Vísir - 15.09.1942, Síða 2

Vísir - 15.09.1942, Síða 2
V ISIR DAGBLAÐ Ctgefandi: BLAÐAÚTGÁI'AN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1660 (fimm Iínur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 25 aurar. FélagsprentsmiSjan h.f. Þorgeirsboli. IJIN rauðu blöð þykjast hafa fengið nokkurn reka á fjör- urnar í gær, er ritað var um það hér i blaðinu, að vanda þyrfti val manna í framboð af hálfu Sjálfstæðisflokksins, og efna til þeirrar einingar innan hans, að hann gengi sem ein- huga sveit til kosninga. Það er ekki að undra, þótt þessum. flokkum komi það ókunnug- lega fyrir áð flokksmál skuli rædd á opinberum vetvangi og af fullu hispursleysi. En það er í samræmi við lýðræðisstefnu og kenningar Sjálfstæðis- flokksins, að fullri gagnrýni og leiðbeiningarstarfi sé uppi haldið af blöðum flokksins, jafnt í flokksmálunum, sem í þjóðmálunum. Spáir það góðu um allan árangur, að slikt frjálslyndi skuli i heiðri haft. Nýlega vildi kommúnisti einn sanna það sjálfstæðis- manni, að lýðræði væri ríkj- andi í Rússlandi. Er honum var á það bent, að þar væru engir flokkar viðurkenndir að lögum aðrir en Kommúnistafloklvur- inn og engin blaðaútgáfa heim- il önnur en kommúnistisk, sagði þessi náungi með miklum fjálgleik: „Það er rétt, en flokksbræður mínir í Rússlandi hafa tekið upp aðra aðferð til að segja stjórnarvöldunum frá því, sem aflaga fer. Þeir hafa tekið upp svokallaða sjálfs- gagnrýni í blöðunum og hún er það, sem try'ggir afkomu ráð- s t j órnarrík j anna.“ Komminn var mjög hrifinn af „sjálfsgagnrýninni“ rúss- nesku, en hví er málgagn hans hér að amast við slíku. Ef gagn- rýnin tryggir áfkomu stórveld- anna rússnesku, ætti hún, ná- kvæmlega á sama hátt og engu síður, að tryggja afkomu og Sramgang smáflokks uppi á Islandi, og það mun hún vissu- lega gera, enda er henni ætlað það. Sjálfstæðisflokkurinn berst í sveitum gegn Framsóknar- flokknum, en þar koma aðrir flokkar ekki til álita. I kaup- stöðum berjast sjálfstæðismenn gegn „kommum“ og „krötum“ — þar hefir Framsókn aldrei öðlast tilveru né tilverurétt. Barátta Sjálfstæðisflokksis er því með öðrum hætti en ann- arra flokka i landinu, og hlut- verk hans er að bifast ekki, þótt nokkurt brimlöður næði á hon- um frá vinstri og hægri, en all- ar veilur geta þar orðið afdrifa- ríkar, ef ekki er beitt fullri „sjálfsgagnrýni“, bæði að því er varðar málefni og menn. > Þetta tryggir kjósendunum, að vel verði á málum flokksins haldið og það er mergurinn málsins. Undir þessu merki mun Sjálfstæðisflokkurinn sigra á kjördegi i haust og þeim öðrum kjördögum, sem þar kunna að fara á eftir. Kommúnistar hafa þegar skráð sinn eigin dauðadóm, er segja má að felist í þessum orð - um: „Kálfur sigldi — kom út naut.“ Víst er það, að margir hafa þeir siglt, — jafnvel allt til „sovét“, — en komið hafa þeir sízt vitrari en áður út hing- að. Baráttumál þeirra i þessum kosningum bera einnig Ijósan vott um eðli þeirra, þar sem eitt æpir gegn öðru. Þannig er saga jæirra öll, og er þess skemmst að minnast, er blað þeirra, Þjóðviljinn, réðst hat- ramlega á ritstjóra þessa blaðs fyrir að telja „smáskæruhern- aðinn“ brjóta gegn lögum og velsæmi, en á næstu síðu í sama blaði viðurkenndu þessir menn, að rétt væri þetta og smáskæru- hernaði mætti aldrei framar beita, svo að verkamenn fyrir- gerðu ekki rétti sínum í nútíð og framtíð. Það hljóð var nú í strokknum þá, og þætti tví- söngur, ef þessir menn væru yfirleitt teknir alvarlega. Þessa dagana hefir Dagsbrún arstjórn kommúnista unnið þau afrek, sem vel kunna að verða minnisstæð í íslenzkri verkalýðsbaráttu. Nú vilja þess- ir sömu menn „útrýma at- vinnuleysi“ með þvi að taka völdin. Nánar er stefnuskráin í atvinnumálunum ekki út- færð. Á dýrtiðinni vilja þeir vinna bug með því að hækka kaup og lækka framleiðslu- kostnað, en svo er látið sitja við þau orð. Skyldu ekki orðin og athafnirnar ganga í verka- menn fyrir kosningarnar? Svo sem frægt er orðið, af blaðaskrifum og opinberum umræðum, er talið að eitthvert ógeðslegasta undur íslenzkrar þjóðtrúar, sé Þorgeirsboli — dautt naut og afturgengið — sem dregur á eftir sér hálffláða húðina. Það fer ekki hjá því, að þessi forynja minni í öllum aðalatriðum á kommúnistana. — Kommúnistaflokkurinn er dauður, en afturgenginn i mynd „hins sameinaða socialista- flokks o. s. frv.“, sem dregur nú á eftir sér hálffláða húð, sem er stefnuskráin i kosning- um þeim, er nú fara í hönd. 3 hektarar lands Sýningarskáli myndlistar- manna verður byggður í Kirkjustræti. Von um að tiann komist upp í liaust. Það mun nu ákveðið, að myndlistarfélag- Bandalags íslenzkra listamanna fái til umráða lóð í Éirkjustræti, rétt vestan við Al- þingishúsið og reisi þar svo fljótt sem auðið er sýningarskála, þar sem listamenn geta haldið sýningar á verkum sínum. — Eins og skýrt var frá í Vísi s. I. vor, stóð til að myndlistar- menn fengju til umráða lóð undir sýningarskála viþ horn Hljómskálagarðsins og Bjark- argötu. Nú hefir þessi von brugðist með því, að ákveðið hefir verið síðan að breikka Bjarkargötuna og sameina hana betur við Tjarnargötuna. Af þesari á- stæðu skerst svo mikið af hinni fyrirhuguðu lóð undir skála- bygginguna, að bygging á þeim stað kom alls ekki framar til greina. Hinsvegar hafa listamenn- irnir fengið loforð fyrir lóð á sizt óhentugri stað, en það er i Kirkjustræti, skammt fyrir vest- an Alþingishúsið, eða þar sem sýningarskálinn var reistur 1930. Gunnlaugur Halldórsson arki- tekt vinnur um þessar mundir að því, að gera uppdrætti að skálabyggingunni. Er ákveðið að hún verði einlyft, með ofan- Ijósi og sennilegt að stærðin verði 24x12 metrar, en þó er það ekki endanlega ákveðið. Myndlistarmenn hafa gert sér vonir um að koma bygging- unni upp í haust. Voru þeir bún- ir að fá loforð fyrir timbri, en skipinu sem timbrið átti að flytja var sökkt og olli það lista- mönnunum miklum vonbrigð- | um. Hafa þeir fengið loforð fyr- ir að sitja fyrir næstu sendingu, þegar liún kemur, en efni verður sennilega dýrara og byggingin verður öll eftir þvi dýrari sem lengur dregst að koma henni upp. Búið var að gera uppdrátt að hinni fyrirhuguðu skálabygg- ingu myndlistarmanna við Bjarkargötu, en þar sem breyt- ing varð ó Ióðarstæðum fyrir húsið, varð að gera nýjan upp- drátt, því skálinn við Kirkju- stræti verður með allt öðru ] sniði, en hinum var ætlað að vera. Með þessari byggingu munu myndlistarmenn höfuðstaðar- ins loks fá einskonar samastað, þ. e. liús þar sem þeir geta að staðaldri haldið listsýningar, ýmist hver út af fyrir sig eða fleiri saman. Eins og almenningi er kunn- ugt hefir'tiltölulega lítið verið i um listsýningar á undanförnum ' árum vegna húsnæðisvand- ræða, og þær fáu sýningar sem haldnar hafa verið, hafa flestar verið í mjög óviðunandi húsa- kynnum. Hefir jætta verið mjög bagalegt bæði fyrir listamenn og listunnendur, því þeir bafa j komist úr tengslum hvorir við - aðra, og almenningur lika síður fengið að njóta listar en áður, og er það óumdeilanlega tjón fyrir andlega menningu íslenzku þjóðarinnar. Hástökk: Skiili Guðmundsson KR 1.82 Jón Hjartar KR 1.61 Ingólfur Steinsson ÍR 1.56 Sveinn Magnússon FH 1.51 Þrístökk: Oliver Steinn FH 13.24 Skúli Guðmundsson KR 13.17 j Jón Hjartar KR 12.75 Sverrir Emilsson KR 12.59 100 m. hlaup: Jóhann Bernhard KR 11.7 Sverrir Emilsson KR 11.9 Brynjólfur Ingólfsson KR 12.0 Jóhannes Einarsson FH 12.3 400 m. hlaup: Brynjólfur Ingólfss. KR 53.6 Sigurgeir Ársælsson Á 53.7 Jóhann Bernhard KR 54.3 Svavar Pálsson KR 58.8 3000 m. hlaup: Sigurgeir Ársælsson Á 10:08.2 Sigurgísli Sigurðss. ÍR 10:08.8 Jóhannes Jónsson ÍR 10:09.0 Árni Kjartansson Á 10:09.2 öldungar. 100 m. hlaup: Frímann Helgason Á 12.2 Har. Matthíasson KR 12.7 Jóh. Jóhannesson Á 13.0 800 m. hlaup: Jóh. Jóhannesson Á 2:29.5 Frímann Helgason Á 2:35.0 Har. Matthíasson KR 2:36.4 Kúluvárp: Gísli Sigurðsson FH 10,27 Frímann Helgason Á 9,24 St jórnaboðhlaup: Ármann............... 48.4 FH .................. 48.6 Öldungaboðhlaup: Ármann .............. 55.6 undir gleri. Miklar gróðurhúsa- byggingar í ár. Gróðurhús hér á landi munu nú ná yfir 3 hektara lands alls, eða jafnvel meira, hefir Stein- grímur Steinþórsson búnaðar- málastjóri tjáð Vísi. Það eru ekki til neinar ná- kvæmar skýrslur um gróður- liúsabyggingar, og þetta er þvi aðeins samkvæmt lauslegri á- ætlun. I ár hefir verið byggt mjög mikið af gróðurhúsum víðsveg- ar á landinu, svo að aldrei hefir verið ræktað annað eins af gróð- urhúsa-aldinum og -blómum sem nú. Langmest er ræktað af tómötum, en einnig nokkuð af gúrkum, melónum, aldinum svo sem vínþrúgum, banönum o. s. frv. Sömuleiðis er allmikið ræktað af skrautjurtum alls- konar. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefir aflað sér hjá Sölufé- lagi garðyrkjumanna, en það annast að miklu leyti sölu grænmetis fyrir framleiðendur hér sunnanlands. Seldi það í fjrra 10—12 þús. kassa af tó- mötum, en í ár verður salan miklu meiri. Ómögulegt er neitt um J>að að segja, hve salan kemur til með að nema miklu í ár, bæði vegna þess að fram- leiðslan og salan er í fullum gangi ennþá, og svo vegna þess, að salan gengur gegnum marg- ar hendur og því erfitt að fá nokkurt heildaryfirlit yfir framleiðsluna. Frú Jóhanna Bjarnadóttir, Þórsgötu 14, verður 50 ára í dag. Skúli Guömundsson (K.R.) bætti tvö drengjamet á fþrúttamðtmu i gær. Athyglisverður árangur þrátt fyrir kalsaveður. Þrátt fyrir kalsa og leiðindaveður í gærkveldi fór íþrótta- mótið á íþróttavellinum ágætlega fram, og náðist þar í ýmsum íþróttum ágætur árangur. Meðal annars setti Skúli Guðmunds- son K. R. tvö ný drengjamet á mótinu, en það var 1.82 m. í há- stökki og 13.17 m. í þrístökki. Hinu mjög svo eftirvænta 400 st. hlaupi lyktaði með sigri Brynjólfs Ingólfssonar (KR), sem tekur mjög örum framför- um og er að verða skæður sprett- og millilengda-hlaupari. Athygli vakti frammistaða hinna ungu þolhlaupara úr ÍR, Sigurgísla og Jóhannesar, sem urðu 2. og 3. í 3000 m. hlaupinu og stungu báðir Árna Kjartans- sýni aftur fyrir sig. Bragi Friðriksson úr Knatt- spyrnufélagi Siglufjarðar, sem vann bæði kúluvarpið og lcringlukastið,, er eftirtektarvert íþróttamannsefni, því hann er aðeins 15 ára að aldri; náði hann þó í kringlukastinu betri árangri en venjulegt er hér á vellinum. I hástökkinu náði Skúli Guð- | mundsson þeirn eftirtektarverða | árangri, að stökkva 1.82 m., og er ekki ósennilegt, að hann verði skeinuhættur metinu að sumri. Þrístökkið vann Oliver, 100 m. Jóhann Bernhard, 3000 m. Sigurgeir og er ómögulegt ann- að að segja, en að árangur hafi i öllum íþróttunum verið góður, miðað við allar aðstæður. Nokkur vonbrigði urðu það mönnum, að Huseby vantaði á mótið í gærkveldi. Kúluvarp: Bragi Friðriksson KS 12.98 Jóel Sigurðsson ÍR 12.93 Jens Magnússon KR 12.70 Anton Björnsson KR 11.60 Kringlukast: Bragi Friðriksson KS 39.00 Ól. Guðmundsson ÍR 35.01 Jens Magnússon KR 34.91 Anton Björnsson KR 34.70 Skúli Guðmundsson í hástökki. Héraðsmót í Stykkis- hólmi. Sjálfstæðismenn efndu til hér- aðsmóts í Stykkishólmi s.I. sunnudag. Yar það mjög fjöl- mennt og fór í alla staði hið bezta fram. Kom þar fram mikill samvinnuhugur og áhugi fyrir málefnum flokksins og stefnu. Ræður fluttu þar Gunnar Thotroddsen prófessor og Jó- hann Hafstein, sem gerður var hinn bezti rómur að. Þeir Pétur Jónsson óperusöngvari, Jón Eyjólfsson, Lárus Ingólfsson og Árni Helgason skemmtu með söng. Sungu þeir einsöngva Pét- ur og Jón, en Lárus og Árni sungu gamanvisur. Ýmislegt fleira var til skemmtunar. — Að lokum var dans stíginn fram eftir nóttu. Haustfermingarbörn dömkirkjus. geri svo vel a<5 koma til viðtals í dómkirkjunni í þessari viku, til síra Friðriks Hallgrímssonar á fimmtudaginn, og til síra Bjarna Jónssonar á föstudag, báða dagana kl. 5' síðdegis. Leigugjald fyrir vörubíla. í blöðunum í dag er tilkynning frá Vörubílastöðinni Þrótti um það, að frá og með 15. sept. og þar til öðruvísi verður ákveðið, verði leigugjald fyrir vörubíla í inn- anbæjarakstri sem hér segir: Dag- vinna frá kl. 8—17 e. h. kr. 11.79, eftirvinna frá kl. 17—20 kr. 14.22, næturvinna frá kl. 20—8 kr. 16.66, og helgidagavinna kr. 16.66. Hjúskapur. Síðastl. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband Þórunn Stefanía Hjálmarsdóttir og Jónas Jónasson, skósmíðameistari. Heimili þeirra er á Hverfisgötu 125. Duglegur verkamaður óskast til haustverka ó sveita- heimili í grennd við Reykja- vik. Hátt kaup. Uppl. á afgr. Álafoss í dag. Til leigu Sá, sem getur lónað full af- not af síma, getur fengið leigt 1—2 herbergi og eldliús. Lysthafendur leggi nöfn sin inn á afgr.Vísis fyrir fimmtu- dagskvöld, merkt: „5. októ- ber“. Stúlka getur fengið góða atvinnu nú þegar. Hátt kaup og húsnæði ef óskað er. Uppl. Kaffisöl- unni, Hafnarstræti 16, eða Laugaveg 43, I. hæð. Matt lakk HTý föt fyrir grömnl Látið oss lireinsa og pressa föt yðar og þau fá sinn upp- runalega blæ. Fljót afgreiðsla. EFNALAUGIN TÝR. Týsgötu 1. Sími .2491. Gardínuefni í miklu úrvali, nýkomið. VEFNAÐARVÖRUBÚÐIN _____Vesturgötu 27. Vllarkjólaefni og ULLARKREPE í miklu úrvali. v VEFNAÐARVÖRUBÚÐIN _____Vesturgötu 27. Hvít kjólabelti 3 breiddir, nýkomin. VEFNAÐARV ÖRUBÚÐIN Vesturgötu 27. 1 kríiir fær sá, sem útvegar hjónum með eitt barn íbúð eða eina góða stofu nú þegar eða 1. okt. Get lánað símaafnot. — Tilboð, merkt: „E. B. 500“, leggist inn á afgr. blaðsins fyrir föstudagskvöld. Setuliðsvinnan. Stjórn Alþýðusambandsins held- ur fund í kvöld um samkomulags- umleitanirnar við setuliðið, taxta þess 0g ákvörðun Dagsbúnar að leyfa verkamönnum að vinna hjá setuliðinu, þótt ekki væri' samið við verklýðssamtökin. Barnsmeðlög hækka að verulegum mun á tímabilinu ágúst þ. á. til 31. júlí 1943. Stafar hækkun þessi af dýrtíðinni. Sam- kvæmt tilkynningu í Lögbirtinga- blaðinu, verða meðlögin í Reykja- vík: Til 4 ára 1008 kr., til sjö ára 852 krónur, til 15 ára 1008 kr., og til 16 ára 504 kr. Tjarnarbíó sýnir þessa dagana mynd, sem nefnist „Æfintýri blaðamanns". — Aðalhlutverkin eru leikin af Joel McCrea, Laraine Day, George Sanders, Herbert Marshall og Al- bert Bassermann.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.