Vísir - 02.12.1942, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. haeð)
32. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 2. desember 1942.
Ritstjórar
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S llnur
Afgreiðsla
253. tbl.
Rússar nálgast
kovo og hafa um-
kringt Rzhev.
Þjafmað æ meira að Þjóð-
verjum milli Stalingrad
og Don.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Ollum fregnum frá Rússlandi ber saman um, að
Rússar haldi áfram sókn sinni með miklum
árangri og án þess nokkurt lát verði á. Suður
af Stalingrad nálgast Rússar Kotelnikovo, en vestur og
norðvestur af Stalingrad þéttist æ meir hringurinn um
hinar umluktu hersveitir. Hinn hernaðarlega mikilvægi
bær, Rzhev, tæpa 300 kílómetra vestur af Moskva er
umkringdur og vestur við Velikie Luki vofir það yfir
Þjóðverjum, að Rússar nái járnbraut, sem þeir hafa
notað til megin-herflutninga.
Framsókn Rússa er einna
hröðust suður af Stalingrad.
Eftir seinustu fregnum að dæma
eiga þeir skammt eftir ófarið
til Kotelnikovo. í Rússlands-
fregnum hefir vérið talið að
Þjóðverjar hefðu 250.000—400.
000 manna her á vígstöðvunum
næst Stalingrad, og að þessi
mikli herafli væri króaður inni.
í fregnum í gær var lalið, að
ekki væri lengur uema um 100,-
000 manna þýzkan her að ræða
á þessum, slóðum. Tala fanga er
nú komin upp í yfir 70.000, en
60.000 menn liafa fallið, en
þetta verða samtals 130.000
menn, en þegar líkt stendur á
og hér er vitanlega um fjölda
hermanna að ræða, sem saknað
er eða ekkert verður sagt um
með vissu. Allar shkar tölur,
frá hvaða hernaðaraðila sem er,
byggjast að sjálfsögðu mjkið á
ágizkunum. Öllum fréttaritur-
um ber saman iun, að iskyggi-
lega horfi fyrir hersveitum
Þjóðverja, sem, innikróaðar eru.
Þær hafa margar litið sem ekk-
ert matarkyns, nema það, sem
varpað er til þeirra úr þýzkum
lierflutningaflugvélum, en
Rússum verður æ betur ágengl
að granda slíkúm, flugvélum.
Þeim tókst að eyðileggja yfir
50 i gær, og voru 20 skotnar
niiður, en hinar eyðilagðar á
fíugvöllum.
Undanlraldsleiðir Þjóðverja
til vesturs eru nú sagðar ör-
ugglegar lokaðar en áður.
Fréttaritarar síma, að sóknin
á Stalingradvígstöðvunum sé
stórkostlegri en á vígstöðvunum
við Rzhev og Velikie Luki, en
þessi sókn vekur þó litlu mirtni
athygli nú. Rer margt til og m.
a þetta:
Þarna eru varnir Þjóð-
verja sennilega öflugastar á
öllum austurvigstöðvunum.
Rzhev er aðalstöð í víg-
stöðukerfi, sem Hitler kom
upp í því skyni að gera það-
an árásir á Mos*kvu, enda
hefir hann nú fyrirskipað,
að enginn þýzkur hermað-
ur megi hörfa um fet á
þessum slóðum.
Rússar hafa áður komizt
nærri þvi að ná Rzhev og
hafa haft fótfestu í úthverf-
unum æ síðan. Menn spyrja
hvort þeim muni verða bet-
ur ágengt nú, en ef þeir
tæki Rzhev yrði það
Hitler stórkostlegur álits- '
hnekkir, og nýtt áfall ofan
á hin mörgu, sem liann og
herskarar hans liafa orðið
fyrir í seinni tíð.
Þjóðverjar eru nú innikróað-
ir í Rzliev. Rússar liafa rofið
járnbrautina milli Rzhev og
Vyasma og aðrar brautir sem til
borgarinnar liggja eru á þeirra
valdi, en Þjóðverjar verða að
fá allar nauðs>'njar að loftleiðis.
í gær bárust fregnir um, að
barist væri á götunum, í Rzhev
af mikilli grimmd. — Vestar,
við VeJikie Luki eru Rússar að
reyna að umlykja her Þjóðverja
og hefir orðið talsvert ágengt.
Seinustu fregnir herma, að
rússneskir skriðdrekar í hundr-
aða lali streymi gegnum fjTstu
varnarlínu Þjóðverja á víg-
stöðvunum norðvestur af
Moskva á fjórum stöðum. Önn-
ur varnarlína Þjóðverja á þess-
um slóðum er á breiðu svæði,
og er þar ekki um samfeldar
viggirðingar að ræða.
ítalir
heimta
frið.
Þjóðverjar senda
fleiri Gestapomenn
og herlið til Ítalíu.
I fyrrakvöld komst Cordell
Hull u tanríkismálaráðherra
Bandaríkjanna svo að orði, að
Bandaríkjastjórn hefði fengið
fregnir frá ítaliu, sem bentu til,
að vaxandi ókjn-ð væri í land-
inu, þjóðin væri orðið þreytt á
ófriðnum og vildi frið. Skyldi
það engan furða þótt mikil tíð-
indi færu að berast frá ítaliu,
um samblástur í hernum o. s.
frv.
Daglega berast nú fregnir,
sem leiða ótvirætt i ljós að á-
standið á ítaliu er að verða hið
ískyggilegasta. Viða hafa menn
hópast saman og heimtað, að
styrjöldinni yrði hætt og friður
saminn. Hið ógurlega tjón af
völdum Ioftárása Breta hefir
valdið miklu um. Italir eru sár-
gramir Þjóðverjum. I Grikk- j
landi hefir komið til vopnavið- j
skipta milli ítalskra og þýzkra
Kotelni-
Stutt Ogr laggott.
Flugvélar bandamanna frá
Indlandi halda uppi árásum á
stöðva Japana í Burma og sein-
ustu fregnir lierma, að árásir
hafi verið gerðar á stöðvar Jap-
ana á Andamaneyjum í Ind-
landshafi.
•
Loftvarnaskyttur á brezka
togarartum Finesee liafa skotið
niður Focke-Wulf órustuflug-
vél.
•
Þýzki hershöfðinginn von
Thoma, sem Bretar tóku hönd-
um í orustunni um Egiptaland,
er nú í fangabúðum í Bretlandi.
•
60 flugvélar, sem flugmenn
úr hópi hinna striðandi F’rakka
stjórna, eru koinnar til Rúss-
lands.
•
Ástralíumenn eru komnir til
sjávar milli Gona og Buna á
Nýju Guineu. Lokaárásin á
Buna er um það bil að byrja.
Úrslitaorustur
byrjaðar um
Túnisborg og
Bizerta.
Loftárásir á Bizerta,
Gabe og Sfax.
Bandamenn breikka stöðugt
fleyg þann, sem þeir hafa rekið
inn i víglinu Þjóðverja milli
Tunisborgar og Bizerta. Járn-
hrautarsambandið milli þessara
borga er rofið. Framsókn banda-
manna er þó hæg i fleygnum,
þvi að Þjóðverjar hafa lagt
sprengjur í jörð mjög víða,
sprengt brýr í loft upp og gert
márgt annað, til þess að tefja
fyrir bandamönnum.
Miklum loftárásum er lialdið
uppi á flugvellina við Bizerta
og Tunisborg, skip Þjóðverja og
hafnarmannvirki í Bizerta, og
loks er þess getið, að í gær liafi
verið gerðar dagárásir á þessar
borgir og hafnarborgirnar Gabe
(sem Italir eiga að verja) og
Sfax á austurströndinni. Her-
sveitir bandamanna eru nú sagð-
ar komnar til austurstrandar-
innar og er því rofið sambandið
inilli ítala og Þjóðverja i Norð-
ur-Tunis við setulið þeirra i Tri-
politania.
í gær var talið að meginher
bandamanna væri aðeins 18 km.
frá Tuhisborg og um 30 frá
Bizerta.
hennanna. í Piræus liafa ítalsk-
ir hermenn neitað að fara út i
herflutningasldp. Forsprakk-
arnir voru teknir og skotnir.
Jafnaðarmannáfélögin á
ítalíu — sem starfa með leynd,
af þvi að samtök ]>eirra eru
bönnuð og starfsemi — liafa
dreift út ávarpi til þjóðarinnar
um að brjóta hlekkina, sem
faseistar hafa lagt hana i.
Fregnir fráiTyrklandi og víð-
ar að lierma, að daglega komi
járnbrautarlestir frá Þýzka-
landi til ítaliu fullar herliði og
Gestapomönnum.
Þegar bandamenn ætla að leggja í innrásina á meginlandið,
ætla þeir sér að nota öll þau hernaðartæki, sem hingað til hafa
revnzt vel, hvort sem það eru möndulveldin eða bandamenn,
sem notuðu ]>au fyrst. Það var hernám Krítar, sem sýndifram
á notagildi svifflugunnar til innrásar og hér sést amerisk svif-
fluga, sem tekur níu hermenn með alvæpni. — Bandamenn
smiða líka 15-manna-sviffIugur.
Stjórn Japana á
Hollenzku A.-Indíum.
Japönum hefir orðið lítið sem
ekkert ágengt við að vinna íbúa
Hollenzku Austur-India til
fylgis við sig.
Þetta sagði dr. F. H. Visman, i
einn af fulltrúum stjórnar-
nefndar nýlendnanna við einn
fréttaritara U. P. i Ástratíu í
síðustu viku. Dr. Visman slapp
frá Java og komst til Ástralíu
fyrir skemmstu og veitti blaða-
mönnum litlu siðar viðtal.
Það, sem orsakaði það, live
Japönum gengur illa að vinna
hylli nýlendubúa, hvítra eða
dökkra, kvað Visman vera
hroka ]>eirra og harðýðgi. Eng-
inn má mæta eða ganga fram-
hjá japönskum hermanni án
þess að hneigja höfuð sitt og
taka ofan, að öðrum kosti er
likamleg hegning vís.
Fjölmargir embættismenn, er
voru valdir úr hópi innborinna
manna, en þeir voru settir af
og þótti það stinga í stúf við yf-
irlýsingar Japana um að þeir
vildu veg innborinna manna
sem mestan.
Seinustu fregnir frá Ástralíu
herma, að f jórir japanskir tund-
urspillar hafi sézt undan
strönd Nýju Guineu og
reyni Japanir enn að setja lið á
land á BunatGona svæðinu.
Bandaménh lialda uppi loftárás-
um á skip þessi. Japanir hafa og
gert tilraun til árása á einn
flugvöll bandamanna, en þrjár
flug\ælar voru skotnar niður.
Innbrot:
Kveniokknm
stolið.
1 fyrrinótt var brotizt inn í
verzlunina Gullbrá á Hverfis-
götu 42 og stolið þaðan nokk-
Slysavarnirnar:
MarkmiQtð er slysa
vanasveit i filln
hreppi landslns.
Vísir átti stutl viðtal við
Jón Bergsveinsson erindreka
Slvsavarnafélags tslands og
spurði hann tíðinda, um slysa-
varnamál, en hann kvað fátt
frétta um þessar nnindir, neina
helzt ]iað, að nú væri í ráði að
fara norður í land, og hefjast
handa um stofnun slysavarna-
sveita norðanlands,, og senni-
lega byrjað á Hvammstanga.
— Hvað eru nú margar slysa-
varnasveitir á landinu?
— Þær eru hm 120, sagði Jón
Bergsveinsson, og flestar á suð-
ur og suðvesturlandi. í
Vestur-Skaftaféllssýslu eru
slysávarnasveitir í öllum
hreppum til dæmis. — Eg
er nýkominn austan úr Mýrdal,
var þar á aðalskeinmtun slysa-
varnasveitarinnar Pétursey og
var skemmtunin haldin i Litla
Hvammi. Var þar inargt um
manninn og þori eg að fullvrða,
að áhugi fyrir slysavörnum er
mikill þar eystra. I Rangárvalla-
sýslu eru einnig slysavarna-
sveitir í öllum hreppum og
flestum i Árnessýslu og yfirleitl
á suðvesturlandi liefir sótt vel
að markinu, en Norðurland og
jafnvel Austurland lika hafa
orðið útundan. Markmiðið er,
að slvsavarnasveitir verði starf-
andi i öllum hreppum landsins.
Eg vil þó taka fram, þar sem
Norðurland bar á góma, að
nokkrar slysavarnasveitir eru
þar starfandi, svo sem\i Húsa-
vik, Akureyri, Siglufirði, Dal-
vík, Ólafsfirði og víðar, og á-
hugi mikill livarvetna þar sem
slysavarnasýeitir eru komnar á
fót.
uð af vefnaðarvöru og þ. á. m.
kvensokkum.
Innbrotið var framið með
þeim hætti að brolizl var inn
um glugga á bakhlið hússins og !
farið inn i herbergi á bak við
búðina. Herbergi þetta er að
einhverju leyti notað sem vöru-
geymsla og hafði þjófurinn það-
an á brott með sér ^itthvað af
vefnaðarvöru og silkisokkum.
Þegar slysavarnasveitir eru
komnar upp í öllum hreppum
verður margt léttara viðfangs
en nú og væri æskilegt, að ]>vi
marlti verði náð sem fyrst að
slysavarnasveitir verði i hverj-
um hreppi.
J. E. B. skýrði tiðindamanni
Vísis frá því, að strandskýlið
við Skafárós væri nú komið
undir þak og væri að eins eftir
að klæða það innan.
Fullveldisins
minnst utan
heimalandsins
i
Fullveldis íslands var minnzl
í útvarpi frá Bretlandi, Þýzka-
Iandi og Bandaríkjunum í fyrra-
dag og gær.
Pétur Benediktsson sendi-
herra íslands i Ixmdon ávarpaði
íslendinga í útvarpi á íslenzku
frá London i fyrradag og mælti
þar fyrir minni fullveldisins.
í gærkveldi var endurvarpað
frá New York og Washington
útvarpi í tilefni af fullveldisdegi
íslendinga. Þar töluðu frú Elea-
nor Roosevelt, Vilhjálmur Stef-
ánsson landkönnuður, Thor
Tliors sendiherra . og Ebert
Thomas, öldungadeildarþing-
maður, en Grettir Ásmundsson
konsúll var þulur.
Frú Roosevelt skýrði m. a.
frá þýí, að Hobart hásliólinn
I hafi boðist til ]>es$ að sjá litla
| drengnum, sem slasaðist á Seyð-
1 isfirði, fyrir fram.tíðarmenntun.
í Berlín efndi íslendingafélag-
ið til samkomu og flutti Jón
Leifs tónskáld aðalræðuna, en
dr. Sveinn Bergsveinsson stýrði
samkomunni. Var ræðu Jóns
Leifs útvarpað hingað.
Neinnstu fréttir
Mússólíni hefir flutt útvarps-
ræðu — í fyrsta sinn á 18 mán-
uðum. í ræðu þessari sagði
Mússólíni, að 1800 menn hefðu
farizt í loftárásunum á Norður-
Ítalíu og 3300 særzt. -—,„Þjóð-
verjar hafa lofað fleiri loft-
varnabj’sum og fólkið verður
flutt úr stórborgunum.“
; ; _____ •• Ö
Franskur kafbátur kom til
Oran í Norður-Afríku i gær frá
Toulon. Þetta er kafbátur sá,
sem áður var frá sagt, að hefði
komið inn i höfnina i Valencia,
og látið úr höfn eftir skamma
viðdvöl.
•
Liklegt er talið, að Lavat
flytji aðsetur stjórnar sinnar
til Parísar.
•
Sérstakir dómstólar hafa
verið settir á fót i Frakklandi
lil þess að dæma í málum
manna, sem vinna gegn rikinu.
- Þá hefir verið gefin út til-
skipun um skylduvinnu karla
og kvenna. Er hægt að skylda
íolk á vissum akíri til hvers-
konar vinnu.
•
Ameriskir kafbátar hafa
sökkt að minnsta kosti 5 jap-
önskum skipum á Kyrrahafi.
Eitt skipanna var tundurspillir
og annað 9000 smálesta oliu-
flutningaskip. Hin voru vöru-
flutningaskip. Auk þess lösk-
uðust 4 skip.
Minninffarathöfn
um sjómennina'er fórust með
togaranuni Jóni Ólafssyni fór fram
í dag og hófst kl. 2 e. hád.
HúsmæSraskóla Keykjavikur
hefur borizt vegleg gjöf ,frá frú
Hólmfríði Gísladóttur forstööu-
konu, þar sem hún ánafnar skólan-
um húseignina nr. 28 vi'ð Þingholts-
stræti ásamt tliheyrandi lóð, og þar
að auki færði hún skólanum mjög
dýrmætan borðbúnað og aðra muni
að gjöf.
1