Vísir - 04.03.1944, Síða 1

Vísir - 04.03.1944, Síða 1
Rltstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Féiagsprentsmiöjan (3.,hæð) Ritstjórar j Blaðamenn Slmli Auglýsingar 1 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, laugardaginn 4. marz 1944. 52. tbl. Loftsóknin: 11.700 smál. á Þýzkaland í febrúar. Síðasta mánuð vörpuðu brezk- ar flugvélar 11,700 smál. á Þýzkaland. Farnar voru 5 stórárásir og 14 litlar að næturlagi, en auk þess fóru tvíhreyfla sprengju- flugvélar 3000 flugferðir í björtu i mánuðinum. Stærsta á- rásin í mánuðinum var á Berlin, er varpað var niður 2500 smál. sprengja. Þjóðverjar gerðu 12 nætur- rásir á Bretland, flestar á Lond- on, og misstu við það 54 flugvél- ar. Aðeins þrjár þýzkar flugvél- ar komu yfir Bretland í björtu í mánuðinum. í árás á Albert í N.-Frakklandi í fyrrinótt , notuðu Bretar sprengjur, sem vega 12,000 ensk pund eða á sjöttu smálest. Þær voru fyrst notaðar i árás á Gnome-Rhone-flughreyflaverk- smiðjurnar í Limoges í Frakk- landi í febrúar. 'il$jiP| Amerískar sprengjuvélar réð- ust á borgir í NV-Þýzkalandi i gær. Gestapo gefur út leyniblöð í Noregi. Norska stjórnin í London segir, að Gestapo í Noregi, sé farið að gefa út fölsuð leyni- blöð. Blöð þessi eru liöfð sem lík- ust leyniblöðum föðurlandsvina, en Þjóðverjar leitast við að rita þau þannig, að þau komi af stað sundurþykkju og flokkadrátt- um meðal Norðmanna. En, seg- ir norska stjórnin, þetta hefir aðeins leitt til þess, að Norð- menn lesa öll leyniblöð með meiri gætni og gagnrýni en áð- ur. 350 flngvélar á degfi hverjam. . Flugvélaframleiðsla Banda- ríkjanna náði nýju hámarki í síðasta mánuði. Dag hvern voru framleiddar 350 flugvélar að jafnaði eða næstum 15 flugvélar á klst., eða um það bil ein á bverjum fjór- um mínútum. Þess ber og að gæta, að meðal þessara flug- véla eru enn fleiri 4-hreyfla vél- ar en áður. f nóvember nam dagfram- leiðslan 293 flugvélum. Hefír misst eigin- mann, son, systur og 3 bræður í stríðinu. Vart nokkur manneskja mun hafa orðið fyrir eins þungum harmi af völdum stríðsins og kona ein í Banda- ríkjunum, Helen Connor að nafni, sem hefir misst sex nána æltingja. Maður hennar féll á Mar- shall-eyjum, sonur hennar í Tunis, ednn bróðir hennar féll í N.-Afríku, annar á Kyrrahafi, þriðji í Burma og systir hennar fórst er hún var að flytja flugvél fyrir herinn milli bækistöðva. Hressingarskálinn Sérstök talsimaþj ónusta í verstöðvum til slysavarna. Hressingarskálinn hefir tekið til starfa á ný. Húsið hefir verið endurbætt mjög mikið, málað liátt og lágt og sett í það ný og endurbætt húsgögn. Þá hefir verið komið upp sérstökum „bar“,-veitinga- borði fyrir is og kalda drykki. Vei’ður að telja allan útbúnað í skálanum liinn fullkomnasta. Það er hlutafélag, sem nú rekur skálann og liefir látið breyta honum. Forstöðumaður verður Ragnar Guðlaugsson hryti. Hann hefir ára langa reynslu í veitingaþjónustu, m. a. sem yfirmatreiðslumaður á mörgum af skipum Eimskipa- félagsins, og hefir getið sér al- mennar vinsældir i þeim störf- um. Mun því lítill vafi leika á að Hressingarskálinn öðlist miklar vinsældir undir stjórn Ragnars hér eftir, engu síður en hann var vinsæll fyrir breyt- inguna. PdflíSllffll Þjónustufólk skálans verður fjórir þjónar og fjórar stúlkur. Yfirþjónn verður Sigurður B. Gröndal. Veitingatimi skálans verður frá kl. 8.30 f. h. til kl. 11.30 e. li. Matur verður fram- reiddur allan daginn með sér- stökum hádegisverði og kvöld- verði. Auk þess allskonar drykkir, heitir og kaldir. Má óhætt gera ráð fyrir að Hress- ingarskálinn, undir þessum nýju kringumstæðum, verði eitl fullkomnasta veitingahús bæjarins. Finnar bæra ekki á sér. Hlutlausum finnast kostir Rússa ekki harðir. Enn bæra Finnar ekkert á sér í friðarmálunum, en ummæli hlutlausra eru á þann veg, að þeir ætti að taka kostum Rússa. Sænska blaðið Morgentidn- ingen segir, að Finnar verði að gæta þess, að hurðinni, sem nú er opin, verð ekki lokað á nefið á þeim. Götaborgs Handels- og Sjöfartstidning segir, að það sé ekki hægt að segja það, að kost- ir þeir, sem Finnum eru boðn- ir, séu óaðgengilegir. En ef Finn- ar haldi áfram að berjast, þá muni þeir liða undir lok með Þjóðverjum og geti þcir þá sjálf- um sér einum um kennt. Tyrkneski þingmaðurinn Yalchin hefir látið svo um mælt, að ekki sé hægt undir neinum kringumstæðuin að segja, að skilmálarnir sé Iiarðir. Finnar þurfi ekki annað en að minnast skilmála þeirra, sem Italir urðu að beygja sig fyrir, til þess að gera sér Ijóst, hversu miklu bet- ur þeir sleppa. í útvarpi til Austurríkismanna fi'á London er þeirri áskorun beint til, austurrísku Alpaher- sveitanna, sem eru í N.-Finn- landi, að*þeir eyðileggi allan út- búnað sinn og liergögn, ef þeir fá skipun um að halda inn yfir landamæri N.-Noregs. Stokkhólmsblaðið Dagens Nyheter segir að finnska þingið hafi samþykkt tillögu stjórnar- innar um að fallast ekki á tvö fyrstu skilyrðin. Viðbúnaðnr Þjóð- ver ja í Danmörkn Samkvæmt frásögn í blaði frjálsra Dana i London, Frit Danmark, hefir nú þégar verið gerð áætlun um brottflutning íbúanna i Kaupmannahöfn og 38 öðrum bæjum í Danmörku, ef til innrásar kemur. Gerðar hafa verið ráðstafanir til algers brottflutnings úr borg- um þessum og verða þá allir íbúarnir fluttir á burt nema lögreglulið og starfsmenn pósts og síma. Sveitaliéruðunum, sem eru um 1700 að tölu, hefir verið ( gert að skýldu, að taka við ihú- um borganna, ef til þessa skyldi koma. Þýzku yfirvöldin hafa einnig gefið út fyrirskipanir um, að allir þjóðvegir i landinu skuli vera taldir hervegir ef innrás Laxío§§ dreginn á flot í morgun. y aust fyrir hádegi í morgun náðist ms. Laxfoss á flot frá —J Örfirisey, en skipið strandaði þar í aftakaveðri þann 10. janúar síðastliðinn. Það eru vélsmiðjurnar Héðinn og Hamar, sem unnið hafa að því að ná skipinu út, fyrst í stað þó með aðstoð skipa frá Skipaútgerð Ríkisins. Yar lengi fyrst unnið að því að koma skipinu á réttan kjöl og tókst í>að eftir nokkrun tíma. Næst var svo unnið við að þétta skipið. Um síðustu stórstraumsfjöru stóð skipið næstum á þurru. Voru þá settar járnplptur á stærstu götin og skipið þétt. það mikið að öðru leyti, svo unnt væri að draga það í þurrkví. Ekki er gott að segja um hversu viðgerð skipsins tekur lang- an tíma héðan af, en talið er að unnt sé að gera það ferðafært á ný. Ræða fjármála- ráðherra. Eins og skýrt var frá í blað- inu í gær flutti Björn Ólafsson fjármálaráðherra ræðu á Al- þingi þá um daginn. Ræðunni var ekki útvarpað, en þar sem hún fjallaði um mál — afkomu ríkissjóðs á síðasta ári — sem alla varðar, mun Vísir hirta hana á mánudag. Hóf Norræna félags- ins í gærkveldi. Norræna félagið efndi til hófs að Hótel Borg í gærkveldi í til- efni af 25 ára afmæli fyrstu Ýé- lagsdeildanna á Norðurlöndum. Með gesta voru ríkisstjóri, for- sætisráðherra, utanrikismála- ráðherra og sendiherrar Norður- landa. Aðalræðu kvöldsins flutti dr. Björn Þórðarson forsætisráð- lierra. Ræddi liann um nor- ræna samvinnu og þýðingu hennar fyrir fslendinga. Kvaðst hann þess fullviss, að þessi sam- vinna yrði efld og styrkt ennþá meira að stríðinu loknu. Tómas Guðmundsson las kvæði, sem hann liafði ort í til- efni afmælisins, tvöfaldur kvart- elt söng mörg norræn lög, und- ir stjórn Halls Þorleifssonar og loks var dansað langt fram eftir nóttu. Þá ákvað félagsstjórnin i til- efni þessa afmælis að kjósa Svein Björnsson ríkisstjóra heiðursfélaga Norræna félags- ins, og er liann fyrsti og einasti heiðursfélagi, sem Non-æna fé- lagsdeildin hér hefir kosið. — Það var Sveinn Björnsson, sem manna mest gekkst fyrir stofn- un Norræna félagsins á íslandi og var hann iðulega fulltrúi ís- lands á fundum félagsins er- lendis. Á moi’gun kl. 1,30 efnir Nor- ræna félagið til fjölbreyttra hljómleika í Gamla Bíó, þar sem eingöngu norrænar tónsmiðar verða á efnisskránni. Alþingi sennilega frestað í næstu viku. Alþingi liefir verið að störfum rúmlega einn og hálfan mánuð, og er talið sennilegt, að það hælli fundum síðast í næstu viku. Aðalmál Jiessa þings hafa ver- ið að ganga endanlega frá skiln- aðinum við Dani og semja og samþykkja lýðveldislöggjöfina. — Fjárlög hafa verið lögð fram á þessu þingi og verður afgreiðsla þeirra að öllum lík- indum látin bíða næsta þings, sem fyrir hugað et' að komi sam- an á næsta hausti. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á morgun leikritið Ég hcf kornið hér áður eftir J. B. Priestley og hefst sala aðgöngumiSa kl. 4 í dag. Tillaga til þings- ályktunar frá tveim þing- mönnum. Amerískar sprengjuvélar, flug- virki og Liberator-vélar fóru í á- rás á Þýzkaland í morgun. Nokkru eftir hádegi í dag hafði ameríska herstjórnin ekki gefið út neina tilkynningu um árásarstaðinn, en Þjóðverjar sögðu, að ráðzt hefði verið á Berlin •— og er þetta í fyrsta skipti, sem stórar sprengjuvélar ráðast á Berlin í björtu. Þjóð- verjar segja ennfremur, að am- erísku flugvélarnar hafi mætt öflugri mótspyrnu. 2. umferð bridge- keppninnar. önnur umferð meistarkeppni Bridgefélagsins var spiluð á þriðjudagskvöldið. Að henni lokinni stendur stigafjöldi ein- ’ stakra sveita þannig: í 1. Sveit Gunnars Guðmunds- ' sonar 649 stig. 2. Sveit Harðar : Þórðarsonar 624 slig. 3. Sveit 1 Gunngeirs Péturssonar 575 stig. ' 4. Sveit Lárusar Fjeldsted 572 stig. 5. Sveit Axels Böðvarsson- ar 567 stig. 6. Sveit Stefáns Þ. Guðmundssonar 558 stig. 7. Sveit Brands Brynjólfssonar 555 stig. 8. Sveit Ársæls Július- sonar 508 stig. Þriðja umferð verður spiluð á Hótel Borg kl. 1,30 á sunnu- daginn kemur. Aðgangur fyrir félagsmenn er ókeypis. Bandarikjastjórn liefir sent erindreka víðsvegar um lieim til að aðstoða við aukning fram- leiðslunnar i ýmsum löndum, sem standa á lágu stigi að því leyti. * Svíar eru hyrjaðir farþegaflug lil Bretlands á ný. Bretar nota einnig óvopnaðar Moskito-flug- vélar til póstflugs milli land- anna. Reynsla Vestmanna- eyinga. ■T11 veir þingmenn, Jóhann Jósefsson og Eysteinn Jónsson, flytja till. til þál. um séi'staka símaþjónustu í verstöðvum landsins vegna slysavarna. Er liér þarft mál á ferðinni og þess virði, að því sé athygli veitt. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að koma á fót í sambandi við starfrækslu lands- símans sérstakri slysavarna- þjónustu í verstöðvum lands- ins á aðalvertíðum utan hins á- kveðna talsímaþjónustutima, sem er a hverjum stað fyrir sig, þannig að þar, sem þvi verður við komið, sé hlustað á tal- stöðvar fislcibátanna á öllum tímum sólarhringsins, og að séð verði fyrir því, ef þörf krefur vpgna slysavarna, að unnt sé að ná í símasamband við Reykja- vík livaða tíma dags eða nætur sem er.“ I ástæðum fyrir till. segir: „Það liggur í augum uppi, að svo mikilsverð ráðstöfun til ör- yggis sem talstöðvar bátanna eru, kemur því aðeins að not- um, að tryggt sé, að á þær sé lilustað úr landi, og er hér gert ráð fyrir, að það sé gert í samb. við talstöðvar landssimans, eft- ir þeim reglum, er um það kunna að verða settar, meðan liver talsimastöð fyrir sig er op- in livern dag. Reynslan hefir svo leitt liitt í ljós, að utan hins reglulega .slarfstíma stöðvanna er engu minni þörf á því, að hlustað sé eftir bátatalstöðvunum, og hefir ' þetta leitt til þess í stærstu ver- stöð landsins, Vestmannaeyjum, að á fót hefir verið komið þjón- ustu utan stöðvartímans, sams- konar og í þessari þál.tillögu er 1 farið fram á að gert verði yfir- | leitt í verstöðvunum. i Var þetta fyrst gert frá miðj- ; uni febrúarmán. 1943 og til loka i maimánaðar s. á. Ilefir kostnað- | urinn verið borinn uppi að nokkru leyti af Landssimanum og að nokkru leyti af Vest- mann'aeyingum sjálfum. Er hinn sérstaki símavörður að starfi á þeim stað frá ld. 9 að kvöldi til kl. 8 að morgni. Eftir því liefir verið leitað, að Lands- síminn kostaði einn þessa vörzlu, en hann hefir færzt und- an því, og telur að vis« álita- mál, livort kostnaðurinn eigi að berast upp af simafé eða slysavarnafé, en þó sé hið síðara ekki ósanngjarnt, þar eð tekjur þær, er siminn hefir af slíkum störfum, eru sem engar. Landssíminn lieldur því fram og með réttu, að liér sé nær ein- göngu um slysavarnaráðstöfun að ræða og rétt sé, að Alþingi og ríkisstjórn taki ákvörðun nm tilhögun liennar og um l>að, hvort síminn sjálfur beri kostn- aðinn eða hann sé veittur með Frhn á 2. síðu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.