Vísir - 18.11.1943, Blaðsíða 1
RJtstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldker)
Afgreiðsla
Slmi:
1660
5 tlnur
33. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 18. nóvember 1943.
263. tbl.
ISiiizt í v.kinS
Kafbátarnir tveir, sem sjást á myndinni liér að ofan, eru að
búa sig Undir lierför á liendur Þjóðverjum. Sá íil vinstri er að-
eins notaður í hernað með ströndum fram, en hinn til lang-
ferða, enda er mikill stærðarmunur á þeim.
Skelfíng í Búlgaríu.
Árásin á Sofia hefir vakið
skelfingu um alla Búlgaríu, seg-
* ir í tyrkneska blaðinu Vatan.
Fréttaritari blaðsins í Sofia
segir, að það hafi kömið i Ijós
í árásinni, að loftvarnir borgar-
innar sé mjög lélegar, en það er
vitað, að þær eru hvergi öfl-
ugri í landinu. Hafa verið farn-
ar hópgöngur í borginni og
fjölda annarra borga, þar sem
eru verksmiðjur, sem vinna
fyrir Þjóðverja, eða önnur hern-
aðarmannvirki, og kröfur gerð-
ar uin sterkari varnir eða að
samið sé við bándamenn.
»Skæruhemaöur((
í námum Breta
fordæmdur.
Foringjar námamanna í Dur-
h'am-héraði hafa sent frá sér
harðort umburðarbréf um
verkföllin, sem nú eru svo tíð
í námum Bretlands.
Þar segir, að hinn svonefndi
skæruhernaður i námunum sé
ekkert nema spellvirki við styrj-
aldarframleiðsluna og stofni
allri þjóðinni í hættu á þessum
örlagatímum. ÞaS sé hræsni hjá
mönnum að heimta aðstoð við
Rússa og hrezku piltana á Ítalíu,
en leggja síðan niður vinnu, svo
að ekki sé hægt að smíða vopn-
in, sem þeir þarfnast.
„Þeir, sem hegða sér þannig,
eru ekki vopnabræður,“ segir aS
lokum, í bréfinu, „jieir eru eins
og hermenn, sem leggja niður
vopn, þegar orustan stendur sem
hæst og hjálpa fjandmönnun-
um,“
Ítalía:
Herirnir sitja
íastir í aur
og leðju.
Ef veður batnar ekki til muna
á næstunni, munu herir beggja
aðila að líkindum sitja fastir í
aur og leðju áður en varir.
Bigning liefir verið undan-
farnar vikur, svo að ekkert lát
liefir orðið á og bafa banda-
menn orðið að grípa til þess
víða, að bera birgðir og skot-
færi á bakinu til fremstu stöðva
sinna. Skriðdrekum er óviða
liægt að koma við.
Flugvélar bandamanna réð-
,ust á tvo flugvelli á Suður-
Frakklandi í gær. Hafa Þjóð-
verjar nolað þá fyrir bækistöðv-
ar þeirra flugvéla, sem gert liafa
árásir að undanförnu á siglingar
bandamanna á Vestur-Miðjarð-
arhafi.
í gær gerðu flugvirki frá N.-
Afriku árásir á Aleusis-flugvöll-
inn lijá Aþenu, þriðja daginn i
röS. Sprengjur hæfðu fimm af
niu flugskýlum vallarins.
Myndir, sem liafa verið tekn-
ar af verksmiöjunum i Knaben
og Rjukan, sýna, að tjón hefir
orðið mikið á háðum stöðnm.
★ i
Brezki kafbáturinn Userper
er talinn af. Hann var á Miðjarð-
arhafi.
nEigi veldur sá,
er vararu
Brezka og ameríska útvarpið
hefir varað alla Frakka við því
að starfa í verksmiðjum, sem
lramleiða fyrir Þjóðverja.
Sagði í aðvöruninni, að banda-
mönnum væri nauðsynlegt að
eyöileggja allar verksmiðjur í
Frakklandi, sem smiða bíla,
einireiðar, flugvélar og ekki sízt
kúlulegur, því að eyðilegging
þeirra mundi stytta stríðiö til
muna. Ennfremur var sagt, að
ekki væri liægl að segja frá því,
Iivaða dag árásirnar mundu
vei-ða gerðar, en frá hinu væri
liægt að skýra á livaða borgir
þær verða gerðar: París, Lille,
Nantes, Clermont-Ferrand,
Strasbourg o. fl.
Rússar byrja ný áhlaup
inni í Dnj epr-bugðunni.
Framsveittr Rúi§a í nthverfm
Koroiten og: Reiitija.
Rússar hörfa í grennd við Zitomir.
Herstjórn Rússa tilkynnti i gærkveldi, að hersveit-
ir hennar væri byrjaðar á nýjan leik áhlaup
inni í Dnjepr-bugðunni fyrir suðvestan Dn je-
propetrovsk. Seg jast þeir hafa tekið nokkrar raiunilega
yíggirtai' stöðvar af Þ jóðverjum og meðal þeirra sé
borgin Tomakovka. Þ jóðver jar misstu 2000 menn í
bardögunufíi á þessum slóðum.
Það er ekki alveg víst, hvar borgin Tomakovka er. Borg
með sama nafni er skammt fyrir norðvestur af Nikopol — í 30
km. fjarlægð — en það er ekki tekið fram, hvort hér sé um
sörnu borg að ræða. Að minnsta kosti varð ekki séð af neinum
fyrri herstjórnartilkynningu Rússa, að þeir væri komnir svo
langt suður á hógínn frá Dnjepropetrovsk.
Undanfarna daga hafa fréttir
verið heldur af skornum
skammti úr Dnjepr-huðgunni,
að öðru leyti en því, að Þjóð-
verjar hafa skýrt frá því, að
Rússar hafi gert áhlaup fyrir
norðan Krivoi Rog, en þeir liafi
sjálfir stytt víglínu sína þarna.
Við Gomel og
Korosten.
1 morgun bárust fregnir um
það frá Moskva, að skriðdrek-
ar Rússa og smásveitir manna,
sem Jiafa Iiandvélbyssur að
vopni, hafi brotizt inn í úthverfi
Korosten og geisi þar liinir
skæðustu bardagar.
Fyrir norðan Korosten liafa
Rússaí' einnig unnið á og færzt
nær Pripet-mýrunum. Er að-
staða þýzku hersveitanna, sem
snúa balci við mýrunum, orðiri
mjög erfið og hættuleg. Víglín-
an er í stórum boga frá Koro-
sten til Resitsja og teygir sig
austur að Dnepr á nokkuru
svæði. Hafa þessar hersveitir að-
eins einn eða tvo annars flokks
vegi til að fara eftir, ef aðstaða
þeirra vérsnar svo, að þær verða
að fara vestur yfir mýrarnar til
að lialda undan.
Rússa hafa bætt mjög að-
stöðu sína hjá Resitsja. Þar liafa
þeir komizt vestur fyrir borgina
fyrir nokkurum dögum og í gær
var tilkynnt, að barizt væri í
vesturhverfum borgarinnar.
Hjá iZilomir.
í herstjórnartilkynningu
Rússa í gær var frá þvi skýrt,
að þeir liefði orðið að láta
undan síga á vigstöðvunum í
grenrid við iZitomir. Iialda Þjóð-
verjar uppi öflugum árásum,
með mildum fjölda skriðdrpka
og fótgönguliði. Urðu Rússar
loks að hörfa, en fóru ekki langt.
Tóku Þjóðverjar jxi nokkrar
horgir og jiorp.
Kyirrð kemst á
í Libanon.
Líf borgarbúa í Beyrut er nú
óðum að færast í eðlilegt horf,
segir í fregn þaðan í morgun.
í gærkveldi tar símað, að
verkföll liéldu áfram og ólga
væri undir niðri, jiótt köma
Catroux befði haft góð áhrif, því
að liann ær vinsæll i landinu.
Simakerfi Beyrut er aft-
ur komið i lag og búðir eru
opnaðar á ný. Blöð borgarinnar
eru einnig farin að koma út.
Þjóðverjar vinna á.
Þjóðverjum verður nokkuð
ágengt í sókn þeirri, sem þeir
hafa nýskeð hafið á Dalmatíu-
ströndum.
Herstjórn Jugoslava tilkynnti
í gær, að hersveitir hennar hefði
orðið að láta undan síga af
skaga einum sunnarlega í land-
inu, suður undir landamærum
Albaníu. Höfðu Þjóðverjar of-
urefli liðs, skriðdreka marga og
fallhyssur.
Þjóðverjar hafa einnig tekið
borg eina fyrir sunnan Susak,
sem er norður undir landamær-
um Ítalíu og liafa j>eir einnig
sent lið til eyjarinnar Krk
yírek), sem, er beint suður af
Susak.
Árás á Gilbert- og
Marshall-eyjar. ‘
Flugvélar Bandaríkjamanna
frá bækistöðum á Mið-Kyrra-
hafi hafa gert árásir á stöðvar
Japana á Gilbert- og Marshall-
eyjum.
Þessar árásir fara nú að ger-
ast æ tíðari, ]>ví að |>etta er
þriðja árásin á tæpri viku, sem
gerð er á eyjarnar af flugvélum,
sem hafa hækistöðvar á landi. -
Áður var aðeins um að ræða
árásir flugvéla af skipum.
Liherator-vélarnar, seni gerðu
j>essa árás, kveiktu í einu skipi
og löskuðu j>rjú að auki.
Bntiiaii.
í gær var tekið i notkun í
ameríska flotanum nýtl flug-
stöðvarskip, sem ldotið hefir
nefnið Bataan eftir orustunni á
jieiiu skaga á Filippseyjum.
Varaforseti Filippseyja var við-
staddur athöfnina og sagði
hann, að skipið væri tákn }>ess
vilja Bándaríkjanna, að hefna
ósigursins á Baton og losa
Filippseyjar úr ánauð.
Svissneska lilaðið Basler
Nationalzeitung segir, að mikill
fjöldi skæruflokka sé um alla
Norður-ítaliu og geri jafnvel
samgöngur Þjóðverja yfir Alpa-
fjöll ótryggar. I Piedmont liefir
verið stofnaður fjallaher og
hefir liann bæði vélbyssur og
fjallafallbyssur að vopnum.
Hardnandi
loftárásir.
Moskitó-sprengjuflugvélar
voru í nótt yfir Berlin, en
sprengjuvélar af stærstu tegund
gerðu loftárás á Ludwigshaven
við Rín.
1 Ludwigshaven á I. G. Farben-
efnahringurinn miklar efna-
smiðjur.
Amerísk flugvirki réSust á
hernaðarstöðvar i Noregi i nótt.
Aðeins einnar flugvélar er
saknað úr árásum þessum.
Ríkisstjóri talar
1. desembcr.
Rikisstjórinn, Sveinn Björns-
son, talar af svölum Alþingis-
liússins 1. desember í tilefni af
25 ára afmæli sjálfstæðisins.
500 kr. seðlar
væntanlegir.
Seðlaveltan 135 millj.
Innan skamms er von á að 500
króna seðlar verði settir í um-
ferð, og er búizt við, að að því
verði mikið hagræði, sakir þess
hve allar greiðslur hafa stækk-
að undanfarið.
Seðlaveltan var 135 miUjónir
í septemberlok, ogi er það liið
liæsta, sem lmn hefir orðið. Um
miðjan nóvemher hafði veltan
aftur lækkað niður fyrir 130
milljónir. Annars fór veltan
1 jafnt vaxandi frá áramótum
j (100 millj.) og fram, i siðasta
mánuð.
Seðlaveltan er nú um, þáð hil
tíföld á við }>að, sem húji var aS
jafnaði rétt fyrir stríðið, en J>á
var lmn orðin 5—6 föld á við
það, sem verið hafði fyrir sið-
asta stríð. , ,
Fiskaflinn 350 þús,
smál.
Samkvæmt nýútkomnum
Hagtíðindum og mánaðar-
skýrslu Fiskifélags Islands, hef-
ir fiskaflinn á.öllu landinu, mið-
að við slægðan fisk með liaus,
verið alls 58311 smálestir i sept-
ember. Þar af eru 11932 smál.
ísfiskur, en 45195 smál. sild.
Níu fyrstu mánuði yfirstand-
andi árs (jan.—sep.) var lieild-
avaflinn 350366 smál., en á sama
tíma i fyrra 319244 smál.. Þar
af hefir síldaraflinn i ár verið
181 958 smál., en 145102 smál.
á sanxa tima i fyrra. Isfisksafl-
inn fyrstu mánuðina í ár nam
136 þús. smál., en 138 smált á
sama tinia i fyrra.
Sex málvexk seldust
í gær opnaði Finnur Jónsson
málverkasýningu sína í Lista-
mannaskálanum. Fjöldi manns
sótti sýninguna og sex málverk
seldust strax. Lét fólk yfirleitt
mikla hrifningu í ljós yfir sýn-
ingunni.
Frá Alþíngl
Hafnarbótasjóður 3 millj. kr.
Lög um hafnarbótasjóð voru
afgreidd í gær, en samkvæint
j>eim cr sjóðurinn stofnaður
með 3 millj. kr. og verður auk-
inn um 300 j>ús. kr. á ári síðan.
Tilgangur sjóðsins er að
stuðla að bættum hafnar- og
lendingarskilyrðum á þeim,
stöðum j>ar sem aðstaða er góð
lil sjósóknar.
Fl.menn voru Sjálfstæðis-
mennirnir Siguröur Bjarnason
og Jóhann Jósefsson.
Liberator-vélar í Kína liafa
gert árásir á Hong Kong i tvo
daga samfleytt.
★
0tbreiðslumálaráðherra Lav-
als hefir verið myrtur.
•\
Jökulhlaupið.
Súla á Skeiðarársandi hefir
farið sí-vaxandi undanfarið,
og er nú svo komið að frá Núps-
stað er að sjá eins og yfir regin-
haf, sagði Hannes á Núpsstað í
samtali við Vísi í morgun.
Vart hefir orðið við nokkurn
jakaburð, þó ekki mikinn, og í
morgun brast símasambandið
austur á við, og kvað Hanries
]>að mestu furðu, hversu sima-
staurarnir liefði staðið lengi.
En ]>að hefir nokkru valdið um,
að töluvert frost var í jörð, og
tókst flóðinu ]>vi ekki að grafa
eins fljótt undan staurunum.
I nótt hafði vatnið litið vaxið,
eftir }>ví sem Ilannes, sagði að
séð vrði.
Hitaveitugjaldið.
Á bæjarráðsfundi í gær-
morgun var rætt um gjaldskrá
hitaveitunnar og innheimtu
gjaldsins fyrir heita vatnið.
Var þar samþykkt .að niiða
verðið á heita vatnrim; yið 180
krónu verð á . kplatojininu, að
helmingur hitunarþapfay hv.ers
liúss skuli innheiintur sem fasta-
gjald samkyæmt .áaetluji hita-
veitiforstjórans ipxi hitaþörf
húsa á meðalári.
Samþykkt var, aðjiafa hcita-
vatnsgjaldið helmingi lægra á
timabilinu irá 14. xnaí til 30.
september.
Loks var forstjóra hitaveit-
unnar falið að semja frumvarp
að gjaldskrá fvrir hitayeituna,
sem hyggðist á þessum sam-
þykktum.
Samþykktir bæjarráðs niunii
koma til umræðu á bæjarstjórn-
arfundi kl. 5 í dag og verða j>ar
væntanlega teknar endanlegar
ákvarðanir um þær.
TóboksskorÉnr
í bænnm.
Nokkrar verzlanir hafa orðið
i uppiskroppa með einstakar tó-
bakstegundir, svo sem t. d.
vindlinga.
Elckert er j>ó að óttast, sagði
skrifs tofustj óri Tóbakseinkasöl-
unnar i morgun. Einkasalan á
gnægð tóbaks vestan liafs, en
staðið hefir á því, að skiprúmi
yrði úthlutáð fyrir þessa „nauð-
synjavöru“.
, Tóbak er væntanlegt með
næstu skipsferð.