Vísir - 09.02.1944, Síða 2

Vísir - 09.02.1944, Síða 2
V I S I R VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: MjAÐAIJTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 16 60 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuðt. Lausasaia 35 aurar. Féaigsprcatsmiðjan h.f. Forspá. "WW erkamannafélagið Hlif hefir látið atkxœðagreiðslu fram fara um það hvort samningum við atvinnurekendur skyldi sagt upp eða efíki. Fóru leikar svo að samþykkt var að segja ekki upp samningum. t félaginu eru 490 menn, en af þeim hópi greiddu 326 tkvæði. 168 vildu ekki segja upp núgildandi samningum, en 156 voru þvi samþykkir. Á Akranesi fór einnig fram atkvæðagreiðsla í verkalýðsfé- laginu um uppsögn samning- anna, en þótt atkvæðagreiðslan stæði yfir í marga daga greiddu aðeins 62 menn atkvæði af 450, sem i félaginu eru. Vildu 55 segja upp samningunum, en 7 voru á móti. Leit stjórn félags- ins svo á, að ekki væri verjan- legt að segja upp samningum á þessum grundvelli og helzt þvi vinnufriður á Akranesi. Hér í Reykjavik er aðra sögu að segja. Innan Dagsbrúnar fékkst meiri hluti greiddra at- kvæða með uppsögn samning- anna, en þáttlaka í atlcvæða- greiðslunni var litil, og meiri hlutinn svo veikur að í raunmni var mjög hæpið að byggja upp- sögn samninga á þeim úrslit- um. Sýnilegt er að þeir, sem hjá sátu við atkvæðagreiðsluna, hafa enga þörf talið á að segja samningunum upp Mun einnig mála sannast að koimnúnistar einir hafi ætlað sig hafa hagn- að af uppsögn samninganna, en verkamennirnir ekki, hver sem raunin kann að verða á um það er lýkur. Er það í rauninni hálf hlálegl að á'sama tíma, sem kommúnistar hefja baráttu fyr- ir launahækkun, lætur vofa at- vinnuleysisins á sér bæra. Mun og reynast, að þótt verka- menn kunni ekki að vera of- haldnir af Iaunum þeim, sem Jieir eiga nú við að búa, er 511- um aímenningi um megn að greiða þau, hvað þá hærri, og er því þegar af þeirri ástæðu h'tið uin alla vinnu umfram brýn- ustu nauðsyn: Allt annað er lát- ið silja á hakanum og bíða betri tima. 1 Svo sem getið var hér 1 blað- inu i gær, er ekki um það eitt að ræða að kaup verkamanna í Dagsbrún hækki að þessu sinni, heldur miklu fremur, livort gefa skuli aukinni dýrtið lausan lauminn. Snjóboltinn veltuc af stað, en hleður utan á sig, og getur jafnvel fyrr en varir orðið að skriðu, scm ekki verður rönd við reist. Komm- únistar vila vel hvað þeir eru að gera, en ekki verður sagt að það sé í fullu samræmi við föð- urlandsást og-sjálfslæðisþrá þá, sem gripið hefir þá síðustu mánuðina. Að visu er ekki nema goil eitt um það að segja, að þessir menn sem aðrir vinni að heill þjóðarinnar, en hitt er miklu viðlíunnanlegra að orð og gerðir stangist ekki svo að gerðirnar hreki orðin út í hin y^tu myrkur, svo sem nú eru líkur til. Kommúnistarnir hafa oft spennt bogann hátt, en það mega þeir vita að hann getur brostið, og brostið svo hált að Kvartanir um gæði íslenzka isksins. Fiskur togaranna fer batnandi. Ensk skip sjá einnig um flutninga á fiski. T7 nska blaðið Fishtrade Gazette birtir þann 29. jan. viðtal við ýmsa að- ila í Fleetwood, er kvarta rnjög undan slæmum fiski frá íslandi, og sóðalegri um- gengni í fiskhverfum Fleet- woodhafnar. Skýrir blaðið frá þvi, að mál þetta hafi verið rætt af heil- brigðisnefnd borgarinnar að viðstöddum fulltrúa matvæla- ráðuneytisins. Ennfremur að nefndin Iiafi snúið sér til ís- lenzka vararæðismannsins í borginni og beðið hann að liafa samvinnu við íslenzka sendi- herrann í London um að fá ráðna bót á þessum málum. í>á hefir heilbrigðisnefndin, sam- kvæmt frásögn hlaðsins, leitað samstarfs hrezka heilbrigðis- ráðunytisins um að fá eftirlit með fiskinum bætl. Jafnframt þessari frásögn birtir hlaðið viðtal við íslenzka vararæðismanninn í Fleetwood um fiskmálin. Lætur ræðismað- urinn það álit í ljós, að íslenzki togarafiskurinn hafi farið lield- ur hatnandi að undanförnu en bætir svo við: .... „Það er síður en Svo, að allur slæmur fiskur frá íslandi hafi komið úr íslenzku togurunum. Mikið af lélegum fiski frá íslandi kemur úr enskum skipum. Fleetwood hefir beðið stjórtjón af umtali um skemmdan fisk, en talið er að mun meira af lé- legum fiski sé landað í Hull en FleetwoodJ' Brezk hlöð hafa talsvert oft haft við orð að undanförnu að við seldum Bretum lélegan fisk. Er skemmst að minnast grein- arinnar „Leynivopn (Hitlers“, sem birtist í ensku hlaði, þar sem Islendingar eru ásakaðir fyrir að hjálpa nasistum í styrj- öldinni gegn Bretum, með því að selja Jxiiin skemmda fæðu sem lami hrezku þjóðina. Hvort- tveggja er jafn víst, að íslend- ihgar skilja að þeirra sterkasta vopn i haráttunni á heimsmark- aðinum er vöruvöndun og að Jieir vilja gæta jiess að vera hlutlausir til liins ítrasta. Sam- kvæmt ummælum þeim sem hið enska hlað, Fishtrade Gaz- ette, hefir eftir ræðismanni ís- lendinga i Fleetwood, l irðist J)ó sem ekki hafi tekizt að halda fiskinum í íslenzku togurunum eins góðri vöru um tíma og æskilegt hefði verið, en að sá fylgi verkamanna hverfi úr höndum Jieim. LTt frá því sjón- armiði er ekki að amast við umhrotum kommúnista, en Jjetta er of dýr leikur og áliættu- samur fyrir þjóðfélagið, en ábyrgð ofstopamannanna engin í aðra hönd. Þeir geta ýmsu spillt en ekkert hætt. Verká- mennirnir í Hlif og verkalýðs-’ félagi Akraness hafa sýnt að Jieir hafa ríkari félagslegan Jiroska, en starfsbræður Jieirra í kommúnistahópnum hér i Reylcjavík, þótt Jiess beri að gæta að þar er um algeran minni hluta að ræða innan Dagshrúnar. Þeir liafa afstýrt óhöppunum í umdæmum sin- um. Kommúnistar sitja enn að samningaumleitunum. háigar líkur benda til að á þeim fáist heppileg lausn, en rctt er þó að híða og sjá hvað setur. fiskur fari nú aftur hatnandi. Hinsvegar virðist augljóst af ummælum ræðismannsins, samkvæmt frásögn blaðsins, að sá fiskur, sem Bretar annast sjálfir flutning á frá íslandi en veiddur er af íslenzkum fiski- mönnum sé mun lélegri heldur en sá fiskur, sem íslenzku tog- ararnir afla og flytja út í ís. Enguín mun blandast hugur um hvílk hætta er hér á ferð- um, Iivað snertir fiskmarkað ís- lendinga í Bretlandi, ef rétt er frá skýrL af hinu enska blaði. Er Jiað sízt nokkur afsökun Jx>tt fiskurinn skemmist i brezkum flutningaskipum. Hann er is- lenzk markaðsvara jafnt fyrir það og ]>að er skýlaus vilji ís- lenzku Jijóðarinnar, að enska Jijóðin fái Jiessa fæðu í hendur í því ásigkomulagi, sem for- svaranlegt er talið, þegar um viðskipti siðaðra þjóða er að ræða. I J>ví efni verður að gera kröfu til Jiess að brezkir skipa- eigendur hafi hinn sama um- húnað um fiskinn í sínum skip- um og nauðsynlegt er talið að fyrirskipa i islenzku togurun- um til að fiskurinn sé fyrsta flokks vara. Allir aðilar verða að gera skyldu sína til að tryggja gæði fiskjarins, hvort seni islcnzkir eða brezkir horgarár sjá um flutning þess- arar vöru til enskrar hafnar. ís- lenzkt eftirlit verður að fyrirskipa að nægilegUr ís og annar forsvaranlegur umbún- aður sé hafður í lestum Jieirra skipa, sem flytja fisk sem is- Jenzka markaðsvöru til annara Jijóða, svo að ekki þurfi að ótt- asl um að neinskonar ásakanir um vanrækslu í }>eim efnum hafi við rök að styðjast. Það er alveg óhætt að fullyrða, að íslendingar óska ekki eftir að hrezka þjóðin beri neinar slæmar endurminningar í huga frá viðskiptunum við ís- lenzku Jjjóðina Jjetta yfirstand- andi styr jaldartímahil. Það mun vera gagnkvæmur vilji þessara Jjjóða, að þau vinsamlegu sam- skipti haldist á milli Jjeirra enn um langan aldur, sem Iial’a ein- kennt sambúð Breta og íslend- inga um aldaraðir. A. Reglur um innheimíu útsvara í Reykjavík. Fyrir bæjarstjórnarfund erður á morgun lagt fram upp- kast að reglum um innheimtu útsvara í Reykjavík fyrir yfir- standandi ár. Samkvæmt þess- um reglum ber sérhverjum út- svarsgjaldanda hér í bænum, að greiða upp í útsvar þ. á. 40% af útsvarsupphæð þeirri, er honum bar að greiða árið 1943, með gjalddögum 1. marz, 1. apríl og 1. maí 1944, sem næst 13% af útsvarinu 1943 hverju sinni. í reglunum segir ennfremur að Jjyki sýnt, að tekjur gjald- anda árið 1943 skv skattafram- tali hafi verið minni en árið 1942, svo að muni 30% eða meira, skuli lækka greiðslur hans skv. reglum þessum hlut- fallslega, ef hann krefst Jjess. Kaupgreiðendum ber skylda til að halda eftir af kaupi starfs- manna til útsvarsgreiðslu skv. Jjessum reglum á sama hátt og með sömu viðuríögum og gilda um almenna útsvarsinnheimtu. Verði ljóst, eftir aðalniður- jöfnun 1944, að greiðslur gjald- þegns á 40% útsvari 1943 skv.' reglum Jjessum, nemi hærri fjárhæð en álagt útsvar 1944, og skal endurgreiða Jjað, sem ofgi-eitt hefir verið, með %% vöxtum fyrir hvern mánuð eða hluta úr mánuði, sem upphæð- in hefir verið í vörzlu bæjar- sjóðs, eftir rétta gjalddaga. Bœj ar- fréttír Björn Björnsson blaðamaðtir fer á næstunni til Stokkhólms á vegum National Broadcasting Company til að út- varpa fréttum frá Sviþjóð til Banda- rikjanna. Björn er húinn að dvelja hér á landi í 2y2 ár og hefir not- ið hér mikilla vinsælda, enda er hann prúðmenni hið mesta og hvers manns hugljúfi. Skúlagata hefur santkv. samþykkt bæjar- stjórnar verið gerð aðalhraut frá Ingólfsstræti að Höfðatúni. Samtíðin, febrúarheftið, ér nýkomið út, mjög vandað og fjölbreytt að efni. Þar er m. a.: Vaxtarrækt og heilsu- vernd eftir ritstjórann. Viðhorf dagsins frá sjónarmiði blaðamanns eftir Karl ísfeld. Þá er athyglisverð grein um framtíð Evrópu. Hreiðar Geirdal skrifar um nafnið „skræl- ingjar" og skýrir það á nýjan hátt. Ingólfur Davíðsson Ijirtir kvæði um Helga magra. Þá er snjöll saga: Þeir ódauðlegu. Ritgerð um hlaup- arann Gunder Hágg. Fjöldi smærrí greina er í heftinu, hókafregnir og tnyndir merkra samtíðarmanna á- samt æfiágripum þeirra. Esja laskast 1 morgun skemmdist „Esj- an“, þegar hún var að fara frá Bíldudal, svo að hún kemst ekki leiðar sinnar eins og sakir standa. Vísir átti tal við Pálma Loftsson framkvæmdastjóra Skipaútgerðarinnar, og skýrði hann svo frá, að í morgun, er Esjan var að fara frá Bíldudal, hafði stýri skipsins rekizt í marbakkann og skemmdist svo mikið, að það er ónothæft. Skipið tefst því eitthvað söknm þessa og eru líkur til, áð það þurfi að senda annað skip vestur, til að vera í fylgd með Esju suður. Ekki er vitað að Esja hafi skemmst að öðru Ieyti við þennan árekstur. Bókaútgáía M.F.A. hafin að nýju. Menningar- og fræðslusam- band alþýðu hefir nú hafið bóka- útgáfu að nýju, en starfsemi þess hefir legið niðri um tíma. Sú bókin sem Jjað sendir fyrst frá sér að þessu sinni er „Traust- ir hornsteinar“, ræður og rit- gerðir eftir hinn heimsfræga brezka hagfræðing Sir William Beveridge, sem hinar alkunnu Beveridge-tillöguv eru kenndar við. t bók þessari gerir höfundur- inn grein fyrir tillögum sinum um almannatryggingar i Bret- landi, en hann telur að nái þær ' fram að ganga verði atvinnu- leysi. skorti og öryggisleysi út- rýmt í sérhverri mynd. Benedikt Tómasson skóla- stjóri i Hafhárfirði Jjýddi bók- ina, en .Tóhann Sæmundsson Iæknir ritar að henni formála. A næstunni er von á hinni frægu skáldsögu „Babbitt11 eftir ameríska Nohelsverðlaunahöf- undinn Sincláir Lewis, á veg- um Menningar og fræðslusam- l>ands aljjýðu. Kemur hún út í 2 bindum. M. F. A. hefir um nokkui’ra ára skeið gefið út margar úr- valsbækur m. a. Svartfugl og Heiðaharm eftir Gunnar Gunn- arsosn, Illgresi eftir Örn Arn- arson o. m. m. fleiri. Atti félag- ið sér marga unnendur, sem munu fagna Jjví, að útgáfustarf- semi Jjess er hafin að nýju. 100 ára Vestur- íslendingur. Nýkomið „Lögberg“ skýrir frá því að 14. des. s.l. hafi ver- ið haldið liátíðlegt 100 ára af- mæli lslendingsins Sveinbjarn- ar Björnssonar frá Berufirði í Beykhólasveit. Sveinbjörn flutti vestur um haf, árið 1882, eða fyrir rúm- lega 60 árum og hefir hann síðan alið aldur sinn í Norður-Dakota. Sveinbjörn var æsku-Ieik- bróðir Matthíasar Jpchumsson- ar skálds og um tíma ídnnu- maður Eyjólfs i Svefneyjum, hins fráhæra sjósóknara og dugnaðarmanns. 1 Lögbergi segir um afmælis- barnið: Um hið aldraða afmælisbarn má segja að Jjað sé við Jjolaulega heilsu, getur enn Iesið, les is- lenzku vikuhlöðin all vandlega og fylgist furðn vel með mörgu sem gerist. Þennan áminnsta dag var hann með hressasta móti, og sat méstan tíma dags- ins. Sveinbjörn hefir verið maður i lægra meðallagi, afar hnell- inn, þykkur undir hendur og hraustlega hyggður. Enn. er handtak lians þétt og traust. Heyrnin er orðin dálítið sljó. Minnið er furðu gott, staðbund- ið og traust. Hyggni og lang- sýni munu jafnan hafa einkennt hann bæði í efnalegu tillití, en einnig í annari merkingu. Mála- fylgjumaður var haun nokkur, að eigin og annara sögn. Óljúft mun honum jafnan verið hafa að láta hluta sinn — að nauða- lausu fyrir öðrum, hverjir helzt sem voru. ★ Nýlega er látinn vestra annar öldungur, 94 ára að aldri, sem fluttist fyi’ir 70 árum vestur um haf. Það var Jónas Jónasson landnámsmaður að Bjarkarlóni við íslendingafljót. Hann var fæddur að Bakka í Öxnadal. lærði prentiðn á Akureyri og stundaði hana fyrst framan aí' vestra, en síðar smíðar. Scrutator: ^jOuJLdlx Málfundur í kvöld í Thorvaldsensstræti 2, kl. 8.30 stundvíslega. Fjölmennið. Stjórnin. „Sjálfstæðið er vandamál“. Það er víðar rætt og ritað um sjálfstæðismál okkar en hér heima. Hér á eftir fer stutt klausa — laus- lega þýdd — úr Time, sem hingað hefír bórizt nýlega. Fyrirsögnin er hin sama og hér að ofan: ,,I ængst norður í Atlantshafi skaut vandamáli fyrir fri'ðartíma- hilið np]> kollinum. Með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða — 45-7 — samþykkti Alþingi íslendinga að ís- Iand skyldi verða sjálfstætt þjóðhá- tíðardaginn 17. júní 1944. Atkvæðagreiðslan sýndi fram á, hversu umfangsmikið vandamál það er, sem hefir valdið Bandaríkjunum og Bretjandi áhyggjum. Island, sem var í konungssambandi við Dan- mörku, var fyrst tekið af brezkum hersveifum í maí 1940, en í júlí 1941 komu ]>angað ameriskar her- sveitir. Landið er dýrmætt vegna siglinga skipalestanna og getur einn- ig orðið mikilvægur viðkomustaður flugferða eftir stríðið. Samkvæmt sambandslagasamningnum við Dan- mörku (sem gerður var 1918, en er talinn úr gildi fallinn sakir hernáms Danmerkur) getur ísland orðið sjálfstætt hvenær sem er eftir 1. janúar 1944. Með tilliti til þess hafa Bandaríkin og Bretland keppt um hyíli íslands eftir striðið. Ef ísland væri óháð Danmörku, mundi það annað hvort verða inn- an áhrifasvæðis Bandaríkjanna eða Bretlands. Sendiherra íslands í Washington, Thor Thors, hefir tek- ið af öll tvímæli um það, að ísland muni fyrst og fremst líta til Banda- rikjanna. En það eitt út af fyrir sig mundi ekki skera úr þessu. Þeg- ar sezt verður við samningaborðið á friðarráðstefnunni mun staða hins litla íslands verða vandamál, sem Bandaríkin og Bretland verða að ráða fram úr.“ Skyldi nokkur önnur rödd fá að heyrast J>ar? Frú Miniver. Ein hezta myndin, sem byggð er á efni úr þeséu striði, verður sýnd i fyrsta sinn í Gamla Bíó í kvöld. Kvikmyndin er byggð á gamnefndri skáldsögu enskrar konu, .er hef- ir tekið sér höfundarnafnið Jan Struther og er fyi’sta bók henn- ar. Bókin kom út nokkru eftir að stríðið Var byrjað og þykir lýsa svo meistaralega baráttu alþýðu manna á Englandi, þegar allt virtist vera að fara í mola, að hún var rifin út úr bókabúðum „blaut úr pressunni“. Ameriskur bókagagnrýnandi hef- ir sagt iim söguna, að hún sýni hvers vegna England muni alltaf verða til. Kvikmyndin hefir farið sömu sig- urförina og bókin, enda eru Greer Garson og Walter Pidgeon, sent leika aðalhlutverkin, tvimælalaust einhverjir beztu kvikmyndaleikarar, sem nú er völ á. Myndin hlaut líka verðlaun, sem allir kvikmynda- framleiðendur sækjast eftir. Það er hægt að kynnast gangi stríðsins af stríðsfréttum blaðanna, en þeirri hliðinni, sem veit að ó- breyttum borgurum, er oít ekki hægt að kynnast af þeim. Kvikmyndin „Frú Miniver“ bætir það upp. Leiffrétting. Yfir pistli mínum i gær var fyr- irsögnin skíðaslóðir. Átti að vera skíðaslóðaskapur. Virðingarfyllst, Isak Tsax skiðlogandi. Fumlnr Skipstjóra- og stýrimannafél. Rvíkur á mörgun (fimmtu- dag) kl. 8.30 síðd. á skrif- stofu félagsihs í Hamarshúsi. Kaupsamningar, Öryggismál, o. fl. Fyrir karlmenn: Nærföt, skyrtur, náttföt, sokkar, sokkabönd, ullar- vesti, ullartreflar, ullarliáls- bindi. Verziunin Guðmundur H. Þorvarðsson, Óðinsgötu 12. — - Síini 4132.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.