Vísir - 06.09.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar I >
Blaðamenn Slml:
Augfýsingar 1 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, mánudaginn 6. september 1943.
202. tbl.
Bandaríkjámenn liafa fyrir skemmstu breytt um merki á
flugvéíum sínum, vegna þess að það var hægt að villast á því
og krossi Þjóðverja eða sólinni, sem er merki Japana, þegar
því brá skyndilega fyrir. Nýja merki'ð er þannig, að ferhyrningi
liefir verið bætt báðum megin við það og rauður borði utan
;um það allt.
N,-Guinea:
Ný landganga
milli Lae og
Salamaua.
Menn MacArthurs hafa geng-
ið á land á enn einum stað á
Nýjn-Guineu.
í herstjórnartilkynningu það-
an í morgun, er skýrt frá þvi,
að mikijl her hafi gengið á land
fyrir austan Lae og sé búið að
slíta öllum samgöngum milli
þeirrar bækistöðvar og annara
fyrir austan liana, en mest
skipin komust til hafnar.
MacArthur hafði sjálfur
stjórnina á hendi, þegar Ástra-
limenn gengu á land undir
vernd stórskotahríðar amer-
ískra herskipa. Landgangan
kom Japönum á óvart og varð
lítið um varnir fvrst í stað.
Asía:
Loftsókn í Kína.
3200 km. árás frá
Indlandi.
Amerísku flugsVeitirnar í
Kína halda uppi mikilli loftsókn
á hendur Japönum.
Nú um lielgina voru gerðar
árásir á marga staði, m. a. oliu-
geyma og vöruskemmur í Hong
Kong. Auk þess var tveim, olíu-
flutningaskipum sökkt á Jangt-
se-fljóti, skammt frá Ichang og
árás gerð á borg eina allmiklu
neðar við fljótið, skammt frá
Hankow.
Ameriskar flugvélar frá Ind-
landi fóru á laugardag i lengsta
leiðangur, sem farinn liefir ver-
ið frá indverskri bækistöð. Var
ráðizt á Nicobar-eyjarnar, sem
eru norður af Sumatra i Ind-
landshafi. Er flugleiðin frá Ind-
landi um 3200 km.
Þýzka útvarpið lofar
íslenskar stúlkur.
Þýzka útvarpið birti í gær
ávarp til íslenzkra stúlkna, þar
sem farið er lofsorði um þær
fyrir það, hvað þær hafi lítið
samneyti við herinn.
Utvarpið birtir hluta úr grein,
sem á að hafa birzt í amerisku
blaði eftir amerískan hermann,
sem kvartar undan því, að liann
hafi ekki verið búinn að taka
i liöndina á íslenzkri tsúlku,
þegar hann var búinn að vera
nér i fimmtán mánuði. Þó segist
hermaðurinn iiafa notið sæmi-
lcgrar kvenhylli í heimalandi
sínu og mátt teljast meðal
kvennagulla.
Rússar leggja
enn meira kapp
á sóknina.
Rússar sækja nú á af miklu
kappi, til þess að hafa náð sem
mestu landi, áður en haust-
rigningar byrja eftir tæpan
mánuð.
' Þeir voru í gær rúma 25 km.
frá Stalino, en liöfðu auk þess
lekið borg sem, er beint þar
fyrir norðan þá borg í um 40
ltm. fjaiiægð. Virðast jreir því
1 ætla að fara á snið við Stalino.
Tóku þeir þarna 120 bæi og
þorp i gær.
Á Konotov-vígstöðvunum
j tóku Rússar í gær 100 bæi og
eru aðeins um 15 km. frá ánni
Desna, scm rennur í Dnjepr.
Þeir eiga um 30 km. ófarna til
Konotov fyrir austan og norð-
austan borgina.
Göring er sagður kominn til
aðalbækistöðva flughersins á
austurvígstöðvunum,
Tveggja stunda við-
ureign á Ermarsundi
í gærmorgun fór fram tveggja
stunda viðureign milli léttra
herskipa Breta og Þjóðverja á
Ermarsundi.
Brezku herskipin lögðu til at-
lögu við vopnaða tundurdufla-
slæða, sem voru að verki und-
an ströndinni, en þeim barst
liðsauki eftir nokkra stund.
Bretar gerðu samt aðra árás og
tókst að koma tundurskeyti á
eftirlitsskip, en tvö önnur skip
Þjóðverja löskuðust. Nokkrii'
menn særðust af Bretum, en öll
skipin komust ti lliafnar.
Strandhögg skammt
írá Brest.
Þjóðverjar sögðu í gær, að
Bretar hefði gert strandhögg á
eyjunni Ouessant (Ushant),
sem er skammt frá Brest.
Var sagl, að Bretar befði
komið á nokkrum skipum, en
aðeins eitt þeirra hefði getað
sett lið sitt á land. Hélt ]iað á
brott án þess að liafa unnið
nokkurt tjón að sögn Þjóðverja.
Bretar liafa ekkert látið upp-
skátt um þetta.
Knattspyrnumótin.
2. flokks mótið heldur áfram'í
kvöld kl. 7,30 á íþróttavellinum.
Fram og Valur keppa. — í 4. fl.
keppa sömu félög kl.7.30 á 4. fl.
vellinum.
Möndulherinn veitir nær
enga mótstöðu á Kalabríu
Varnarvirki, isem hafa mánaðarbirgðir
nanðsynja, gefast upp bardagalanst.
Italir ogÞjóðverjar börðust í Reggio
4 dögum fyrir innrásina.
Ennþá hefir 8. lierinn ekki mætt neinni verulegri
mótspyrnu og er ekki búizt við því, að hann
lendi í hörðum bardögum fyrr en hann hefir
rutt sér braut norður eftir öllum Kalabríuskaganum
til Policastro-flóa. Þar búast bandamenn við því að að-
alher Þ jóðverja og Itala hafi komið sér upp varnastöðv-
um og að erfiðleikarnir byrji fyrst, er þangað kemur.
Ef möndulherinn liefði komið sér upp öflugri varnalínu þvert
yfir Kalabriu einhversstaðar, þá hefði alltaf sú liætta vofað yfir,
að bandamenn settu lið á land að haki honum og gæti króað
hann inni, vegna þess livað skaginn er mjór, og illfær nema rétt
með ströndum fram.
Þó er það augljóst, að her-
stjórn möndulsins hefir ^kipað
hersveitum þeim, sem voru
látnar liafast við á skaganum,
að verjast meðan þess væri
nokkur kostur, því að mörg af
smávirkjum, þeim, sem Bretar
eða Kanadamenn hafa tekið, án
þess að liafa hleypt af einu ein-
asta skoti, voru full af mat-
vælum og skotfærum, sem hefði
átt að nægja 1 heilan mánuð.
ítalir eru alltaf reiðubúnir lil
að gefast upp, ef þeir sjá sér
færi og þeir draga upp hvita
fána yfir skotgrpfum sínum
löngu áður en hermenn úr 8.
hernum koma á vettvang' til að
taka þá til fanga.
65 km. strandlengja.
Á miðnætti á laugardag var
8. lierinn búinn að ná fimm
borgum, á sitt vald og réði yfir
samtals 65 km. langri strand-
lengju. Borgirnar eru, auk
Beggio og San Giovanni, Bagn-
ara, um 15 km. norðaustur af
San Giovanni, Sila, og Melito,
um 25 km. suðaustur af Reggio.
Þessar borgir eru nú allar
notáðar lil að setja á land her-
menn og birgðir, en auk þess er
eftir sem áður skij>að upp beint
úr bátum á fjörurnar.
Reggio tekin
bardagalaust.
Blaðamenn fóru yfir til Italíu
skömmu eftir að fyrstu her-
sveitirnar gengu á land þar. Þær
sveitir, sem áttu að taka Reggio,
bjuggust við mjög hörðum bar-
dögum um borgina, en þegar
þær ruddust inn í hana í myrkri
var þar alll liljótt og ekki einn
einasti ítalskur eða þýzkur lier-
maður var þar sjáanlegur. Mikl-
ar skemmdir voru á Iiorginni,
en simakerfi liennar var í góðu
lagi og var það til mikils hag-
ræðis.
ítalir og Þjcð-
verjar berjast.
Þegar dagur rann og bardaga-
gnýrinn heyrðist aðeins i
fjarska, fóru borgarbúar að
koina upp úr fýlgsnum þeim,
sem þeir höfðú leitað í á liverri
nóttu undanfarnar vikiir. Italsk-
ir lögregluþjónar komu einnig
i Ijós og voru sumir þelrra særð-
ir. Skýrðu þeir svo frá, að slegið
liefði í bardaga milli Þjóðverja
og Itala fjórum dögum áður,
þegar Þjóðverjar höfðu á brott
með sér öll matvæli, sem þeir
gátu komizt með.
Hanneken hótar
Dönum hörðu.
Hanneken hefir látið danska
útvarpið birta nýjar leiðbein.
ingar til almennings í landinu.
Hver sá, sem veit um einhvern
| skemmdarverkamann og skýt-
| ur skjólshúsi yfir hann í stað
þess að tilkynna lögreglunni um
hann, skal líflátinn. Sömu örlög
á sá að hljóta, sem hjálpar
i mönnum, er vinna á einhvern
. hátt gegn Þjóðverjum.
' Þeir verða lika líflátnir, sem
tilkynna ekki, ef þeir verða var-
ir við spellvirki gegn Þjóðverj-
11111.
Foringjafundur í
fjöllum Grikklands.
i •
' I Kairo hefir verið tilkynnt, að
haldinn hafi verið fundur með
foringjum skæruflokkanna í
Grikklandi.
Brezkir og grískir foringjar
úr foringjaráðinu i löndunum
við Miðjarðarbafsbotn fóru til
Grikklands og hittu þar foringja
skæruflokkanna, sem hafast við
! í fjöllmn landsins. Að fundinum
lóknum siiéíu foringjárnir aftur
til Kairo eftir leynilegri leið.
! Jugoslavneskir skæruflokkar
liafa tekið borg eina við landa-
mæri Ítalíu.
§íðn§tu fréttír
Óstaðfestar fregnir herma, að
bandamenn hafi sett lið á land
á Kalabríuskag'a hjá borginni
Palmi, sem er alllangt fyrir
norðan Messiná-sund.
Hinsvegar er það opinberlega
tilkvnnt, að 8. herinn hafi tek-
ið smáborgina San Stefani, en
hún er um 15 km. inni í landi
frá Reggio og streymir lið og
hergögn nú eftir veginum milli
þessara borga.
Flugmenn hafa orðið varir
við allmikið skriðdrekalið
möndulhersins á leið suður eft-
ir Iialabriu-skaga. Er búizt við
harðri skriðdrekaorustu innan
skamms.
Málverkasýningin.
í gærkveldi höfðu fimm af mynd-
um Gunnlaugs selzt, en þrjár af
myndum Þorvalds.
Stúlkan sem sést þarna á
myndinni heitir Nancy Oakes
de Marigny og er greifynja.
Greifinn, maður hennar, Jiefir
verið. ákærður fyrir að hafa
myrt föður hennar, Sir Harrv
Oakes, sem er búsettur á Ba-
hamaeyjum. Greifynjan er að
fara um borð i flugvél til að
fljúga til Baliama, þegar mynd-
in er tekin.
Loftsókn Bréta:
Ráðizt á 2
borgir í nótt.
Bandaríkjamenn fóru í morg-
nn tll S.-Þýzkalands.
Bretar gerðu í nótt loftárásir
á Ludwigshaven og Mannheim
í Þýzkalandi.
Ái-ásirnar voru mjög liarðar
og varnir Þjóðverja öflugar,
enda voru 34 af brezku flug-
vélunum skotnar niður.
Þjóðverjar tilkynntu snemina
í morgun, að amerískai' flugvél-
ar væri á leið lil Suður-I>ýzka-
lands og stæði yfir harðir loft-
Iiardagar. Nánari fregnir voru
ókomnar, er blaðið fór í press-
una.
W alter skeppnin;
KJR.—Víkingur 3:0
Á laugardaginn var kepptu
Víkingar og K. R. fyrsta leikinn
í Walterskeppninni.
Fóru leikar þann veg að K.R.
vann með 3 mörkmn gegn
engu. Var léikur þessi frékar
daufur og leiðinlegur.
Er þetta fvrsti leikur Víking-
anna í meistaraflokki, eftir að
E]ndnrrciiSKi
8kálholtskirk|i!i.
Biskupinn, lierra Sigurgeir
Sigurðsson, hefir skrifað kirkju-
málaráðuneytinu bréf, þar sem
hann fer fram á:
1) að nú þegar verði hafnar
framkvæmdir um að • endur-
reisa í Skálholti liiná fornu
dómkirkju i sama stíl óg kirkj-
an var i á dögum Brynjólfs
hiskups,
2) að hiskupi og kirkjuráði
verði fenginn umráðaréttur yfir
Skálholti, svo að engar bygging-
ar, sem kunni að óprýða stað-
inn, verði reistar þar, en þessir
aðilar vinni að þvi að prýða
staðinn og efla,
3) að unnið væri að því að
reist verði myndarlegt prest-
setur bæði í Skálholti og að
Hólum og að atliugað sé, hvort
ekki sé rétt að vígslubiskupar
sitji á þessum frægu stöðum.
I samhandi við þessar tillögur
bendir herra biskupinn á þá
smán, að Skállioltsstaður skuli
vera í niðurniðsíu og kirkjan
svo léleg, að tæplega sé hægt að
messa í lienni að sumri til, hvað
þá að vetrinum.
Kvöldskóli
K.F.U.M.
tekur til starfa 1. okt. n. k. og
hefst þá 22. starfsár hans. Eiga
nemendur skólans að konia til
skólasetningar i hús K. F. U. M.
við Amtmánnsstíg kl. 8.30 að
kvöldi þann dag (1. okt.).
Skölinn verður næsta vetur
i starfræktur þannig: Tvær síð-
degisdeildir fyrir byrjendur
(stúlkúr og pilta). Ein kvöld-
deild fyrir byrjendur (pilta).
Lolcs verður ein framhaldsdeild
fyrir stúlkur og pilta (kvöíd-
deild). I byrjunardeildum eru
þessar námsgreinar: Islenzka,
danska,' enska, kristin fræði,
reikningur og bókfærsla, og
bandavinna (fyrir námsmeyj-
ar). I framhaldsdeild bætist
þýzka við námsgi'einarnar. Ekki
er krafizt inntökuprófs, en
fullnaðarprófi barnafræðslunn-
ar verða alir nemendur að liafa
lokið.
Aldrei hefir aðsóknin að skól-
anum verið' meiri en nú. Er
hann þegar að verða fullskipað-
ur að þessu sinni. Sýnir það
bezt vinsældir þær og viður-
kenningu, sem þessi vandaði
ungmennaskóli hefir áunnið
sér á liðnum árum.
íkviknun.
í morgtm var slökkviliðið kvatt
út, vegna þess að kviknað hafði
í tjöru inn við mulningsgerð. Tókst
skjótlega að slökkva eldinn og urðu
skemmdir engar.
refsidómurinn var úttekinn þ.
1. sept. s. 1.