Vísir - 30.07.1943, Page 3

Vísir - 30.07.1943, Page 3
VISIR Sannleikurinn um flótta Rudolfs Hess. Sagan af því, hvernig brezka leyni- þjónustan gabbaði Hitler, þegar verst stóð á. Tímaritið „American Mercury” birt- ir þessa furðulegu frásögn eftir góðri heimilcl — nafnlausri. En ritstjórnin kveðst þekkja blaðamanninn, sem skrif- að hefir, og segir, að hann sé áreiðan- legur. „Readers Digest” hefir birt greinina stytta og hefir það eftir All- an A. Mitchie, Lundúnafréttaritara sin- um, að frásögnin sé i öllum atriðum í samræmi við það, sem þeir Lundúna- bla^amenn, sem bezt þekkja til, þykj- ast hafa fyrir satt. ÞAÐ HEFIR í RAUN OG VERU aldrei verið upplýst, hvers vegna Rudolf Hess flaug til Skotlands. Síðan eru nú liðin meir en tvö ár, og margir Englendingar og Amerikumenn vita nú orðið, hvað olli þeim furðulega viðburði, að staðgengill Adolfs Hitlers fór svo óvenjulega för. Um nokkura þætti þessa máls vita engir, nema æðstu for- ingjar brezka herráðsins og háttsettir menn leyniþjónustunnar brezku, því að þeim verður að lialda leyndum af stjórnmála- orsökum, en aðalatriðin eru mörgum kunn, enda er liægt að segja frá þeim og þar með söguna af einhverjum ævintýra- legustu og sniðugustu gagnnjósnarrefjum, sem sögur fara af. Rodolf Hess „flýði“ alls ekki frá Þýzkalandi. Hann kom sem friðarboði, samkvæmt -skipun Hitlers. Það var búizt við hon- um af nokkurum Englending- um, og hann var raunverulega verndaður af brezka flughern- um á leið sinni frá Þýzkalandi. Hitler sá i byrjun ársins 1941 að hann gat ekki lengur frestað „krossferðinni“ gegn Rússum. Tilraun hans til að sigra Eng- lendinga áður en liann snéri sér i austurveg, hafði mistek- iztv Hann þurfti að fá frið við England, til þess að geta beitt öllum kröftum sínum gegn Rússum- í janúar þetta ár hafði Hitler spurzt fyrir um það, hvernig Englendingar myndu snúast við friðarumleitunum. Hann séri sér auðvitað ekki beint til brezku stjórnarinnar, heldur til nokkurra áhrifamikilla Eng- lendinga, á meðal þeirra til Hamiltons hertoga, sem var meðlimur í ensk-þýzka félag- inu (sá félagsskapur hefir siðan verið leystur upp). Frægur stjórnarerindreki var hafður fyrir boðbera og Þjóðverjar lögðu fram skilmála sína um frið milli vesturveldanna. Báð- ir aðilar fóru varlega i þessum samningum og gættu þess vel að segja ekki of mikið við mót- aðilann. Hess varð fyrir valinu. Þegar uppástungu Þjóðverja, um að samninganefndir hittust í hlutlausu landi, var liafnað, huðu þeir að senda fulltrúa til Englands. Hitler ákvað að þessi fulltrúi skyldi vera liáttsettur nasisti, mjög áhrifamikill maður. Hann yrði að vera maður, sem var fær um að tala opinberlega fyrir hönd þýzku stjórnarinnar, og til að gefa bindandi loforð fyrir hönd íoringjans. Slíkur maður var einmitt Walter Richard Rudolf Hess, þriðji maður innan nasistaflokksins, staðgengill Hitlers og einkavin- ur. Hann hafði alizt upp í enska hverfinu i Alexandríu, talaði ensku ágætlega og „skildi hið brezka liugarfar“. Bretar drógu við að svara boði Hitlers, en að lokum féll- ust þeir á það. Og þar kom að, 10. maí — eftir 4 mánaða samn- inga — að Hess lagði af stað i sína örlagaríku flugferð. En það sem Þjóðverjar höfðu ekki vitað, var að raunverulega höfðu þeir átt við umboðsmenn brezku leyniþjónustunnar, sem notaði nöfn — og eiginhandar- undirskriftir — Hamiltons her- toga og annarra háttsettra manna í ensk-þýzka félaginu. Fyrstu skilaboðin í janúar, sem áttu að fara til Hamiltons, náðu aldrei áfangastað. Brezka leyniþjónustan hafði komizt yfir þau. Frá þeirri stundu var samningum haldið áfram af umboðsmönnum hennar. Svör voru send til Berlinar, þannig orðuð, að þau gáfu Þjóðverjum undir fótinn, svör, sem virtust gefa í skyn að England væri að reyna að forðast hernaðai’legt hrun, ef styrjöldin héldi áfram. Lagt af stað. Kvöldið sem Hess flaug á- leiðis til Englands, sendu nas- istar hinn mesta flokk sprengju- flugvéla, sem þeir nokkuru siniii höfðu gert út, til loftárás- ar á London. Skyndilega kom tilkynning frá afskekktri mið- unarstöð á strönd Skotlands, um að flugvél nálgaðist, sem ekki gæfi til kynna hver hún væri. Hraði hennar bar vott um að þetta væri orustuflugvél. í varð- sal flughersins var staða liennar og stefna mörkuð rauðri ör, sem benti til norðvesturs. Örin færðist nær Skotlandi, eftir því sem fleiri tilkynningar bárust til varðsalarins. Þegar yfirforinginn, sem á verði var á aðalbækistöð flug- hersins, frétti um þessa flugvél, kallaði hann upp yfir sig: „Drottinn minn, bara að þeir skjóti hana ekki niður!“ Tvær Hurricanevélar voru sendar til verndar furðuflugvélinni. Var þeim sagt að elta hana og neyða til að lenda ,en ekki að skjóta á hana undir neinum kringum- stæðum. Örin á kortinu færðist vestur yfir Skotland, og foringjarnir fylgdust með af auknum á- huga. Þegar lörin var komin ná- lægt smábænum Paisley, nærri vesturströndinni, nam hún stað- ar. Yfirforinginn andvarpaði og sagði: „Guði sé lof.“ \ ( Hess lendir. Nú víkur sögunni til Lanark- shire í Skotlandi. David McLe- an bóndi sér mann síga niður í falllilíf á akurnn, og ræðst hann þegar að honum með heykvísl að vopni. „Ert þú nasisti og ó- vinur, eða ertu einn af oss?“ spurði liann. „Ekki óvinur; brezkur vinur“ var svarað. Hess átti erfitt um mál vegna þess að •liann hafði fótbrotnað er liann kom niður og hafði miklar þrautir. Þegar honum hafði verið hjálpað inn í bóndabæinn, viðurkenndi liann við heima- varðliðsmenn, sem komu á vett- vang, að hann kæmi frá Þýzka- landi og að hann liefði verið að leita að einkaflugvelli Hamil- tons hertoga, sem var 10 milur í burtu. „Viljið þér gera svo vel að segja hertoganum að Alfred Horn sé kominn,“ sagði hann. Móttökurnar. Á meðan þetta gerðist, beið einskonar opinber móttöku- nefnd, sem samanstóð af gagn- njósnaforingjum hersins og mönnum frá brezku leyniþjón- ustunni, við flugvöll Hamiltons hertoga. Hess nauðlenti þegar bensínbirgðir hans þraut, og það varð þess valdandi að fregnin um komu lians barst út. Þegar „móttökunefdin“ frétti um slysið og náði til komu- manns, fluttu þeir hann til Maryhill-herbúðanna nálægt Glasgow. Þar breytti hann sögu sinni. „Eg er kominn til að bjarga mannkynínu," sagði hann, „eg er Rudolf Hess“. — Hann fullyrti að áhrifamiklir Englendingar vissu um komu sina, — fullyrðing, sem var sannari heldur en liann vissi sjálfur, enn sem komið var. Plöggin á borðið. Hess liafði undirbúið sig til að semja óbeint \dð brezku stjórnina. En sjálfur Winston Churcliill hafði undirbúið samn- ingana öðruvísi. Irone Kirk- patrick, sem var njósnarmeist- ari í fyrri heimsstyrjöld og hafði verið einkaritari brezka sendiherrans í Berlín í 5 ár, flaug til Skotlands til að taka við tillögum Hess og flytja þær beint til brezku stjórnarinnar. Jafnvel Hitler liefði ekki getað vænzt betri samvinnu. Þrátt fyrir fjarveru Hamiltons lier- toga, var Hess ennþá sannfærð- ur um að hann væri að semja við meðalgöngumenn úr ensk- þýzka félaginu. Hess skýrði Kirkpatrick frá vopnahlés- og friðarskilmálum Hitlers. Ilann var ákafiir og málóða. Skýrslur hans fylla margar vélritaðar blaðsíður. Þar sem hann var sannfærður um að Bretland væri á heljar- þröm og vissi það sjálft, þá tal- aði hann eins og göfugur sig- urvegari, sem býður fjand- manninum góða kosti. í stuttu máli voru tillögur hans á þessa leið :• Hitler bauð að stöðva þegar í stað stríðið í vestri. Þýzkaland skyldi láta allt Frakkland laust, nema Elsass og Lothringen. Það ætlaði að halda Luxemburg, en draga heri sína frá Belgíu, Hol- landi, Noregi og Danmörku. Þar að auki vildi foringinn draga her sinn úr Júgóslavíu, Grikklandi og áhrifasvæðum sínum við Miðjarðarhaf. Hitler ætlaði að sjá um að hagkvæmir samningar tækjust milli Bret- lands og Ítalíu. Fyrir allt þetta átti Stóra-Bretland að reka vin- gjarnlega hlutleysispólitík gegn Þýzkalandi, gagnvart austur- Evrópu. Ilann lagði áherzlu á live hlutverk Hitlers i austri væri mikilvægt „til þess að . frelsa mannkynið“, og benti á hvern- ig England og Frakldand gæti verið vopnabúr vesturveldanna gegn Asiu-kommúnisma. Hann henti á að Þýzkaland mundi kaupa alla hergagnaframleiðslu ]>essara ríkja, þar til þau gætu gefið sig að friðsamlegum störfum á ný, og þannig komið í veg fyrir fjárhagslegt lirun. Hann gaf engar u])plýsingar um hernaðaráform Hitlers i austur- Evrópu. Það sagði hann að væri einkamál Þýzkalands. í tvo daga samfleytt var sendimaður Hitlers að útskýra fvrirætlanir sínar. Hann lagði áherzlu á að Hitler mundi ekki liorfa í smámuni — Bretland gæti raunverulega sjálft ákveð- ið friðarskilmála sína. Hitler vildi ólmur stanza þetta til- gangslausa stríð — sem mann- vinur við bræðraþjóð — og þannig gera vestur-landamæri sín örugg, meðan hann berðist í austri. Rudolf Hess — flcuig í gin brezka Ijónsins .. Leyndur svari. Með þýzku tillögurnar upp á vasann fór nú Kirkpatrick til Downing Street nr. 10 i London. Tillögurnar voru sendar til Washington til umsagnar, og styrkti Roosevelt forseti ákvörð- un Churchills. Svarið varð á- kveðið nei. Bæði Bretar og Bandaríkjamenn gerðu margar tilraunir til að vara Rússa við Þjóðverjum. Rússnesku leiðtog- arnir vildu ekki trúa, eða þótt- ust ekki vilja trúa.*) Hess var enn ekki látinn heyra svarið heldur var hann látinn halda að málið væri til vinsam- legrar athugunar. Þegar hann var aftur kominn á ról eftir meiðslin, var flogið með hann til London þar sem hann átti viðræður við Beaverbroolc lá- varð, Alfred Duff-Cooper, sem þá var upplýsingaráðherra og aðra stjórnarleiðtoga. En Churchill neitaði að tala við hann, þrátt fyrir að Hess ósk- aði oft eftir viðræðufundi. Eftir dúk og disk — nei. Þá fyrst þegar Hess hafði tal- að alveg út og gat ekki gefið Bretum neinar verðmætar upp- lýsingar lengur, var liann látinn vita að tillögum hans hefði ver- ið hafnað og að Bretland væri nú þegar bandamaður Rússa. Hann fekk einnig að vita að hrezka leyniþjónustan hafði komizt í bréfaviðskipti’ lians við meðlimi ensk-þýzka félags- ins, og að hvorki Hamilton né nokkur annar af meðlimum þess vissi um komu Hess, fyrr en allt England vissi. Af öllu þessu féklc hann minni háttar taugaáfall, og um tíma leit út fyrir að saga nasista um að hann væri brjálaður, rættist. Þegar hann heyrði að „Bis- marck“ hefði verið sökkt grét hann lieilan dag. Krafðist frelsis. Hess krafðist þess að liann yrði sendur aftur til Þýzkalands, vegna þess að hann liefði kom- ið sem fulltrúi, hefði liann á- skilið sér rétt til frjálsrar heim- ferðar. Brezka stjórnin neitaði þessu með þeim forsendum að liann hefði átt i samningum við einkamenn en ekki snúið sér beint til stjórnarinnar. Hann væri þess vegna sérstakur stríðs- fangi. Hann dvelur nú á stóru ensku Iandsetri, og nýtur tölu- verðs frelsis um nágrennið, en lians er vandlega gætt. Hann eyðir tíma sínum mest í lestur. Eftir striðið, þegar hægt verður að segja allan sannleik- ann, mun sagan um Rudolf Hess verða talin til mestu af- reksverka brezku leyniþjónust- unnar. *) Hess lenti í Skotlandi 10. mai. Þýzka innrásin í Rússland liófst 22. júní. 2 djnpir itólar og Ottoman til sölu. Uppl. eftir ld. 5. Samtúni 30, uppi. Sundsýning K.R.-inga í Hveragerði. Um síðustu helgi fór flokkur sundmanna úr K.R. undir stjórn sundkennara félagsins, Jóns Inga Guðmundssonar, austur í Hveragerði og hélt þar sýningu. Sýndi flokkurinn ýmsar sund- aðferðir, er tókust yfirleitt með ágætum, og m. a. vakti sund- sýning drengja á aldrinum 11 —10 ára mikla athygli. Með i förinni voru einnig met- ijafarmi’, þeir Sigurður Jónsson bringusundsmaður og Rafn Sig- urvinsson skriðsundsmaður. — Syntu þeir 50 metrana, eða laug- ina endilanga með meiri hraða, en nokkur sundmaður hefir áð- ur gert í þeirri laug. Sigurður synti bringusund og var 36.1 sek. á leiðinni, en Rafn skrið- sund og synti vegalengdina á 28.8 sek. Sýningu K.R.-inganna lauk með sundknattleik. Aðalfundur Fél. ísl, loftskeytamanna. Félag íslenzkra loftskeyta- manna liélt aðalfund sinn í gær. Formaður félagsins, Friðrik Halldórsson, minntist 20 ára starfsemi þess, en félagið átti 20 ára afmæli 9. júlí s.I. Skýrði liann frá helztu framkvæmdum félagsins á þessu tímabili, en það hefir á mörgum sviðum staðið framarlega i menningar- og öryggismálum íslenzkra sjó- mnna. Má til dæmis nefna, að F. í. L. átti frumkvæðið að því, að sjómenn bundust samtökum um sjómannadaginn. Barátta félagsins fyrir ör- yggismálum sjómanna hefir á mörgum sviðum borið góðan árangur. Skömmu eftir stofnun þess lagði það þá kvöð á félags- menn sína, að þeir skiptust á um að lialda næturvörð á skipunum, tveir til þrír á hverri nóttu, frá októbei-býrjun til maíloka. Hef- ir þessi þegnskapai’vinna vei’ið slysavörnunum við strendur landsins ómetanlegur stuðning- ur. Á árunum 1934—1936 bai-ðist ' félagið fyrir því, að lögskipuð | yrðu loftskeytatæki í öll íslenzk i skip, sem sigldu milli landa. Reglugerð um þetta var sett 1. april 1937. Stjórn félagsins skipa: Geir Ólafsson, Halldór Jónsson, Giss- ur Erlingsson, Heni'y Hálfdáns- son og Valdemar Einarsson. — Fi’iðrik Halldórsson, fi’áfarandi formaður félagsins baðst undan endui-kosningu. Hefir hann átt sæti í stjói’n félagsins síðastliðin 10 ái’. Grænir tómatar kr. 2,70 pr. kg. Sultuglös 1/2 kg. 1,45 Sultuglös 1/1 kg. kr. 1,65. Niðursuðuglös: 1/8 gall kr. 1,80 1/4 gall. kr. 2,40 1/2 gall. kr. 2,90 Flöskulakh og vax Betamon Vínsýra Sultusykur Ávaxtalitur Cellophanpappír Smjörpappír Korktappar, margar stærðir. Bensósúrt natrón. RABARBARI. Fólks- bifreið nodel 1940, til sölu. Uppl. i sima 1793, eftir kl. 7. nL mcrCS33H33 rTTr.i^ i.-r^ „Svemr“ til Tálknafjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar og Súg- andafjarðar fyrrihluta næstu viku. Vörumóttaka fram til há- degis á morgun. »Þóru Vörumóttaka til Vest- mannaeyja á þriðjudag, 3. ágúst. 5 manaa Bíll Stúdebaker 1929, til sýnis á Njálsgötu 80, 6. — Sími 1396. sölu og eftir kl. gg ÞAÐ BORGAR SIG gg, 88 AÐ AUGLtSA 88 88 1 VISI! 88^ Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móðui’, tengdamóður og ömmu okkai’, Ingveldar Jónsdóttur frá Setbergi. Aðstandendur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.