Vísir


Vísir - 15.12.1942, Qupperneq 1

Vísir - 15.12.1942, Qupperneq 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Síml: Auglýsingar 1660 Gjaldkéri 5 linur Afgreiðsla 32. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 15. desember 1942. 264. tbL Forleikur E1 Agheila- orustunnar hinn sami og við E1 Alamein. Illvidri hamla hernad- araðgerðum í Túnis. „Botnlaus aur og leðja“. Eiinn aðalflugfvöllur Rommels gerður ónothæfur. Sameina Náhring og Rommel heri sína? EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun. Þjóðverjar gera jafnt og þétt gagnáhlaup á báðum sóknar- svæðunum, en aðeins fá þeirra bera árangur. Það er á Stalingrad-vígstöðv- unum, sem Rússar segja að Þjóðverjum vex-ði dálítið á- gengt með gagnáhlaupum sín- um, en þau eru griðarlega mannfrek og hlóðug. Rússar segja og frá því, að nýjar liei-naðaraðgerðir sé hafn- ar miðja vegu ímlli Moskva og Stalingrad. Þjóðvei'jar hafa áð- ur spáð nýjum sóknaraðgerð- um Rússa hjá Voronesh og er hér ef til vill um jxað sama að ræða. Þjóðverjar telja sig hafa eyði- lagt rúmJega 3000 skriðdreka fyi'ir Rússum siðan 1. októbei*. Fyrir sunnan Ilmen-vatn kveð- ast þeir hafa umkringt rúss- neskar herdeildir og sé jafnt og þétt verið að þrengja hringinn iim þær. Bima tekin Síðasta herstjórnartilkynn- ingin frá Mac Arthur er á þá leið, að Buna sé fallin. Hersveitir Ásti-alíumanna og Bandarikjamanna á Nýju Gui- neu ruddust inn í þorpið í gær- morgun og tóku það. Er samt eftir að hreinsa til umhverfis það, eins og nauðsynlegt var við Gona, þótt búið hefði verið að taka þoi-pið sjálft. Tvö beitiskp og þx'ír tundur- spillar reyndu i gær að koma liði á land hjá Buna á 2 stöðum, þau notuðu um 20 pramma til þess, en þeir voru allir eyði- lagðir í langvarandi loftárásum. Héldu Japanir norður á bóginn við svo búið. Þetta dregur mjög úr liætt- unni, sem Ástralíu stafaði af Japönum á Nýju Guineu, jafn- framt því sem þessi sigur skapar bandamönnum skilyrði til að liefja tangarsókn gegn Japön- um. Annar tangaarmurinn yrði þá frá Nýju Guineu en liinn frá Guadalcanal og ínai'kið að hx-ekja Japani frá Nýja-Bret- landi (Rabaul) og eyjunum þar austur af — Salomonseyjum. í nóvember biðu 24 menn bana af loftárásum í Bx-etlandi, en 38 særðust. Á sama tíma 1940 fórust 4600 og 6000 særð- ust. Hersveitir Rommels halda enn undan, án þess að gera neina verulega tilraun til að verjast og | tefja fyrir 8. hemum. Hann fylgir fast eftir | og ann ítölum og Þjóðverjum engrar hvíldar. Nú eru farnar að berast frásagnir blaðamanna um upphaf sóknarinnar og forleikinn að henni, sem var hinn sami og áður en lagt var til atlögu hjá E1 Alamein | í Egiptalandi, 1000 km, flugleið á hrott. Forleikurinn 1 var sá, að flugher 8. hersins fór í nokkra leiðangra, sem ti'yggðu hað, að flugsveitir Rommels mundu verða honum að litlu liði, þegar til ætti að taka. I ! Níu dögum áður en landhersveitirnar lögðu til atlögu fóru j stórar sveitir brezkra og ameriskra flugvéla til árása á flug- völlinn hjá Max-ble Arch, sem er um 65 km. fyrir vestan E1 Agheila. Gerðu þær harða og nákvæma árás á flugvöllinn, sem var bækistöð flesti'a oi-ustuflugvéla Rommels. Var liann svo xila útleikinn, að það varð að flytja flestar þeii'ra á brott. -— Þegar til kom mun þó ekki hafa slegið í verulegan bardaga, og segir í sumum fregnum, að lið Rommels hafi verið að taka sig upp vestur á bóginn nóttina sem 8. lierinn liófst lianda, en vegna slæmra flugskilyrða síð- ustu dagana liafi bandamönn- um ekki borizt njósn um það. Bifreiðalestir möndulher- svitanna eru litlar og langt á milli þeirra, og það styður þá skoðun, að Rommel liafi aðeins liaft lítið lið við E1 Aglieila, sem liafi átt að verja undanhaldið og ekki annað. í hílalestum þeim, sem flugvélar banda- manna hafa/ráðizt á að undan- förnu, hafa aðeins verið 40— 100 bilar og er það ekki nema brot af þeim f jölda, er var í bila- lestunum, er fluttu lið Rommels frá E1 Alamein. Þá voru bilarað- iraar óslitnar marga kílómetra og óku oft fjórar samhliða. Sameinast herír Rommels og Náhrings? Hinir síðustu athurðir hafa vakið aftur þá spumingu, livort það sé ætlunin lijá möndulveld- unum að sameina þá tvo heri, sem þau liafa í Norður-Afríku undir stjórn Náhrings og Rommels. Brezkur hernaðarsérfræðing- ur ræddi þenna möguleika í gær í útvarpi. Hann taldi, að mönd- ulveldin nxundu sja sér liag i því að sameina lierina á land- ^væði þar sem stytzt sé frá meg- inlandi Evrópu og ]>ví hægast um brottflutning, ef í það fer. En með því móti mundu bæði loftherir 8. hersins og banda- niannahersins í nýlendum Frakka, geta haldið sameigin- lega uppi árásum á möndullier- ina og eins og styrkleikalilut- föllum er nú háltað, hlyti það að liafa það í för með sér, að mönd- ulveldin yrði gersigruð á þess- um vettvangi. Þorlákur þreytti veríSur sýndur á morgun kl. 8.30 siSd, í Hafnarfirði. Aðgöngumiðar fást í G.T.-húsinu frá kl. 3—-7 í dag og eftir kl. 5 á morgun. Þetta er síðasta sýning fyrir jól. Bandaríkjaþing það, sem nú situr, mun ljúka störfum á morgun eftir 346 daga látlausa setu. Frá því að það tók til starfa 3. jan. 1942 og hefir starfað samtals 711 daga og er það lengri tími en nokkuð annað Bandaríkjaþing hefir starfað. Engin stórmál verða tekin fyrir né mál, er kunna að valda deildum, nema Roosevelt forseti æski þess. Eitt mála þeirra, sem næsta þing fær til meðferðar, verður jöfnun á launakjörum opinben’a starfsmanna. Þrír fimmtu hlutar ]>eirra fá eftir- vinnu sína greidda, en liinir ekki. Seyss-Inquart: Þjóðverjar fá fyrst að borða. Dr. Seyss-Inquart, landstjóri Þjóðverja í Hollandi hélt ræðu síðastliðinn sunnudag. Hann sagði 111. a., að matar- . skammtur Hollendinga yrði ó- breyttur í vetur, þvi að ekki yrði hægt að auka liann, fyrr en | verulegar matvælabirgðir færu að herast frá liinum herjiumdu héruðum í Austur-Evrópu. En Þjóðverjar sjálfir mundu'í’yrst fá að borða af þerm mat, áður en aðrir nytu góðs af. Seyss-Inquart upplýsti það og, að bráðlega mundi yfir- stjórn setuliðsins og lielztu s t j órna rskrif s tof urnar f Iu ttar inn í land. Að lokum minntist hann á bardagana við Stalingrad. Kvað hann menn geta verið sann- færða um það, að þýzki lierinn hefði Rússa í kyrkingartaki þar og allt mundi fara eins og ætl- að væri, því að Þjóðverjar hefði enn á valdi sínu þau 22 hverfi borgarinnar, sem þeir voru bún- • ir að ná, af 24. Sameiginlegur fransk-þýzkur her. Fréttastofan í Vichy hefir nú birt svar Petains við bréfi Hitlers, sem hann sendi þeg- ar hann tók Vichy-Frakk- land. Lofar Petain að athuga það vinsamlega, hvort Frakkar og Þjóðverjar geti ekki stofnað sameigiinlegan her til að vinna frönsku ný- lendurnar aftur úr höndum Bandaríkjamanna og Breta. Sagði Petain, að þeir Laval hefði verið að athuga þetta mál og hefði áhuga fyrir því. Dngar þýzkar flugfvélar iáusf Engar þýzkar orustuflugvél- ar lögðu til atlögu við flugvélar bandamanna, þegar þær fóru til árása á Norður-Frakkland í gær. Flugmenn bandamanna liafa veitt þvi eftirtekt undanfarna daga, að flugvélum þeim, er leggja til atlögu við ])á, þegár þeir fara til ánása á stöðvar Þjóðverja í Frakklandi og Nið- urlöndum, hefir farið fækkandi. Hefir þessa einkum gætt eftir að bandamenn gerðu innrásina í Norður-Afríku. Sprengj uf 1 ugyélar banda- ! manna fara daglega lil árása á ' jámbrautalestir og stöðvar ber- numdu landanna. Engir stórviðburðir gerast í Tunis þessa dagana. Veður eru stirð og hefta allar hreyfingar : þungra hergagna. Fljúgandi virki hafa farið til árása á Bizerta og Sfax. Af níu : orustuflugvélum, seiu réðust á virkin yfir Bizerta, voru þrjár skotnar niður. Miðlduti jára- . brautarbrúarinnar hjá Sfax var sprengdur í loft upp. i Afrek skrið- drekasveita. Blaðamönnum með liersveit- um bandamanna i Norður- Afriku befir verið skýrt frá því, að amerísk skriðdrekasveit liafi á þrem vikum eyðilagt eigi færri þýzka skriðdreka en 64 og auk þess fjórtán 88 mm. fallbyssur. Eru það einmitt byssur af þeirri tegund, sem reynzt bafa skriðdrekum bandamanna skeinuhættastar, | því að þær eru mjög hrað- skeyttar og eru byggðar á „traktor“, svo að þær „aka sér“ sjálfar. Brezk skriðdrekasveit, s.em var komin einna lengst í áttina 1 til.Tunis, þegar möndulher- sveitirnar lögðu til gagnatlögu, hafði með sér um 100 þýzkra í'anga, er húii hörfaði frá Te- bourba. Sagði sveitarforing- inn, að það hefði orðið að hörfa í'rá Tebourba til Mejez el Bab vegna flulningaörðug- leika. Hellirigningar breyttu jarð- veginum í botnlausan aur, sem skriðdrekar gátu að visu basl- azt í gegnum, en var gersam- lega ófær bílum, þótt þeir hefði keðjur. Bœtar fréttír I-0.0.F.=0b. 1P.=12412158V4 - E. 8. Ljósprentuð útgáfa af „Islenzkum ævintýrum“, er þeir gáfu út Magnús Grímsson og Jón Árnason 1852, er nýlega kom- in á bókamarkaðinn. Þessar perl- ur íslenzkra þjóðsagna hafa mjög verið langþráðar af ölluni þeim, er þjóðlegum fræðutn unna. Ljósprent- unin hefir tekizt með ágætum, — en upplagið er mjög lítið, og það er hver siðastur með að ná sér í þetta fágæta þjóðsagnakver. Axel Helgason, lögregluþjónn, gerði líkanið ef skipulagningu Skólavörðuhæðar- innar, það sem sýnt var » Varð- arhúsinu um síðastl. helgi. Af mis- gáningi féll nafn hans niðtir í sam- bandi við myndina, sem birtist af líkaninu í Vísi í gær. Næturlæknir. Halldór Stefánsson, Ránargötti 12, simi 2234. Næturvörður í Reykjavíkur apóteki. Frú Roosevelt segir frá, heitir nýútkomin bók ttm kontt Roosevelts forseta. Þetta er mikið rit, hátt á þriðja hundrað blaðsíð- ur að stærð i stóru broti og prent- uð á góðan pappír. Jón Jónsson frá Ljárskógum annaðist þýðing- una. Útvarpið í dag. Kl. 18.30 Dönskukennsla, 1. fl. 19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25 Þingfréttir. 19,25 Fréttir. 20,05 Endurvarp á jólakveðjum frá Dan- mörku. 21.00 Erindi: Jöklar og verkanir þeirra (Jón Eyþórsson veðurfræðingur). 21.25 Hljóm- plötur: Kirkjutónlist. 21.55 Fréttir. Ný tilrauo til myndunar þingræðisstjórnar mistókst. A flokksfundi Sjálfstæðisflokksins s. 1. sunnudag var ákveðið að gera úrslitatilraun til þess að fá úr því skorið hvort auðið mundi verða að mynda þing- ræisstjórn, en þá hafði kvisast, að ríkisstjóri væri far- inn að þreifa fyrir sér utan þings um myndun ríkis- stjórnar. Var þremur þingmönnum falið að fara á fund ríkisstjóra með skilaboð þess efnis, að flokkurinn óskaði þess eindregið, að hann fengi að gera úrslitatilraun til að mynda þingræðis- stjórn. Veitti ríkisstjóri flokknum frest til kl. 10 árd. í dag. — Á fundi þingflokks Sjálfstæð- isflokksins var samþykkt að senda hinum þingflokk- ununi bréf með tilmælum um samtöl um möguleika á mynd- un stjórnar innan þings. Svara var óskað fyrir k). 5. Fundi í sameinuðu þingi var frestað samkvæmt tiímæluiii. Sjálfstæð- isflokksins og þingmenn beðnir að vera viðbúnir að koma á flokksfundi tafarlausl. Síðdegis í gær bárust svör flokkanna, Alþýðublaðið minnt- ist í svari sínu á tilraunirnar til myndunar þri g a ilokka stjórnar og að ekki heiði íer.izí að finna grundvö l fyrir varan- legri fjögurra flokka stjórn. Ennfremur, að ríkjandif öng- þveiti gæli leitt Jil þess, að rikis- stjóri skipaði stjórn án þess Al- þingi réði skipan hennar. Ivvaðst flokkurinn fús til — til að firra vandi'æðum — að sett yrði bráðabirgðastjórn fjögurra flokka, og skipi liana einn mað- ur frá hverjum flokki. Með svari Alþýðuflokksins bafði ínálinu verið beint á á- | kveðna braut og lýsti Sjálf- stæðisflokkurinn sig samþykk- an uppástungu Alþýðuflokks- ins. Var því Framsóknarflokkn- um og Sósíalistaflokknum skrifað aftur. I bcéfi Framsókn- ar segir: „Vilji liinir 3 flokkarnir til- nefna fulltrúa í bi'áðabirgða- stjórn, er Framsóknarflokkur- inn reiðubúinn að skipa fultrúa af sinni hálfu, enda náist sam- komulag um verkaskiptingu.“ Sósíalistaflokkurinn bað um frest þar til árdegis i dag, og var svarið afhent ÓlafiThorfor- sætisráðherra kl. eit{ eftir há- degi. Hefir Visir fengið þær upplýsingar um svarið, að það sé algerlega neitandi. Gamalmenni fótbrotn- ar í bifreiðarslysi. f gær varð gamall maður fyrir fólksbifreið á Kaplaskjóls- •vegi og fótbrotnaði. Skeði slys þetta um 14.30. Var þá fólksbifreið ekið suður Kaplaskjólsveg, en á móti henni kom gamall maður, lenti hann fyrir bifreiðinni, fótbrotnaði og meiddist auk þess á hand- legg og viðar. Maður þessi heitir Valdimar Þórðarson frá Hnifsdal, 78 ára að aldri. Var hann strax fhittur á Landspítalann. •'rásagair um Éinar Benediktsson heitir nýtt og mikiS rit, er ísa- foIdarprentsmiðja h.f. gefur út. Aðalhöfundur bókarinnar er frú Valgerður Benediktsson, ekkja skáldjofursins. Aðri>r höfundar eru: iBenedikt Sveinsson bóka- vörður, Árni Pálsson prófessor og Árni Jónsson frá Múla. Eru rit- gerðir þessar hver annarri snjall- ari og skemmtilegri. Mun marga íslendinga fýsa að kynnast hinu 'tórmerka skáldi okkar nánar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.