Vísir - 01.10.1943, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
33. ár.
Reykjavík, fösíudaginn 1. október 1943.
Ritstjórar
Blaðamenn Simt;
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsta
* ■ '*MT
223. tbl.
Það eru skip af þessari gerð, vasa-flugstöðvarskip, seni eiga
einna mestan þátt i þvi, hvað barátta bandamanna gegn kafbát-
unum liefir gengið vel undanfarið. Þetta skip er í þjónustu
Breta og ber um 20 flugvélar.
Hitler fyrirskipar vörn við
Dnjepr.
Sænskt blad segii* frá bersböfdingja-
fundi á austup-vígstöðvunum.
Sænska blaðið Nya Dagligt Allehanda birtir þá fregn í morg-
un, að Hitlér hafi nýlega verið á ferðalagi um suðurhluta víg-
stöðvanna í Rússlandi til þess að stappa stálinu í hershöfðinja
sína. '
kappi og áður vestur til Vitebsk
Hann hélt nieðal annars ráð-
stefnu með öllum æðstu mönn-
um þessa hluta vígstöðvanna, en
þar er Mannstein hershöfðingi
jfirmaður. Segir sænska blaðið,
að Hitlpr hafi sagt, að
þýzki herinn sé nú kominn
til þeirra vígstöðva, sem hann
verði að verjast á í vetur —r
Dnjepr-fljótið. „Hér er eg og
liéðan fer eg ekki,“ sagði Iiitler
að lokum.
Sókninni heldur úfram.
Rússar halda áfram af sama
Flýgur upp á 50 m. braut.
Bretar hafa nú leyft að segja
frá einni af flugvélategundum
sínum, sem mikil leynd hefir
verið um, þótt hún hafi verið
notuð um heim allan frá stríðs-
byrjun.
Flugvél þessi er mjög lítil og
kemst mest 190 km. á klukku-
stund. Hún er notuð til njósna
af öllum deildum hersins, því að
það er hægt að nota bana svo
að segja bvar sem er. Til dæmis
getur hún flogið upp af 50 m.
lang'ri braut og hún flýgur næst-
um „beinl“ upp, hækkar flugið
um 1000 fet á minútu.
Hún er hvorki vopnuð né
brynvarin og vörn hennar gegn
öðrum flugvélum er fólgin i því,
að hún getur flogið í mjög
þrönga hringi, en það gerir hana
erfitt sk'otmark.
Bretar telja, að þessi flugvél
eigi einna mestan þátt í því, að
þeim tókst að hrekja Þjóðverja
af Longstop-hæð í Tunis forð-
um, en sú hæð var eitt sterkasta
virki þeirra. Njósnaflugvélarn-
ar voru sífellt yfir liæðinni og
þegar Þjóðverjar skutu á þær,
komust Bretar að því, hvar fall-
byssum þeirra var fyrir komið,
en þær voru þeim • mestur
þrándur í götu.
Það er til marks um það, hvað
flugvélin er litil, að hreyfill
hennar er aðeins 100 hestafla.
og Mogilev. En vörn Þjóðverja
fer harðnandi, eins og þeir sé
komnir að þeim stöðvum, sem
þeir liafa valið sér til varnar.
Hjá Kiev hafa aðstæður batn-
að mjög fyrir Rússa, því að þeir
eru húnir að kjomast yfir á
Iiólmá, sem er í fljótinu þar og
er ekki ósennilegt, að þeir kom-
ist alla leið .yfir á vestri bakkann
innan skamms, úr því að þeir
háfa komizt svo langt.
Hljótt um Krím.
/ Það liefir verið einkennilega
hljótt um hardaga norður af
Ivrim-skaganum. Fyrir fáeinum
dögum brunuðu Rússar óstöðv-
andi vestur með strönd Azovs-
liafs og rufu járnbráútarsam-
hand við skagann. Þjóðverjar
liöfðu þó enn undanhaldsleið,bíl-
vegi yfir Perekopeiðið og síðan
vestur, þótt liún væri ekki góð,
en þegar örstuttur spölur er eftir
af honum, virðist sókn Rússa
allt í einu fjara út, án þess að
getið sé um það, að til nokkurra
átaka hafi komið.
Jugoslavia:
Birgðir fluttar
skæruflokkunum
Bandamenn eru byrjaðir að
senda skip til stranda Jugo-
slavíu með birgðir handa skæru-
flokkunum þar.
Blaðamenn síma frá Miðjarð-
arhafslöndunum, að sá lang-
þráði dagur iskæruflokkanna
hafi runnið upp fyrir skemmstm
þegar skip frá bandamönnum
sigldu í fyrsta slcipti að landi í
Júgóslaviu, síðan ítalir fóru i
stríðið.
Herstjórn Jugoslava tilkynnti
í gær, að hersveitir hennar gerðu
árásir á Þjóðverja víðsvegar um
landið, en þó væri bardagar
eínna harðastir i Gorizia og
Ljubjana-héraði.
Strætisvagnarnir
fára hér eftir frá kl. i e. h. til
r2 á miÖnætti á io mínútna fresti
á Njálsgötu-Gnnnarsbraut og Sól-
velli.
Skriðdrekar bandamanna
/ •
S*jóðverja streym-
ir uorðnr á bðg’Inn.
8. herinn tekur Maniredonia.
Seint í gær bárnst fregnir um það frá blaðamönn-
uin, sem voru með 5. hernum, að skriðdrek-
arnir, sem færi í fylkingarbrjósti norður eftir
Neapel-sléttunni, hefði byrjað að aka inn í úthverfi
borgarinnar síðara hluta dagsins. Veittu Þjóðverjar
ekki mikla mótspyrnu og streymir her þeirra norður
frá borginni.
Þjóðverjar tilkyuntu í gær, að hersveitir jieirra væri farnar
frá borginni, og hefði liún verið yfirgefin samkvæmt áætlun,
þegar búið var að eyðileggja allt hernaðarverðmæti í henni. Er
þessi tilkynning, sem talsmaður herstjórnarinnar las fyrir er-
ienda blaðamenn, alveg i sania dúr og tilkynningarnar um und-
anhaldið i Rússlandi.
Vegamerki og aukið
öryggi.
| Green ofursti, yfirmaður lög-
reglusveita Bandaríkjahersins
hér, upplýsti það á blaðamanna-
fundi í gær, að í ágústmánuði
hefði orðið 49 bifreiðaslys, sem
ökutæki hersins hefði lent í, á-
j samt íslenzkum farartækjum
og vegfarendum og að af þessu
hefði 8 meiðsli hlotizt.
Sökin var ýmist íslenzkra
horgara eða hermanna, og slysa-
talan er í sjálfu sér ekki há, mið-
að við stór-aukna umferð. En i
öllum tilfellum hefði verið liægt
að forðast slys, ef allrar varúðar
hefði verið gætt.
Slys er ekki tilviljun, hélt
Green ofursti áfram. Það er af-
leiðing skiljanlegra og sjálf-
ráðra orsaka. Sé fyllsta öryggis
gætt, verður ekki slys. Því full-
komnari merki, sem sett eru á
vegina og því skiljanlegri merki,
sem vegfarendur gefa um, fyrir-
ætlanir sínar, því færri slys
verða.
Verkfræðideild hersins hefir
ákveðið að setja upp glögg vega-
merld á alla aðalþjóðvegi og hef-
ir um það samvinnu við vega-
málastjóra. Merki þessi eru al-
þjóða vegamerki með islenzk-
um texta (rauoum) og enskum
(svörtum). Einnig verður mál-
uð gul lina á miðjar akbrautir
í nágrenni Reykjavíkur, til þess
að ökumenn geti haldið sig á
réttum vegarhelmingi.
Innanbæjar verða sett merki
á hættuleg' liorn, við skóla og
spitala. Verða íslenzkir og amer-
i ískir lögregluþjónar látnir gæta
| þess fyrst í stað, að ökumenn
virði merkin.
Borgarstjóri og lögreglustjóri
voru viðstaddir blaðamanna-
fundinn og skýrðu frá því, að
bezla samvinna rikti milli ís-
lenzkra emhættismanna og am-
erískra um þessi öryggis og vel-
ferðarmál, en blaðamenn hétu
því af sinni hálfu, að styðja af
alefli að aukinni umferðamenn-
ingu.
Badoglio myndar
nýja stjórn.
Ný ítölsk stjórn hefir verið
i mynduð af stuðningsmönnum
Viktors Emanuels konungs og
með samþykki bandamanna.
Badoglio er forsætisráðherra
nýju stjórnarinnar,en Ambrosio
hershöfðingi verður hermála-
ráðherra. Rata hershöfðingi
verður formaður herforingja-
i ráðsins, en Sandali verður flug-
i málar&ðlierra.
Markmið þessarar stjórnar
verður að veita bandamönnum
allan þann stuðning, sem liægt
j verður. Badoglio og Eisenhower
ræddu það mál í gær um borð
■ i herskipinu Nelsou í höfninni í
! Malta.
i
Flugvélar bandamaiina liafa
tekið mikinn *þátt í orustunni
um Neapel, einkum orustuvélar
og hraðfleygar tvihreýfla-
sprengj uvélar, sem hafa haldið
uppi lágflugsárásum á stöðvar
Þjóðv. myrkranna á milli, en að
næturlagi fara hinar hægfleygu
Wellington-vélar í árásir. Sí-
felldar árásir eru gerðar á Þjóð-
verja á undanlialdinu og liefir
verið unnið gríðarlegt tjón á
Jiílalestum þeirra, sem streyma
endalausar norður á bóginn.
Skammt fyrir. norðvestan
Neapel rennur Voltui-no-fljótið
og er talið líklegt, að Þjóðverj-
ar taki sér næst varnarstöð þar.
Hún yrði þó aðeins til bráða-
birgða, því að aðalvarnir þeirra
eru taldar fyrir norðan Róm og
fyrirætlanir þeirra i því fólgn-
ar að tefja bandainenn sem
mest áður en þangað kemur.
Orustuskip
hjálpuðu til.
Brezki flotinn lét orustuskip
sin veita hernum aðstoð í fyrra-
kveld, eins og við Salerno fyrir
skeimnstu. Skutu þau á fall-
hyssustæði Þjóðverja í hlíðum
, Vesuviusar, því að þau voru
j einna versti þröskuldurinn, sem
j þurfti að ryðja úr vegi, áður
en liægt væri að fara inn í
I Neapel.
Borgarar Neapel tóku einnig
þátt í hardögunum við Þjóð-
verja, því að þeir gerðu að sögn
árásir á þá innan um rústirnar.
Aginn bilaði.
Herstjórn bandamanna segir,
að aginn hafi bilað lijá Þjóð-
verjum skömmu áður en þeir
fóru frá Foggia, alveg eins og
síðustu dagana í Neapel. Þeir
! fóru ránshendi um borgina og
hermennirnir höfðu á brott með
sér alla þá muni, seni þeir gátu.
I Foggia var þó engan veginn eins
illa leikin og Neapel, því að sú
borg stendur nú að sögn í björtu
báli.
40 km. norður af Foggia.
1 (S. herinn hefjr sótt hratt fram
undanfarna daga, en Þjóðverj-.
I ár hafa ekki veiti verulega niót-
spyrnu. Ilefir aldrei koniið tiI
mikilía átaka, en bláðame.in
segja, að Þjóðverjer revni að
hagnýta sér hverjá bugðu á veg-
ununi eða miðhæð á landi lil
þess að tefja framsóknina. Biða
þeir þar með léttar fallhyssur,
en þegar Bretar koma með
sprengjuvörpur sinar og byrja
að skjóta á þá, láta þeir jafn-
skjótt undan siga.
í fyrradag tók 8. herinn
hafnarborgina Manfredonia,
sem er við samnefndan flóa um
40 km. norðaustur af Foggia.
Korsika.
Flugher Frakka er farinn að
taka þátt í bardögum á Korsilcu
og héfir m,eðal annars gert á-
rásir á stöðvar Þjóðverja við
Bastia. Þær hafa líka ráðizt á
flugvélar Þjóðverja og skotið
niður 6, þar af 4, sem voru að
flytja þýzkt lið á brott.
17000 hafnasrverka-
menn gera verkfall
Sjö þúsund hafnarverkamenn
gerðu í fyrradag verkfall í La
Valetta á Malta.
Þeir liöfðu áður gert verkfall
en hætt því aftur, og þetta nýja
verkfall stóð aðeins einn dag,
því að Gort landstjóri skarst í
leikinn og lofaði aðleysa vanda-
mál þeirra. Hann hefir lofað
þeim auknum uppbótum til
kaupa á skömmtunarvörum og
gagngerðum ráðstöfunum, til
að draga úr verðbólgunni á
eynni, þvi að dýrtíð hefir vaxið
hröðum skrefum upp á síðkast-
ið.
Fjórar kirkju-
byggingar,
Fjórar kirkjur eru nú í smíð-
um úti á landi. Munu þær allar
vera kornnar undir þak og
væntanlega tilbúnar til vígslu
að vori.
Þessar kirkjur eru: Melstað-
arkirkja í Miðfirði, Hellnakirkja
og Staðastaðarkirkja, báðar i
Snæfellsness prófastsdæmi og
loks Reyniskirkja í Vestur-
Skaptafellsprófastsdæmi.
Sérstakur áliugi liefir verið
sýndur og fórnfýsi af liálfu
sóknarbarna við byggingu allra
þessára kirkna.
Sveinafélag múrara
, hefir samþykkt að hefja verkfall
hjá öllum þeim atvinnurekendum,
er ekki hafa gert samninga við fé-
lagið um kaup og kjör múrara, a‘Ö
morgni þess 8. þ. m.
1 Þessi ungi maður á myndinni er
sonur Chiang Kai-sheks. Hann
lieitir Cliiang Wei-kuo (Kinverj-
ar liafa ættarnafnið ætíð fyrst)
og er foringi í stórskotaliði Kin-
verja. Hann er af fyrra hjóna-
bandi Chiangs.
Frá aðalfundi Glímu-
*r
fél. Aimann.
Aðalfundur Glímufélagsins
Ármanns var haldin í gærkveldi.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en hana skipa Jens Guð-
björnsson formaður, og með-
stjómendur: Sigríður Arnlaugs-
dóttir, Loftur Helgason, Árni
Kjartansson, Baldur Möller,
Margrét Ölafsdóttir og Sigurð-
ur Nordahl. Emifremur eiga
sæti í stjórninni form. Skíða-
deildar, Ólafur Þorsteinsson, og
formaður Róðrardeildar, Skarp-
héðinn Jóhannsson. Voru þeir
báðir endurkosnir.
Ársskýrsla stjórnarinnar sýndi
mjög athafnamikið starf sl. ár.
Hefir Ármann tekið þátt í flest-
um íþróttamótum, sem haldin
liafa verið í bænum s.l. ár, unn-
ið margh sigra og yfirleitt er ár-
angurinn liinn ákjósanlegasti.
Þá hefir félagið sent íþrótta-
flokka víðsvegar um land, við
hinn ágætasta orðstír.
í kvöld liefst vetrarstarfsemi
félagsins og mun æfingatafla
þess birtast hér í blaðinu á næst-
unni.
Miklar fatnaðargjaflr
til Noregssöfimnar-
innar.
Noregssöfnuiiinni er senn
lokið. ÍÞó hefir ekki komið skila-
grein allsstaðar frá, en til þessa
hafa komið inn um 800 þús. kr.
í peningum, og auk þess állmik-
ið af fatnaði.
Er von á meiri fatnaði viðs-
vegar að, einkum utan af landi,
og er engin leið að segja um það
að svo stöddu, hve mikið hefir
safnazt af fatnaði. Er það bæði
nýr og notaður fatnaður, og
verður hann aðgreindur í haust
og látinn í kassa svo að unnt
verði að senda hann jafn skjótt
og tök eru á.
Hinu sama gegnir um pening-
ana. Þeir verða geymdir hér þar
lil að stríðinu loknu, er mögu-
leikar opnast til að koma þeim.
Nokkru af söfmmarfénu hefir
verið komið á vöxtu, en annað
er geymt vaxtalaust.