Vísir - 21.02.1944, Qupperneq 1
Rftstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. haeð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl S llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, mánudaginn 21. febrúar 1944.
43. tbl.
Hvíldarlan§ar árá§ir á Þrzkaland í 3G klnt.
1000 Japanir
umkringdir.
Brezkar hersveitir á Arakan-
skaga haía umkringt .1000
manna japanskt lið þar á skag-
anum.
Japönum þessum tókst að
komast á snið við hersveitir
Breta og vestur fyrir Mayu-fjöll-
in. Áttu þeir að rjúfa flutninga-
leiðir Breta áð vestan og um-
kringja þá, en féllu á sínu eigiu
kragði.
Bretar segjast vera vel á veg
kemnir með að uppræta lið
þetta.
I
Margar af eyjunum í Aniwa-
tok-hringrifinu í Marshall-eyja-
klasanum eru nú á Valdi Banda-
ríkjamanna.
Flugyöllurinn á aðaleyjunni
var á valdi Bandaríkjamanna
eftir 7 klukkustunda bardaga
og stóð enginn Japani uppi að
þeim tíma liðnum.
Meðan barizt var um flug-
völlinn gengu Bandaríkjamenn
á land á tíu öðrum eyjum innan
hringrifsins og tóku þær bar-
dagalaust.
Bretar sökktu tveim flutn-
ingaskipuin við Noregsstrendur
þ. 13. þ. m. 1 desember fórst
þýzkt eftirlitsskip við Norfeg eft-
ir árekstur á kafbát. Hann
komst til liafnar.
2000 amerískar
flugvélar ráð-
ast á 6 borgir.
Önnur árás á
Leipzig á i2]klst.
nmerískar flugvélar
** gerðu meiri árásir á
Þýzkaland í gær, en nokk-
uru sinni fyrr. Ráðizt var á
fleiri borgir en venjulega
og með flCíri flugvélum.
Fyrir þrem vikum settu
Bandarikjamenn loftsóknarmet,
með því að senda 1500 flugvélar
—- þar af 800 stórar sprengju-
vélar — í árás á Frankfurt am
Main og várpa þar niður 1800
smálestum af sprengjum.
í gær fóru 2000 amerískar
sprengju- og orustuvélar í á-
rásirnar. Jafn mikill sæg-
ur flugvéla hefir aldrei ráðizt
á Þýzkaland í einu.
Árásarstaðirnir.
Tæplega 12 stundum eftir áð
Bretar höfðu dembt 2300 smá-
lestum af sprengjum yfir Leip-
zig, réðuzt ameriskar flugvélar
á borgina. Hún var þó ekki að-
al-árásarstaður Bandaríkja-
manna, en í árósinni á liana fóru
þeir lengra en nokkuru sinni
inn yfir Þýzkaland og á leiðinni
þangað sáu þeir Berlin í f jarska.
Aðalárás Bandaríkjamanna
var á flugvélaverksmiðjur í
Gotha (suðvestur af Leipzig),
Bernburg (suður af Magde-
burg), Braunscweig, Oschers-
leben og Tutau, sem er skammt
fra Stralsund við Eystrasalt.
1 nær öllum þessum borgum
19 skipum sökkt,
201 flugvél eyði-
lögð í Truk.
Japaxtir áttu sér einkis ills von.
Fleiri Jierskip en í Pearl
HapboF áFásinxKÍ 7. des. ’41
NIMITZ, flotaforingi Bandaríkjamaiina á Kyrra-
hafi, gaf í gær út tilkynningu um árangurinn,
sem náðist í árásinni á Truk í síðustu viku.
Segir í tilkynningunni, að flugvélar af flugstöðvar-
skipum Bandaríkjamanna hafi sökkt 19 skipum í árás-
inni og ef til vill 7 að auki. Flugvélatjón Japana nam
201 flugvél, sem var skötin niður, en 50 að auki voru
laskaðar. — Bandaríkjamenn misstu 17 flugvélar og
eitt skipa heiiTa varð fyrir smávægilegum skemmdum.
Meðal skipanna, sem sökkt var, voru 2 beitiskip, 3 tund-
urspillar, 2 olíuskip og 8 flutningaskip.
Árásin stóð í tvo daga samfleytt og vissu Japanir ekkert um
fyrirætlanir Bandaríkjamanna fyrr en fyrsta loftárásin var
gerð. Var ráðizt á allskonar mannvirki, svo sem strandvirki,
flugvelli, loftskeytastöðvar og fleiri mikilvæga staði.
Japanir reyndu að gera árásir á flota Bandaríkjamanna fyrri
daginn, en misstu aÖeins flugvélar við þær tilrunir og, svo sem
áöur segir, varð aSeins eitt skip fyrir sprengju. Síðari daginn
rqpnðu íapanir ekki að gera árásir á herskipin amerísku og má
aí' þvi tnarka, hve tilfinnanlegu tjóni þeir hafa orðið fyrir.
«r þess gelið í tilkynningunni frá Pearl Harbor, að
B«aflaitti*iaenn tefldu fram stærri flota þarna, «n Japanir
ssaÉil j|f jP.naíl Harbor í byrjun deseiuher 1941.
1... ........................................
Þessi mynd gefur ekki nema litla hugmynd um tjónið, sem orðið hefir í Berhn af völdum
árása Breta. Viða stendur ekki steinn yfir steini á stórurn svæðum.
eru flugvélaverksmiðjur og er
greinilegt, að það er markmið
handamanna að hafa með öllu
lamað flugvélaframleiðslu Þj óð-
verja um það leyti, sem innrás-
in verður gerð.
Aðrar árásir.
Meðan stóru flugvélarnar réð-
ust á Þýzkaland fóru minni flug-
vélar í ýmsar árásir liingað og
þangað um Frakkland og Niður-
lönd. Marauder-vélar úr niunda
flughernum fóru í fyrsta skipti
í árás, að þessu sinni ó flugvelli
í Hollandi.
Moskito-vélar réðust á stöðvar
í Norður-Frakklandi bæði um
morguninn og síðar um daginn.
Þjóðverjar skutu niður 22
sprengjuvélar og 4 af verndar-
vélunum, en misstu 61 vél sjálf-
ir fyrir orustuvélum handa-
manna einum.
Rússar eru nú 55 km.
frá Pskov.
Rússar halda áfram sókn-
inni til Pskov frá Luga og Star-
aja Rússa.
Á annað hundrað þorp og
borgir voru tekin í gær milli
Ilmenvatns og Peipus-vatns. —
Rússar sækja til Pskov í hálf-
hring og tóku m. a. í gær járn-
brautarstöð, sem er um 55 km.
norðaustur af Pskov.
Annars staðar á austurvíg-
stöðvunum er tíðindalaust að
mestu. Á einstaka stöðum eru
þó lióð stórskotaliðseinvígi og
njósnasveitir eru víða á ferli.
þrjá daga, því að flutningar
Þjóðverja hafi verið í mesta
óletsri sakir skothríðar og loft-
árása bandamanna.
í vikunni sem leið fóru flug-
vélar bandamanna í samtals
6500 einstalcar árósir, en Þjóð-
verjar aðeins 605.
Skfðafepðip
um tielgina.
Flest íþrótta- og skíðafélögin
efndu til skíðaferða um helgina.
Færi var yfirleitt þungt, en þó
létu K. R.ingar vel yfir færi í
Skálafelli. Veður var sæmilegt.
Ármenningar fóru um 60 í
Jósefsdal og Himnaríki á laugar-
dagskvöld. ÍR.-ingar fóru 40—
50 & laugard. upp að Kolviðar-
hóli, en auk þess fór álíka hópur
í gærmorgun á vegum félagsins
upp að Lögbergi. Sömuleiðis fór
um 70 manna hópur með Skíða-
félagi Reykjavíkur upp að Lög-
bergi í gærmorgun.
K.R.-ingar fóru 25 að tölu á
laugardag upp í Skíðaskála. Um
næstu helg'i heldur félagið inn-
anfélagsmót i Skálafelli ef
yeHtir fseri Jfeyfir.
Anzio:
Bandameon stóðust úr-
slitaáhlaup Kesselrings.
Hann haföi pekið 3ja Itm. fleyg
í stöðvap þeippa,
Klukkan f jögur í gærmorgun
kom áhlaupið mikla, sem
bandamenn höfðu lengi búizt
við á landgöngusvæðinu fyrir
sunnan Róm.
Þá tefldi Kesselring fram
ógrynni fótgönguliðs og tugum
skriðdreka, yfirlei 11 öllu því liði
sem gat athafnað sig á ekki
stærra svæði en áhlaupið var
gert á. Áhlaupið var geírt suður
með Albano-Anzio-veginum,
heggja vegna hans. Tókst Þjóð-
verjum að reka þriggja ldló-
metra langan fleyg meðfram
honum. Var auðséð af öllu, að
þessi árás átti að ríða banda-
mönnum að fullu.
Þrein tímum eftir að þýzka
árásin hófst, var gefin skipun
um gagnárás bandamanna. Öllu
stórskotaliði þeirra, sem liægt
var að beita gegn fleygnum,
var skipað að skjóta þangað,
, til þess að styðja áhlaupið. Það
har þann árangúr, að Þjóðverj-
ar voru hraktir að mestu til
hinna upprunalegu stöðva
sinna.
Mannfall varð mikið á báða
bóga og segja bandamenn, að
sumir fanga þeirra, sem þeir - .._
tóliu, hafi veriS matarlaurir í Þjoðrækmsfelagið
vestan hafs 25 ára.
Þjóðræknisfélag Islendinga i
Vesturheimi er 25 ára i dag. Það
var stofnað 21. febrúar 1919.
Biskúpinn, herra Sigurgeir Sig-
urðsson er fulltrúi íslenzku rík-
isstjórnarinnar á liátíðahöldun-
um, sem hefjast i Winnipeg í
dag í tilefni af afmælinu.
Ríkisstjóri Islands, utanrikis-
málaráðuneytið, Þjóðræknisfé-
lag Islendinga og ýmsir ein-
staklingar hér heima hafa sent
V estur-ísl en din gu m k veð j ur
sínar og heillaóskir í tilefni af
afmælinu.
Mml iil í iisti
]|
Árásir Bandaríkjamanna á
Marshall-eyjar og Truk hafa
haft skjót áhrif í Tokyo. Yfir-
menn foringjaráða flota og
hers hafa verið settir af.
Tojo forsætisráðherra tek-
ur við störfum formanns
herforingjaráðs landhersins,
en Shimada, flotamálaráð-
herra, verður yfirmaður for-
ingjaráðs flotans. Hreingern-
ing hefir einnig farið fram í
fleiri háum stöðum í her og
flota.
Þessi breyting á herstjórn-
inni gerir Tojo raunverulega
einráðan í hernum, en hann
gegnir að auki fjórum ráð-
heiræmbættum.
Dagsbrún:
JEkkert sam-
komulag.
Sáttaumleitanir hafa farið
fraim undanfarið í vinnudeilu
þeirri, sem fyrirhugað er að
hefjist með verkfalli i verka-
mannafélaginu Dagsbrún á
morgun. Ekkert samkomulag
var komið á, þegar blaðið frétti
síðast, en samkomulagsumleit-
unum nnm þó vera haldið áfram
enn.
Vísitalan 263 stig.
Visitala framfærslukostnaðar
í febrúarmánuði verður sam-
kvæmt útreikningi kauplags-
nefndar og Hagstofunnar sú
saroa í uiðastl. mánuði, .eðto
2i3.
Stórárás á Stutt-
gart og Moskito-
árás á Munchen
í nótt.
2300 smál. á Leip-
zig í fyrrinótt.
Sprengj ufi u^vélar,, Breta
flugu í stórhópum til
Þýzkalauds í nótt og réðust
að þessu sinni á iðnpðar-
borgina Stuttgíirt i suðvest-
urhluta landsins.
Meðan stórú flugVélarnar
voru \Tir Stuttgart, sem er mið-
depill mikils iðnhéraðs, fóru
Moskito-vélar til Miincheii, sem
er allmiklu austar. Auk þess var
ráðizt á hernaðarstaði í her-
numdu löndunum og tundur-
duflum lagt viða á siglingaleið-
ir. rá-
Loft var skýjað yfir Stutt-
gart, er árásin hófst, en skyggni
batnaði, er leið á árásina og er
frá var liorfið, mátti sjá stór-
kostlega elda i verksmiðjuhverf-
unum.
Þrátt fyrir mikinn fjölda
flugvéla, sem Bretar sendu,
niisstu þeir aðeins tíu vélar.
Árásin á
Leipzig.
Fyrstu brezku flugvélarnar
komu yfir Leipzig nokkrar mín-
útur fyrir fjögur. Þá voru þær
flugvélar ókomnar, sem áttu að
varpa niður svifblysum hinum
til leiðbeiningar. Þær létu þó
ekki híða lengi eftir sér og einni
minútu f\TÍr f jögur hófst árásin.
Á hálfri klukkustund var
rúmlega 2300 smál. sprengja
varpað á borgina, sem er m. a.
mikilvæg vegna þess, hvað þar
eru margar flugvélaverksmiðj-
ur, en auk þess eru þaðan miklir
flutningar til austurvigstöðv-
anna.
Veður var að ýmsu leyti óhag-
stætt til árásar, því að flugvél-
amar urðu að fljúga í gegnum
skýjaþykkni þar sem mikill ís
settist á \fengi þeirra. Auk
þess var hvass hliöarvindur, svo
að flugvélunum hætti til að reka
af leið.
Orustuvélar réðuzt á brézku
vélarnar í sífellu i báðum leið-
um.
79 fórust.
En Leipzig var ekki eini stað-
urinn í Þýzkaland, sem Bretar
heimsóttu í fyrrinótt, því að
Moskitóvélar réðust á Ðerlín og
horgir i Vestiié-Þýzkalandi,
meðan sprengjufíugvélar af
öðrum gerðurn réðust á hernað-
arstöðvar í jHollandi og Nórður-
Frakldandi.
Bretar misstu alls 79 flugvél-
arí fyrrinótt og hafa þeir aldrei
orðið fyrir öðru eins flllgvéla-
tjóni á einni nóttu.
Árás á London.
Þjóðverjar réðust á London
í gær. Var varpað niður nokkr-
um tundursprengjum og elcl-
sprengjum, en tjón var ekki
tiltakanlegt, enda árásin elcki
mikil. Fimm þýzlcar flugvélar
voru skotnar niður.
MamaHjón BandarlKý>»uffan n a
á Italiu nam saÉ»to!OfÉiö;2É,700
mSúnuin u|f.-sí#'S«fLi,