Vísir - 27.11.1942, Síða 2

Vísir - 27.11.1942, Síða 2
VlSIR DAGBLAÐ {jtgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Heisteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstrwti). Síraar: 16 6 0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Þörf hugvekja QREIN Björns Ólafssonar sem hirlist hér í blaðinu í gær hefir vakið mikla eftir- tekt og allmiklar umræður manna á meðal. — Allir við- urkenna, að liér hafi verið Ijóst og öfgalaust drepið á það helzta, sem þjakar þjóðina í bili, sem og leiðir til úrlausnar, er fara verður. Greinarhöfundur legg- ur á það ríkasta áherzlu, að unnið verði gegn dýrtíðinni með því, að lækka kaupgjald og verðlag svo sem frekast er unnt, þannig að sjávarútvegi verði lialdið uppi og hann geti borið sig. Öll afkoma þjóðar- inrlar byggist frekar á þessum atvinnuvegi en nokkrum öðr- um, og án hans verði ekki aflað þeirra nauðsynja, sem kaupa þurfi frá útlöndum. Nú sé á- standið svo í bili, að togaraflot- inn liggi aðgerðalaus, af utan- aðkomandi ástæðurp, en smá- bátaútgerð beri sig ekki, og muíii því leggjast niður með öllu, :enda hafi frysliliúsin í landinu lagt niður starfsemi, með því að þau séu rekin með stórkosllegum halla. Til þessara frystiliúsa liefir þjóðin varið stórfé á íslenzkan mælikvarða á undanförnum árurn, í því augnamiði að efla framleiðslu sjávarútvegsins og gera hann að arðbærum atvinnuvegi. Öllu þessu fé og öllu því starfi liefir verið á glæ kastað vegna fyrir- hyggjuleysis þessara mestu veLtutíma,' sem þjóðin hefir lifað. Kauplag í landinu verður að ákveðast með hliðsjón af verð- lagi sjávarafurðanna og mögu- leikum útvegsins til að verð- bæta afurðir landbúnaðarins. Ef það væri gert myndi at- vinnulíf Iandsins ná aftur jafn- vægi, því að þá er það byggt á raunhæfum grundvelli. Þegar fundið er samræmi milli verð- lags sjávarafurða og kaup- gjalds annarsvegar og milli kaupgjalds og verðlags inn- lendra afurða hinsvegar, þá er tiltölulega brotalit- ið að ná markinu, ef sameigin- legur vilji er fyrir hendi. Þetta eru í aðalatriðum skoðanir Björns Ólafssonar á því hvað gera þurfi. í lok greinarinnar ræðir Björn að nokkru tillögur vinstri flokkanna varðandi landverzl- un og telur þær stefna til óheilla, frá hvaða sjónarmiði, sem séð er. Það eigi ekki að sniðganga þá menn, sem mesta möguleika hafi til að afla hagkvæmra inn- kaupa á erlendum varningi, og naumast væri unnt að hugsa *sér stærri glópsku en þá, að setja upp nýtt kerfi fyrir innflutning til landsins og fá það i hendur einni stofnun. Til frekari árétt- ingar þessum ummælum grein- arliöfundar skal á það bent að landsverzlun hefir slíka ann- marka að öðru leyti, að menn ættu að skoða hug sinn tvisvar áður en lagt er í slíkt fyrirtæki. Innflutningur til landsins mun liafa á síðasta ári numið um 200 milljónum króna. Ef lands- verzlun ætti að birgja landið upp af nauðsynjum til þriggja mánaða, sem væri það allra minnsta, sem nauðsyn krefði, þyrfti hún að fesla i vörum um 50 milljónir króna, og greiða allt þetta fé fyrirfram, með þvi að vörur fást nú ekki innfluttar með öðru móti. Vildi lands- verzlunin flytja inn meira af vörum, en fyrirliggjandi eru nú að jafnaði, þyrfti hún að sjálf- sögðu miklu meira fé til rekst- ursins, og ekki nóg með það, heldur þyrfti hún einnig að leggja í ærinn kostnað til þess eins að koma upp vöruskemm- um, sem nú eru af það skomum skammti, að leita hefir orðið margskonar ráða til að koma varningi í liús, og jafnvel orðið að geyma hann í portum undir beru lofti. Húsnæði fyrir slíkt verzlunarbákn má segja að sé aukaatriði, með því að alltaf megi ráða fram úr því, en engar öfgar munu það þó vera, að rík- ið sé nú í hreinustu vandræðum með að koma ýmsum opinber-1 um fyrirtækjum undir þak, og að mörg þeirra eiga nú við ó- viðunandi húsakynni að búa. Reynzlan á landverzlun þeirri, sem sett var á fót á stríðs- árunum 1914—1918 var með þeim hætti að enginn viti bor- inn maður myndi æskja eftir þvi, að sagan endurtæki sig i þvi efni, enda mun hér gæta frekar kapps en forsjár hjá flokkum þeim, sem fyrir lands- verzlun berjast. Allt annað mál væri það ef innflutningskerfi því, sem nú gildir væri breytt í hið hagkvæmasta horf, ef ein- hverjar þær veilur liafa komið ffam á því, sem nauðsyn ber úr að bæta. Gegn því mun engin flokkur og engin stétt standa, ef heilbrigðrar skynsemi er gætt. Þess er að vænta að þing- flokkarnir beri gæfu til að vinna svo að lausn þessara vandamála, að við verði unað', en stundarsigur einstakra flokka á þessum vetvangi getur vissulega verið með þeim hætti, að hann sé verri en engin. Verð- ur hér að gæta allrar liófsemi og gera þær einar ráðstafanir, sem tvímælalaust miða að al- þjóðarheill. Sundknattleiksmót Reykjavíkur hóíst í gær. Ægir sigraði K.R. með 3-2 í gærkveldi hófst Sundknatt- leiksmót Reykjavíkur með keppni milli K. R. og Ægis, og lyktaði henni með sigri Ægis, 3:2. í sundknattleiksmótinu taka þátt fjórar sveitir, tvær frá Ár- manni, ein frá K. R. og ein frá Ægi. í kvöld kl. 10 keppa sveit- ir Ármanns A og B. Þess skal getið, að kappleikir þessir, að úrslitaleiknum einum undanteknum, eru lokaðar fyrir almenningi. Ætti fólki þó að gefast kostur á að fylgjast með liðunum og lofa því að sjá hvað þau gera vel og í hverju þeim er ábótavant. A. m. k. ætti, ef ekki þætti tilhlýðilégt að selja aðgang að leikjunum, að bjóða íþróttamönnum, og iþróttavin- um að vera viðstaddir keppn- ina. Ákveðið er að sundknattleiks- mótinu ljúki 9. des. n. k., og þá sennilega í sambandi við skólasundið. Skólasundin eru tvö. Fer hið fyrra fram 9. des. og keppa þá 20 manna sveitir í 20x60 metra bringu-sundi. Síðara skólasund- ið fer fram síðar og verður þá keppt í 10x60 m,. skriðsundi. Tóníó Kröger, eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn Thomas Mann, ein fegursta perlan í þýzkum bókmenntum, er nýkomT in á íslenzku í þýðingu Gísla Ás- mundssonar, hjá Máli og menningu. — Nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar er einnig komið út. Eru fslendíngar að stækka? Mælingar hafa leitt í ljós að eru þroskameiri nú, hér á en fyrir 10 árum. börn landi Frú Karen Margrethe Kaldalóns sextug í gær. M ælingar sem gerðar hafa verið á bömum hér á landi, bæði í Reykjavík og Akureyri, hafa leitt ýmislegt eftirtektar- vert í Ijós, svo sem það, að þroski bama er meiri nú en hann var fyrir nokkurum árum. Eftir þessum mælingum að dæma mun láta nærri að 11 ára gamalt bam nú sé álíka þroskað lík- ajnlega og 12 ára bam var fyrir tíu árum. Sá maðurinn, sem mesta i'œkt hefir lagt við líkamsmæl- ingar barna, er Snorri Sigfússon skólastjóri á Akureyri. Hefir Iiann á undanförnum tíu ár- um vegið og mælt börnin þrisv- ar á hverju skólaári og hefir liann birt niðurstöður þeirra mælinga sérprentaðar. I þessum mælingum kemst $norri að jieirri niðurstöðu, að skólabörn á Akureyri séu yfirleitt líkamJega þroskaðri heldur en skólabörn í Reykja- vík, og ennfremur að norð- lenzku börnin . muni komast mjög nálægt þvi að geta mælt sig við norsku börnin, einkum að þyngd, en hinsvegar eru norsk börn i flokki liæstu skóla- barna á Norðurlöndum. Annað sem er eftrtektarvert í þessu sambandi er það, að töl- urnar fara hækkandi, þ. e. að börnin eru bráðþróskaðri en áður, svo að segja má að t. d. 11 ára börn liafi nú náð svip- uðum líkamsþroska óg 12 ára barn hafði fyrir 10 árum. Þetta sama hefir einnig komið í ljós i Noregi, því að þar sýndu mæl- ingar, að t. d. 9 ára börn voru viðlíka að þroska árið 1930 og 10 ára gömul börn voru 1920. Nú hlýtur þeirri spurningu að skjóta upp, að ekki geti þessu haldið áfram, endalaust. Og eins um það, hverjar séu orsakir þessa og hverjar afleiðingarnar. í greinargerð Snorra Sigfús- sonar er þess getið til, að hin stórum bætta aðbúð bai'nanna muni eiga drjúgan þátt í aukn- um líkamsþroska. Hann segir, að hvað Akureyrarbörnin snerti, hafi þau síðan 1932 feng- ið daglega bæði mjólkur- og lýsisskammt í skólanum, og séu þau búin að neyta þar um 50 þús. litra af mjólk og nokkuð á fjórða þús. lítra af lýsi. Þá hafa 3 undanfarin ár nærri 400 börn fengið ljósböð í skólanum. Skólamælingarnar hafa leitt annað eftírtektarvjert atriði í ljós, og það er að þroskaauk- inn kemur yfirleitt meir á þá mánuði ársins sem börnin dvelja í skólanum. Einkum gætir þessa meðal hinna eldri ibarna, og mun láta nærri að um 65% ársvaxtarins. komi á þann helming ársins er skóli starfar. Vísir að listaskóla Islands í íramtíðinni. Merkilegur þáttur í skólalífi voru. Handíða- og myndlistaskól- inn hefir nú starfað á f jórða ár og leyst af hendi gott starf, en þó mun markverðasti þáttur hans ekki hafa verið stofnaður fyrr en haustði 1941. Það var myndlistardeildin. Hún hefir nú á að skipa fjórum ágætum kennurum, Kurt Zier, sem er jafnframt yfirkennari skólans, Jóni Engilberts, Þor- valdi Skúlasyni og Ninu Tryggvadóttur. Þessi deild Handiða- og myndlistaskólans bætir úr brýnni þörf. Hér hefir aldrei verið til raunverulegur undir- búningsskóli fyrir þá, er hafa hug á að brjótast hina erfiðu braut að verða listamenn. Áður fyrr hafa þeir, sem hafa lagt út á listabrautina, orðið að stunda allt nám frá rótum erlendis og það hefir skiljanlega haft i för með sér mikil útgjöld, sem oft hefir verið kastað á glæ, þegar i ljós hefir komið, að allt annáð átti við liinn lilvonandi lista- mann en listirnar. Þessi skóli kemur í veg fyrir að slík vonbrigði geti átt sér stað. Kennararnir sjá það fljót- lega, hvaða hæfileikar búa jmeð nemendunum og með því móti geta þeir vinsað þá úr, sem éru á „rangri híllii“. Kennslan fer fram ó sama hátt og hjá erlendum undirbún- ingsskólum, sem íslenzkir nem- endur Ieita til, en er þó að því leyti frábrugðin, að hér hvílir enn mejri vandi á herðum kenn- aranna. Nemendurnr hafa eng- in söfn eða gamla listafjársjóði til að ausa aukinni þekkingu úr og því verða kennararnir að bæta það upp, sem hér skortir á að því Ieyti. Ilandiða- og myndlistaskól- inn hefir hér lagt út á merkilega braut. Margir erfiðleikar eru á veginum, en menningarstarfi því, sem þannig er hafið, ættu allir að óska góðs gengis. Bak við það er stórhugur, sem á það san.narlega skilið að bera sigur úr býtum. Árás araerísks hermanns á konu ( Höfðahverfl. í gær réðist hermaður á konu eina inni í Höfðahverfi og veitti henni töluverðan áverka. í gærkveldi um kl. 10 var lög- regluvarðstofunni tilkynnt að fyrir á að gizka stundarfjórð- ungi hefði amerískur hermaður ráðizt á konu eina í Höfðahverfi og varpað henni á götuna, svo að hún hefði við það fengið töluverðan áverka. fslenzk og amerísk lögregla fóru á vettvang og jiegar inn í Höfðatún kom, fann hún konu þá, sem fyrir árásinni hafði orðið. Skýrði konan svo fró, að er hún var á leið heim til sín — en hún á heima þar í grennd, sá bún allt í einu hermann spretta upp við veginn rétt/ hjá sér og í sömu svifum réðist hann aftan að henni og tók fyrir munn hennar. Reyndi hermaðurinn að draga konuna út á tún, en henni lánað- ist þá að slá hermanninn með regnhlíf, sem hún hafði í liend- inni. Við höggið sleppti her- Frú Kaldalóns er af merkum dönskum ættum. Faðir hennar t | var Kristian Thomsen kgl. J ! skógarvörður á Sjálandi, en móðir hennar, Maria Meugel, var af dönskum skipstjóra- ættum. Frú Kaldalóns hefir snemma svarið sig i þessar styrku ættir, hvað framtak og dugnað snerti; þvi 16 ára fór hún að vinna fyrir sér sjálf, og vann sig fram í hjúkrunarkonustöðu, og var búin að fá veitingu fyrir yfir- hjúkrunarkonustöðu við fæð- ingarstofnunina í Kaupmanna- höfn þegar ungur íslenzkur læknir, Sigvaldi Stefánsson, hitti hana að máli. Segir ekki af því meir nema það, að skömmu síðar giftu þau sig í Kaupmannahöfn, fluttu til Is- lands, fyrst til Hólmavíkur. Ári síðar fékk læknirinn veitingu fyrir Nauteyrar-læknishéraði, Þar voru þau i 11 farsæl ár æfi sinnar. Þangað hugsa þau jafn- an, um þajð timabil er þeim ljúft að tala. Þá kom áfallið mikla, fjög:a ára veikindi Sigválda. sem um sinn varð að hætta læknisstörf- um. Síðan gerðist hann um fjögra. ára skeið læknir í Flatey en siðan í Grindavik. Þau eiga 3 efnileg mppkomin börn. Hvar sem þau hjón hafa sleg- ið tjöldum sínum, hefir heimili þeirra altaf verið staður friðar, ánægju og gestrisni, og er það vitanlega hlutverk frúarinnar ekki siður en manns hennar, því hún má hiklaust teljast ein af merkustu konum fslands. Eg : segi Islands, þvi þó að frú Kaldalóns sé dönsk að ætt og uppruna, þá hefir hún unnið ( landi voru og þjóð öll sin Llómaár, og Jifað sig inn i ís- lenzkan hugsunarhátt og ís- lenzkar kringumstæður á hinn /cgtegasta máli. — Dugnuður hennar, gestrisni og hið fram- úrskarandi alþýðlega og glaða viðmót, hefir gert heimilið að sannkölluðum griðastað, sem ásamt tónuin og viðmótstöfr- um Kaldalóns, hefir dregið vin- ina að þeim með segulmögnuð- um krafti. Enn er ótalið það sem kannske er mest umvert í fai'i Irúarinnar, það er hin óþreyt- andi líknarhönd hennar við sjúka og bágstadda, bæði í fjar- veru læknisins og samhjálp vxð liann. Sigvaldi Kaldalóns hefir sagt mér sjálfur, að kjarkur og létt- ! lyndi konu sinnar hvað sem á gekk, hafi oft gert sér mcgu- legt að setjast við hljóðfærið og gléyma raunum og veik- indum. Hér er ekki tími né tækifæri Ú1 að telja upp eða lýsa, öllum þeim ógleymanlegu ánægju- stundum sem þetta dæmafáa hcimili hefir veitt mér og öðr- um kunnugum og ókunríugum, skyldum og óskyldum. En ég veit, að eg mæh fyrir munn óteljandi manna, cr eg flyt frú Kaldalóns, ástvinum hennar og.heimili, alúðarfyllstu þakkir og árnaðaróskir. Ríkarður Jónsson. maðurinn takinu og hypjaði sig á brott. Var konan töluvert skrámuð á h'né og kvartaði auk þess undan verk í bakinu. Ekki hefir tekizt að hafa uppi á þeim seka. Alullar-Tricotine kjólaefni í fallegum litum, nýkomin. VERZLUN H. TOFT. Skólavörðust. 5. Sími 1035. er kominn. Veggfóðraverzlun VICTORS HELGASONAR. Hverfisgötu 37. Sími 5949. Til sölu sex manna Chrysl- er-bifreið í núverandi ástandi eftir ákeyrslu. Til sýnis á bifreiðaverkstæðinu Frakka- stíg 10. — Ávalt fyrirliggjandi Samkvæmis- Síðdegis- Kvöld- DÝRLEIF ÁRMANN. Saumastofa. Tjarnargötu 10. Aðalfnndar í kvöld Ul. 8.30 Nokkurir dökkbláir regnfrakkar á unglingspilta og fullorðna. KÁPUR á 8—14 ára ' telpur. Einnig mikið úrval af fallegri VEFNAÐARVÖRU. Það borgar sig að Iíta inn. (lllllll* 9 (Horninu á Grettisgötu og Barónsstíg). fRÁWfí'ðYl/lKI er miðstöS verðbréfavift- skiptanna. — ' Sími 1710. Kristján Gnölaugsson Hæstaréttarlögmaður. Skrifstofutími 10—12 og 1—8. Hverfisgata 12. — Sími 3400. Borðhnifar kr. 2.30 — 2.40 og 3.75. Sími 1884. Klapparstíg 30.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.