Vísir - 02.12.1942, Blaðsíða 2
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VfSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Heisteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjnnni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
Símar: 16 6 0 (fimm línnr).
Verð kr. 4,00 á mánnði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hátíðadagar.
H Har þjóðir eiga sína hálíða-
daga. M er staldrað við og
horft um öxl, — skoðað hvað
unnizt hefir og hvað tapazt. í
gær var slíkur dagur hátíðlegur
haldinn hjá oss. Þjóðin minnt-
ist sjálfstæðisins, er hún hlaut
1918, eftir langa og stranga bar-
áttu.
Sjálfstæði hljómar vel sem
orð, en það eitt út af fyrir sig
nægir ekki. Mð, sem á bak við
er, hefir meiri þýðingu. Hefir
þjóðin haldð í rétta átt, — mið-
að nokkuð á leið, i baráttunni
fvrir sjálfstæði sinu? Líf hverr-
ar þjóðar er ein óslitin sjálf-
stæðisbarátta. Svo á það að vera
og svo hlýtur það að vera. AHir
lúta einu og sama lögmáli, —
jafnt einstaklingar sem þjóðir.
Bregðisl menn skyldu sinni, sig-
ur allt á ógæfuhlið, en snúizt
[xiir vel við hverri raun stefnir
í rétta ált. \
Islenzka þjóðin hlaut sjálf-
stæði sitt að enduðum ófriði,
sem var ægilegri en nokkur önn-
ur styrjöld, sem háð hefir ver-
ið, —- þar til nú. Má segja að
enn hafi hún sjálfstæðis notið
skamma stund, en þó næga til
þess að um verði dæmt hvort
þjóðin sé umkomin að njóta
þessara gæða, sem öllu öðru
eru dýrmætari. Ef til vill í dag
er úrslitastundin. Höfum við
síaðið og vakað á verðinum, eða
höfum við vanrækt skyldur okk-
ar? Þessu verðúr hver einstak-
lingur að svara fyrir sig, og
minnast þess jafnframt, að af-
koma þjóðféíagsins er algerlega
háð afkomu og hegðun begn-
anna, og veltur því á öllu að ein-
staklingarnir ræki skyldur sín-
ar svo sem vera her.
Nú er enn háð örlagahrið í
heiminum, og enginn er svo
aumur, að ekki snerti það hann,
hver úrslitin verða. Öll jörðin er
ötuð blóði, en fyrir hvað er því
blóði fórnað? Koma nýir tímar
og batnandi, eða sækir allt í ó-
heillahorf? íslenzka þjóðin tek-
ur ekki þátt í þessum hildarleik, J
en goldið hefir hún samt slíkt )
afliroð, að þess munu fá dæmi I
vera, hve milcið af salclausu i
blóði er úthelt úr hennar röðum.
Þrátl fyrir þetta er engin ástæða
til að örvænta. Þjóðinni bíða
betri tímar, sem öðrum þjóðum.
Hún þarf aðeins að standast
eldraunina. Takisl það er öllu ó-
hætt. Þungar skyldur hvíla á
herðum hvers íslendings, sem
annarra landa þegnum, en örlög
þjóðarinnar mötasl af því
hversu þær eru ræktar. Á há-
tíðadögum eiga menn að gera
sér fulla grein fyrir þessu, og
bæta úr því, sem aflaga fer, ef
þess er nokkur kostur. Menn
mega hvorki svíkja sjálfa sig
né þjóðina. — Þess mega
þeir minnast ekki aðeins [jenn-
an eina dag ársins, heldur 'alla
aðra daga þess. M verða allir
dagar hátíðisdagar þjóðarinn-
ar og Iiver er sá, er ekki óskar
þess ?
Bœjaf ,
fréitír
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band fröken Magnúsína Bjarnleifs-
dóttir og Bergsveinn Jónsson, bæði
til heimilis á Baldursgötu iý. /
Gefin voru saman í hjónaband í
gær af síra' Bjarna Jónssyni vígslu-
biskupi frú Ágústa Pálsdóttir og
Lúðvíg C. Magnússon, skrifstofu-
stjóri. Heimili þeirra verður á
Holtsgötu 12.
Málverkasýningu
hefur Freymóður Jóhannesson
listmálari lialdið að undanförnu í
sýningarglugga sýningarskálans í
Áusturstræti. Þar voru sýndar alls
26 myndir, og af þeim seldust 22.
Sýningunni er nú lokið.
Næturlæknir.
Karl Sig. Jónasson, Kjartansgötu
4, sími 3925. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki.
Útvarpið í dag.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 1. fl. 20.30
Erindi: Jarðeldar (Pálmi Hannes-
son rektor). 20.55 Tónleikar Tón-
listarskólans: Tríósónata úr „Tóna-
fóm“ eftir Bach-Casella (Tríó Tón-
listarskólans). 21.15 Hljómplötur:
Kírkjutónlist.
V
4:4 'nu.VwH '4:10
rrr nþiaa
Vörumóttaka til Norð-
urfjarðar, Djúpuvíkur,
Hólmavíkur og Borðeyrar í
dag (miðvikudag).
Tekið á móti vörum til
ísafjarðar í dag og fram til
hádegis á morgun.
Stúlkur
vanar kápu- og kjólasaumi, óskast nú þegar. Hátt kaup í boði.
Herbergi. — Listhafendur leggi nöfn sín á afgr. Vísis fyrir ann-
að kvöld, merkt: „Saumaskapur".
SIGLIMGAB
milli Bretlands or Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
CuIHford’s Associated Lines, Ltd.
26 LONDON STREET,
Fleetwood.
Hátiðahðlð stðdeota fórq
f hvlvetna vel Iram i gær
2 herbergi til Stúdentagarðsins gefin.
Hátíðahöld stúdenta fóru í hvívetna vel fram. Söfnuðust þeir
saman við háskólann kl. rúmlega eitt i gær og gengu þaðan
fylktu liði niður að Alþingishúsi. Af svölum Alþingishússins
flutti Magnús Jónsson stud. jur. snjalla ræðu. Er það i fyrsta
sinn frá því stúdentar byrjuðu að efna til hátíðahalda í tilefni
dagsins, að nemandi við háskólann hafi verið valinn til þess
að flytja aðalræðu dagsins.
Síðar um daginn liófust
skemmtanir þær, er stúdentar
efndu til. Kl. 3 hófst skemmtun
í Tjarnarbíó og kl. 4 hófst önn-
ur skemmtun í hátíðasal háskól-
ans. Fóru þær ágætlega fram,
enda var vandað mjög til dag-
skrárefnis á þeim báðum, Þá
vjoru þrjár sýningar á mjög
vandaðri litkvikmynd í
Tjarnarbíó, sem sýnd var sér-
staklega í tilefni af hátíðahöld-
unum.
KI. 7.30 liófst hóf stúdenta að
Hótel Borg, og stóð það fram-
undir morgun. Ásberg Sigurðs-
son, formaður Stúdentaráðsins,
stjómaði hófinu, en ræður fluttu
undir horðum þeir Gunnar
Thoroddsen alþrn., Gunnar
Gunnarsson rithöf., Gísli Sveins-
son alþm. og dr. Guðm. Finn-
bogason landsbókavörður.
Þar ávarpaði og Sveinn
Björnsson ríkisstjóri stúdentana
og las skeyli, er honum hafði
borizt frá RooseveltBandaríkja-
forseta, þar sem forsetinn færir
ríkisstjóra og íslenzku þjóðinni
árnaðaróskir í tilefni af degin-
um.
Þá var í ríkisútvarpinu sérstök
dagslcrá, lielguð fullveldisaf-
mælinu. Einkum var það erindi
Sigurðar Nordals prófessors,
sem vakti almenna atliygli.
Fjársöfnun til Slúdentagarðs-
ins fór fram með þeim hætti,
að merki voru seld á götunum,
og ágóðinn af skemmtunum
stúdenta rann einnig þangað. —
Ekki er vitað hver árangur hefir
orðið, en væntanlega hefir hann
orðið allmikill, þrátt fyrir kulda
og þrátt fyrr það, að fólk hélt
og minna á götum úti en oft
áður á þessum degi.
M má geta þess, að gefnar
voru 25 þúsundir króna til Stúd-
entagarðsins nýja; var það Sam-
band ísl. samvinnufélaga, sem
gaf eitt herbergi, eða 10 þús. kr.,
en Héðinn Valdimarsson forstj.
gaf annað herbergi. Loks gaf ó-
nafngreindur maður 5 þús. kr.
til Garðs.
j Bræðurnir Kristján og Helgi
Zoéga gáfu tvö málverk eftir
frægan belgiskan inálara, Franz
Smynder að nafni, til Stúdenta-
garðsin^.
VERZIUNIN
EDINBORG
opnuðum við
]ó lahazariin
Eg
kom með ógrynni af
leikföngum og allskcnar
tækifærisgjöfum.
Krakkar mínir þiö
vitiö hvert skal lialda
/
Jólasveinn
Edinborgar
Nýkomið úrval af
fallegum LJÓSAKRÓNUM
for^tofnlömpiim
og BAÐHERBERGISLÖMPUM, — Einnig fallegt úrval af
PERGAMENTSKERMUM og KERAMIK-BOIIÐLÖMPUM. —
fillt hentugar jólagjafir
Kafvirkinn
Skólavörðustíg 22. - Sími 5387.
I
Trésmiði
vantar nú þegar við Hitaveituna.
Uppl. á lagernum við Sundhöllina.
Tilkynning
Vegna sívaxandi kostnaðar og erfiðleika á innheimtu
reikninga, höfum við ákveðið að hætta allri lánsverzl-
* un, en selja aðeins gegn staðgreiðslu.
Fastir viðskiptamenn geta þó haldið reikningsvið-
skiptum áfram, gegn því aðeins, að greiða vörurnar að
fullu í verzlununum fyrir 10. hvers mánaðar eftir
úttekt. l ■' ,
Verzlun O. Ellingsen h.f,
Verzlnnin Geysip li.F.
Verzlunin Verðandi h.f.
Frá 1. desember verða iðgjöld til Sjúkrasamlags Reykja-
víkur kr. 10.00 á mánuði.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
/
MERKASTA BÓK ÁRSINS?
MJAR LEIÐIR
eftir hinn þjóðkunna lækni
JÓNAS KRISTJÁNSSON.
Er liægt að útrýma vanheilsu og sjúkdómum? Er hægt að
lcoma í veg fyrir tannskemmdir, meltingarsjúkdóma, berkla,
krabbamein og aðra hrörnunarkvilla ? Flestir segja nei, en
Jónas Kristjánsson segir JÁ. Hann hefir um fjórðung aldar
kynnt sér rækilega þá stefnu í heilbrigðismálunum, sem nú er að
ryðja sér til rúms um öll menningarlönd, og bendir hér á leiðirn-
ar. Það er vandfundin betri jólabók, í senn skemmtilegri og
gagnlegri, auðskilin hverju bami. Hún á erindi til allra, þvi að
HEILSUVERND ER BETRI EN NOKKUR LÆKNING.
Náttúrulækningafélag íslands
Lögtak.
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að
undangengnum urskurði verða lögtök látin
fram fara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð rík-
issjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu
þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöld-
um: Tekju- og eignarskatti, stríðsgróðaskatti,
fasteignaskatti, lestagjaldi, lífeyrissjóðsgjaldi
og námsbókagjaldi, sem féllu í gjalddaga á
manntalsþingi 1942, gjöldum til kirkju, sókn-
ar og háskóla, sem féllu í gjalddaga 31. desbr.
1941 og 31. marz 1942, kirkjugarðsgjaldi, sem
féll í gjalddaga 15. júlí 1942, vitagjaldi og
skemmtanaskatti fyrir árið 1942, svo og á-
föllnum skipulagsgjöldum af nýbyggingum
og útflutningsgjöldum.
Lögmaðurinn í Reykjavík,’ 27. nóv. 1942.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.
Tllkynnins:
i
Frá og með 1. desember, og þangað til
öðruvísi verður ákveðið, verður leigugjald fyr-
ir vörubíla í innanbæjarakstri sem hér segir:
Dagvinna kr. 14.11 með vélsturtum kr. 18.75.
Eftirvinna kr. 17.36 með vélsturtum kr. 22.00.
Nætur og helgidagsvinna kr. 20.61 með vélsturtum
kr. 25.25.
VÖRUBÍLASTÖÐIN ÞRÓTTUR.
______v, .