Vísir - 28.01.1943, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
33. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 28. janúar 1943.
Ritstjórar
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
22. tbl.
Feta 1 fötspoi* feðra sinna
%
Þessir þrír ungu menn á myndinni eru allir liðsforingjaefni. Stunda þeir náin í West Point, liðs-
foringjaskóla Bandaríkjanna. Eiga þeir það allir sammerkt að vera synir liei-sliöfðingja þeirra,
sem stjói'na herjum Bandarikjanna í N.-Afríku. Piltarnir eru frá v.: William Clark, sonur Mark
Glarks, sem gengur næst Eisenliower að völdum, John Eisenhower, sonur Eisenliowers, Geoi’ge S.
Pattons, sonur Pattons jnfirherforingja í Casablama og Jolin P. Doolittle, sonur flughershöfðingjans.
segjast vera
frá Rostov.
Rússar
60 km.
Nýp fleygur rekinn í
varnir Þjódverja milli
Voronesh og Kursk.
Sókn milli Tuapse -Og Maikop.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Síðustu fregnir frá Rússlandi herma, að hersveit-
ir Rússa hafi tekið tvær borgir í sókn sinni
vestur af Salsk og sé þeir þá aðeins 60 km. frá
Rostov. Eru borgir þessar Atamansk og Egolitska.
Með þessari framsókn nálgast Rússar enn það tak-
mark sitt að Joka „pokanum“ og hindra undankomn
þýzku hersveitanna í Kákasus. Þótt Rostov yrði tekin,
þá væri enn alilöng leið eftir niður að Azovshafi, en þá
yrði allar járnbrautir frá Kákasus til Ukrainu rofnar
og með því mætti segja, að leiðin milli þeirra héraða ,
væri lokuð, þótt hermenn gæti e. t. v. farið ufn vegleys-
ur, ef sn jór er ekki of d júpur, þá mundi svo sem engu
af hergögnum verða komið undan þessa leið. I skrif-
um hernaðarsérfræðinga í Bretlandi kemur nú fram
sú von, að Þ jóðverjar lendi í sínu „Dunkirk-undan-
haldi“ yfir Kerch-sund.
Mikill kraftur er enn í sókn Rússa norður hjá Voronesh og
liafa þeir rekið nýjan stóran fleyg 1 varnir ]>ýzku liersveitanna,
sein eru á svæðinu milli Kursk og Voronesh.
Þarna liafa þeir tekið járn-*
brautarstöðina Yeletz og fimm
aðrar borgir, allar fremur litl-
ai. Gáfust 5000 hermenn Þjóð-
verja upp eftir stutta viðureign
á þessum slóðum, þegar tekizt
hafði að slá hring utan um þá.
Eru Rússar 120 km. frá Kursk
á þessu svæði.
Sótt frá Tuapse.
Rússar tiafa nú i fyrsta skipti
sagt frá hernaðaraðgerðum
milli Maikop og Tuapse. Hafa
hersveitir þeirra hafið sókn frá
Tuapse og eru þegar búnar að
laka tvær borgir, sem eru um
það bil miðja vega milli áður-
nefndra staða.
Ekki er getið um. það, að bar-
dagar sé liarðir þarna og má
vera að Þjóðverjar hafi byrjað
undanhald sitt af sjálfsdáðum,
þar eð þessar stöðvar voru í
liættu vegna undanhaldsins aust-
ar í Kákasus.
i
30 km. frá Kropotkin.
Rússar nálgast Kropotkin
liægt og hítaudi. Ilafa þeir tekið
tvær borgir, Novo Alex
androvska og Grigoro Polo-
skaya, sem báðar eru um það
liil 30 km. frá þessari raikilvægu
járnbrautarmiðstöð.
Þeir nálgast einnig Tikhoretz
að austan, én Þjóðverjar eru
sagðir húast lil brottfarar það-
an. Sésl til langra lesla hifreiða.
sem stefna norður frá horginni.
Ætla Þjóðverjar auðsjáanlega
ekki að brenna sig á-sama soð-
inu og sunnar í Kákasus, að
verða-að lilaupa frá miklu af
hergögnum og ýnisum hirgðum.
Hjá Stalingrad,
Hringarnir þrengjast jafnt og
þélt um hersveitirnar, sem liaf-
ast við lijá og í Stalingrad. Lýsa
Þjóðverjar því mjög átakanlega,
hvilíkar ógurlegar hörmungar
þessar hersveitir verði að þola
í vörn sinni.
Fangar, sem Rússar hafa tek-
ið, hafa skýrt frá því, að fjórir
herdeildarforingjar hafi verið
fluttir i flugvél á lxrott frá Stal-
ingrad-svæðinu fyrir skemmstu.
Þeir lieita: Galbonz, Daniels,
Scliwering og Offenlánder.
Loítárás á Wake
Amerískar flugvélar hafa gert
árás á Wake-eyju á Kyrrahafi.
Átta japanskar orustuflugvél-
ar réðust á ainerísku orustu-
flugvélarnar, sem gátu þó
varpað sprengjum sinum á til-
ætlaða staði. Voru a. m. k. 2
japönsku flugyélanna skotnar
niður.
Þetta er þriðja árás Banda-
ríkjamanna á Wake. Sú önnur
var gerð skömnui fvrir síðustu
áramót.
Viðskiptabann
á Argentínu.
Dagblaðið Tribuna í San
José (Costa Rica) liefir kom-
ið með þá tillögu, að algert
verzlunarbann verði sett á
1 allar vörur framleiddar í
Argentínu.
Tillögur um þetta hafa
vomið fram frá ýmsum að-
ilum að undanförnu, vegna
þess að stjórn Argentínu hef-
ir hvað eftir annað þverskall-
azt við að slíta stjórnínála-
sambandinu við möndulveld-
in. Er gremja víða mikil í
Ameríku og Sumner Welles
lét hana greinilega í ljós
nokkuru fjuár áramótin,
þegar hann ásakaði Argent-
ínu og Chile fyrir að skjóta
skjólshúsi yfir flugumenn
möndulveldanna.
Kolanám verður haf-
ið við Breiðafjörð.
Amerí§kir verkfræðing:ar
nm nnðlirlviiviingriiiii. :í
Rannsóknir, sem fram hafa farið á kolalögum yest-
ur á Skarðsströnd hafa leitt í Ijós, að á Tindum
e rum helmingi þykkra kolalag en áður hefir fundizt
hér á landi eða um hálfan annan meter á þykkt. Gæði
kolanna er líka meiri en áður er vitað um á íslenZkum
kolum, og slaga beztu sýnishornin, sem ranriBÖkuð
hafa verið, upp í erlend koí hvað hitamagn snertír.
A landsvæðinu, sem rannsakað hefir verið, er áætl-
að kolamagn um 190 þús. smálestir, en ennþá er ekki
in'iið að rannsaka neina lítinn hluta af þvi landi, þar
sem álitið er að kol sé undir.
Herstjórn Kínverja í Chung-
king ber Japani þeim sökum,
að þeir hafi enn einu sinni
nctazt við eiturgas í bardaga
við kínverskar hersveitir.
Var þetta 6. janúar síðast-
liðinn, en breyting á vindátt
olli því, að gasið barst aftur
til japönsku skotgrafanna og
varð hundruðum hermanna
að bana þar.
KínVerska herstjómin tel-
ur, að Japanir hafi beitt gasi
a. m. k. 1000 sinnum undan-
farin 5 '/2 ár. Gera þeir það
jafnan, þegar mótspyrna
Iíínverja er óvenjulega hörð.
Roosevelt forseti varaði
Japani við af leiðingum þess í
júní í fyrra, ef þeir beittu gasi
í hernaði. Munu bandamenn
telja sig hafa óbundnar hend-
l)r framvegis.
Wilhelmshaven
»fyrst í annaö sinn«
Fljúgandi virki gerðu árás á
flotabækistöðina Wilhelmshav-
en í björtu í gær.
Varpað var niður mikhi
niagni af sprengjum, en flug-
mennirnir gátn ekki atlmgað
gaumgæfilega, hve miklu tjón-
ið nain. Þrjú virkjanna voru
skotin niður.
Þetta var fyrsta árás amer-
ískra flugvéla á Þýzkalad sjálft
og varð Wilhelmshaven þv.í
,,fyrst i annað sinn“, því að
Bretar gerðu líka fyrstu árás
sína í striðinu á hana.
Liherator-flugvélar fóru til á-
rása á aðra staði ag Mosquito-
flug'vélar Breta réðust á Kaup-
mannahöfn.
mrnm 1 fluo-
vélalaði Kaaafla.
Síðan styrjöldþi hófst hefir
starfsmönnum í fiugvélaiðnaði
Kanada fjölgað úr 1000 í 40.000.
Eru nú smíðaðar flugvélar
flestra tegunda þar, meðal ann-
ars Lancastei’-sprengjnflugvél-
ar. Fjölgar verkamönnum i
flugvélaiðnaðinuni um 2000 á
mánuði hverjum.
Stanley- Lewis, horgarstjóri í
Ottawa, skýrði f.rá. þessu í ræðu
i.Liverpooí í gier. Sagði hqnn, að
550 millj. dollara væri varið
iil skipabygginga einna á þessu
ári og er einu 10.003 smál. skipi
lileypt af stokkuniun, 4. livei'n
dag.
300.000 hilar af ýmsum gerð-
um hafa verið sendir til vígvall-
anna. .
Seint á árinu 1941 var stofnað
félag til að rannsaka skilyrði
fyrir kolanámugrefti vestur á
Skarðsstriind. Félagið heitir Hf.
Kol.
l>að var lengi vitað, að kol
væru í jörð jiar vestra. Voru þau
sýnilega á löngu svæði i fjörun-
um á Tindum, og á sti-íðsárun-
um 1915—17 voru unnin kol
Nýr brezkur
skriödreki.
Byrjuð er framleiðsla á nýj-
11 m skriðdrekum fyrir brezka
herinn.
■Tames Grigg hermálaráðherrá
hefir skýrt frá því, að þessi teg-
und skriðdreka taki öllu fram,
sem framleitt hafi verið áður i
heiminum. Að öðru leyti er öllu
haldið leyndu um gerð þeirra
ng fyrirkomulag.
Framleiðslan eykst hröðum
skrefum.
og laggott.
í Tunis er nú ekki um neinar
verulegar hernaðaraðgerðir að
ræða.
Hersveitir bandamanna vinna
að þvi að styrkja aðstöðu sína
í Ousseltia-dalnuin. Tóku þær
stöðvar þessar fyrir skemmstu
at möndulveldaliernum, en
hann liafði hrakið þær úr þeim
skömmu áður.
Curtin, forsætisráðherra Ást-
ralíu, hefir skýrt frá því, að ,
manntjón hers landsins hafi j
numið 52.148 mönnum í lok
síðasta árs.
•
Fimm brezkir sjóliðar hafa
verið sæmdir norsku stríðs-
medalíunni af Hákoni konungi.
Mennirnir voru á norskum her-
skipum.
•
Undanfarna þrjá mánuði
liafa 76 Austurrikismenn vérið
teknir af lífi fyrir allskonar
undirróður gegn Hitlersstjórn-
inni og' skemmdarverk.
•
Brezkur togari, sem var við eft-
irlitsstörf, liefir farizt. Hann var
350 smál. að stærð.
•
Útvarpið i Budapest hefir til-
kynnt hermönnum, sem voru
í heimfararleyfi frá austurvig-
stöðvunum, að þeir þyrfti ekki
að koma á tilsettum tíma, til
að fara aftur austur á bóginn.
Orsökin er flutningaörðugleik-
ar -— skortur á nægum járn-
úr jörðu á Skarði, sem er næsti
oær við Tinda. Kol þessi þóíiu
góð og notuðu bændur þau jafn-
vel til að smiða jám við þau.
H.f. Kol fékk enskan kola-
verkfræðing til að rannsaka
kolanámuraar á Tindum og auk
þess voru íslenzkir sérfræðing-
ar, Jóhannes Askellsson og dr.
Trausti Einarsson, fengnir til að
rannsaka kolin.
Það er ekki hægt að komast
áð kolunum úr fjörunni, þannig
að þan yrðu rannsökuð, þyi um
flóð tágu þau undir yfirborði
sjavfir, Þess yegng vay sá kpsþ
11 r tekinn, að grafa niður í gegn-
um 12 metra þykka klöpp; En
ér niður úr henni var komið,
varð fyrir 1 meter þykkt kola-
lag, eða miklu þykkra en menn
gerðu sér vonir um og hehningi
jjvkkra en kolalög, sem áður
hafa þekkzt hér á landL
Vegna ]>ess, hve kolalagið er
jjykkt, verður reksturinn miklu
ódýrari en ella, þvi ]>ania þarf
ekki að grafa dýpra niður en
kolin ná.
Hitagildi kolanna hefir verið
rannsakað. Hafa mörg sýnis-
liorn verið tekin og prófuð, og
niðurstöður verið nokkuð mis-
jafnar, en þó í öllum tilfeUum
betri en áður hafa fengizt, er
hitagildi islenzkra kola hefir
verið ranpsakað. Þar sem hita-
gildið reyndist bezt, slagar það
hátt upp í að jafngilda erlend-
um kolum.
Nú hefir H.f. Kol fengið amer-
iska náuuiverkfræðinga til að
skipuleggja allan undirhúning
undir starfrækslu, semja kostn-
aðaráætlanir og annað þesshátt-
ar. Lízt þeim yfirleitt mjög vel
á kolin og væntanlega námu-
\innslu þar vestra.
Stjórn H.f. Kol skipa þeir
Haraldur Guðmundsson frá Há-
eyri, Birgir Thorlacius fulltrúi
og Haukur Þorleifsson banka-
bókari.
Síðiistii fréttir
Brezkar fjögurra hreyfla
flugvélar gerðu árás á Diissel-
dorf í nótt. Komu upp miklir
eldar í borginni. Sex flugvél-
anna komu ekki aftur.
Framsveitir 8. hersina eru
komnar 65 kílómetra vestur
fyrir Tripolis og era nú 80 km.
frá Iandmærum Tunis.