vísir hafði sem snöggvast tal
af Magnúsi Guðmundssyni
skipasmið í morgun og innti
hann eftir fréttum um það,
hvernig viðgerðin á togaranum
„íslending“ gengi.
Eins og kunnugt er af fyrri
skrifum í blaðið var hafizt
handa um að ná þessum togara
upp í fyrrasumar, en þá hafði
hann legið á liafsbotni i 15 ár.
En það var Magnús Guðmunds-
son, sem stjórnaði björguninni.
Tókst vel að ná togaranum upp
og var honum síðan komið fyrir
í slipp og viðgerð hafin á honum
þegar i stað. Sagði Magnús, aS
viðgerðinni miðaði mjög vel á-
fram og mætti búast við að
skipið yrði sjófært nú á næst-
unni. Vélin er komin í skipið,
sem er Dieselvél, og innrétting
öll langt á veg komin. Þó vantar
enn skrúfu og öxul, en þeir hlut-
ar eru væntaníegir til landsins
einhverntima á næstunni.
— Verður skipið dýrt?
— Já, en þó ekki svo, að það
hafi ekki borgað sig að ná þvi
upp. Ennþá er ekki hægt að
segja með neinni vissu hvað
það kostar uppkomið.
— Hversu stórt er það?
— Það er 150 smálestir að
stærð.
— Eigandi?
— Hlutafélagið „Dieseltogar-
inn“, sem er nýtt félag hér í
bænum. Skipstjóri á skipinu
verður Sveinbjörn Einarsson.
Skipið verður gert út frá
Reykjavik.