Vísir - 23.09.1942, Side 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLÍð
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16j0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasaia 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Gamansemi.
TÍMAMENN eru smáskrítnir
og hafa það til að vera
skemmtilegir i sínum stil. I
gær kjamsa þeir á því, að svo
mikill ágreiningur sé upp kom-
inn innan Sjálfstæðisflokksins,
að Vísir þurfi ekki annað, en
kippa í spotta, og óðara sé allt
fylgið hrunið af borgarstjóran-
um. Vísir þakkar lofið, og efar
ekki að Tíminn dæmi hér eftir
eigin reynslu, — hafi sem sagt
kynnst því hver áhrif blaðið
hafi hér í liöfuðstaðnum. Má
einnig með sanni segja að það
sjáist á hinu hálfdauða fylgi
Framsóknar hér i Reykjavik og
raunar öðrum kaupstöðum
landsins.
Svo virðist, sem rithöfundar
Tímans byggi þessa skoðun sína
fyrst og fremst á því, að Vísir
hefir fundið að því, sem aflaga
hefir farið, bæði að þvi er snert-
ir stjórn landsmála, bæjarmála
og flokksinála, án þess að fara
í felur með skoðun sína og
stefnu. E>ótt liðið liafi að kosn-
ingum er engin ástæða til, að'
hætta að berjast fyrir eðlileg-
um umbótum, á livaða sviði
sem er, og þótt shkri gagnrýni
sé uppi haldið fer fjarri því, að
nokkuð hafi dregið nær sam-
vinnuslitum innan Sjálfstæðis-
flokksins, en áður var. Heil-
brigð gagnrýni tryggir það, að
hið fyllsta réttlæti ríki jafnt i
þjóðmálum, sem flokksmálum,
og að stefnt verði áfram i fram-
faraátt hvað sem að öðru leyti
á dynur.
Tímanum á ekki að korna það
ókunnuglega fyrir að nokkur
málefnagreiningur kunni að
vera innan flokka, án þess þó
að þeir rofni. Skeð hefir það að
tveir af forystumönnum Fram-
sóknarflokksins hafa deilt harð-
vítuglega sín í milli á opinber-
um vettVarigi, og það meira að
segja i Tíniánum sjálfum. Næg-
ir því máli til sönnunar að skír-
skota til skrifa Jónasar Jónsson-
ar og Hermanns Jónassonar um
sjálfstæðismálið, en eins og rit-
höfundar Timans skilja er það
mál vel lagað til samvinnuslita,
og hanga þeir þó enn á sömu
horriminni, foringjarnir. í dag
vinna þeir í einingu andans að
undirbúningi kosninga, — hvor
fer fram í sínu kjördæmi, eins
og ekkert hafi í skorizt, en láta
deilumálin biða sins tíma, eða
þangað til flokksþingið kemur
saman á vetri komanda.
Það er vitað, að innan Fram-
sóknarflokksins er hin mesta
sundrung og óánægja. Sumir
flokksmennimir eru farnir að
finna pólitíska nálykt af for-
manni flokksins og vilja ráða
niðurlögum hans áður en lyktin
tekur að loða við aðrar höfuð-
kempur þeirra. Þvi er það að
Hermann Jónasson berst nú
fyrir vinstri samvinnu, þrátt
fyrir það, að formaður flokks-
ins hefir lýst yfir því, að hann
muni standa við hlið Ólafs
Thors, núverandi forsætisráð-
herra, ef á skyldi bjáta. Hér eru
boðuð hrein samvinnuslit í
sama blaði, — á annan veg verð-
ur þetta ekki skilið.
Hitt er svo allt annað mál, að
þegar rætt er um samvinnuslit,
getur það verið eðlileg þróun
landsmálanna. Enginn einstakl-
ingur lieldur lengra af vegi
þeirrar stefnu, sem hann berst
fyrir, en haráttu hans er sam-
ræmanleg!. Því getur það ávallt
hent, að einstaklingarnir og
jafnvel blöðin hætti að styrkja
þann flokk, sem áður var veitt
brautargengi, af þeim ástæðum
einum, að hann hafi reynst
stefnu sinni ótrúr. Það lögmál
gildir jafnt í hinu pólitiska ásta-
lífi sem öðru, og í því efni hefir
Tíminn reynsluna, sem burðast
með margklofinn flokk á baki
sér, og á klofning enn í vænd-
um.
Þegar Yísir hyggst að kippa í
spottann, mun blaðið vissulega
sjálft segja til, en sannast mun
það, að fleiri hanga á bláþræði
en borgarstjórinn. Ættu Fram-
sóknarmenn ekki að lirækja
hraustlega í því efni, eftir þá
dæmalausu útreið, sem flokk-
urinn liefir fengið i tvennum
kosningum hér í höfuðstaðn-
um, en allt er þá þrennt er.
Stúrvirkar fram-
kvæmðir Siglu-
fjarðarhæjar í
snmar og haust.
S. 1. vor samþykktu Siglfir'Ö-
ingar að stækka mjólkurbú
bæjarins að Hóli og var tekið til
þess 100 þús. kr. lán. Hafizt var
þegar handa um byggingu f jóss,
hlöðu og súrheysgryfju, og eru
þær byggingar nú um það bil
fullgerðar. Auk þess voru keypt-
ir 20 nautgripir í búið.
Vinslan í grjótnámi bæjarins
er orðin stórvirkari en áður,
því að Siglufjarðarbær liefir
keypt nýja og fullkomnari grjót-
mulningsvél en til var áður, og
varði til þess nærri 30 þús. krón-
um. í sambandi við þetta liefir
sporvögnum verið komið fyrir
í grjótnáminu, í staðinn fyrir
hjólbörur, sem voru notaðar.
Loftpressa hefir verið fengin að
láni, er mun eftirleiðis starfa
í grjótnámi bæjarins.
I ráði er, um leið og afköstin
aukast, að lagfæra ýmsar götur
í bænum, og jafnvel byrja að
steypa aðalgötuna.
Hinsvegar þykir bænum ekki
rétt, á meðan nóg er um vinnu
í bænum, að draga vinnuaflið
til óarðbærra starfa, nema þar
sem ekki verður hjá þvi komist.
Jarðeplageymslu fyrir 400
tunnur hefir bærinn komið upp
og verður einstaklingum gefinn
kostur á að geyma þar kartöflur
sinar fyrir ákveðið gjald.
Loks hefir, í samráði við Ól-
af Þ. Þorsteinsson sjúkrahúss-
lækni,. verið gerð teikning af
fyrirhugaðri stækkun á sjúkra-
húsinu. Er með henni gert ráð
fyrir sérstökum deildum fyrir
fæðingarstofnun, gamalmenna-
hæli og geðveikrahæli.
Ýms önnur mál eru á döfinni
á Siglufirði og þar á meðal hafn-
arframkvæmdir, rafveitan o. f 1.
Saltkjötstunnan 820 kr.
Kjötverðlagsnefnd ákvað á fundi
sínum í gær, a'Ö' verð á saltkjöti í
tunnum yrði í haust 820 kr. tunn-
an (130 kg.).
Stöðvast vinna
í brauðgerðarhúsum?
Atkvæðagreiðslu er nú lokið i
Bakarasveinafélagi íslands um hvort
heimila skuli að lýsa yfir vinnu-
stöðvun í brauðgerðarhúsunum x.
okt. n.k., ef samningar takast ekki.
Var heimildin samþykkt með 9 at-
kvæðum gegn 1. Samkomulagsum-
leitunum í deilunni er haldið áfram.
Togaradeilan.
Samkomulag hefir ekki náðzt í
togaradeilunni. Tveir fundir voru
haldnir í gær, sem sáttanefnd boð-
aði til. Allsherjar atkvæðagreiðslu
sjómanna um heimild til vinnu-
stöðvunar lýkur í kvöld kl. 10.
Enn skortur á vinnuafli
við húsbyggingar o. fl.
íslenzkip atvinnurekendur
liafa þó feimgið aftup margt
verkamanna.
Víðsvegar um bæinn eru nú að rísa upp marglyft steinsteypu-
hús, sem keppt er við að koma undir þak fyrir haustið og vetur-
inn. Ennfremur er víða verið að byggja við hús, eða ofan á hús,
og vinnur mikill fjöldi manna við þessar framkvæmdir. Sumir
byggingameistarar hafa 8—10 hús í smíðum og eitt sem erfið-
leikunum veldur er, að ekki eru nógu margar hrærivélar fyrir
hendi. Ennfremur er enn nokkur skortur verkafólks til hús-
bygginga, þótt menn komi nú sem óðast til bæjarins frá ýms-
um sumarstörfum utan bæjar, og vinnuafl hafi losnað hjá öðr-
um atvinnurekendum.
á þessu sviði stefni áfram í sömu
átt, og þessi vinna hverfi smám
saman á ekki mjög löngum
tíma. Þetta ætti að verða til
þess að leysa vandræði margra
íslenzkra atvinnurekenda, sem
þannig standa nú hetur að vígi
en áður að fylla í skörðin hjá
sér. Er það vel farið, að íslenzku
atvinnuvegirnir fái nú nægt
vinnuafl, en þetta mál liefir
fleiri hliðar, sem ræða þarf, og
ekki sízt þarf að girða fyrir þá
hættu, að atvinnuleysistimar
dynji yfir, en það er að eins
liægt með því að ræða vandann
áður en hann ber að höndum.
Mætti það vera til fyrir-
myndar, að í löndum banda-
manna er þegar farið að ræða
hvað unnt sé að gera til þess
að girða fyrir atvinnuleysi og
aðra erfiðleika, sem vanalega
sigla í kjölfar styx-jalda.
Hvað Iesifl þér I haost ?
Bækur sem ísafoldarprentsmiðja h.f. gefur út á næstunni.
Vísir hefir náð tali af Gunnari Einarssyni prentsmiðjustjóra
og framkvæmdarstjóra ísafoldarprentsmiðju h.f. og beðið hann
að skýra Iesendum blaðsins frá útgáfustarfsemi prentsmiðj-
unnar í haust og hvað hún setji á markaðinn af nýjum bókum
á næstunni.
Eins og lesendum blaðsins mun flestum kunnugt, hefir ísa-
foldarprentsmiðja h.f. um þessar mundir stórhýsi í smíð-
um við Þingholtsstræti og þangað munu flestar vélarprentsmiðj-
unnar verða fluttar á næstunni, og nýjum bætt við. Býst Gunn-
ar jafnvel við að sumar vélarnar geti byrjað að taka til starfa
i nýju byggingunni í lok þessa mánaðar.
Það má ef til vill segja, að
ekki séu miklar ástæður til þess
að óttast atvinnuleysi eins og
sakir standa a. m. k. þar sem
miklar framkvæmdir eru á
döfinni, hitaveitan á uppsigl-
ingu o. fl. auk þess sem margir
atvinnurekendur til sjávar og
sveita hafa til skamms tima og
margir enn haft of litið vinnu-
afl til umráða. En á vinnusvið-
inu er að verða breyting, sem
menn kannske almennt taka
ekki eftir, en rétt er að vekja
athygli á, þvi að alltaf linígur í
sömu átt, þ. e. að íslenzkum
verkamönnum, sem ekki vinna
hjá íslendingum fækkar stöð-
ugt, eða úr tæpu hálfu fjórða
þúsundi á öllu landinu á nokkr-
um mánuðum niður i um 1900.
nú. Þótt ekkert verði fullyrt í
þessum efnum um framtíðina
er vissara að gera ráð fyrir, að
Þrátt fyrir fluhiinga og ýms-
ar tafir sem af þeim stafa, svo
og vegna tafa sem orsökuðust
af prentaraverkfallinu i vetur,
hyggst Gunnar að gefa út á
þessu ári um 40 bækur, eða
jafnmargar bækur og undan-
farin ár, auk fjölda bóka,
smærri og stærri, sem prent-
smiðjan prentar.
En það sem athyglisvert er
við bókaútgáfuna í ár er það, að
Isafoldarprentsmiðja hefir þeg-
ar sent 20—30 bækur á markað-.
inn, það sem af er árinu, og
sumt af því eru stór rit eins og
t. d. ævisaga Mariu Stúarts eftir
Zweig, sem var fyrsta bókin,
sem forlagið gaf út í ár og
sjálfsævisaga Krapotkins fursta
sem er sú síðasta sem það sendi
’ á markaðinn. Taldi Gunnar að
slík bókaútgáfa hjá einu forlagi
á fyrra helmingi árs, hafði verið
með öllu óhugsandi á undan-
förnum árum, þvi venjulega
hefir verið mikil deyfð í bóka-
sölu þar til á haustin. Stafar
þetta annarsvegar af því að
fjármagn almennings er miklu
meira en áður var, en hinsvegar
af þvi að áður var lestrarþörf
fólks að meir eða minna leyti
fullnægt með Norðurlandabók-
um og tímaritum, sem nú er
með öllu ófáanlegar.
Meðal þeirra bóka sem ísa-
foldarprentsmiðja h.f. mun gefa
út á næstunni, og margar hverj-
ar eru þegar komnar í deigluna,
er skáldsagan Tess eftir enska
rithöfundinn Thomas Hai’dy,
sem Snæbjörn Jónsson þýðir.
Hún verður i 2 bindum, er hún
þegar fullprentuð og er verið að
hefta hana og binda. Má gera
náð fyrir að liún komi á mark-
aðinn upp úr mánaðamótunum
næstu.
Barðstrendingasaga, rituð af
ýmsum ritfærum mönnum það-
an úr sýslu eða öðrum sem þar
eru nákunnugir, verður um 20
arkir að stærð og prýdd fjölda
mynda, sem sérstaklega voru
teknar fyrir þessa bókarútgáfu.
Rit þetta er nú fullsett og hefir
Benedikt Sveinsson bókavörður
lesið yfir handrit og prófarkir.
FuIIselt er einnig mikið rit
eftir V. Þ. Gíslason, skólastjóra,
er heitir „Snorri Sturluson og
Gylfaginning“. Byrjar það á
Gylfaginning, síðan koma skýr-
ingar og ritgerðir. Ritið er prýtt
allmörgum myndum.
Læknatal, ritað af Lárusi
Blöndal bókaverði, mun verða
20—24 arka bók. Er hún fylgi-
rit Sögufélagsins, en Isafoldar-
prentsmiðja annast orðið út-
gáfu rita þess. I sambandi við
þessa bók má geta þess, að í
henni verða myndir af flestöll-
um læknum, sem lokið hafa
prófi s. 1. 50—100 ár.
„Skóladagar“ heitir frum-
samin saga eftir Stefán Jónsson
kennara. Er það framhald ung-
lingasögunnar „Vinir vorsins”
sem forlagið gaf út í fyrra og
náði þá miklum vinsældum.
Aðra unglingabók, sem ætluð
er xelpum og heitir „Skólasyst-
ur“, mun prentsmiðjan gefa út
á næstunni. Er liún þýdd.
Önnur útgáfa af 2. hefti
„Rauðskinnu“, þjóðsagnasafni
síra Jóns Thorarensens, sem
verið liefir uppselt að undan-
förnu, muri einnig koma út inn-
an skamms.
Nýkomnar eru út Mannkvns-
saga (Nýja öldin) eftir Ólaf
Hansson Menntaskólakennara,
sem ætluð er til kennslu í æðri
skólum, Sagnir og þjóðsögur,
3ja liefti, eftir Guðna Jónsson
magister og önnur útgáfa af
„Sögulegasta ferðalagið“ eftir
Pétur Sigurðsson erindreka.
Fullprentað er úrval af kvæð-
um Kristjáns Jónssonar fjalla-
skálds, er gefið mun verða út
í sama broti og úrvalsljóð ann-
ara höfuðskálda vorra, og ísa-
foldarprentsmiðja hefur ann-
ast undanfarin ár. Hulda skáld-
kona hefur valið kvæðin i þetta
bindi og skrifað formála.
Þá kemur út stóraukin og
endurbætt útgáfa af bókinni
„Hjálp i viðlögum“. Jón Odd-
geir Jónsson verður ritstjóri að
henni, en ýmsir læknar og aðrir
færir menn rita þar sjálfstæða
þætti. Fjölda mynda verða til
skýringa.
Fyrirhuguð er útgáfa á ævi-
sögu Friðþjófs Nansen. Verður
það rit á stærð við Maríu Síúart
og Krapotkin fursta, prýtt fjölda
mynda. Frú Kristín Ólafsdóttir
læknir þýðir bókina.
Settar. eru dýrasögur eftir
Bergstein Kristjánsson og Þulur
ef tir Guðrúnu Jóhannsdóttur, en
Tryggvi Magnússon mun teikna
myndir í báðar bækurnar.
Loks má geta tveggja stórra
myndarita, og mun a. m. k.
önnur þeirra koma út fyrir jól-
in, en það er ný útgáfa að „Is-
landi í myndum“, með um 200
heiIsíðumyndum, flestum sem
ekki hafa komið í fyrri útgáf-
unum. Hafa þeir Halldór Am-
órsson Ijósmyndari og Páll
Jónsson auglýsingastjóri valið
myndirnar. Eru myndamótin
fullgerð og verður bókin prent-
uð áður en langt um líður.
Hitt myndaritið er biblían í
myndum. Eru það teilcningar
hins fræga franska listamanns
Doret, 200 heilsíðumyndir í
stóru broti, en Bjarni Jónsson
vigslubiskup mun velja textana.
Ýmsar fleiri bækur eru á döf-
inni, en vegna þess hve mikil ó-
vissa livílir um útgáfustarfsem-
ina, verkefni og afköst prent-
smiðjunnar, sér Gunnar ekki á-
stæðu til að telja upp fleiri út-
gáfubækur að sinni.
Bæjar
fréttír
I.O.O.F. 3=124924172 =fRh.
Noregssöfnunin#
Samvinnufélag ísfirðinga hefir
gefið 6000 krónur í Npregssöfn-
unina.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19,25 Hijómplötur: Valsar.
20,00 Fréttir. 20,30 Útvarpstríóið:
Smálög eftir Frank Bridge. 20,45
Erindi: Um Mansjúkúó, land og
þjóð (Magnús Magnússon ritstj.).
21,10 Takið undir ! (Þjóðkórinn —
Páll ísólfsson stjómar).
Næturlæknir.
Kristján Hannesson, Mímisvegi
6, sími 3836. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki.
Nýkomið:
ódýrt, skozkt kjólaefni..
Sérstaklega hentugt í
skólakjóla.
Unnur
Grettisgötu 64
(horni Barónsstígs og
Grettisgötu).
Iþrótta-
skólinn
Vetrarstarfsemi íþróttaskól-
ans hefst 1. okt. Stúlkur, sem
ætla að iðka leiltfimi á
mánud. og fimmtud. kl. 7—8
síðd., láta innrita sig næstu
daga í skrifstofu skólans eða
hjá kennaranum ungfrú Sig-
ríði Valgeirsdóttur. Viðtals-
tími kl. 4—5 síðd. Sími 3738.
JÓN ÞORSTEINSSON.
§tiílka
óskast til eldhússtarfa nú
þegar eða 1. október. Vakta-
skipti. — Hátt kaup. — Sér-
herbergi.
Matsalan, Amtmannsstíg 4.
Lfrarpylsa
Soðin svið.
KJÖT & FISKUR.
Sendisveinn
óskast strax.
KJÖT & FISKUR.
AtTinna
Ábyggilegur og reglusam-
ur maður getur fengið góða
inrxivinnu. Uppl. Frakkastíg
26 A. —
Atvinna
Stúlkur, vanar saumaskap,
geta fengið saum i ákvæðis-
vinnu. Uppl. á Frakkastíg
26 A. —
Lán óskast.
8—9000 kóna lán óskast gegn
góðri tryggingu. Lysthafend-
ur leggi nöfn sin inn á af-
geiðslu Vísis fyrir 12 á morg-
un, merkt: „Öryggi“.
2 siúlknr
geta fengið atvinnu. — Hátt
kaup. — Frítt fæði og hús-
næði. — Uppl. í síma 1521.