Vísir - 14.03.1944, Síða 3
V I S I R
annars flolcks kermenn undir
stjórn sinni. -
Ein af ástæðunum fyrir því,
hvað Bretar liafa gert miklar
árásir á Berlin, er sú, að undan-
farna mánuði hefir farið um
borgina nær óslitinn straumur
herflutningalesta frá Rússlandi.
Og i j>essum lestum liafa verið
harðskeyttustu og reyndustu
herdeildir Þjóðverja, sem eiga
að manna varnirnar á vestur-
ströndinni.
Fregnir þær, sem borizt hafa
til Stokklióhns, henda einnig til
Jiess, að siðferðisþrek her-
mannanna i Yestur-Evrópu sé
enn í bezta lagi og miklu betra
en hersveita Þjóðverja annars
Staðar í Evrópu.
1 Noregi hafa hermennirnir
gerzt þunglyndir og allmargir
reynt að strjúka og í Eystra-
saltslöndunum liafa hermenn
horfið, til þess að ganga i lið
með skærusveitunum, sem
nefnast „grænu sveitirnar“.
Hefir þetta farið i vöxt eftir
þvi, sem Rússar hafa nálgast.
þessi lönd.
Aðvörun.
I Berlín hafa hermenn verið
varaðir við því, að vera lengur
heima, en þeir hafa leyfi til.
Hafa talsverð brögð verið að
þessu. Er tilkynnt í götuauglýs-
ingum, að l>að teljist engin af-
sökun, þótt hermenn dragi
brottför sína, til l>ess að hjálpa
fjölskyldu sinni, sem hefir
misst liúsnæði sitt i loftárásum.
En allt bendir til þess, að her-
sveitirnar i Vestur-Evrópu biði
þess með óþreyju aðþreytafang-
brögð við bandamenn. Þær virð-
ast gunnreifar likt og Bretar
1940, l>egar innrás vofði yfir
Bretlandseyjum og þeir stóðu
einir uppi.
Þjóðverjar gera allt, sem þeir
geta, til þess að viðlialda þessum
siðferðisþrótti og þótt almennir
borgarar á meginlandinu hafi
ekki séð súkkulaðistöng eða
annað slíkt góðgæti mánuðum
eða árum saman, þá skortir her-
mennina í Vestur-Evrópu það
aldrei. Það er ekki svo langt síð-
BarDasokkarnir
góðkunnu, í mörgum litum
pg öllum stærðum, komnir
aftur.
Sportföt.
Skíðapeysur, röndóttar.
Skíðasokkar.
Kvenkápur.
Leð írnason & Co.
Laugavegi 38.
Fyrir vorhreingerningamar:
Qnilliiratirkir
Ofnsverta
Húsgagnaáburður:
Renel, Goddard’s
Liquid Venneer
Sítrónu húsgagnaolía
Sflvo silfurfægilögur
Brasso fægilögur
Bon Ami, gluggasápa
Red Seal vítissódi
Bón, Mansion
Burstar:
Miðstöðvarburstar
Panelburstar
Hreingerningarkústar
Skrúbbur
Kústsköft
Gólfklútar
an Þjóðverjar sáu i dagblöðum
sínum myndir af hermönnum,
sem voru að liandleika. súkku-
laðistengur. Á þær var letrað
stórum stöfum: „Einungis fyrir
hermenn á vígvöllunum“.
Geymt til
framtíðarinnar.
Þjóðverjar virðasl liafa gætt
þess vandlega að eyða ekki öll-
um forða sínum af orustuflug-
vélum, til þess að eiga þær, þeg-
ar nauðsynin verður mest.
Á sama liátt lireyfá Þjóðverj-
ar ekki við rakettubyssum sín-
um, til þess að geta notað þær
og notið hinna óvæntu áhrifa af
þeim, þegar bandamenn leggja
í innrásina. Þeir liafa aðeins
notað minni gerð í tilrauna-
skyni í Rússlandi.
Allar vonir Þjóðverja byggj-
ast á því, að innrásin misheppn-
ist, eða að minnsta kosti, að
innrásarherinn bíði ægilegt
manntjón, lielzt svo að yfir-
mönnum hans lirjósi hugur við
að Iialda blóðbaðinu áfram.
En munu þeir, sem heima
sitja og eru að bila fyrir loft-
árásunum, geta veitt liernum
nægilegan stuðning, þegar til
lokahriðarinnar kemur ?
Næst:
SEXÞÆTT ÁÆTLUN
TIL AÐ KOMAST HJÁ
ÓSIGRI.
□ Edda 59443147 =R.*.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Erindi: de Gaulle og
uppgjöf Frakklands (Eiríkur Síg-
urbergsson viðskiptafræðingur).
21.05 Tónleikar Tónlistarskólans:
a) Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir
Debussy. b) Rondo í G-dúr eftir
Mozart. (Björn Ólafsson og Árni
Kristjánsson). 21.25 Tónlistar-
fræðsla fyrir unglinga (Róbert
Abraham). 21.55 Fréttir og dag-
skárlok.
Næturakstur.
B. S. í., sími 1540.
Húsbyggingasjóði Í.R.
barst á aðaldansleik félagsins s.I.
laugardag 45 þús. kr. gjöf frá nokk-
urum eldri félögum. Leggur félag-
ið allt kapp á að efla húsbyggingar-
sjóðinn sem mest, til að unnt verði
að koma húsinu upp sem fyrst.
Konur í bazarnefnd
Kvenfélags Frjálslyndasafnaðar-
ins, eru beðnar að mæta í Kirkju-
stræti 6 kl. 8^2.
Háskólafyrirlestur
Hjöi'varður Árnason flytur
annan háskólafyrirlestur sinn í
kvöld kl. 8.30 í hátíðasal Háskól-
ans. Efni: Frá rococo til realisma.
Málaralist i Evrópu og Ameríku á
18. öld og fyrri helmiugi 19. aldar.
Skuggamyndir sýndar til skýringar.
öllum heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir.
Hjónaefni.
Á laugardaginn var opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Guðný Vig-
fúsdóttir og Jón Níelsson frá Svefn-
eyjurn, bæði til heimilis að Þjórs-
árgötu XI.
Flugsveitin Ernir -
heitir kvikmyndin, sem Nýja bíó
sýnir um þessar mundir. Er hún
byggð á sögu flugsveitar amerískra
sjálfboðaliða, sem barðist með
brezka flughemum, áður en Banda-
ríkin drógust inn í styrjöldina, en
vafið er í ástamálum og öðrum æv-
intýrum. Myndin er spennandi og
eftirtektarverð. Aðalhlutverkin leika
Robert Stack, Diana Barrymore og
Jon Hall.
Blaðamannafélagið.
1 frásögn af fundi félagsins í
gær var talað um Minningarsjóð
þess, en átti að vera Mennmgar-
sjóðnr. — Skúli Skúlason baðst
mjög eindregið undan endurkosn-
ingu í formannssæti, en hann hefir
verið formaður undanfarin tvö ár,
og verið lífið og sálin í félaginu.
Nafnlaus bréf.
Að gefnu tilefni, skal þess getið
enn einu sinni, að blaðið birtir ekki
greinar undir dulnefnum, nema það
viti deili á höfundi.
Asgerður Þórðardóttir.
Kveðja frá skólasystkinum í Verzlunarskólanum.
Þrátt fyrir skamman aldur,
og þar af leiðandi stutta skóla-
samveru, munum við skóla-
systkini hennar seint gleyma
henni. Framkoma hennar í einu
og öllu, hefir markað svo djúp-
ar minningar í hugum okkar,
að þær munu aldrei afmást.
Hún var alllaf glöð og ánægð,
stundaði lærdóminn af kappi
og var alltaf reiðubúinn til að
leggja fram krafta sína, hvenær
svo sem félagssamtök beklejar-
systkinanna þurftu á að halda.
Hún var ein af oklcur. Því varð
stórt skarð fyi’ir skildi, er hún
fyrir tveim árum varð að hætta
námi vegna veikinda.
Við gerðum okkur vonir um,
að við mundum endurheimta
hana vorið eftir, en svo varð
ekki, Við hættum samt ekki að
láta okkur dreyma, en nú er
draumurinn úti. Hún er horfin.
Þótt mörg okkar liafi ekki séð
hana frá því liún hætti i skólan-
um, er hún samt jafn ljós í hug-
um okkar nú, og daginn sem
hún hætti.
Yfir minningu hennar livílir
birta, sem mun lýsa um ókomna
daga, birta, sem mun lýsa okkur
félögum hennar, sem leiðarljós
í framtíðinni, birta samvizku-
seminnar og skyldurækninnar,
birta kærleikans og ástúðleik-
ans.
Ásgeröur Þópðapdóttip.
Ljódblik.
Hvaðan er ljósið, sem barnssálin ber,
bros frá þeim heilaga leyndardómi?
Hvaðan er ándinn, sem kemur og fer?
Hvaðan er allt það, er hugurinn sér?
Samhljómasköpun frá Algeislans ómi ....
Hvaðan er lífið, sem dafnar og deyr,
draumur og minning, höfgi og vaka?
Hvaðan er ástin, hinn þagnblíði þeyr,
þráin til lifsins, hinn ilmandi reyr
mannslíf, sem kemur og hverfur til haka?
Hver var hún Ásgerður? Engill, sem er
til upphafsins mikla í himininn stíginn,
er minningin heilaga saknar og sér,
send til að vitna um stjarnanna her
niður til Jarðar frá háhveli hnigin?
Hvað ert þú, efni, þú, tími, þú, tál?
Töfrandi blekking? Já ertu þá meira:
aldanna skuggi með eilífa sál,
alheima viljamagns hljómandi stál,
maðurinn Guð háður holdi og dreyra? *
Eg spyr, og eg kveð, og eg salcna, syng,
og sé aðra standa með tárvota hvarma.
En vér skyldum lita á hnattkerfa liring
og horfa til ljóssins, þótt dimmt sé um kring,
unz sál vor af fögnuði full er og varma ....
Eg veit þótt eg spyrji um göfugan gest,
sem genginn er, liðinn til Ríkis heima,
þar hitti á verði sinn heilaga Prest.
I lximninum englinum líður víst bezt ....
Skyldmennum Ásgerður aldrei mun gleyma.
Þvi bið eg þig, eilífa Alheimsljós,
þig, Andi, þig, Máttur, Kærleikur, Vilji,
að skína í mildi á mjallhvíta i’ós,
og myrkrinu dreifa við jarðneskau ós,
þótt efnið þinn sannleik: helgidóm hylji.
Ó, flæð nú um Jörðina, frumsólna Líf,
Fullveldið himneska, þvo hennar steina.
Til Ásgerðar byggða i bæn minni svíf.
Hún biður þig, Drottinn, þig, skjöld vorn og hlíf.
Hún krýpur, til vígslu, við Altarið eina.
Sigfús Elíasson.
LeiSrétting.
Sú villa slæddist inn í greinina
um Stjórnarráðshúsið í „Bænum
okkar“ í gær, að byggingarkostn-
aður hússins var birtur 800 í stað
8000 ríkisdalir. Þetta leiðréttist hér-
með. H. B.
Bridg-ekeppnin
lieldur áfram í kvökl að Hótel
Borg og hefst kl. 8. Öllum heimill
aðgangur, jafnt utanfélagsmönnum
sem félögum. Er þetta 5. umferð
keppninnar.
Samvinnan,
1. hefti 1944, er nýkomið út. —
Með þessu hefti hefir tímaritið
stækkað tun helming og hefir Jón
Eyþórsson veðurfræðingur verið
ráðinn ritstjóri ritsins, auk þeirra,
sem fyrir voru. Þetta nýja hefti
Samvinnunnar flytur mikinn fróð-
leik um ýms efni m. a. um húsa-
byggingar, söfnun lausavísna, þætti
úr ferðabók Sveins Pálssonar og
margt fleira.
Anglíu-fundur
verður haldinn að Hótel Borg
næstk. fimmtudag kl. 8.45 e. h. Vig-
fús Sigurgeirsson ljósmyndari sýn-
ir litkvikmynd af íslandi og Dr.
Cyril Jackson skýrir myndina. Á
eftir verður dansað. Þessi fundur
er einungis fyrir félagsmenn og
verður húsinu lokað kl. 9 e. h.
Bezt aö auglýsa 1 VISL
AÐVÖRUN.
Að gefnu tilefni skal hér með vakin athygli á því, að
bannað er að bera á tún og garða, sem liggja á almanna-
færi, nokkurn þann áburð, er MEGNAN ÖÞEF leggur
af, svo sem fiskúrgang, svínasaur o. s. frv;.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 13. marz 1944-
Agnar Kofoeá-Hansen.
Geymslupláss,
;;
rúmgott, þurrt og rakalaust,
óskast nú þegar. A. v. á.
Orðsending
Þeir áskrifendur Vísis er kunna að verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru vinsamlega
beðnir að snúa sér s t r a x til afgreiðslu
_ blaðsins í síma 1660, eða kl. 10—12 fyrir há-
degi næsta dag.
Eikarskrifborð
fyrirliggjandi.
Trésmlðavinnnstofaii
Mjölnisholti 14. — Simi 2896.
Árshátíð Handíðaskólans.
Nemendur Handíðaskólans efna
til ársskemmtunar sinnar í Oddfel-
lowhúsinu næstk. fimmtudag. Með-
al skemmtiatriða er upplestur á
goðakvæðinu Hamarsheim, er segir
frá viðskiptum Jóns við jötuninn
Þrym. Samhliða upplestrinum verð-
ur efni kvæðisins lýst með litmynd-
um, sem nemendur myndlistadeild-
arinnar hafa gert. — Ennfremur
verður sýnd mjög skemmtileg’
teiknikvikmynd úr „Þústtnd og ehmi
nótt“. Er þetta tal- og hljómmyná
með litum. — Aðgang að þessari
skemmtun hafa bæði núverandi og
fyrri nemendur skólarts, jafnt nem-
endur fastri deilda sem nemendur
námskeiða. Áskriftalisti liggur
frantmi i Bókav. Sigf. Eymunds-
sonar.
t