Vísir - 20.01.1944, Qupperneq 1
•* V
V •
T
jpr
Rltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Simi:
1660
5 linur
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 20. janúar 1944.
16. tbl.
r-*>
3 skipum sökkt pólTeriar:Rússar
í Rabaul.
Bandamenn gerðu í gær
skæða árás á höfnina í Rabaul
og skip þar.
Þrem flutningaskipum var
.sökkt, en kveikt í tveim að auki
og loks voru þrjú löslcuð minna.
Skipin voru flest lítil, því að
Japanir hætta ekki hinum
stærri skipuin sínum til Rabaul.
Japanir sendu um 100 orustu-
flugvélar gegn sprengjuflugvél-
unum, en gátu ekki liindrað
árásina og voru margar skotn-
ar niður.
102 skotnar niður.
Japanska herstjórnin segir,
að ameriski fluglierinn liafi sent
200 flugvélar til árásar á Rabaul
á mánudaginn, en þær beðið
mikinn ósigur. Segjast Japanir
liafa skotið niður livorki meira
né minna en 102 af flugvélun-
um, en misst aðeins örfáar
sjálfir.
Churchill reynir að
leysa deiluna.
í fregnum frá London segir,
að Churchill Ieitist nú við að
leysi deilumál Pólverja og
Rússa.
. Munu símtöl og bréf liafa far-
ið milli Churchills, Roosevelts
og Stalins vegna þessara mála.
Eru menn í London vongóðir
i um að viðunandi lausn fáist, úr
því að þeir vinna allir að henni.
Vegna heimkomu Churchills
er kominn upp orðrómur um
það, að hann muni liafa i hyggju
að breyta stjórninni bráðlega
Er gert ráð fyrir þvi, að Beaver-
brook verði hermálaráðherra,
en Sir James Grigg, sem hefir
gegnt því emhætti, verði gerður
Indlandsmálaráðherra.
Útsvör á Akureyri
lækka um 10%
Fjárhagsáætlun Akureyrar-
kaupstaðar hefir verið lögð fyrir
bæjarstjórn og eru niðurstöðu-
tölur hennar, aðeins lægri í ár
en i fyrra.
tJtsvörin munu Iækka um
allt að 10% frá því í fyrra. Nú
eru þau áætluð kr. 1.732.900, en
í fyrra kr. 1.920.900.
»
Rússar sækja hratt fram á
Leningrad-vígstöðvunum.
var
Vátryggingagjöld
lækka.
Vátryggingarfélög skipa í
Bretlandi hafa tilkynnt lældcun
á iðgjöldum á ýmsum siglinga-
leiðum. Meðal annars hafa þeir
lækkað iðgjöld fyrir skip, sem
sigla til hafna við Miðjarðarhaf
og einnig fyrir skip, sem sigla
til Indlands.
Það er jafnan öruggasti mæli-
kvarðinn á gengi bandamanna
i kafbátabaráttunni, er vátrygg-
ingagjöld lækka.
Floti Kanada
43-faldaðtir.
Síðan stríðið brauzt út hafa
Kanadamenn 42-faldað mann-
fjöldann i flota sínum.
1 kanadiska flotanum er því
nú næstum jafnmikið lið og í
brezka flotanum, áður en strið-
ið brauzt út. Leggja Kanada-
menn til tvö af hverjum fimm
fylgdarskipum, sem eru með
skipalestum á Norður-Atlants-
hafi.
jaiivr
í gær var kveðinn upp dómur
í hæstarétti í málinu réttvísin
og valdstjórnin gegn Guðm.
R. Magnússyni.
! Ákærði var eilt sinn sem oft-
ar settur í varðhald í ölvunar-
, ástandi, i kjallara lögreglu-
j stöðvarinanr. Eftir að ákærði
var settur inn sofnaði hann, en
vaknaði síðan og var ákaflega
þyrstur, en valn var ekki í klef-
| anum. Lamdi liann fyrst all-
lengi í ldefadyrnar, en er eng-
inn sinnti honum braut hann
klefaþilið við dyrakarminn og
gat opnað. Er liann var kominn
út dró liann lokur frá þremur
öðrum klefum og hleypti út
þeim er þar voru inni. Fyrir ölv-
unina og fyrir að opna varð-
haldsklefana fyrir hinum föng-
unum hlaut ákærði 2 mánaða
fangelsi og auk þess var ákveð-
ið að liann skyldi að lokinni
refsingu lagður á drykkju-
manna hæli, allt að 18 mánuði
. til lækningar.
Tekjur Berklavarna-
dagsins 128 þús. kr.
Tekjur Berklavarnadagsins í
ár námu samtaís rúml. 90 þús.
kr., auk annarra gjafa og áheita,
að upphæð 38 þús. kr.
Hér í Reykjavík seldust blöð
og merki fyrir rúml. 55 þús. kr.
En miðað við fólksfjölda mun
Siglufjörður þó hafa metsölu.
Þangað voru send merki og blöð
fyrir 2550 kr., en innkomið fé
þaðan nam 5665 kr.
Þá sýndi Kvenfélag Árnes-
lirepps í Ingólfsfirði þá rausn af
sér, að senda S. I. B. S. 3180
krónu fjárliæð.
Fjársöfnuii liefir nú verið liaf-
in til vinnuhælis fyrir berkla- i
sjúldinga, á grundvelli þeirrar
löggjafar, er síðasta Alþingi
samþykkti, um að gjafir til hæl- i
isins skyldu vera skattfrjálsar. j
Framkvæmdanefnd vinnuhælis-
ins hefir nú þegar borizt vegleg
gjöf, frá Oddi Helgasyni útgerð-
armanni, að upphæð 20,000
krónur. Er þess að vænta, að J
fleiri fylgi á eftir á næstunni.
Inonu forseti i Kairo
Hér birtist fyrsta myndin, sem liingað hefir borizt af ráð-
stefnu Churchill, Roosevelts og Inonu Tyrklandsforseta í Kairo.
Inonu situr í miðju, en bak við liann og Churchill er Anthony
Exlen. — Myndin er óskýr vegna þess, að hún var send þráðlausl
til London.
Bátnm bjar^að.
„Sæbjörg“ kom nýlega inn
til Reykjavíkur með m.b.
„Helga Hávarðarson“ frá Nes-
kaupstað.
Fann „Sæbjörg“ bátinn lítt
sjálfbjarga út af Álftanesi. Vél
bátsins var að visu í gangi en
hún dró ckki i veðrið.
„Þór“ var á leið til Vest-
mannaeyja sömu nóttina, en
snéri við vegna veðurofsans og
kom inn á Reykjavikurhöfn.
Austri lá á Ólafsvík í fyrradag,
en mun annaðhvort hafa lagt af
stað þaðan eða slitnað upp næstu
nótt og bað um aðtsoð. Togarinn
Belgaum kom honum til hjálp-
ar. Var vél Austra of kraftlitil
til að hafa sig móti veðrinu, en
annars var eklcert að.
í morgun var sambandslaust
austur, svo að nánari fregna
liefir ekki verið unnt að afla af
Austra.
Björgun Laxfoss
vonlaus.
Björgun á m.s. Laxfossi er,
úr því sem komið er, vonlaus
talin eftir því sem Pálmi Lofts-
son forstjóri hefir tjáð Vísi.
Horfur á þvi að skipinu verði
bjargað hafa verið litlar til þes'sa
en þær hafa versnað stórlega i
síðustu sólarhringa. —- Var
haugabrim við skipið og gefinn
hlutur að það muni liafa brotn-
að og laskazt að meira eða
minna leyti.
Björgunaraðstaðan hefir vcr-
ið óvenju erfið vegna tíðarfars-
ins að undanförnu, því að þótt
endrum og eins liafi lcomið
sæmilega gott veður frá því er
skipið strandaði, hefir óveður
eða sjór á næsta degi eyðilagt
allt sem húið var að gera.
Páhni Loftsson kvaðst ekki
gera sér vonir um að neinu yrði
bjargað öðru en kannske ein-
hverju af flakinu seinna meir.
Vatnsskortur vegna
óhóílegs rennslis.
í frostunum um daginn
minnkaði vatnið í Gvendar-
brunnunum svo mjög að það
hefir vart nokkuru sinni orðið
minna.
Vatnsþrýstingurinn sýndi ó-
venjulega eyðslu og er þar
gamla sagan að endurtaka sig,
að fólk lætur renna i frostum
til þess að vatnið frjósi ekki í
pípunum.
En þetta má alls ekki koma
fyrir, þvi að húseigendur eiga
að ganga þannig frá pipunum
að ekki frjósi i þeim.
Eftir að dró úr frostunum
hefir þetta færzt nokkuð í lag
aftur.
Lítil mjólkurvon
Heiðarnar sennilega
ófærar.
Fimm bílar lögðu af stað með
mjólk í bæinn í morgun frá
Selfossi. Fyrstu bílarnir fóru kl.
6 í morgun og skiptu þeir sér
á báðar leiðirnar. Á ellefta tím-
anum í morgun var ekki farið
að verða þeirra vart í Skíðaskál-
anum.
Þá voru 5 bilar pantaðir héð-
an til að fara í dag austur yfir
fjall til að sækja mjólk.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegamálaskrifstofunni eru ekki
meira en svo góðar liorfur á að
hílarnir komizt yfir heiðarnar
í dag. Að vísu cru tvær snjóýtur
á Ilellisheiði í gangi, en veður-
far er þannig i dag, að iskyggi-
legt útlit er fyrir að þær fái
nokkuru áorkað. I gær tókst
þeim að vísu að losa þær bif-
reiðar, sem setið liafa fastar á
leiðinni, en með því móti þó að
draga bilana þar sem á þurfti
að halda.
í gærkveldi kom töluverð
mjólk með skipi frá Akranesi
svo að mjólk er meiri í búðum
nú en horfur voru fyrir í gær-
kveldi. —- Samt er mjólkur-
skömmtun í dag. Einhverntíma
j dagsins er von á mjólk úr
; Borgarnesi.
Kvörtunum
um rottugang er veitt móttaka í
sima 3210 til 25. þ. m. á tímanum
frá kl. 10—12 f. h. og kl. 1—5 e. h.
Ennfremur getur fólk snúiö sér til
ASalsteins Jóhannssonar meindýra-
eyðis, sem veröur til viðtals á Vega-
mótastíg 6 alla virka dagá kl. 9—12
til febrúarloka.
45 ára
varð 18. januar Valdimar Guð-
laugsson, fisksali, Bergssta’öastræti
8. "
Atviimuleysi á Akureyri.
Tillögup tH úrbóta.
Atvinnuleysi er farið að gera vart við sig á Akureyri og hafa
rúml. 200 manns verið atvinnulausir þar síðan í nóvem-
bermánuði s. 1. Er þetta nær þriðjungur allra félagsbundinna
verkamanna á Akureyri.
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna þar hefir að undanförnu
unnið að því að afla upplýsinga
um atvinnuhætti verkamanna í
bænum og eru framanskráðar
tölur samkvæmt upplýsingum
þess.
Þá liefir fulltrúaráðið bent á
nokkur verkefni til úrhóta at-
vinnuleysinu og skorað á bæj-
arstjórn að láta fara fram at-
hugun á þvi, hvaða nýjar fram-
kvæmdir sé tiltækilegt að ráð-
ast i, og að áætla til þess sérstak-
ar upphæðir á fjárhagsáætlun
bæjarins.
Þau verkefni, sem fulltrúa-
ráðið bendir helzt á lil að draga
úr atvinnuleysinu eru: Bekstur
lunnuverksmiðju með nýjum
vélum og föstu slarfsliði, ný
dráttarbraut við höfnina, báta-
Iiöfn og stækkun hafnarhryggj-
unnar, aukin ræktun bæjar-
landsins, auldn útgerð og að
keypt verði a. m. k. 2—3 ný
fiskiskip. Bæjarstjórn láti rann-
saka möguleika fyrir auknum
fiskiðnaði á Akureyri og að allt
verði gert sem unnt er til að
fyrirhuguð áburðarverksmiðja
verði reist á Akureyri.
Hitaveitan komin
Herskip taka
þátt í sókninni.
Bardagar harðna
við Oumari,
TTin nýja sókn Rússa fyr-
ir sunnan Leningrad
hefir aðeins staðið i fimm
sólarhringa, en samt- hefir
Rússum tekizt að vinna all-
mikla sigra.
Þjóðverjar tilkynntu í
morgun, að þeir hefði yfir-
gefið Novogorod.
Hér er raunverulega um tvær
sóknir að ræða, en J>ær ' hafa
báðar sama takmark, irefnilega
að losa Leningrad úr allri hættu
af annari umsát, svo áð'segja
má, að um aðeins eina sé að
ræða.
Á Oranienbaum-stöðvunum
rufu Rússar víglinu Þjóðverja
á 40 km. svæði, sóttu; fram
12—20 km. og tóku 80 þörp og
bæi. Á Volkov-vigstöðvunum,
um 160 km. fyrir sunnan Lenin-
grad, rufu Rússar varnir Þjóð-
verja á 50 km. svæði og sótlu
fram læplega 30 km. Rússar
tóku álika marga hæi og þorp
og á Oranienburg-vigstöðvun-
um. ■
20.000 Þjóðverjar fallnir.
Þessa fimm daga, sem bar-
dagar Iiafa staðið, hafa Rússar
sigrazt ó mótspyrnu niu.þýzkra
herdeilda, allra fótgönguliðs-
deilda og vekur það athvgli, að
Þjóðverjar skuli ekki hafa teflt
fram neinni af bryndeildum
sínum. En skýringin á því er
ef til vill sú, að Þjóðverjar telji
varnirnar svo öflugar, að þess
sé ekki þörf að hafa skriðdreka
og brynbíla einnig.
Mannfall Þjóðverja er að
sögn Rússa 20.000 menn, en
1000 fangar hafa auk þess verið
teknir.
Bardagarnir hjá Ouman:
Rússar hrundu i gær mörg-
um hörðuin áhlaupum Þjóð-
verja hjá Ouman, þar sem har-
dagar hafa farið harðnandi með
degi hverjum að undánförnu.
Berst leikurinn fram og aftur
um sléttlendið þai'na, eii i gær
urðu átökin einna hörðust fyrir
norðan Kristinovka.
Hersveitir Rússa erii enn í
sókn á þrem öðrum vigstöðv-
um, fyrir sunnan og nörðan
Pripet-mýrarnar og i gfennd
við Novo Sokolniki.
í lag.
Hitaveitan virðist vera komin
í lag aftur eftir óhapp það sem
fyrir kom á dögunum, er geym-
arnir tæmdust vegna þess að
vatnshaninn verkaði ekki.
Við þelta óhapp jókst vatns-
hraðinn í pipunum til muna og
skoluðust þá steinar til í tveim-
ur götuæðum í Norðurmýri og
ollu stíflu. Nú er þetta komið
i lag aftur.
Rafmagnsspennan er svo lág
að dælurnar orka ekki að dæla
nema nokkurum hluta heita
vatnsins á daginn. A næturnar
starfa þær hinsvegar af fullum
lcrafti.
Arás á Kusai.
Flugvélar af einu af flug-
stöðvarskipum bandanianna
hafa gert árás á Kusai-eyju á
Kyrrahafi.
Eyja þessi er um 1500 km.
fyrir norðan Nýja-Bretland og
er milli Marshall- og Karolin-
eyja. Skammt fyrir vestan Ku-
sai er Trukeyja, sem er aðal-
flotastöð Japana á Suður-Kyrra-
hafi. Hafá handamenn aldrei
gert árás á japanska bækistöð,
sein liefir verið eins nærri Truk
og Kusai.
Tveir menn
voru í gær dæmdir í lögreglurétti
Réykjavíkur fyrir ölvun viS akst-
ur. Þeir voru dæmdi í 10 daga varö-
hald hvor og sviptir ökuleyfi í 3
mánuSi.