Vísir - 05.05.1944, Page 2
y í sir
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VfSIR H.F.
Ritstjórar: Eristján Gnðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjnnni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Féalgsprentsmiðjan h.f.
Þjoðhatiðm,
Svo var í upphafi ráð fyrir
gert, að þjóðhátíð sú, sem
haldin verður á Þingvöllum 17.
júni n. k., þar sem formlega
verður gengið frá endurreisn
lýðveldisins, verði með engum
oflátungsbrag. Hún á öllu öðru
frekar að vera virðuleg þjóð-
hátíð, samboðin lítilli þjóð, sefn
yeit getu sína og veikleilca, og
gengur heldur ekki dulin þeirra
hörmunga, sem allsráðandi eru
i lieiminum þessi árin. Óhætt er
að fullyrða, að væri friður ríkj-
andi myndi dagurinn reynast
meiri gleðihátíð en nú verður,
með þvi að þar verður bæði
'glaðst og hryggst, í stað þess
að gleðjast einvörðungu.
Islendingar hafa vitað um
aldir hvað þeir vildu o'g jafn-
framt hitt, að rétti var haldið
fyrir þeim. Sá -réttur verður
endurheimtur, ef þjóðin gerii
skyldu sina, en þvi iögmáli
verða allir að lúta, sem vilja
eiga eitthvert föðurland og
vinna því eftir mætti. Ekki er
það að efa, að hver einstakling-
ur, kona og karl, neyti áhrifa
sinna við kjörborðið þar til
þjóðaratkvæðagreiðslan er um
garð gengin. Enginn rólfær
maður má sitja heima og eng-
inn vitandi vits láta hjá líða að
greiða atkvæði á heimili, eigi
hann ekki annars kosts. Ten-
ingunum er varpað, en hvað
uppi á þpim verður ræður þjóð-
in. Einstaklingarnir, sem allir
eru sammála um lokamarkið,
ráða tölufjöldanum með og í
móti. Otlendir menn, sem hér
dvelja eða þekkja sögu lands-
ins og stjórnmálaþróun, hafa
lýst yfir því, að þeir telji sam-
bandssfít nú eðlileg og réttmæt,
enda hafi verið ráð fyrir þeim
gert áður en stríðið skall ♦ á.
Hvað þá um íslenzka kjósendur
til sjávar og sveita, sem sjálfir
hafa tekið þátt í baráttunni að
því marki, sem nú verður náð?
Islendingar, sem erlendis
dvelja, munu eflaust neyta at-
kvæðisréttar síns, eftir því sem
við verður komið hjá sendifull-
trúum landsins. Enginn vafi
leikur á vilja þeirra velflestra.
Fegnir vildu þeir allir vera
horfnir heim þjóðhátíðisdaginn
17. júní og fagna viðburðinum
með okkur liinum á Þingvöll-
um, en þess munu þeir fæstir
eiga kost. Þeir •verða að lúta
sömu lögum og -aðrir, sem eiga
ekki heimangengt, en auk
þeirra verður allur þorri lands-
mánna að láta sér nægja með
^heyrn en ekki sjón, enda licfir
hátíðanefndin tilkynnt, að hún
telji á þvi öll tormerki, að unnt
reynist að flytja alla þá, sem
næstir búa, til þingstaðarins,
eða tryggja þeim þar vistarver-
ur. Þetta er eðlilegt vegna allra
aðstæðna, og æítu menn því í
tíma að gera sjálfir nauðsyn-
legustu ráðstafanir til áð kom-
ast á hátíðina og sjá sér fyrir
sæmilegri aðbúð. Þeir, sem yfir
tjöldum eiga að ráða, gætu auð-
veldlega farið þangað daginn
áður og dvalið þar yfir nóttina
í útilcgu. Jafnframt verða allir
að gera sér ljóst, að þeir fara
ekki til Þingvalla að þessu sinni
eingöngu sér til skemmtunar,
heldur og öðrurn og ekki er
viðeigandi að menn misskilji
Verkfallið í vegavinnunni.
HAFA KOMMÚNISTAR LÝST YFIR
VERKFALLI, SEM ER ÖLÖGLEOT?
I
Alþýðusambandið heimfar kauphækkun
utan sinna féiagssvæða.
jj^jins og kunnugt er, hefir Alþýðusambandið stöðvað alla
vinnu við vegagerð, brúa og vitasmíði, og ástæðan
fyrir þessari alvarlegu ákvörðun er svo furðuleg, að undrun
sætir. Virðist ástæðan vera sú, að ríkisstjórnin vill ekki
hækka það kaup, sem gilti í fyrra og enn gildir, utan
félagssvæða verklýðsfélaganna. Krafa sambandsins er svo
fjarri allri sanngirni, að engu tali tekur.
andi er á því félagssvæði, sem
hahn fer til, hvort sem kaupið
er þar hærra eða lægra en á
hans eigin svæði. Verkamaður,
sem er á félagssvæði, er greið-
ir 2.40 um tímann, en fer yfir
á annað félagssvæði, er greiðir
2,10 um tímann, getur auðvit-
að ekki heimtað þar sama tíma-
kaup og er á hans eigin svæði.
Krafa Alþýðusambandsins i
þessu efni er því hreinasta fjar-
stæða og óviðunandi óhilgirni.
Samningur eða fyrirskipun.
Það hefir jafnan verið talið
sjálfsagt, að samið væri um
kaup og kjör og allar reglur
um slíkt væri settar með sam-
komulagi beggja aðilja. En upp
á síðkastið liefir almenningur
ekki komizt hjá að veita því
athygli, að/ allar slikar samn-
ingsgerðir Alþ.samb. éru nokk-
uð einhliða og mótaðilinn er
látinn finna, að hann er ekki að
semja, heldur er hann að taka
á móti fyrirskipun. Við þetta
bætist svo heldur lítið fáguð
> framkoma þeirrg, sem þykjast
geta skipað tfyrir. Þetta sýnist
benda til þess. að þessir nienn
skilji ekki hlutverkiðýog þeim
sé annað betur lagið en það,
að sýna sanngirni og kurteisi
þeim, scm þeir scmja við.
Er verkfallið löglegt?
Samkvæmt tilkynningu frá
vegamálastjóra virðist rikis-
stjórnin telja vafa á því, að
verkfallið sé löglegt og mun því
leita úrskurðar vinnudómsins.
Um rétt stéttarfélaga til að
hefja verkfall er að finna í 15.
gr. vinnulöggjafarinnar. Þar
segir svo:
15. gr.
„Þegar stéttarfélag eða félag
atvinnurekenda ætlar að hefja
vinnustöðvun, þá er hún því
aðeins heimil, að ákvörðun um
hana hafi verið tekin:
a. við almenna ieynilega at-
kvæðagreiðslu, scm staðið
hefir a. m. k. í 24 klst., enda
hafi félagsstjórnin auglýst
hvar og hvenær atkvæða-
greiðslan um vinnustöðvun-
ina skyldi fara fram.
b. af samninganefnd eða fé-
lagsstjórn, sem gefið hefir
verið umboð til að taka á-
Ef ríkisstjórnin hefði geng-
ið að þessari óbilgjörnu
kröfuj munch hún hafa tek-
íS á sig ábyrgð á nýjum kaup-
hækkunum í öllum sveitum
landsms.
En þetta kallar Þjóðviljinn
„kauplækkunárkröfur“ af
hendi ríkisstjórnarinnar.
Fullt kaup, öll hlunnindi.
Af framkomu Alþýðusam-
bandsins verður ekki annað séð
en að fyrir því hafi vakað, að
bera lram slíkar kröfur, að rík-
isvaldinu væri ógerlegt að
ganga að þeim. Að því búnu
átti svo að stöðva allar verkleg-
ar framkvæmdir rikisins ineð
verkfalli um land allt og með
. því skapa fullkomið öngþveiti
í samgöngum á öllum vegum.
Sýnir þetta betur en flest ann-
að, hversu þeir menn, er nú
hafa forustu sambandsins, nota
vald þess með fullkominni ó-
fyrirleitni og ábyrgðarleysi.
Ríkisstjórnin hcfir boðizt til
að greiða á þessu sumri gil<J-
andi verkakaup verklýðsfélaga
á félagssvæðum þeirra og utan
félagssvæðanna, eða á þeim
stöðvum, sem engin verkljðs-
félög eru, sé greitt sama kaup
og síðasta ár og eftir sömu
kaupsvæðaskiptingu. Enn frcm-
ur að verkamenn fái öll hin
sömu hlunnindi og áður.
Mörgum mun nú finnast, að
ekki sé hægt að bjóða betur en
greiða hvarvetna það kaup, sem
gildandi er á félagssvæðum
verklýðsfélaganna. En það er
stjórn sambandsins ekki nóg.
Hún vill. fá hækkað kaup á
þeim svæðum, sem engin verk-
lýðsfélög eru. Þetta er ábyrgð-
arleysi, sem er algerlega óvið-
unandi. Þjóðin getur ekki sætt
sig við það, að sá aðili, sem
fer með umboð flestra félags-
bundinna verkamanna í land-
inu, sé ábyrgðarlaus aðili, sdm
virðir að vettugi alla sanngirni
og lætur sig engu skipta al-
menningsheill.
Innan félagssvæða og utan.
Alþýðusambandið mun halda
þvi fram, að það sé raunveru-
leg kauplækkun, ef verkamönn-
um er greitt lægra kaup utan
félagssvæða en þeir hafa á sínu
eigin félagssvæði.* Þetta er hin
mesta fjarstæða og það af þeirri
ástæðu mcðal annars, að verka-
maður, sem leitar sér vinnu ut-
an síns eigin félagssvæði§ og
fer í annað félagssvæði, fær að
sjálfsögðu það kaup, sem gild-
kvörðun um vinnustöðvun-
ina með almennri alkvæða-
greiðslu, sem farið hefir
fram á sama hátt og greint
er undir a-lið.
c. áf trúnaðarmannaráði, ef
lög viðkomandi félags fela
því slíkt vald, enda hafi
vinnustöðvunin verið sam-
þykkt með a. m. k. % hlut-
um greiddra atkvæða á lög-
mætum trúnaðarmanna
fundi.“
I 16. grein laganna er tekið
fram, að ákvörðun uni vinnu-
stöðvun skuli tilkynnt aðila 7
sólarhringum áður en hún á að
hefjast.
Nú mun flestum verða á að
spyrja, hvort fullnægt hafi ver-
ið ol'angreindum ákvæðum lag-
anna, þannig að hvert einasta
félag um allt land hafi, gert
samþykkt um verkfallið, eins
og lögin ákveða. Mjög mun það
verða dregið í efa. Að minnsta
kosti hafa menn hér í bænum
ekki órðið varir við að slík at-
kvæðagreiðsla hafi verið aug-
lýst í „Dagsbrún“, en meðlim-
ir þess félags munu taka þátt
í verkfallinu. En úr þessu fæst
•væntanlega skorið af félags-
dómi.
Meðan beðið er þess úrskurð-
ur, mun Alþýðusambandið
váfalaust halda áfram verkfalli
sínu, cn ábyrgð þess verður
þyngri með degi hverjum, en
almenningsálitið fordæmir
jiessar vanhugsuðu og ósann-
gjörnu aðgerðir, hvort sem
verkfallið er löglegt eða ekki.
Bœjap
svo aðstöðuna, að þcir fagni
fullu sjálfstæði þjóðarinnar í
öðrum anda en vera ber.
Þar til þjóðhátíðin hefst
munti menn hlakka til hennar,
en tímanum sem eftir er eiga
menn að verja til að greiða at-
kvæði sjálfir og sjá um að aðr-
ir geri slíkt hið sama. Því að-
éins verður þjóðhátíðin ánægju-
leg, að allir, sem þess eru um-
komnir, greiði atkvæði á þann
hátt, sem vera ber, þannig að
þjóðin sýni, að hún eigi sína sál
er þjóðarsómi býður.
I.O.O.F. ss’ZOSSS1,.,=9 "■ ”'■
Frá Náttúrufræðifélaginu.
Samkoma vcrður í i. kennslu-
stofu Háskólans í kvöld. Sýndar
verÖa kvikmyndir, í eðlilegum lit-
um, frá Vestmannaeyjum (fuglalíf,
ljjargsig o. fl.) og ennfremur kvik-
mynd, í eðlilegum litum, af islenzk-
um plöntum. Samkoman hefst kl.
20.30.
Sumarfagnaður Breiðfirðingafél.
verður í Listamannaskálanum í
kvöld kl. 9. Skemmtiskrá. Upplest-
ur (Lárus Pálsson og Jón Thorar-
ensen), söngur, leikþáttur og dans.
Áheit á Strandarkirkju,
5 kr. frá NB. (gamalt áheif).
60 kr. frá K.G. 35 kr. frá H.Þ.
(tvö áheit). 10 kr. frá Y.
Gjafir
til Kvennadeildar Slysavarnafél.
í Reykjavík: Hr. Lárus Jónsson,
Sólvallagötu 60 hér í bænum, hef-
ir sýnt Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins þá rausn, að gefa henni kr.
500,00, og er gjöf þessi til minn-
ingar um foreldra Lárusar, en þau
voru frú Ólöf M. Ólafsdóttir og
Jón Jónsson, er bjuggu á Vatns-
stíg 16A hér í bænum. Þá hefir
deildinni borizt gjöf frá ónefndri
konu, kr. 150.00. Fyrir hönd
Kvenpadeildarinnar leyfi eg mér að
færa gefendunum vorar beztu þakk-
ir. Guðrún Jónasson.
Hjálp til danskra flóttamanna.
Eftirtaldar gjafir hafa borizt
undanfarið til skrifstofu minnar:
o r
Scrutator:
O
xjúlcLcUjl aíbn&WMfys
Furðulegt uppátæki.
Á mánudagskvöld (1. mai) fékk
lögreglan þau skilaboð, að maður
nokkur hefði teymt hest upp heil-
ari stiga í húsi við Laugaveginn.
Vildi húseigandi fá lögregluaðstoð,
I til að korna hrossinu aftur út úr
húsinu, eða áð minnsta kosti ofan á
jafnslé(tu. Þegar hinn ölvaði dýra-
vinur Var spurður, hvers v’egna hann
hefði draslað hrossinu alla þessa
leið, svaraði hann að hesturinn hefði
gott af að kynna sér kristilegt mínn-
líf, og má vera að það svar hafi
vtrið alveg rökrétt frá sjónarmiði
hestamannsins, en einhvernvéginn
sannfærði það lögregluþjónana
ekki alminlega. — Er nú verið að
athuga, hvort dæma á málið í sam-
ræmi við áfengislögin, dýravernd-
unarlögin eða umferðalögin.
Kári og Halla.
Þessi frétt er eins og hún væri
tekin úr revýunni „'Allt í lagi, lagsi,“
því að þar er sprenghlægileg ný-
tízku útgáfa af síðasta þætti
„Fjalla-Eyvindar“, og eru þau hjón-
in þar að biða eítir því að Sigurð-
ur Nordal sendi þeim hest til lífs-
bjargar. Atriðið gerist í Reykjavík,
og eiga þau heiipa á 3. hæð, hafa
flúið þangað, síðan Farfuglar,
Fjallamenn og Jón Eyþórsson lögðu
öræfin undir sig. Lítið mun höf-
unda revýunnar' hafa grunáð, að
nokkrum dytti í hug að leiða hest
upp á loft. En veruleikinn getur
stundum verið ennþá afkáralegri en
skopleikur. —
Eg segi —
Það er hægt að leiða asna í her-
búðir, en ekki hest upp á loft.
Virðingarfyllst,
ísak ísax,
kinnhestur.
Frá starfsfólki eftirgreindra stofn-
ana og fyrirtækja: Tryggvi Pét-
ursson & Co. 750 kr. Heimilisfólk-
ið Brekku, Gufudalssveit 230 kr.
Safnað á Vatnseyri við Patreks-
fjörð 740 kr. Starfsfólk Útvegs-
bankans 1625 kr. Starfs-fólk á
Kleppi 710 kr. Kristinn Jónsson og
starfsmenn 1405 kr. Sjúkrsamlag
Reykjavíkur 500 kr. íshús Hafnar-
f jarðar 1000 kr. Oddfellowar á Ak-
ureyri 4000 kr. Safnað af Arthur
Gook, Akureyri 500 kr. Safnað af
sr. Árelíus Níelssyni, Eyrarbakka
150 kr. Garðyrkjan á Reykjum 500
kr. Safnað af Ole Bang, Sauðár-
króki 3208 kr. Jósef Jónsson, próf.,
Setbergi 570 k.r Þorsteinn <Briem,.
próf. og Hallbjörn Oddsson, Akra-
nesi 2000 kr. Halldór Friðjónsson,
Akureyri 550 kr. S.G. 24 kr. G.A.
50 kr. K.S. 50 kr. S.M. 100 kr.
N.N. 50 kr. G.S. 50 kr. S.G.J. 25
kr. A.G. 151 kr. Nemur söfnunin
þá samtals kr. 167.737,00. Rvík, 3.
maí 1944. Kristján Gnðlaugsson.
Útvarpið í kvöld.
Kl. .20.25 Útvarpssagan : „Bör
Börsson“ eftir Johan Falkenberg,
XVIII (Helgi Hjö'rvar). 21.00
Strokkvartett útvarpsins: Ýms
þjóðlög útsett af Kássmayer. 21.15
Fræðsluerindi Stórstúkunnar (Sig-
fús Sigurhjartarson alþingismað-
ur). 21.35 Hljómplötur: Lög eftir
Brahms og Hugo Wolf. 21.50 Frétt-
ir. 22.00 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): a) Fiðlukonsert i E-dúr eftir
Bach. b) Symfónía nr. 5 eftir Beet-
hoven. c) Coriolan-forleikurinn
eftir Beethoven. 23.00 Dagskrárlok.
Þjóðhátíðairdag-
ur Pólverja.
_____ /
Stjórnarskrárdagur.
Stjórnacskrárdagur Póllands
var í fyrradag. *Var stjórnar-
skráin gefin af Stanislas August-
us konungi 1791, nítján árum
eftir fyrstu skiptingu landsins
milli nágrannastórveldanna og
tveim árum áður en önnur skipt-
ingin var gerð.
Stjórnarskráin varð til í sam-
bandi við deilur þær, sem urðu
milli konungs og Ignalius Po-
tocki, leiðtoga þjóðernissinna,
og þótti hin merkilegasta rétt-
arbót, enda hefir afmæli henn-
ar orðið þjóðhátíðardagur Pól-
verja síðan.
Því miður átli það fyrir Stan-
islas Augustus konungi að
liggja að brjóta stjórnarskrána,
og má telja að með því hafi
hann búið í haginn fyrir aðra
skiptingu Póllands, sem leiddi
til þriðju skiptingarinnár 1795,
en til þess lágu flóknar ástæður,
sem ekki tjáir að rekja hér.
Pólland öðlaðist ekki fullt
sjálfstæði aftur, fyrr en 1918 í
lok fyrri lieimsslyrjaldar, en
þjóðin mátli þola miklar hörm-
ungar á ófrelsistímunum. Var
frelsi Póllands fagnað vel um
heim allan, enda liafði þjóðin
lilotið samúð og viðurkenningu
allra þjóða, ekki hvað sizt fyrir
afrelc sinna mætustu sona og
dætra.
Pólverjar voi'u fyrsta þjóðin,
sem lét hart mæta hörðu gagn-
vart ofríki nasismans, enda er
upphaf striðsins talið frá þvi er
Hitler réðst inn í Pólland 1. sept. ’
1939. Þeir voru ofurliði bornir
i svip, vegnir óvigu afli í brjóst
pg níðingsliöggi i bak. En svo
undarlegur er gangur sögunnar,
að níðingar þeir, sem á þá réð-
ust fyrir nærri fimnv árúm, 1
lilífðii hehlur ekki hinum fyrri
vinum sínum, og er nú svo
komið að Pólverjar og Rússar
berjast hlið við lilið gegn Þjóð-
verjum, og virðistmú rofa fýrir
leikslokum i þeirri viðúreign.
Þrátt fyrir bandalag Rússa
og Pólverja, hafa risið deilur
milli þeirra um slciptingu lands-
ins, og eru þær enn ekki á enda
kljáðar. En hitt mun þó von
flestra að til sátta megi draga-
með þeim bandamönnum, svo
báðir megi við una, enda játa
nú allir að sterkt og sjálfstætt
Pólland sé nauðsynlegt skilyrði
friðar í Evrópu.
Síðasta leynivopn
I>jóðvepja.
N «
Siðasta „leyniyopn“ Þjóðverja
— sem þýzka útvarpið liefir birt
lýsingu á og tekin er hér upp
eftir „Hvíta fálkanum“, blaði
setuliðsins — er einskonar
fljúgandi frystivél.
Er hér um efni að ræða, sem
fyllt er á skothylki og er frostið
200 stig, þar sem liylkið kemur
niður, en rúmlega 100 stig í
500 metra fjarlægð. „Tilgangur
þessa vopns“, sagði þýzka út-
varpið, „er að helfrysta allar lif-
verur á vissu svæði og gera
steinsteypuvirki svo stökk, að
þau brotni við minnstu snert-
ingu.“
Þýzka útvarpið sagði einnig,
að Bretar hefði brugðið mjög í
brún undanfarnar vikur, vegna
þess áð isrelc hefði verið mikið
á Ermarsundi.
„Ilið nýja vopn var þar að
verki,“ sagði þýzki þulurinn að
lokum.
Passínsálmar
Hallgrims Péturssonar, í út-
gáfu Tónljstarfélagsins,
verða til sölu í nokkra daga
í bó'kavcrzlunum bæjarins.
—Það leikur varla á tveim
tungum, að Passíusálmarnir
eru eitt fegursta og þrótt-
mésta bókmenntaafrek á ís-
lenzka tungu. — Tónlistar-
félagið gaf út fyrir jólin 1000
tölusett og árituð eintök af
þessu fagra verki, og hefir
f jöldi hinna merkustu manna
liérlendis og erlendis sent fé-
laginu persónulegar þakkir
fyrir útgáfuna og talið liana
meðal þess vandaðasta og
fegursta, scm íslenzk prent-
list hefir afrekað. Tónlistar-
félagið hefir sett verðið það
hátt, að útgáfan gæfi kr.
150,000 —■ í hreinan ágóða,
sem rennur óskiptur til Tón-
listarliallar í Reykjavík. —
Hver sá, sem eignast eintak
af þessari bók, hcfir fengið í
hendur fallegustu bókina,
sem til er á íslenzku og lagt
um leið 150 krónur af mörk-
um til eins mesta menningar-
máls þjóðarinnar. ■— Merkur
bóksali hefir nýlega fullyrt,
að innan 10 ára verði eintak
af þessari útgáfu ekki selt
undir 1000 kr. Tónlistarfé-
lagið hefir nú lokið útsend-
ingu til áskrifenda, og verð-
ur það, sem eftir er af upp-
laginu, selt næstu viku í
bókaverzlunum. — Foreldr-
ar, sem vilja gefa börnum
sínum fallega og dýrmæta
gjöf, ættu að kaupa eintak
af Passíusálmunum.
Tónlistarfélagíð.
Tækifærisgjafir
R0LT,
Skólavörðustíg 22.
Tveir amstélax,
/
sem nýir, ásamt liorði, til
sölu. Miðtúni 72, niðri. Til
sýnis eftir kl. 5 í dag.
CIL0REAL
E R L A, Laugavegi 12.