Vísir - 14.03.1944, Side 1
ttltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofun
' Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
34. ár.
Ritstjórar
Blaðamenn Slmli
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgreiðsla .
60. tbl.
Þjóðverjum verður til-
kynnt hvar og hvenær
loftárás verður gerð.
Brezkar flngvclar taka I vor þátt
í dagfárá§nnnm.
Flugher bandamanna ætlar að
eyðileggja þýzka flugherinn,
hversu margar flugvélar sem
hann verður að leggja í sölumar
4il þess.
Frá þessu hefir yfirstjórn
hans skýrt í London og hún bæt-
ir því við, að ef þýzku flugvél-
arnar gefi ekki færi á sér í loft-
bardögum, þá sé ekki annað að
gera en að ráðast á þær á jörðu
og jafnframt verksmiðjur
þeirra.
Kemur þetta til af því, að
Þjóðverjar hafa verið ófúsir til
að senda orustuvélar sínar til
bardaga við flugvélar þær, sein j
gert hafa árásir að degi til að
undanförnu, nema veður liafi
verið mjög gott, svo, að víst var,
að skilyrði til sprengjukasts
voru góð. Þannig var til dæmis,
þegar ráðizt var á Berlin síðast.
Þá sáust að vísu þýzkar orustu-
vélar, en þær gættu þess að ráð-
ast eingöngu á þær af amerísku
vélunum, sem höfðu laskazt og
drógust aftur úr. Á leiðinni til
Berlínar var heldur ekki reynt
að dylja, hver árásarstaðurinn
væri, því að Læði var stefnan
tekin heint og flugmennirnir
töluðu milli flugvélanna um á-
rásarstaðinn.
„Ef þessu heldur áfram“,
segir flugstjórnin enn-
fremur, „verður ef til vill
gripið til þess ráðs, til að fá
Þjóðverja til bardaga, að
tilkynna þeim formlega
fyrirfram, hvar og hvenær
sé áformað að gera árás
næst.“
Gert er ráð fyrir því í London,
að stórar enskar sprengjuflug-
vélar muni verða látnar fara að
Bandaríkjamenn taka
tvær Admiralty-eyjar.
Bandaríkjamenn hafa gengið
á land á tveim Admiralty-eyj-
anna, en voru áður aðeins á Los
Negros.
Komið hefir lil harðra har-
daga á Bougainville-eyju í Salo-
monseyjum, en þar liefir verið
heldur rólegt undanfarnar vilc-
ur. Hafa Japanir gert gagná-
fclaup, í þeirri veiku von, að þeir
geti með því móti skapað sér
tækifæri til undankomu.
Amerískar flugvélar hafa gert
ársáir á Wake, Nauru og þrjú
hringrif í Marshall-eyjum.
taka þátt í dagárásum á Þýzka-
land, þegar kemur fram á vorið.
U.S. neitar Eire
um skip.
Flutningum e.t.v. hætt
með brezkum skipum.
Bandaríkjamenn hafa neitað
að selja Eire flutningaskip.
Neitunin var hyggð á því, að
Eire væri ekki hlutlaust í stríð-
inu, þar sem það hefði áður
fengið skip frá Bandarikjunum,
en þegar Þjóðverjar liefði sökkt
þeim, þá hefði eklci verið hreyft
neinum mótmælum.
Þingmaður Belfast-háskóla í
Norður-íriandi mun bera fram
i neðri málstofu brezka þingsins
í dag þá fyrirspurn, hvort rétt
sé að brezkum sjómannalifum
sé stofnað í liættu fyrir Eire
með flutningum á kolum og
öðrum nauðsynjum þangað.
Amerísk hlöð segja, að sam-
göngubannið hafi verið sett á
vegna óska Eisenhowers, sem
taldi það nauðsynlegt.
Llewellyn í eftir-
litsför í Fleet-
wood.
Landburður af fiski
þar.
Llewellyn, maívælaráðherra
Breta, hefir verið í eftirlitsferð
í Fleetwood.
Ráðherrann tók sér för þessa
á hendur, til þess að ganga úr
skugga um kvartanir þær, sem
fram hafa komið frá fiskimönn-
um og fiskkaupmönnum þar á
staðnum um ólag á dreifingar-
fyrirkomulagi á fiskinum, en
það hefir viljað brenna við,
þegar mikið hefir borizt á land,
að ekki hefir verið unnt að
koma fiskinum til allra mark-
aðsborganna.
Undanfarna tvo sunnudaga
hefir verið meiri landburður af
fiski úr enskum og íslenzkum
logurum en dæmi eru til áður.
Ilafa jafnvel drengir, sem eru
16 ára, unnið sér inn fjögur
sterlingspund fyrir vinnu til há-
degis.
Llewellyn hét verkamönnum
í Fleetwood ýmsum fríðindum
og endurbótum á kjörum þeirra.
Rússar hafna
boðum Finna
Rússar hafa hafnað gagn-
J tilboðum Finna í friðarmál-
unum, herma fregnir frá
Stokkhólmi.
Segir í fregnum þessum
ennfremur, að Rússar hafi
einungis haft tilboð Finna til
athugunar örskamma stund,
áður en ákvörðun var tekin
um að svara þeim þannig, að
þau væru með öllu óaðgengi-
leg. Er þess nú beðið með enn
meiri óþreyju en áður í
Stokkhólmi, að eitthvað ger-
ist í málum þessum, svo að
Finnar losni úr stríðinu.
Róm verður vígvöllur
ef Þjóðverjar verjast
þar.
Hull hefir svarað blaðamönn-
um, sem spurðu um afstöðu
bandamanna til ræðu páfa á
sunnudag.
Páfi bað liernaðaraðilja að
gæta þess, að Rómaborg yrði
ekki gerð að vígvelli. jHull svar-
aði því, að Þjóðverjar hefði
gert sér virki úr ýmsuiri helgi-
húsum og gömlum byggingum,
en bandamenn tæki aðeins tillit
lil hernaðarnauðsynjar. Ef Þjóð-
verjum væri eins annt um
menningarverðmæti og þeir lála
i veðri vaka, mundi ekki þurfa
að berjast í Rómaborg.
17. júní:
Hátíðarnefnd
skipuð.
Forsætisráðherra liefir slcip-
að fimm manna nefnd til að
undirbúa hátðahöldin 17. júní,
— fjóra skv. tilnefningu
stjórnmálaflokkanna, en hinn
' fimmta, formanninn, án til-
nefningar.
I nefndinni eru:
Dr. phil. Alexander Jóhann-
esson, prófessor, formaður.
Jóhann Hafstein, lögfr., til-
nefndur af Sjálfstæðisfloklcn-
um.
Ásgeir Ásgeirsson, alþm.,
tilnefndur af Alþýðuflokknum.
Einar Olgeirsson, alþm., til-
nefndur af Sameiningarflolcki
alþýðu. — Sósíalistaflokknum.
Guðlaugur Rósinkranz, kenn-
ari, tilnefndur af Framsóknar-
flokknum.
Bandamenn eru farnir að nota Spitfire-vélar til sprengjuárás.i á Ítalíu. Myndin hér að ofan
sýnir slíka flugvél og er spreng an fest undir hana.
Hitler rekur hershöfðingja Mið-
og Norður-vígstöðvanna.
Samsöngur fjögurra karla-
kóra fyrir söfnunina
handa Dönum.
Hann verður haldinn á sunnudaginn.
Rússar draga að
sér mikið lið hjá
Murmansk.
20.000 Þjóðverjar felldir
í 7 dag sókn Rúðsa
til Kerson.
Fjórir karlakórar bæjarins
liafa orðið við tilmælúm fjár-
söfnunarnefndar vegna danskra
flóttamanna, umáð halda sam-
söng í fjáöflunarskyni fyrir
söfnunina og fér liann frám
sunnudaginn 19. þ. m. kl. 214 •
síðd. í Gamla Bíó. Kórar þeir,
sem liér um ræðir erú Karla-
körinn FÖstbræður, söngstjóri
Jón Halldórsson, Karlakór
Reykjavíkur, söngstjóri Sigurð-
ur Þórðarson, Karlakór Iðnað-
armanna, söngstjóri Robert
Abraham og Karlakórinn Kátir
félagar, söngstjóri Hallur Þor-
leifsson.
Er hér um mikla fórnfýsi og
velvild að ræða af hálfu kór-
anna, með þvi að senn líður að
þeim tíma, sem þeir eru variir
að halda árlegar söngskemmt-
anir sínar fyrir bæjarbúa. Mun
marga fýsa að hlýða á kóranna,
með því að þeir hafa ekki sung-
ið saman frá þvi árið 1934 er
síðasta söngmót Sambands is-
lenzkra karlakóra var haldið.
Mun liver kór syngja þrjú lög,
en því næst sameiginlcga þjóð-
söngva íslands og Danmerkur.
í kórunum munu samtals vera
um 150 menn.
Eigendur Gamla Bíós hafa
jafnframt sýnt þá rausn að láta
húsið í té endurgjaldslaust og
verða af venjulegri sunnudags-
sýningu á þessum tima dags.
Stntt ®>$p laggott
Kanadiskur liðsforingi af
frönskum ættum hefir verið
sæmdur Viktoríukrossinum
fyrir hreysti á Ítalíu.
★
Vichy-útvarpið liefir tilkynnt
þvingunarbrottflutning frá
Brest á því fólki, sem þarf ekki
nauðynlega að vera þar.
★
Wildress, fyrsti sendiherra
Kanada í Moskva, gekk í gær
á fund Molotovs utanríkismála-
ráðherra.
★
Þrjú ríki, Mexiko, Kolumbia
og Venezuela, öll i S.-Ameríku,
hafa tekið upp stjórnmálasam-
band við Badoglio-stjórnina.
★
Rúmlega sjötug kona i Banda-
ríkjunum kveðst ætla að bjóða
sig fram til forseta. Segist sú
gamla hafa verið að búa sig und-
ir þetta starf alla ævi og nú sjái
hún fram .á það, að liún. muni
geta innt það miklu betur af
hendi en núverandi forseti.
★
Ellefu kaupskipum var hleypt
af stokkunum i Bandaríkjunum
í gær, eða alls 315 frá striðbyrj-
un.
★
Bandarikjamenn eru farnir
að nota nýa gerð flisasprengja
á Ítalíu. Vegur hvcr sprengja
um 20 pund.
85.51 i eint ni
útsium iiirir 1843.
Innheimta útsvara er mikil-
vægur þáttur í tekjuöflun bæj-
arfélagsins til almennra fram-
kvæmda. Ríður því mikið á að
borgararnir láti ekki sinn hlut
eftir liggja í greiðslu þessara
fjárhæða.
Vísir hefir innt borgarritara
eftir innlieimtu útsvarsgjalda
fyrir árið 1943. Tjáði borgarrit-
ari blaðinu að um mánaðamótin
febrúar og marz þetta ár hefði
verið búið að innheimta 9514%»
eða um 19,000,000 króna af á-
ætluðum útsvörum fyrir árið
1943. Á sama tíma í fyrra var
búið að innheimta 97V2%, eða
10,5 milljónir króna af áætluð-
um útsvörum fyrir árið 1942.
Borgarritari sagðist gera ráð
fyrir, að enn ætti eftir að koma
inn talsvert af eftirstöðvum út-
svaranna frá 1943.
JXitler hefir sett tvo af
** marskálkum sinum af,
segir i frégnum sem horizt
hafa til Lundúna, og hsékk-
að tvo undirménn þéirra
upp í stöður þei ira. ' -
Marskálkar þessiri eru Kúcli-
ler, sem hefir haft á héndi að
undanförnu stjórnina á norður-
hluta austurvigstöðvanna, það
er hjá Leningrad og þar fyrir
sunnan, og Kluge, sem liafði
stjórn á liendi þar fyrir sunnan,
milli Kuchlers og Mannsteins.
í stað Kúchlers hefir komið
Moder, hershöfðingi, sem áður
stjórnaði 9. þýzka hernum, og
í stað Ivluge Busch, sem var áð-
ur yfirmaður 16. hersins.
Liðssafnaður
nyrzt í Rússlandi.
Finnskar fregnir herma, að
Rússar sé að draga að sér mikið
lið hjá Murmansk og muni þeir
hafa í liyggju að hefja sókn á
næstunni gegn herdeildum
Diells liersliöfðingja, áður en
hann hefur brottflutning liðs-
ins og hefir gefizt tími til að
eyðileggj a nikkelnámurnar.
Handknattleiksmótið.
Önnur umferð handknattleiks-
mótsins hélt áfram i gærkveldi.
Fóru leikar þannig, að kven-
flokkur Ilauka vann FH mcð
16:6 mörkum, ennfremur vann
2. fl. jHauka FH með 15:8, en i
meistaraflokki vann Valur Fra.ni
með 16:12 mörkum.
í kvöld kejjpa ÍR og KR i
kvenflokki, FII og ÍR í 1. flokki
og Haukar og KR í meistarafl.
Aímælissundmót K.R.
Afmælissundmót KR fór fram
í Sundhöllinni í gærkveldi. Unn-
ust þar tVeir bikarar til fullrar
eignar. Annan vann Stefán Jóns-
son (Á) í 100 m. frjálsri aðferð
á 1:06.4 mín., en hinn vann Sig-
urður Jónsson (KR) á 200 m.
bringusundi á 3:03.2 mín.
50 m. baksund drengja vann
Halldór Bachmann (Æ) 38.4
sek., i 100 m. bringusundi
kvenna sigraði Unnur Ágústs-
dóttir (IÍR) á 1:39.8 min., i 300
m. frjálsri aðferð karla Ari
Guðmundsson (Æ) á 4:17.4
mín., i 50 m. baksundi karla
Guðmundur Ingólfsson (ÍR),
36.2 sek., í 50 m. frjálsri aðferð
drengja Halldór Bachmann (Æ)
á 31.7 sek. og i 50 m. bringu-
sundi drengja Guðmundur Ing-
ólfsson (ÍR) á 38.5 sek.
Þá viar ennfremur keppt í
tveimur boðsundum og vann
KR bæði. Annað var 4x50 m.
bringusund kvenna, á 3:07.5
mín. og liitt 3x50 m. þrísuhds-
boðsund á 7:43.8 mín.
Loks var sundsýning 16 sund-
meyja úr KR, sem tókst með á-
gætum vel, enda vöktu þær
mikla hrifningu áliorfenda.
\
Taka Kerson.
Dagskipan var gefin út í gær
um töku Kerson, eftir sjö daga
sókn Malinovskis. Sóltu lier-
sveitir lians fram 70 km. veg
tvo síðustu dagana, en frá því
að sóknin hófst liafa Rússar fellt
þarna 20,000 Þjóðverja og telcið
2500 höndum.
Herfang Rússa hefir einnig
verið mikið. Þeir hafa tekið 87
skriðdreka, 64 sjálfakandi fall-
byssur, 336 fallbyssur annara
tegunda, auk 5000 bila og 240
járnbrautarvagna. Þeir hafa
einnig eyðilagt gríðarmikið af
hergögnum fyrir Þjóðverjum.
i
Sókn Konievs Zukovs.
jHættan færist nú óðum nær
Proskurov, þv íað flótli hersveit-
anna þýzku, sem liörfa undan 2.
Ukrainuhernum, verður æ ó-
skipulegri. Skilja þær eftir nær
öll þung hergögn, en margir Iier-
manna létta einnig á sér á flótt-
anum, með því að skilja eftir
riffla sína.
I Vinnitsa-héi’aði hafa Rússar
sótt fram og tekið 60 bæi, með-
al annars Nikovets.
Fyrir suðatistan Tarnopol
tóku Rússar í gær borgina Skal-
at. Eru þeir þar aðeins um 70
km. frá bökkum Dnjestr og
landamærum Rúmeníu.
Blaðamönnum
og nokkrum öðrum gestum var
í gær boSið aS sjá sænska kvik-
mynd, sem Tjarnarbíó hefir nýlega
fengiS hingaS til landsins, ásamt
nokkrum öðrum sænskum myndum.
Danski leikarinn Poul Reumert leik-
ur sænskan krónprins í þessari mynd
og mun marga fýsa aS sjá hann í
því hlutverki, þegar fariS verSur
aS sýna myndina hér opinberlega.