Vísir - 22.07.1943, Síða 2
VÍSIF?
DAGBLAÐ
Ú tgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 60 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Leirmoli eða
meistaraverk
gUMIR þeir nieiin, sem mest
ræða um norræna menn-
ingu, virðast helzt hugsa sér
liana á þann veg, að hún sé eins
og leirklumpur eða óskapnaður,
sem móta megi á alla lund, og
taki jafnvel á sig nýja mynd
eftir því úr hvaða átt vindurinn
hlæs. í slíkum ályktunum virð-
ist ligga fullkomið vanmat á
norrænni menningu, og i raun-
inni má gera ráð fyrir að menn-
irnir meini þetta ekki alvarlega,
en ætli þessar lieimspekilegu
hugleiðingar frekar til áróðurs,
þótt þær lýsi jafnframt ein-
kennilegu og sérstæðu gáfna-
fari, og ekki liafa menn orðið
varir við slíkar perlur i sandin-
um fyr en nú, eftir að umræður
voru teknar upp varðandi sjálf-
stæðismál þjóðarinnar.
En úr þvi að slikar hugleið-
ingar liafa séð dagsins ljós, ver-
ið birtar í blöðum og' borist á
öldum útvarpsins til eyrna
hlustandi manna, verður ekki
hjá því komist að gefa þeim
nokkurn gaum, og ber þá fyrst
að vara við þeirri blekkingu,
sem lialdið hefir verið fram, að
nokkrum íslendingi detti í hug
að flytja landið og þjóðina vest-
ur til Ameríku, i stað þess að
hvorttveggja verði viðloðandi
gamla nöldrið, Evrópu, svo sem
verið hefir. En i þessari ímynd-
un sinni finna háspekingar nú-
tíma sjálfstæðis íslenzku þjóðar-
innar, að því er þeir sjálfir telja
öruggan grundvöll til þess að
finna hugarflugi sínu „blífan-
legan samastað“. Menning
Vesturheims verður hér rikj-
andi segja þeir, og við verðum
þiggjendur en ekki veitendur.
En alveg án tillits til þess, að
engum íslendingi hefir dottið i
hug að forfæra ísland til Amer-
iku, virðist ekki úr vegi að
spyrja háspekingana að því,
hvort þeir hafi ekki orðið þess
varir, að ísland hefir aldrei
byggt um sig „kínverskan múr“
norrænnar hámenningar, ef frá
er talið tímabil það, sem ein-
okunin ríkti hér í almætti sínu
og hélt þjóðinni einangraðri í
sínum blessaða norræna náðar-
faðmi? ísland hefir ávallt staðið
opið fyrir erlendum áhrifum frá
því er einokunina leið, og þrátt
fyrir einokunina leitaðist þjóð-
in við að auka viðskipti sín vð
aðrar menningarþjóðir Evrópu,
þótt við Iægju þungar refsingar
og jafnvel fjörtjón. Síðustu
fimmtiu árin höfum við íslend-
ingar haft öllu nánara samband
við Breta og brezka menningu,
en Norðurlöndin sjálf, en í þvi
efni nægir að skírskota til liag-
skýrslna, er sýná viðskipti þess-
ara landa, ef vera mætti að þeir
menn sannfærðust, sem tölu-
vísindi meta framar öðru. Þrátt
fyrir þetta er það tvennt ekki
sýnilegt að við íslendingar höf-
um til þessa umbylt hinni
brezku heimsmenningu, og ei
heldur að hin brezka heims-
menning hafi endavelt norrænu
menningunni, sem virðist þó
mega tálga eins og deiglumó
eða móta eins og leir, að áliti
háspekinganna.
En eins og áður segir er þessi
VISIR
skoðun háspekinganna fullkom-
ið vanmat á norrænni menn-
ingu, og miklu nær væri þeim
að opna augu sín fyrir því, að
hún er á ýmsan hátt heilsteypt
listaverk, sem hreytir ekki lil
eins og salamandra eða refur-
inn í náttúrufræði Jónasar Jóns-
sonar. Norrænar bókmenntir,
sem íslendingar eiga ríkan þáll
í, norræn saga, sem öll líyggist
á íslenzkri sagnagerð og nor-
ræn visindi munu ávallt halda
fullu gildi, enda verður gullið
aldrei að eir. Hitt verða þessir
menn einnig að gera sér ljóst,
að ísland er ekki og verður ekki
framar lokað land fyrir um-
heimnum. Fjarlægðir lieyra for-
tíðinni til, kyrrstaða og hrörnun
géra það á sama Iiátt. íslending-
ar verða að keppa að því marki
að byggja upp land sitt og bæta
það, sem og að horfa ekki leng-
ur á grafið gull í haugum eða
ghma við forynjur aftur úr öld-
um, heldur nytja landið og
auðga vísindin, sem vafalaust
verða happadrýgst í að efla alla
dáð og skipa þjóðinni á bekk
með menningarþjóðum. Allt
þetta hefir engin áhrif á frum-
menningu þjóðarinnar, með því
að á henni verður allt annað að
byggjast. íslendingar liurfu frá
rúnaletri og tóku upp hið gotn-
eska og rómverska. íslendingar
köstuðu heiðni en tóku upp
kristna trú. íslendingar hurfu
frá kaþólskum sið, en tóku
lúthersku, íslendingar hættu að
kroppa af þúfum með dengdum
ljáum, sem tóku að rækta jörð-
með viðeigandi vélaafli, en allt
þetta hefir á engan hátt skaðað
íslenzka menningu. En hvar er
þá voðinn og tortimingin? Hann
er falinn í því að þjóðin fari að
dæmi liáspekinganna og van-
meti norræna menningu og
sjálfa sig einnig, en hann dylst
aldrei bak við aukna menningu
og eðlilega þróun. Það má pi-ýða
á margan liátt í kringum meist-
araverk, en aldrei má steypa
þeim af stalli og brjóta þau í
mola. Þótt íslendingar fái að
njóta sjálfstæðis, sem aðrar
norrænar þjóðir, stafar nor-
rænni menningu af því engin
hætta. Vanmat háspekinganna á
norrænni menningu er svo
skefjalaust, að þeir virðast
halda því fram í fullri alvöru,
að íslendingar muni falla í ónáð
hjá öðrum norrænum þjóðum,
taki þeir þann rétt, sem þeim
ber, sem frjálsbornum mönn-
um. Væri þetta rétt er hin nor-
ræna menning skandinavisku
landanna ekki mikils virði, en
svo er guði fyrir að þakka, að
þetta er einhver ógeðslegasti
rógur í garð Norðurlanda, sem
til þessa hefir heyrst hér á Iandi,
en jafnframt felast i þessu at-
ferli full svik við hinn íslenzka
málstað, sem byggir ekki á leir-
menningu háspekinganna, en
lögum, rétti og réttarmeðvitund
frjálsra lýðræðisþjóða.
Maður drukknar
í fyrrakvöld drukknaði mað-
ur í Álftafirði, Guðmundur
Gísli Jónsson að nafni.
Guðmundur fór einn á trillu-
báti frá ísafirði yfir. í Álfta-
fjörð í fyrrakvöld til að draga
lóðir, sem hann mun hafa átt i
firðinum. Menn, sem voru á
öðrum báti slcammt frá, sáu allt
í einu að Guðmundur var horf-
inn úr bátnum. Brugðu þeir
þegar við, réru að bátnum og
sáu þar ekki annað en húfu
Guðmundar, er flaut á sjónum.
Hafði hann þá verið búinn að
draga tvær lóðir af tíu. Logn
var og sjór kyrr. Guðmundur
Gísli Jónsson var maður um
fertugt, kvæntur og átti eitt
barn.
Skemmtigarðar, hvíldar-
staðir og barnaleikvellir.
Framtíðarskipulag innan Hringbrautar
8Jr Éillöguiti Skipulagsnefudsir.
^■KIPULAGSNEFNDIN mun innan skamms leggja fram
•^framtíðarskipulag Reykjavíkurbæjar innan Hringbraut-
ar fyrir bæjarráð, ásamt vönduðum skipulagsuppdrætti.
Nefndina skipa, eins og kunnugt er, þeir Geir G. Zoega vega-
málastjóri, Guðjón Samúelsson húsameistari og Emil Jónsson
vitamálastjóri, en skrifstofustjóri nefndarinhar er Hörður
Bjarnason arkítekt.
Vísir átti tala við Hörð Bjarnason um tilhögun opinna svæða
i bænum, og skýrði hann frá þessu meðal annars:
í miðbænum.
Stærsta opna svæðið í bæn-
um innan Hringhrautar er vit-
anlega Arnarhólstúnið. Sam-
kvæmt skipulagstillögunum
verður það ekki skert, en garð-
yrkjuráðunautur bæjarins sér
um skreytingu þess, og er það
starf hafið, en því heldur áfram.
Jafnóðum og svæði verða opn-
uð munu þau svo tekin til rækt-
ar.
Þá er gert ráð fyrir því, að i
áframhaldi af Arnarhólstúni
komi „græn lína“ alla leið frá
Stjórnarráðsbletlinum að Skot-
húsvegi, framan við opinberar
byggingar, sem gert er ráð fyrir
á þeim slóðum. Þetta opna svæði
nær nú suður að Miðhæjar-
barnaskólanum, en samkvæmt
skipulaginu á hann að hverfa og
sömuleiðis þær byggingar sunn-
an hans, sem eru of nálægt
Tjörninni. Allt þetta svæði
verður ræktað blómum og trjám
og þar lagðir gangstígar og sett-
ir bekkir, eftir því sem nánar
þykir henta. Mun ekkert slcerða
það, nema nauðsynlegustu uiyi-
ferðaæðar.
Andspænis þessu svæði, hinu
megin Tjarnarinnar, verður
annað grænt svæði i Tjarnar-
brekkunni, frá ráðlierrabústaðn-
um og að Slökkvistöðinni.
Loks verður Alþingishúsgarð-
urinn opnaður almenningi og
skipulagningu tengdur umliggj-
andi byggingum og götum. Góð-
templarahúsið hverfur, en við
það stækkar garðurinn til muna.
Nokkur minnkun er ráðgerð á
Austurvelli, en stækkun ann-
ara opinna svæða vegur marg-
faldlega upp á móti henni.
í austurbænum.
Stærsta opna svæðið í austur-
bænum verður Skólavörðu-
holtið, milli Njarðargötu, Egils-
götu, Barónsstígs og Eiríksgötu,
umhverfis væntanlegar opinber-
ar byggingar.
Ætlazt er til að þar verði garð-
svæði og tröppugarðar (terrass-
ar), og kemur það til að liggja
andspænis fyrirhuguðu iþrótta-
svæði liandan Barónsstígs og að
all-myndarlegum garði framan
Austurbæjarskólans. Þá er þar
ekki all-langt frá gert ráð
fjrrir opnu svæði, er liggur að
Landspítalalóðinni, vestur af
Hringtorgi, sem verður á gatna-
mótum Hringhrautar og Miklu-
brautar, en hún á að liggja um
Háteigstún inn að Elliðaám.
Minni opin svæði i austur-
hænum verða kring um Þjóð-
leikhúsið, annað austan þess og
að bústað sendiherra Dana
(Smiðjustigur hverfur), hitt
andspænis leikhúsinu við
Hverfisgötu (Indriðatorg). Loks
má opna garð Gróðarstöðvar-
innar fyrir ahnenning, en þar
er gert ráð fyrir kirkju eða
kappellu í miðjum skrautgarði.
Vesturbærinn.
Stærsta opnað svæðið í Vest-
urbænum er Landakotstún. Það
er í eigu kaþólska safnaðarins,
og engar umræður liafa farið
fram um svæðið til afnota fvrir
almenning, sökum þess að bisk-
upinn hefir verið fjarverandi i
meir en heilt ár. En telja má
líklegt að samningar geti tekizt
milli bæjarins og 'safnaðarins,
á þá leið að bærinn taki að sér
ræktun og umsjá túnsins, greiði
hætur fyrr grasnyt, en opnaður
verði garður þarna kring um
kirkjuna. Ætti hvort að geta
undirstrikað annað, garður og
kirkja. En þetta er sem sagt al-
gerlega óráðstafað mál, og verð-
ur það tekið til umræðu við
ráðamenn safnaðarins, þegar
tækifæri gefst.
Milli Vesturvallagötu, Fram-
nesvegar, Sólvallagötu og
Hringbrautar er óbyggt svæði,
sem ætlunin er að brejúa i garð.
Svæðið er beint vestur af sam-
vinnuhúsunum á síra Jóhanijs-
túni. Möguleiki er einnig fyrir
garði á Melstúninu svonefnda,
norðan elztu Verkamannabú-
staðanna við Hofsvallagötu.
Barnaleikvellir.
Á skipulagsuppdrættinum er
gert ráð fyrir þeim barnaleik-
völlum, sem fyrir eru, við Grett-
isgötu, Barónsstíg og .Auslur-
bæjarskóla, en að auki i reit
milli Skólavörðustigs, Njáls-
götu og Bjarnarstígs og við
Freyjugötu. Auk þess liefir þeg-
ar verið gert ráð fyrir leikvöll-
um við alla verkamannabústað-
ina og margar sambyggingar.
En ekkert er þvi til fyrirstöðu
að hafa sérstaka barnaleikvelli
á þeim opnu svæðum, sem að
ofan er gert ráð fyrir, þvi að
nánári ákvarðanir um skipulag
þeirra hafa ekki verið teknar,
enda mun bæjarstjórn á sínum
tíma skera úr um öll þessi mál.
Skipulagsuppdrátturinn gerir
aðeins ráð fyrir opnum svæðum
i heild, en það tekur auðvitað
mörg ár og mikið starf að koma
þeim i endanlegt horf.
Sogsstöðin kom-
in í lag.
Búið er að gera við bílunína,
sem varð á Sogsstöðinni á dög-
unum, og vélarnar munu að
öllu forfallalausu starfa með
venjulegri orku úr því að dag-
urinn í dag líður.
Vísir fékk þær upplýsingar
hjá Steingrími Jónssyni raf-
magnsstjóra i gærkveldi að bú-
ið væri að gera við vélarbilun-
ina. Hinsvegar tæki það nokk-
urn tíma að þurrka og hreinsa
vélarnar og því ekki þótt til-
tækilegt að láta þær starfa til
þessa. Hefir það þó ekki komið
að sök nema á tímabilinu frá
kl. 10—12 f. h. Hér eftir er bú-
izt við að vélarnar vinni með
fullum krafti, en hugsast getur
þó að á þessum tíma í fyrramál-
ið verði rafmagnið með minna
móti.
Hvað nývirkjuninni við Sogið
viðkemur, gengur vinnan þar
sinn eðlilega gang. Er nú byrjað
að steypa undirstöðuna undir
vélarnar.
Scrutator:
Qcudjdvi cdbwmAWfyS
j
Minkar.
Eg átti í gær tal við mann, sem
tapað hafði á þriðja þúsund króna
af völdum minks. Jón Guðnason
bóndi á Úlfarsá átti fyrir skemmstu
150 kjúklinga, sem hann geymdi í
hlöðu. En minkur komst inn um
stafnglugga, drap 130 kjúklinga og
dró saman í hrúgu, en skeytti þeim
ekki að öðru leyti. Kunnugir telja
þetta eitthvert mesta tap, sem orðið
hefir í einu af völdum minks, og
þótt Jón sé ekki maður skaðasár,
var ekki Iaust við að hánn sæi of-
sjónum yfir þeirri vinnu og tilkostn-
aði, sem hann hafði haft af því að
gera minknum eina glaða nótt. „Ef
helvítið hefði bara étið nægju sína,
þá hefði ég sloppið vel“, sagði hann.
„En hann snerti ekki einn einasta
unga til matar, og hann drap meira
en hann hefði getað etið á heilu
misseri — af elntómri morðfýsn.“
Eftirlit og veiðar.
Meðan við Jón vorum að velta
því fyrir okkur, hvort við ættum
að heimta algera eyðingu minka og
bann við eldi þeirra, eins og Pétur
Ottesen leggur til, bar þar að Ólaf
Friðriksson ritstjóra. „Það nær ekki
nokkurri átt að útrýma minkurn",
sagði Ólafur strax. „Þetta verður
ágætur tekjustofn fyrir landið með
tímanum. En það, sem gera þarf,
er að tryggja betur en gert hefir
verið að dýrin sleppi ekki úr búr-
um og leggist út, og svo verður
auðvitað að veiða þau. Það vferða
öll villidýr plága, sem ekki eru
veidd. Það er líka allt of seinleg
veiðiaðferð að skjóta einn og einn
mink eða drepa með grjótkasti.
Minkurinn er í Alaska veiddur í
boga. Þeir eru litlir og kosta sára-
litið. En minkurinn er forvitinn og
lætur jafnan ginnast“. Jón fór að
malda í móinn. Kvaðst hafa átt
mipka sjálfur og það væri ekki mik-
ið upp úr þeim að hafa. „Það er
svo með allan rekstur", svaraði Ól-
afur. „Alla vinnu verður að læra -—•
og læra, af mistökum, bæði sínum
og annarra. Þegar minkabændur
hafa komizt upp á lag með að rækta
minkana, skuluð þið sanna til, að
atvinnan verður blómleg“. Ólafur
þurfti nú að flýta sér og var á
bak og burt, annars er hætt við að
hann Jiefði sannfært okkur Jón
báða og líklega komið okkur til að
stofna minkabú með mælsku sinni
og sannfæringarkrafti.
Eitthvað þarf að gera.
Eg er samt hræddur um, að Ól-
afur hafi hvorugan okkar Jóns
sannfært algerlega með bjartsýni
sinni. En Jón fór þegar á stúfana
til að panta minkaboga hjá Eyjólfi
í Mjólkurfélaginu. Þeir verða
kannske komnir fyrri part vetrar,
þegar skinnin eru í sem mestu verði,
og nóg er veiðin hjá Jóni og ná-
grönnum hans, bæði á Reynisvatni
og TJlfarsfelli. Þarna veður mink-
urinn uppi, því að þarna eru bæði
vötn og ár. Úlfarsá (sem sumir
kalla Korpúlfsstaðaá eða Korpu)
leggur sjaldan alla á vetrum, og
rriá þvi nærri geta, að dalverpið
þar efra er mesta gósenland fyrir
mink. En seint held eg að gangi
fyrir Jóni að veiða mink upp í
það tjón, sem hann hefir nú orð-
ið fyrir, enda mun hann -fremur
stunda veiðarnar sem tryggingar-
ráðstöfun fyrir bústofn sinn en til
innlags. En eg bendi á þetta ein-
staka dæmi um tjón af minka völd-
um, vegna þess að við svo búið
má ekki lengur sitja, að ekki sé
gerðar ákveðnar ráðstafanir gegn
faraldri þessum. Verði eyðingar-
frumvarp Péturs Ottesens ekki að
lögum, verður samt að vinna af al-
efli gegn útbreiðslu villiminka og
því fyrr sem byrjað er, því betra.
1 því efni mætti bóndinn á Úlfarsá
verða til nokkurrar fyrirrnyndar.
Hann reynir að afla sér boga.
Pláffur.
Það er annars ekki einleikíð, hve
margar plagur hefir tekizt að leiða
yfir hin hrjáða búskap þessa lands
með innflutningi útlendra dýra.
Það vantaði ekki gyllingarnar, þeg-
ar verið var að blekkja bændur til
fylgis við nýmælin. Síðan varð að
leita út um allar álfur eftir erlendri
hjálp gegn mæðiveikinni. En eng-
inn þeirra sérfræðinga, sem fyrir
innflutningi minkanna stóðu, hefir
mér vitalega andað því út úr sér,
að hægt væri að veiða dýrin með
einföldu móti. Maður getur ekki
varizt þeirri hugsun, að sumum
hverjum hafi látið það betur, að
standa í auglýsingum og áróðri en
í stöðum sínum.
Who is Who?
Áður var það prófessor Knud
Berlin, sem harðast stóð á móti
skilnaði íslands og Danmerkur. Nú
er það útvarpið í Berlín. Prófessor
Knud Berlin er nú horfinn. En hver
hefir þá knúð Berlín?
Hochachtungsvoll,
Isak ísax,
utanríkismálafræðingur.
Stúlku
vantar í eldliús Landspítal-
ans. Uppl. hjá matráðskon-
unm.
2 itnlknr
óskast til að ganga um beina.
Enskukunnátta æskileg. —
'7aktaskipti.
Sigurður Sigurbjörnsson.
Rauðarárstíg 26.
Uppl. eftir kl. 6. Sími: 4581.
inðnr
fjölhæfur, laghentur, óskar
eftir framtíðaratvinnu í liaust
Kaup eftir samkomulagi. —
Tilboð, merkt: „Góð fram-
tiðí‘, sendist afgr. blaðsins
fyrir föstudagslcvöld.
VANUR
bílstjóri
meið meira prófi óskar eftir
,ð keyra góðan fólksbíl eða
vörubíl. Tilb. óskast sent til
afgr. Vísis fyi'b’ kl. 4 á morg-
un, merkt: „Vanur“.
Tapazt
hefir Parker Iindarpenni
með silfurhettu. Uppl. í síma
5470 og 3803.
GALVAN-
HÚÐAÐUR
Skipasaumur.
Stiftasaumur.
Þaksaumur.
Pappasaumur.
Gluggasaumur.
Klossasaumur.
ö.
.1.