Vísir - 13.11.1942, Page 2
VISIJR
VÍSIF?
DAGBLAÐ
títgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Heisteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla HverfisgStu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
Símar: 16 60 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
„Utangátta“.
AÐ er engu líkara en að
Tímamenn hafi ekki enn
náð sér að fullu eftir lcosning-
arnar, og varð árangur Jieirra I>ó
hvorki betri né verri, en þeir
gátu búizt við ef þeir
á ■ annað horð höfðu gert sér
nokkra grein fyrir hvemig land-
ið lá. Virðast þeir skella allri
skuld á því livernig komið sé á
Sjálfstæðisflokkinn, en þó öllu
öðru frekar ríkisstjórnina, sem
setið hefir að völdum um nokk-
urra mánaða skeið.
Það, sem nú er helzt fundið
ríkisstjórninni til foráttu, er að
allskyns óþarfa vamingur hafi
verið fluttur inn í landið og
skipi;úmi eytt að þarflausu und-
ir þann flutning. Vita þessir
menn þó mæta vel, að hér er
farið með .rangt mál og ósatt,
og að það getur engum gert
gagn en nokkurt ógagn, að
svo miklu leyti, sem þjóðir
þær, sem við eigum undir
högg að sækja lijá, kunna að
taka slíkt fleipur alvarlega.
Sannleikurinn er sá, að nauð-
synjavörur einar munu hafa
verið flultar hingað til lands frá
Vesturheimi, en eitthvað kann
að liafa slæðst af óþarfavarningi
frá Englandi, enda er vitað, að
þaðan fáum við fátt af nauð-
synjavarningi eins og nú standa
sakir, og er það ofur eðlilegt.
Hitt kann að vera að nokkru
leyti rétt, að á fyrstu ámm
slyrjaldarinnar hafi eitthvað
verið flutt inn af glysvamingi,
sem enn mun að nokkru vera
óseldur, og verður t. d. settur á
jólamarkaðinn þegar }>ar að
kemur. Þetta eru birgðir frá
fyrri árum, og má enginn láta
blekkjast af því þótt slíkur vam-
ingur s,é ekki að fullu upp
seldur. Allur þessi vamingur
rnun vera aðfluttur frá Bret-
landi í byrjim stríðsins, og inn-
flytjendur lians liafa þá eina af-
sökun, að um margra ára skeið,
Iiafði ekkiverið leyfðurinnflutn-
ingur á sliku glysi, þótt nokkuð
væri slakað þar á er innistæður
margfölduðust í Bretlandi. Það
iná vel segja sem svo að barna-
gull og annað slíkt eigi ekki að
flytja inn, og vel er líklegt að
Framsóknarmenn, sem á sínum
tima ömuðust við innflutningi
ávaxta, kunni ennig að fordæma
flestan aðfluttan vaming ann-
an. En þeir mega sjálfum sér
um kenna. Allt þetta er inn-
flutt meðan að Framsóknar-
flokkurinn fór með viðskipta-
málin, en ekkert eða sama og
ekkert síðan.
Með þessu sífellda nöldri um
hinn óæskilega aðflutning og ó-
þarfa, eru Framsóknarmenn
beinlínis að vinna gegn íslenzk-
um hagsinunum. Þeir mega vel
minnast þess, að maðurinn lifir
ekki á brauði einu saman, og
land, sem á engan hátt er sjálfu
sér nóg, verður flestar nauð-
þurftir að flytja að. Við þetta
bætist svo, að sá innflutningur,
sem til landsins hefir komið,
hefir eklci einvörðungu lent í
höndum Islendinga, heldur
einnig að verulegu leyti hjá hin-
um erlendu setuliðum, sem hér
hafa dvalið. Ekki skal rætt um
einstakar vörutegundir, en þó
er ekki úr vegi að nefna hér
eina, sem mjög hefir verið um
deild. Mikið af bifreiðum hefir
verið flutt til landsins, og það
jafnvel svo mikið, að ýmsum
þeim, sem ekki þekkja hér til,
kann að hafa flogið i hug, að
þetta væri óþarfi að nokkru.
Við íslendingar vitum betur.
Okkur er kunnugt um að hér
er tilfinnanlegur skortur á bif-
reiðum, bæði til vöruflutninga
og fólksflutninga. Við vitum að
ógerningur hefir oft og tíðum
reynst að afla sér bifreiðar,
hvort sem um vöru eða fólks-
flutninga var að ræða, og enn
er ástandið óviðunandi í þess-
um efnum. Dettur svo nokkrum
heilvita manni i hug að inn-
flutningur bifreiða sé óþarfur?
Þessir menn verða vel að gæta
þess að hér er um atvinnutæki
að ræða, sem allir þurfa að not-
ast við, en atvinnutæki,, sem
greitt hefir sjálft það, sem það
hefir kostað í erlendum gjald-
eyri.
Um slíka hluti sem þessa
þarf ekki að deila. Innflutnings-
skýrslur eru vafalaust fyrir
hendi, þar, sem hver maður get-
ur sannfærst um hvað rétt er í
þessu efni, en þótt Tíminn sé í
nokkru efnishraki, á hann síð-
ast að grípa til þess, sem ósæmi-
legast getur talist gagnvart ís-
lenzku þjóðinni.
Vatn þvarr skyndi-
lega í Ölfusá í
fyrradag.
í fyrradag þvarr vatn skyndi-
lega í Ölfusi, svo að mjög lítið
varð í ánni. Nálægt Selfossi eru
klettar í miðri ánni og vanalega
álar báðum megin við þá, en nú
var hægt að ganga þurrum fót-
um yfir í klettana frá austur
bakkanum. ÁIl var vestan meg-
in klettanna sem áður. Þá bár-
ust fregnir um, að Hvítá hefði
einnig verið mjög vatnslítil.
Það hefir komið fyrir áður,
að vatn þvarr skyndilega í þess-
um ám, seinast árið 1923. Þetta
mun koma fyrir endrum og
eins og hafa myndazt um þetta
fyrirbrigði þjóðsögur.
Ekkert verður með vissu sagt
um hvernig á þessu stendur
og eitt af því furðulega við þetta
fyrirbrigði er, að vanalega
minnkar ekki í Hvítá fyrr en
kemur niður undir Hestfjall.
íkviknun af völdum
óvarins elds
1 morgun var. slökkviliðið
kvatt inn á Hverfisgötu 90, en
þar hafði kviknað í gluggatjöld-
um út frá kertaljósi.
Kviknað hafði í á efsta lofti
i húsinu kl. rúmlega 9 i morg-
un. Hafði kona, sem bjó þar í
ibúðinni, farið út að sækja
mjólk, en vegna þess að raf-
magn var bilað í húsinu, hafði
hún kveikt á kerti og ekki at-
hugað að slökva á þvi, áður en
hún fór eftir mjólkinni.
1 íbúðinni var ekki annað
fólk eftir, jægar konan fór út,
en tvö ung börn, og höfðu þau
komizt að ljósinu og velt þvi
um. Á þann hátt mun hafa
kviknað í gluggatjöldunum.
Maður nokkur, sem leið átti
um götuna, mun hafa séð hin
logandi gluggatjöld, fór inn í
húsið og var um það bil búinn
að kæfa eldinn, þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang.
Eldurinn náði ekki að breið-
ast út.
Átvik þetta er nógu ljóst til
að sýna flóki frám á hve brýna
nauðsyn ber til að fara varlega
með óvárinn eld.
Aukin sjósókn. — Fleiri
og betri fiskbúðir
V ___
Reykjavíkurbæp á fpysfihús, sem leigt er
öðpum, en myndi fullnægja þöpfum
bæjapbiia.
M örgum viðvaningum, sem falin er forsjá opinberra málefna,
— hvort sem er bæjarfélaga, sveitarfélaga eða ríkis —
hættir við að miða allar gerðir sínar við það, hváð einstakling-
urinn myndi gera í sömu tilfellum og hvað samboðið væri hon-
um, og haga sér svo fyrir hönd hins opinbera samkvæmt því.
Alveg án tillits til þess, að tilfinnigin fyrir réttu og röngu er
misjafnlega þroskuð hjá mannskepnúnum, er hitt jdfnvíst, að
skipti hins opinbera við þegnana á ekki að vera háð dutlungum
einstaklinganna og miðast við þá, heldur verður hið opinbera
ávallt að gæta þess af kostgæfni, að taka ekki meiri rétt en því
ber, og veita heldur ekki meiri fríðindi, en það er um komið.
Þessi afstaða hins opinbera til þegnanna er Sjálfstæðisflokknum
Ijós, en hinir róttækari flokkar virða slík lögmál að vettugi,
enda er þeirra æðsta boðorð að hið opinbera eigi allan rétt, en
einstaklingarnir sumpart engan og sumpart mjög takmarkaðan,
eftir því hvemig málefnin liggja fyrir.
í rauninni má segja að af-
staða einstaklingsins gagnvart
því opinbera hafi mótað flokka-
baráltuna síðasta aldarfjórð-
ung. Sumir vilja vernda rétt
einstaklingsins, en aðrir hafna
honum. Hefir þetta leitt til
margskonar árekstra víða um
lönd, og þar myndast merlcileg-
ur „dómstólapi’aksis“ sem mið-
ar að því að vernda rétt ein-
staklingsins gegn ágengni hins
opinbera, en hér hafa örfáir
slíkir dómar verið upp kveðnir,
og fyrst nú á siðustu árum. Nið-
urstaða allra þessara dóma mið-
ar að því, að tryggja fyllsta rétt-
læti gagnvart þegnunum, þótt
hið opinbera eigi í hlut og forða
því jafnfrámt frá að lúta siða-
lögmálum braskarans og banda-
bófsniðurstöðu einstaklingsins.
Þetta eru hin almennu sannindi
varðandi framkvæmdavaldið,
hver sem með það fer, og það
verða menn að hafa hugfast, er
rædd eru viðskipti einstaklings-
ins og hins opinbera, sem og ál-
mennar athafnir þess, og skal
ekki lengra út í það efni farið.
Gerðir samningar.
Fyrir nokkrum dögum birtist
hér í blaðinu grein um viðskipti
bæjarstjórnar og kaupenda
Sænska frystihússins, þar sem
lagst var á móti þvi, að bærinn
notaði forkaupsrétt sinn, með
þvi að hann væri ekki skilyrðis-
laus, en miðaðist við mat, sem.
myndi verða miklu hærra en
söluverð á liúsinu, eins og það
er uppgefið af hálfu kaupenda
og bæjarstjórnin hefir gengið
út frá að yrði hlutskipti bæjar-
ins. Frá því er grein þessi var
skrifuð, hefir henni verið and-
mælt í tveimur blöðum, Morg-
unblaðinu og Alþýðublaðinu.
í Morgunblaðinu eru sett
frarn þau rök: „að bæjarstjórn
hafi ekki samþykkt annað en
það, að óska eftir að fá notið
forkaupsréttar og fá frystihús-
ið keypt fyrir tiltekið söluverð.“
Þetta litur ósköp saklaust út á
pappírnum, en samkvæmt fund-
argerð dags. 4. nóv. s.l. samþ.
bæjarráð með 4 atkv. gegn einu
að skora á hafnarnefnd að neyta
forkaupsréttarins og hafnar-
nefnd samþykkti með 5 sam-
hljóða atkvæðum að það skyldi
gert, en þó fallið frá mati. Þeg-
ar þessar samþykklir eru gerð-
ar, er báðum þessum aðilum
ljóst, að hinir sænsku eigendur
hafa þegar selt frystihúsið á-
kveðnu hlutafélagi, og að kaup-
verðið er greitt, enda verður
að rifta þeirn kaupum, með öllu
því er slíku fylgir, ef bærinn á
að neyta forkaupsréttar, sem
honum þó ekki ber nema sam-
kvæmt mati. Að sjálfsögðu hafa
seljendur gengið út frá því, að
kaupendur fengi samþykki bæj-
arstjómarinnar til kaupanna, en
þrátt fyrir það hefir bæjarstjórn
enga ástæðu til að ætla að hún
geti gengið inn i kaupin, eftir
að þau eru gerð og tndanlega
frá þeim gengið. Vilji liún neyta
forkaupsréttar síns getur hún
það aðeins samkvæmt mati, og
kaupi bún samkvæmt mati er
talið sennilegt að kaupverðið
muni reynast miklum mun
hærra en hið tilgreinda söluverð
til Frosta h.f., og gæti þá þetta
tiltæki bæjarstjórnarinnar
engu góðu til vegar komið, þótt
bæjarfélagið hreppti nú hnoss-
ið með þessu móti. Rynni liið
hækkaða söluverð til sænsku
seljendanna skaðaðist landið
um nokkurn gjaldeyri, þótt
liann kynni að koma inn aftur
í skaðabótum til Frosta h.f. að
einhverju leyti, sem þó er ólík-
legt, með því, að forsenda hefir
það væntanlega verið fyrir
sölu frá Iiendi seljenda, að H.f.
Frosti sæi um samþykki bæjar-
stjórnar fyrir kaupunum.
Það er alger msiskilningur,
að mat samkvæmt frjálsum
samningum lúti sömu lögmál-
um og mat vegna eignarnáms,
með því að eignarnám, er fram-
kvæmt ein'ungis ef almanna-
heill krefur, og um það eru sett
sérstök lög, auk ákvæða stjóm-
arskrárinnar varðandi eignar-
réttinn. í eignamámslögunum
er að vísu lcveðið svo að orði,
að matið skuli miðast við það
verð, sem eignirnar „myndu
ganga“ kaupum og sölum, en
það er teygjanlegt ákvæði, sem
á auk þess alls ekki við hér.
Eg tel það þvi vafalaust, að
þetta tiltæki bæjarstjórnar geti
illt af sér leitt, en ekkert gott,
og vil eg þá athuga rök þau,
sem fram hafa verið sett varð-
andi nauðsyn bæjarins á að
kaupa frystihúsið.
Hagsmunir almennings.
Svo virðist, sem liin svokall-
aða Fiskinefnd bæjarins hafi átt
að því frumkvæðið, að bæjarfé-
lagið leitaði eftir kaupum á
Sænska frystihúsinu, en ekki er
vitað hvenær tillögur liennar
komu frám. Er það eitt þó víst,
að hún ber engar tillögur fram
í þessu efni fýr en eftir að Frosti
h.f. hafði ákveðið kaupin, en
sennilegt er að þá hafi ekki ver-
ið að fullu gengið frá yfirfærzlu
fjárins, þótt ekkert verði um
það fullyrt. Skal það tekið fram,‘
að hinn 17. febr. s. 1. barst stofn-
endum Frosta h.f. sölutilboðið,
en hinn 25. marz s. 1. kveðst
nefndin hafa sent fyrirspum til
seljenda um hvort eignin væri
föl.
Fiskinefndin kveður að fyrir
sér vaki með kaupunum: 1) Að
auka útgerðina í bænum og
tryggja kaup á fiski. 2) Að
framleiðaog selja ís og beitu til
skipa. 3) Að húsið geymi fisk
og matvæli fyrir fisksala og
verzlanir í bænum. Jafnframt sé
,-strax og hentugleikar leyfa
komið upp smákælihólfum, þar
sem geyma rná matvæli fyrir al-
menning. 4) Að tryggja það eft-
ir föngum, að ávalt séu nægar
birgðir af góðum fiski til neyzlu
í bænum.
I viðtali við MorgunblaðSð
befÍL- svo einn nefndarmanna,
Sigurður skipstjóri Sigurðsson,
látið j>ess getið, að hann vilji
taka þann fisk, sem afgangs
verður lijá fisksölum, til fryst-
ingar, í stað þess að þeir liafi
orðið að salta hann eða verka
á annan hátt, að hann hafi orðið
verðminni og verðfallið á þess-
um afgangsfiski lent á bæjar-
sölunni og fiskimönnum. önn-
ur rök hafa ekki komið fram.
Allir munu sammála um að
það, sem fyrir Fiskinefndinni
vakir sé í alla staði gott og bless-
að, en hefir hún athugað tillög-
ur sínar um kaup á Sænska
frystihúsinu svo sem vera ber,
— og er það nauðsyn? Alls ekk-
et liggur fyrir um athuganir
hennar á þessum málurn, ann-
að en þessar yfirlætislausu til-
lögur.
Ekki verður séð að afköst
Sænska frystihússins muni
verulega aukast við það, að hús-
ið hverfur úr einkaeign til hins
opinbera, en ef dæma má þar
eftir almennri reynslu af opin-
berum rekstri, myndu ýmsir á-
lykta hið gagnstæða. Öllu öðru,
sem fyrir Fiskinefndinni vakir,
er hægt að ná, með því móti, að
bærinn hverfi frá því ráði að
leigja Fiskimálanefnd íshús
sitt ísbjörninn, sem bærinn
keypti fyrir nokkrum árum.
Það hefir reynzt svo vel, að
jafnvel Jón Axel Pétursson
hafnsögulnaður þarf ekki að ef-
ast um að unnt yrði að frysta
fisk fyrir bæjarbúa svo i prýði-
legu lagi væri, — meira að segja
þótt fiskurinn væri í „amerísk-
um umbúðum“, eins og hafn-
sögumaðurinn vill vera láta.
Fiskinefndin, hafnai’stjórn,
bæjarráð og bæjarstjórn má
heldur ekki gleyma því, að nýtt,
afkastamikið íshús er nýlega
tekið til starfa hér í bænum, en
það hefir ekki fullnægjandi
verkefni enn sem komið er,
þótt vonandi rætist fram úr
þvi.
Það, sem gera þarf.
Það er síður en svo, að hörg-
ull sé á frystihúsum, ís eða
frystiplássi, og bæjarfélagið
getur tryggt hagsmuni bæjar-
búa á hvern þann hátt, sem. því
lystir, þ. e. a. s. sumpart með
því að reka frystihúsið ísbjörn-
inn sjálft og sumpart með samn-
ingum við t. d. Sænska frysti-
búsið. En það eru önnur atriði,
sem miklu meiri þýðingu hafa í
augnablikinu, og sem þarf að
ráða fram úr. Ber þá fyrst að
nefna fiskskort þann, sem í
bænum er, og sem stafar af þvi
fyrst og fremst, að bátar fást
ekki til róðra eða áhöfnfæstekki
á þá, og í öðru lagi er það fisk-
salan í bænum, sem þarf að
komást í lag hið allra bráðasta.
Því fer fjarri að frystihúsin
hafi ekki meira en nóg rúm fyr-
ir allan þann fisk, sem á land
kemur. Ágallinn er sá, að of lit-
ið fæst af honum. Það, sem.
gera þarf er að beina útgerð-
inni í það horf, að hún fiski, í
, stað þess að selja báta sína á
leigu til flutninga. Með því einu
móti er unnt að tryggja bæj-
arbúum nýjan fisk. Af frystum
Leskjað kalk
jHWHfaNIF
Ford
vörubíll
3ja tonna, til sýnis og sölu í
Mjóstræti 6, kl. 2—6 föstu-
dag og laugardag.
Vörubíll
til sölu. — Til sýnis á
Skólavörðustíg 22.
fiski hefir verið meira en nóg
og er vist ennþá.
En það eitt nægir ekki að
tryggja það að bátar rói, heldur
þarf og að greiða fyrir sölunni,
og þá ekki sízt með því, að koma
upp sómasamlegum fiskbúðum
sem víðast í bænum. Nú munu
þessar búðir á engan hátt upp-
fylla kröfur timans, — hvorki
um húsakynni, afgreiðslu, varð-
veizlu né umbúnað vörunnar,
en nauðsyn ber til að gengið
verði rikt eftir umbótum í þessu
efni.
Niðurlag.
Það er dálitið óviðfelldið að
eiga i deilurn við greinda menn,
sem „gleyma4 greindinni og
reyna að bjarga sér á bjánaleg-
um flótta. í hinni fyrri grein
minni fullyrti eg, að „fisksölu-
búðirnar yrðu ekki reistar i ná-
grenni hafnarinnar við kolin“,