Vísir - 16.12.1942, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
32. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 16. desember 1942.
Ritstjórar
Blaðamenn Siml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
265. tbl.
Rommel var skipað
að verjast,
H
segir brezkur út-
varpsfyrirlesari.
Én liaim fékk ekki þann Ilds-
anka, sem lioiniiii vai- lofað.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
■ernaðarsérfræðingur einn, sem hélt fyrirlestur
í brezka útvarpið í gær, lét svo um mælt, að
Hitler mundi hafa gefið Rommel ákveðnar
skipanir um að verjast, meðan þess væri kostur, hjá
Mersa Brega. Jafnframt lofaði Hitler Rommel því, að
liann skyldi fá þann liðsauka sem hann þarfnaðist og
ííerði kröfu til — skriðdreka, flugvélar og fótgöngulið.
En Rommel fékk ekki þá liðveizlu, sem honum var lof-
uð og hann taldi nauðsynlegt til að geta staðizt ofurefli
8. hersins og því fór sem fór. — Ekki gat fyrirlesarinn
fæss, hvaðan honum kæmi þessi vitnesk ja, en það er
heldiar ekki ósennilegt, að Rommel hafi verið hafður
útundan, því að fyrst varð að koma á fót her í Tunis,
þar sem ekkert lið var fyrir áður.
í herstjórnartilkynningunni frá Kairo segir, að hersveitir
Þjóðverja séu komnar 150 km. vestur á bóginn á undanhaldinu,
eða vestur fyrir En Nofilia. Flug-herinn heldur uppi árásum
á hersveitir Þjóðverja nótt og dag.
Nýja-Guinea:
Ispanir íara ð laod
á
Þegar það er athugað, hversu
langt hersveitir Rommels eru
komnar á flóttanum, kemur til
greina, að varnarstöðvar þeirra
voru alls ekki við E1 Aglieila,
enda þótt þessar vígstöðvar hafi
verið kendar við þann bæ.
Varnarstöðvai- Rommeks voru
20—30 km. fyrir austan eða
norðaustan EI Agheila, hjá
þorpinu Mersa Brega. Þegar tal-
að er um að komið sé svo eða
svo langt vestur fyrir EI Agheila,
verður að bæta við rúmlega 20
km. til að fá út hina raunveru-
tegu vegalengd, sem komið er
vestur fyrir varnarstöðvarnar.
Fulltrúar
fleetra bandamannaþjóða.
Richard Casey, ráðherra í
striðsstjórn Breta með aðsetri
í Kairo, er staddur i London
um þessar mundir. Hann hefir
skýrt svo frá, að í 8. hernum
sé að heita má fulltrúar frá
hverri einustu bandamanna-
þjóð. Auk Breta sjálra, sam-
veldisþjóðanna og Bandaríkja-
manna, eru í hernum menn frá
næstum öllum nýlendum Breta,
Indlandi og víðar. Þá eru þar
sveitir Grikkja, Hollendinga,
Júgóslava, Tékka og Frakka.
Casey lét þess getið, að fyrir
|)remur vikum liefði allmjög
verið farið að ganga á matvæla-
birgðir manna á Malta, en eins
og venjulega hefði flotinn
brugðið við fljótt og vel og fært
eyjarskeggjum björg í bú.
Að endingu ræddi Casey um
skipatjón möndulveldanna á
Miðjarðarhafi. Upplýsti hann
það, að á sex mánaða tíma, frá
1. júní til 1. desember, hefði
floti ög fjugher bandamanna
sökkt samtals 62 skipum, eða
einu skipi þriðja hvern dag. Auk
þess urðu mörg skip fyrir meiri
eða minni skemmdum.
'»
Neapel.
I fyrrinólt var gerð loftárás
á Neapel á ttalíu. Var árásinni
meðal annars beint gegn liöfn-
inni og kviknaði þar í allskonar
mannvirkjum. Þá var og unnið
tjón já aða Wj á ni b)-a u tars töð
borgarinnar og Baginoli-stál-
verksmiðjunum, sem eru þar
skammt frá.
Tunis.
Frá „vesturvígstöðvunum“ i
Norður-Afriku eru þær fregnir
helztar, að brezkar njósnasveit-
ii , sem voru sendar út frá Mejez
el Bab, hafa ekki orðið varar við
neinar möndulhersveitir á þeim
slóðum, þar sem þær voru fyrir
tveim dögum.
Italir í Tunis
í herþjónustu.
ítalska Iierstjórnin i Tunis
hefir gefið út tilkynningu, þar
sem allir ttalir þar í landi eru
skyldaðir til herþjónustu. Segir
Rómaborgariitvarpið, að þessu
hafi verið tekið með miklum
fögnuði og hafi 4000 menn
gefið sig fram á fáeinum dög-
um.
ítalir segja, að ítalskt fólk
taki hersveitum þeirra alls-
staðar með miklum fögnuði. í
einni borg sendu 2000 ítalir
nefnd á fund herdeildar þeirr-
ar, sem kom þangað, og bauð
hún að þeir skyldu gerast sjálf-
boðaliðar.
ilarskmtnr Breta
Dbreyttor fyrst eltir
Breta
strax að
Árás á nýjan japanskan
flugvöll.
Japanir hafa k«mið liði á
Iand um 90 km. fyrir vestan
Buna.
Þar ætla þeir að koma sér
upp bækistöð í stað Buna, sem
þeir telja sér alveg tapaða. Hafa
þeir komið um 1000 manns á
land þarna, en það er aðeins lít-
ill hluti þess, sem þeir ætluðu
sér að koma á land.
•
Undanfarna 5 daga liafa dag-
lega verið gerðar loftárásir á
flugvöll Japana á Nýju Georgiu-
ey. Hún er milli Guadalcanal
og Bougainville. Munda-flúg-
urvöllinn, sem hér er um að
ræða, er nýr, og byrjuðu Japanir
að ry-ðja hann eftir að Banda-
ríkjamenn tóku flugvöllinn á
Guadalcanal.
lanst i lífviilfi
Eitt ógurlegasta fárviðri,
sem geisað hefir á Indlandi,
gekk yfir fyrir skemmstu.
Varð það 11.000 manns að
bana í strandhéruðunum við
Bengalsflóa, en þeir, sem
urðu húsvilltir, skipta hundr-
uðum þúsunda. Veðrið varð
auk þess 75.000 nautgripum
að bana.
Það varð mörgum að fjqr-
tjóni, að fólk varð að liggja á
berri jörðinni að næturlagi
og urðu eiturnöðrur og
krókódílar þess vegna mörg-
um að bana."1
Er óttast að drepsótt kunni
að koma upp á svæði því,
sem veðrið fór yfir. Þúsundir
hermanna vinna að því nætur
sem daga að boma á reglu og
bæta hreinlætisástandið, sem
mest er ábótavant.
Bretar dæma íra.
í gær voru fjórir menn
dæmdir í Belfast á Norður-
írlandi fyrir að bera vopn í
heimildarleysi.
Lögreglan handtók þá, er hún
gerði húsrannsókn á hóndabæ
einum skammt frá borginni.
Fann hún þar sprengiefni, sem
nota átti til hermdarverka, og
\auk þess byssur og skotfæri.
Einn mannanna hlaut 15 ára
fangelsi, annar 12 ára, þriðji
sjö og sá yngsti 5 ára faagelsi.
Þrír þýzkir herir
1 /
umkringdir í
Rússlandi.
Flugvélum Þjóövepja fœkk-
ar um 6000 ffá í fypra.
Rússar telja sig hafa gert 35 þýzkar herdeildir óvirkar að
mestu leyti með því að umkringja þær á þeim hlutum
vígstöðvanna, þar sem mest er barizt nú — hjá Stalingrad,
Reshev og Veliki Luki. '
Matvælaskammtar
verða ekki auknir
styrjöldinni lokinni.
Woolton lávarður, matvæla-
ráðherra Breta, skýrði frá þessu
á þingfundi í gær. Sagði hann,
að landshúar mætti ekki vænta
þess, að hægt væri að-auka mat-
arskammtinn meðan styrjöldin
stæði og ekki heldur strax eftir
að henni lyki.
Var rætt um sameiginlega
matvælaframleiðslu og dreif-
ingu matvælabirgða Breta og
Bandaríkjamanna.
Flotamálaráðuneytið í Wash-
ington tilkvnnir, að tvíhreyfla
sprengjuflugvél hafi varpað
sprengjum á skip, sem rennt
hafði verið á land á Kiska-ey.
Ekki er þó svo að skilja, að
þessir 3 herir — rúmlega 500.-
000 mánns samtals — sé orðnir
óvígir, því að fregnir frá hlaða-
mönnum í Moskva skýra frá
|)ví, að þeir berjist af spma
móði og harðfengi og áður.
Hinsvegar eru þessar herdeild-
ir liálfóvígar að því leyti, að
Jrað er ekki hægl að flytja þær
til og tefla fram þar sem möst
er þörfin fyrir þær, nema innan
þessara þröngu liringa.
Rússar ætla sér að uppræta
J>essar þýzku hersveitir smátt
og smátt, l>ví að þeir gera sér
gc’>ðar vonir um, að Þjóðverjar
sé þess ekki megnugir að bjarga
þeim. í fyrra var likt komið, en
þá gálu Þjóðverjar hindrað öll
áform Ilússa í Jæssa átt, því að
þeir höfðu þá 10.000 flugvélum
á að skipa og með þeim fjölda
gátu þeir náð yfirráðum í lofti
hvar sem þeir vildu, en þeini
fylgdi aftur liitt, að þeir höfðu
betri aðstöðu á jörðu niðri.
Nú telja Rússar, að Þjóðverj-
ar hafi aðeins um 4000 flugvél-
um á að skipa, vegna l>ess tjons
sem þeir hafa orðið fyrir í bar-
dögum í Rússlandi, og vegna
þess, hve mikið þeir hafi þurft
að senda lil annara vígstöðva,
aðallega í Norður-Afríku.
Bardagarnir
eru harðastir fyrir suðvestan
Stalingrad, þar sem Þjóðverjar
Ieitast við að brjótast meðfram
járnbiaulinni frá Kotelnikovo í
gegnum hringinn, sem Timo-
shenko hefir slegið um her von
Hoths. Segir slundum í fregn-
um Rússa, að Þjóðverjar geti
stundum hrotizt kippkorn á-
fram, en þeir sé hraktir aftur
litlu siðar.
Fyrir veslan Reshev kveðast
Rússar hafa tekið tvö þorp og
eyðilagt 26 skriðdreka fyrir
Þjóðverjum.
Vcrkaskipting: nýjjn
ráðherranna.
Rétt fyrir hádegi barst Vísi svohljóðandi tilkynning
frá skrifstofu ríkisstjóra:
„Ríkisstjóri skipaði í ríkisráði í morgun kl. 11 nýtt
ráðuneyti með þessum mönnum:
Forsætisráðherra Björn Þórðarson, dr. juris.
Fjármála- og viðskiptamálaráðherra Björn ölafs-
son stórkaupmaður.
Dóms- og menntamálaráðherra Einar Arnórsson,
dr. juris.
Utanríkis- og atvinnumálaráðherra Vilhjálmur Þór,
bankastjóri.
Jafnframt tiíkynnti ríkisstjóri forseta sameinaðs
þings bréflega um skipun ráðuneytisins.“
SíðHitn fréttir
Fréttastofa Frakka í London
tilkynnir að Lebrun fyrrum for-
seti hafi sloppið úr landi og
nafi leitað hælis hjá hlutlausri
þjóð. ,
t sjávapliáska:
90.000 km. flug
i leit að skipbrots-
mönnum.
Á Atlantshafi er nýlokið
Iengstu leit að skipbrotsmönn-
um, sem sögur fara af.
Skip eitt, er var í skipalest,
var liæft tundurskeyti, svo að
eldur kviknaði í því, jafnframt
því sem það fór að sökkva.
Skipverjar og farþegar voru
samtals 74 og komust allir í
fjóra björgunarbátá.
Flugvélar úr strandvarnaliði
brezka flughersins voru þegar
gerðar út til að leita bátanna.
Fyrtsu nóttina urðu allir bát-
arnir viðskila, j>ótt þeir reyndu
að halda hópinn, en eftir riku
var búið að finna og bjarga
mönnunum í öllum bátunum
nema þeim, þar sem skipstjór-
inn var með.
Hans bátur fannst að visu á
7. degi, en flugvélarnar týndu
honum aftur næstu nótt og
fannst hann ekki á ný fyrr en
4 sólarhr. síðar. Eftir J>að flugu
fljúgandi virki i sífellu yfir
honum og var varpað vistum
niður til bátverja. Á 13. degi
kom tundurspillir og bjargaði
þeim.
Flugvélar höfðu flogið
90.000 km. — meira en 2svar
umhverfis jörðina við miðjarð-
arbaug — í leit að bátunum og
er þá ótalin sú óraleið, sem
tundurspillar, korvettur og
önnur smáskip fóru i leit að
þeim.
Bandamenn samræma
stálframleiðsluna,
Bretar, Bandaríkjamenn og
Kanadamenn eru búnir að
stofna nefnd er hefir yfirstjóm
allrar stálframleiðslu þeirra.
Með þessu er stígið mjög
mikilvægt spor i þá átt að fylla
í eyðurnar, þar sem skortur er,
og taka þaðan, sem of mikið er.
Aður hafa bandamenn sam-
ræmt skipaflutninga sína, mat-
vælaframleiðslu og dreifingu
og þótti það allt horfa til þess,
að átökin yrði samræmdari og
styrkari.
Þessi nefndarstofnun var til-
kynnt á sama tima i London og
Washington.
Saga Tryggva
Gunnarssonar skráð.
»
Landssamband iðnaðarmanna
hefir ráðizt í að hafa forgöngu
í því, að láta skrá sögu Tryggva
Gunnarssonar bankastjóra.
Eins og kunnugt er, var
Tryggvi heitinn trésmiðameist-
ari að atvinnu, en saga Kans er
óskráð enn að mestu, þrátt fyrir
það, að hann var einn hinn
mesti athafnamaður Islendinga
á síðari tímum.
Ekki er ennþá náðinn neinn
maður til að skrifa sögu
Tryggva, en það mun vafálaust
verða gert innan skamms. Hins-
vegar hefir stjórn Landssam-
bandsins hafizt handa um fjár-
söfnun til útgáfunnar. Hafa
þegar safnazt um 7 þús. kr. til
hennar. Fá þeir er leggjá fram
50 kr., eða meira, tölusett eintak
af bókinni. Söfnunin er í full-
um gangi.
Jólablað Vísis
er komið út.
Það verður borið til
kaupenda á mánudag.
Hestur deyr af völd-
um rafmagnsstraums
í gær fékk hestur í sig raf-
magnsstraum hér í bænum og
féll dauður niður.
Skeði atvik þetta á Baugsvegi,
en þar var maður með hest
fyrir vagni og teymdi hann eftir
veginum. Þar hafði símalina
fallið niður og lent á háspennu-
þræði, en þegar maðurirm fór
með hestinn yfir simaþráðmn
féll hesturinn niður á götuna og
var þegar dauður. Maðurinn
fékk í sig straum, en ekki svo
að hann sakaði.
Dæmdur til vistar í
drykkjumannahæli,
Nýlega hefir verið kveðinn
upp dómur yfir manni nokkur-
um fyrir þjófnað er í 9. sinn
hefir gerzt brotlegur við lands-
lög.
Að þessu sinni var haiin
dæmdur í 12 mánaða fangelsi
og auk þess dæmdur til að sæta
dvöl á drykkjamannahæli í allt
að 18 mánuði af refsingu af-
staðinni.