Vísir - 24.02.1943, Page 1
e
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan’ (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsta
Simt:
1660
5 llnur
33. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 24. febrúar 1943.
. 44. tbl.
I r leik I Tiiiiis
Þýzkur skriðdreki í Tunis, sem orðið liefir fyrir fallbyssu-
kúlu frá bandamönnum.
Rommel mun enn reyna
að ná Tehessa.
Víglína hans í lausu loíti núna.
OMMEL hefir nú verið stöðvaður i sókn sinni til Tala eftir
harða bardaga. En það er búizt við því, að hann muni gera
enn eina tilraun til þess að taka Tebessa og neyða með því Breta
til undanhalds umhverfis Medjes el Bab.
Eins og nú standa sakir er
víglína Rommels i lausu lofti.
Han hefir aðeins flutningaleið
gegnum Kasserine-slcarðið og
hún er mjög auðvelt skotmark
fyrir flugvélar. Blaðamenn í
Norður-Afriku líta því svo á, að
Rommel verði annað livort að
hörfa aftur til Kasserine-skarðs,
eða gera tilraun til að ná Tala
og Tebessa, til að komast þar að
járnhrautinni. Hann mun frem-
ur reyna hið síðamefnda og við
fyrsta tækifæri.
Churchill-skriðdrekar eru nú
farnir að taka þátt í bardögum
í Tunis og þykja reynast vel. 1
fyrsta bardaganum, sem þeir
tóku þátt i, voru þeir niu saman
gegn 14 þýzkum skriðdrekum.
Leikar fóru svo, að einn brezkur
skriðdreki var eyðilagður og
fjórir þýzkir.
Flugvélai' liafa tekið mikinn
þátt í bardögum að undanförnu
og i fyrradag, þegar bardagar
stóðu sem hæst, fóru þær í 20
árásarleiðangra til Kasserine-
skarðs og nágrennis þess.
Aðfaranótt mánudags gerðu
möndulveldaflugvélar tilraun til
ámsar á Tripoli, en voru hrakt-
ar á brott, eftir að fimm höfðu
verið skotnar niður.
Catroux vongóður.
Catroux, hershöfðinginn
franski, sem var gerður að land-
stjóra í Sýrlandi eftir að Bretar
tóku landið 1941, hefir nú lagt
það embætti niður og er tekinu
við nýju starfi í þjónustu de
Gaulle og Stríðandi Frakka.
Hefir hann verið gerður sam-
bandsforingi, sem kallað er, við
foringjaráð Girauds i Norður-
Afríku. Er það uýtt starf, sem
stofnað var eftír að þeir de
Gaulíe og Giraud hittust og mið-
ar að því að jafna miskliðina
milli Frakka.
Giraud veitti blaðamönnum
viðtal eftir að hann kom fyrir
fullt og allt til Norður-Afriku
til að taka við starfinu. Kvaðst
henn vera mjög vongóður um
endir bardaganna í Tunis og
gerði ráð fyrir, að bandamenri
mundu verða búnir að hreinsa
til þar eftir svo sem tvo mán-
uði.
Nýr flugforingi
í vestur-sandauðninni.
í gær var tilkynnt um eftir-
mann Conynghams, marksálks,
við yfirstjóm brezka flughers-
ins í vestur-sandauðn Egipta-
lands. Sá, sem við tekur, er 37
ára gamall vara-flugmarskálk-
ur, Broadhurst að nafni. Hann
ei yngsti maður bre!zka flug-
liersins, sem hefir svo ábyrgðai’-
mikið starf á hendi, en er talinu
mjög vel til starfsins fallinn.
Sem orustuflugmaður hefir
hann verið 600 klukkustundir á
lofti og er vel þekktur heima á
Englandi fyrir listflug.
Sviþjód:
Þýzki sendiherrann
vill ekki fara heim.
Sendiherra Þjóðverja í Stokk-
liólmi, sem settur var af fyrir
skemmstu, hefir ekki í hyggju
að snúa aftur til I>ýzkalands,
segir í fregn, sem Stokkhólms-
blaðið Svenska Dagbladet birtir.
Hitler var óánægður með það,
að hann skyldi ekki fá því fram-
gengt við sænsku stjórnina, að
hún leyfði Þjóðverjum þá her-
flutninga um landið, sem þeim
þætti nauðsynlegir, og setti hann
af. Jafnframt var lionum, gefin
skipun um að koma lieim til að
gefa stjórninni skýrslu.
Sendilierrann, sem heitir Zu-
wiet fursti, neitaði að fara heim
til Þýzkalarids og keypti sér
villu í Södertádje, skanunt frá
Stokkhólmi, þar sem liann
hyggst að húa fyrst um sinn að
minnsta kosti.
Níðustu fréttir
Þjóðverjar stofna
nýtt landvarnaráð
Enn ein járnbraut rofin í Ukrainu.
Hraustleg vörn Þjóð-
verja í A.-Ukrainu.
At) undanförnu hafa mikilvægar og violækar
breytingar verið látnar fram fára á æðstu
herstjórn Þýzkalands og landvörnum. Því
hefir heyrzt fíeygt, að Hitler hafi falið von Manstein
vfirherstjómina, en verið mótmælt í Berlín sem ill-
kvittnislegum rógi. Nú berast fregnir frá hlutlausum
löndum, sem hafa það fyrir satt, að stofnað hal'i verð
nýtt landvarnaráð fyrir Þýzkaland. Tekur það ákvarð-
anir um hvað gera skuli tií að efla varnir þess og lánda
þeirra sem Þjóðverjar hafa Jagt undir sig undanfarin
ár, skiptingu mannaflans, sem fyrir hendi er, milli hers-
ins, hergagnaiðnaðarins og landbúnaðarins. Meðal
þeima, sem nefndir hafa verið í sambandi við stofnun
þessa landvamaráðs, eru Guderian og von Unruh hers-
höfðingjar. En fregnir frá Stokkhólmi og Zúrich
herma, að innan skamms muni skýrt frá nöfnum fleiri
meðliina þess í BerJín.
Guderian er einn þekktasti skriðdrekahershöfðingi Þjóðverja.
Hann er sagður liöfundur þeirra hardagaaðferða, sem þýzkar
skriðdrekasveitir heita, en Bretar lialda þvi fram, að hann byggi
þær á kenningum brezka skriðdrekahershöfðingjans Fullers, er
var fyrsti skriðdrekasérfræðingur hernaðarsögunnai*. Guderian
tók þátt í innrásinni í Póílánd, Frakkland og Rússland. Þegar
Rússar hófu gagnsókn sína við Moskva haustið 1941, heið Gud-
erian allmikinn ósigur og litlu siðar varð hann að láta af her-
stjórn á vígstöðvunum, vegna heilsu sinnar eða af öðrum or-
sökum. Fyrir skemmstu var svo tilkynnt, að hann liefði verið
gerður eftirlitshershöfðingi með bryndeildum þýzka hersins,
og að hann ætti að sjá nm þjálfun þeirra. Von Lnruh er ekki
eins þekktur utan Þýzkalands, en hami mun njóta allmikils
trausts yfirmanna sinna. Ilann var fyrir nokkuru skipaður til
að liafa yfirumsjón með söfnun manna handa Þjóðverjuni eftir
að algei' vinnuskylda var sett á.
Herstjómartilkynningin frá
Eisenhower á hádegi skýrir frá
því, að hersveitir Itala og Þjóð-
verja hafi verið reknar á flótta
fyrir norðan og norðvestan
Kasserine. Fréttastofufregnir
segja, að þeir sé búnir að hörfa
allt til Kasserine-skarðsins.
Rússar gáfu í gær út fxlkynn-
ingu um töku þriggja merkra
horga í Ukrainú. Helzt þeirra er
Sumy, horg með 40.000 íhúum,
um 150 km. fyrir norðvestan
Karkov. Er hún við braut, seni
liggur frá Karkov og greinist J>ar
til Bryansk og Kiev, en um 5(1
km. fyrir norðan Sumv er hraul
in, sem liggur frá Kursk til Kiev.
í Sumy er allmikil sykurvinnsla.
Þá hafa Rússar tekið horgina
Lebedin, sem er allmiklu vestar,
og hafa Rússar ekki komizt vesl-
ar en þetta í vetur. Skammt þar
frá tóku þeir Aktyrka, um 40
km. fyrir suðvestan Lehedin og
90 km. fyrir norðaustan Poltava.
Loks hafa þeij' færzt enn hær
Orel eftir hrautinni frá Kursk.
Tóku þeir i gær horg, er heitir
Malo Arkangelsk, og er uin 00
km. suður af Orel.
Manntjón Rússa.
Vegna )>eirra upplýsinga, sem
Stalin gaf í dagskipan sinni i
gær til rauða hersins um tjón
Þjóðverja, hefir ]>ýzka frétta-
stofan „German Transocean
News Agency“ gefið út skýrslu
þýzku herstjórnarinnar um tjón
Rússa tj| j>essa. Telur þýzka hor-
Stjórnin, að fallnir, særðir ng .
fangar i liði Rússa sé orðnir
átján milljónir ogdvö hunrduð
þúsund.
Hergagnatjónið nemur 34,000
skriðdrekum og 48.000 fallhyss-
um.
í gær var tilkynnt í Þýzka-
landi, að framvegis myndi
verða minna um póstsendingar
til vígstöðvanna en hingað til.
Er þvi borið við, að flutninga-
öðrugleikar sé svo miklir, að
ekki sé hægt að flvtja annað en
J>að, sem er bráðnv uðsyn leg t
f\TÍr herinn.
ítalskir her'shöfðingjar falla.
Síðustu dágana liafa tveir
ílalskir liershöfðingjar fallið A
austurvigstöðvunum. Sá, sem
fyrr féll, var flughershöfðing-
inn Seechi. Hann fór í leiðangur
til að lijálpa innikróuðum ítölsk-
mn hersveitum, varpa niður til
þeirra matvælum og skotfærum,
en kom ékki aftur.
Hinn, seni tilkynnt var um í
Rómaborg i gær, hét Sarro og
var hershöfðingi i svartstakka-
sveitunum ítölsku.
Spánverjar hafa enn sent sveit
sjálfboðaliða til austurvigstöðv-
anna. í fregnum frá Beriin í
morgun segir, að á þriðjud. hafi
sjálfJböðaliðaflokkur lagt upp
frá Spáni til að sameinast „bláu
sveitinni“ í Rússlandi.
Skíðamaraþon Rússa.
í tilefni af túttiígu og fimm
ára afmæli rauða hersins fór
fram skíðamaraþon-hlaup i
Rússlandi og voru þátttakpndur
Iv’ö þúsund að tölu. Skíðamenn-
i'rnii’ Voru Játnir ganga 2400 km.
á iiókkrum döguin, ren enda-
markið var skamnit frá Moskva.
Þátttakendur voru eingöngu úr
skíðasveitum hersins.
LONDON:
Times og News Chronicle
hafa skrifað um það, að Bret-
ar ætti að láta Gandhi lausan.
— Líðan haná er óbreytt eftir að
honum skánaði í fyrradag.
Illkið tjón í
Wilhelmshavea.
Lundúnablöðin birta nú
myndir frá Wilhelmshaven, sem
téknar voru úr njósnaflugvél,
og sýna þær, að tjón hefir orðið
giiðarmikið í borginni.
í einni af siðustu loftárásunt
á borgina varð svo mikil spreng-
ing þar, að flugmenn sögðu. að
)>eir hefði aldrei séð aðra slíka
og gizkuðu þeir á það, að þeir
hefði hæft tundurskeyta- eða
duflabúr. Við höfnina voru 50
skúrar, sem þessi hergögn voru
geymd í, en myndirnar sýna, að
uin 40 þeumi ejru með öUu
horfnir, og munu það hafa verið
þeir, sem sprungu í loft upp við
hina miklu sprengingu, en alls
nær tjónið yfir um 60 hektara
lands. Gera Bretar ráð fyrir þvi,
að það niuni vera fáar rúður
heilar í Wilhelmshaven eftir
þessa geigvænlegu spreúgingu.
Flugbátur ferst hjá
Lissabon
Þegar amerískur flugbátur
var að koma til Lissabon i gær
frá Baiidaríkjunum, varð allt í
einu sprenging i honum, er hann
var að lenda á Tejo-fljóti.
Fjörutíu manns voru með
flughátnum, en aðeins sev’tjáu
hafa bjargazt. Fjögur lik hafa
fundizt. en nitján manns er
saknað og eru engar likur fyrir
því, að )>eir geti verið á lifi.
Meðal farþega á flugbátnum
voru tveir hlaðamenn, sem háðir
eru týndir, og nokkrir .kvik-
mvndaleikarar, sem voru að
fara til að skemmta ameriskum
hermönnum, utan Bandaríkj-
anna.
Taiið er að flubáturinn
„Yankee Clipper‘‘ hafi rekizi
á eitthvað, er liann lenti. Útfall-
ið kervði hann í kaf, og þeir.
sem hjörgúðust, bárust )>rjá
kilómetra á brott frá slysstaðn-
úm, áður en )>eim varð bjargað.
Brezki herinn
%.
stóraukinn.
Ernest Bevin, verkamálaráð-
hen'a Breta, skýrði frá því í gær
á Jnngfundi, að brezki herinn
mundi stóraukinn á J>essii ári.
Hann sagði einnig, að á þessu
ári muni fleira fólk verða tekið
lil starfa í vopna- og hergagna-
smiðjum landsins. Erfiðieikarn-
ir, sagði Bevin, eru ékki mestir
við að útvega vinnuafíið, heldur
mun það verða erfiðara að koma
því fyrii' og flytja )>að á vinnu-
staðina. Taldi Bevin, að til )>ess
gæti komið, að stjórnin neyddist
til að skylda vinnuveitendur til
að taka eins mikið og liægt væri
af konum, er ynnu aðeins hálfan
daginn, vegna )>ess að taka Jm'fti
tillit til þarfa heimilanna.
Loksins hvatti Bevin alla til
að auðvelda framleiðslu og
flutninga með þvi að ferðast sem
allra minnst.
Maginot-virkin
sprengd x loft upp.
Svissneska hlaðið Basler Nacli-
richten birtir fregn um það, að
Þjóðverjar vinni nú sem óðast
að því að sprengja upp virki
Maginotlínunnar, en m;ilmar
allir úr þeim eru siðan flutt-
ir heim til ÞýzkalancLs, þar sem
þeir eru notaðir á nýjan leik i
hergögn lianda herjum, Þjóð-
verja.
U ndanfarna daga höfðu
heyrzt sprengingár miklár frá
Elsass til Sviss og héldu menn,
að um loftárásir Breta væri að
ræða, en skýringin hefir þá ver-
rð þessi málmsofnlih Þjóðverja.
Sigur bandamanna
á þessu ári.
Wallace, varafor^eti Banda-
ríkjanna, hélt ræðu í gær og
minntist meðal annars á mögu-
leikana á því, að hægt væri að
sigra Þjóðverja á þessu ári.
Taldi hann það ekki ósenni-
legt, að þetta væri hægt, en til
þess að það mæti lánast, yrði
hæði Bretar og Bandarikjamenn
að leggja hart að.sér, þeir yrði
að beita öllum kröftum í þágu
stjrjaldarinnar, eins og Rússar
hafa gert. Þótt vel. hefði gengið
undanfarið ár, þá mætti það
ekki hafa þau áhrif á menn,
að þeir færi sér að, engu óðslega
nú, því að það mundi bara
lengja stríðið.
Maisky, sendilierra Rússa i
London, hélt ræðu í gær, þegar
opnuð var sýning til minningar
uin tuttugu og finvm ár rauða
hersins. Hann sagði, að menn
mætti ekki láta sér til hugar
koma, að Þjóðverjar væri að
því komnir að leggja árar í bát.
Það væri rangt, en hinsvegar
hefði bandamenn nægan styrk
til að greiða þeim rothöggið, ef
rétt væri á haldið.
Nýja Guineá;
Loftsokn gegn
Japönnm við
Miibo.
Bandamenn halda uppi öfl-
ugri loftsókn gegn Japönum við
Muho, svo að þeir munu vera
að húast til brottfarar þaðan.
Mubo er ein helzta vamarstöð
Japana fyrir austan Salamaua
og virðist leikurinn vera að fær-
ast þangað.
í nótt gerðu flugvélar banda-
manna harða árás á Rabaul og
hæfðu m. a. beitiskip eða stóran
timdiúspílli þrem 500 pundíi
sprengjum.
Rússlandssöfnunin
í erlendu útvarpi.
1 útvarpi á norsku frá London
i gærkveldi var sagt frá Rúss-
landssöfnuninni, sem kommún-
istar hafa gengizt fyrir.
Var sagt frá þvt, að um sjötiu
heldri borgarar Reykjavikur,
með biskupinn í broddi'fylking-
ar og nokknra alþingismenn,
tiefði lýst samúð sinni með
Rússlandi og tekin þau ummæli
upp úr áskoruninni, að íslend-
ingar hefði alltaf kunnað að
ineta hreysti og tiugprúða bar-
áttu.