Vísir - 15.05.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldker) 5 finur
Afgreiðsla >
34. ár.
Reykjavík, mánudaginn 15. maí 1944.
•/
107. tbl.
Brezki jflotinn til-
buinn til innrásar
Fjörga daga heimsókn
Bretakonungs.
Georg 6. liretakonungur hefii;
heimsótt heimaflotann, til þess
að kveðja hann, áður en hann
byrjar þátttöku í innrásinni.
Flotinn lá í höfn i Norður-
Skotiandi, þegar konungur fór
um borð í eitt af flugstöðvar-
skipunum fyrsta daginn. Yar
síðan látið í haf og konungi
sýnt, hvernig árásinni á Tirpitz
í AÍtenfirði var hagað. Gerðu
flugvélaruar árás á æfingaskip
eitt úr tveim áttum og gat það
ekki forðazt steinsteypuskeytin,
sem notuð eru við slíkar æfing-
ar og flugvólarnar vörpuðu að
þvi.
Konungur var alls fjóra daga
ó eftirlitsför sinni*og skoðaði j
alls fjórtán skip á þessum dög- |
um. Fór hann meðal annars um <
horð í einn af dvergkafbátum ,
Breta. j
Við broítförina bað liann i
giftu fylgja flotanum í barátt-
unni, sem liann ætti að hefja
innan skamms gegn megin-
landsvirkinu.
Orustuvélar fljúga frá
Bretlandi til Póllands.
Orustuflugvélar Bandaríkja-
manna flugu í fyrsta skipti í
stríðinu inn yfir Pólland á laug-
ardag.
Flugvélar þessar liöfðu verið
lil verndar sprengjuvélum, sem
fóru til Stettin og brugðu sér
inn yfir Pólland, þegar
sþrengjuvélarnar voru búnar að
varpa farmi sínum. Sama dag
var einnig ráðizt á Osnabriick og
Tutau.
Myjidir sýna, að tjón varð
alls staðar mikið. Bandarikja-
menn nftisstu 22 flugvélar, þar
af 12 sprengjuvélar, en flug-
mennirnir segjast liafa skotið
niður 63 þýzkar orustuvélar.
Samúðarverk-
fallinu aflýsf.
Samkvæmt tilkynningu frá
Alþýðusambandinu átti sam-
úðarvertcfall að hefjast á
morgun við ýmsar ríkis-
stofnanir. Verkfal! þetta mun
þó ekki komá til fram-
kvæmda, eins og til var ætl-
azt, og hefir því raunveru-
lega verið aflýst, þótt ekk\
hafi farið hátt um það. Verð-
ur eltki annað séð, en að Al-
þýðusambandið búist við að
vegaverkfallið verði dæmt ó-
löglegt og þá er vitantega
samúðarverkfallið einnig ó-
löglegt.
Eins og kunnugt er hefir
nýtt verkfall verið boðað 19.
þ. m., en það mun flestum
sýnast, að skynsamlegra
hefði verið að bíða eftir úr-
slitum í Félagsdómi og rejma
síðan að ná samningum við
ríkisstjórnina. Ekki er flas
til fagnaðar. Alþ.sambands-
stjórnin hefir látið bað ber-
ast út, að lítið sem ekkert
beri á milli í deilunni. Það
má vel vera að svo sé, en hitt
hlýtur og öllum að vera ljóst,
að ekki var hægt fyrir neina
ríkisstjórn að gera samninga
meðan hinn aðilinn hótaði
með verkfalli, sem ríkis-1
stjórnin taldi ólöglegt. Fram-
koma Alþ.sambandsins hefir
verið og er enn á bann veg,
að hún spillir mjög fyrir því
að samningar takist í deil-
unni.
Albanskir skæru-
liðar sigra.
Albanskir skæruliðar hafa
unnið mestu sigra sína, síðan
þeir tóku upp baráttuna við
möndulveldin.
I fregnum frá vígstöðvum
.þeirra segir í gær, að þeir hafi
tekið þrjár borgir, Elbasau,
Berat og Koritsa. Þær eru allar
meðal stærri Ixjrga landsins og
komu mikið við sögu, þegar
Mussolini fór brakfarir sínar
fyrir Grikkjum veturinn 1940
—41.
15 þýzkum flugvélum
grandað á einni
nóttu.
Allmargar þýzkar flugvélar
gerðu árásir á borgir á Suður-
og Suðaustur-England í nótt.
Tjón varð allmikið og fregnir
hafa einnig borizt um nokkurt
manntjón. Varnir Bi’eta tóku
hraustlega á móti og skutu þeir
niður fjórtán árásarflugvélanna.
Sú fimmtánda var skotin niður
yfir fhigvelli sínum í Frakk-
landi, er hún var komin úr á-
rásiiini.
/ . ' >
Mikilvægur fleygur rekinn
óðveri a á Italíu.
í varmr
3 þýzk skip hæfð
Beaufighter-vélar réðust í
gær á stóra þýzka skipalest
undan Hollandsströndum.
Skipalestin var vel varin, en
Bretar gátu samt komið tund-
urskeytum á tvö hlaðin flutn-
ingaskip og eitl af verndarskip-
unum. Eldur lcviknaði í öðru
flutningaskipinu, en sprenging
varð svo mikil i liinu, að bralc
þeyttist í 400 feta hæð.
Loítsókn féll
niður í gær
Loftsókn bandamanna frá
Bretiandi féll niður í gær að
mestu leyti.
í tilkynningum frá flugmála-
ráðuneytinu er aðeins þetið um
einn leiðangur inn yfir megin-
landið. Þann leiðangur fóru
nokkrar Moskitovélar og flugu
þær syo langt inn yfir Austur-
Frakldand, að þær áttu skamma
leið ófarna til svissnesku landa-
mæranna. Þær skutu niður eina-
He-III sprengjuvél og löskuðu
fjórar Ju-87 steypiflugvélai- á
flugvelli. — Eina Moskito-vél
vantar.
Loftsóknin hófst aftur í
morgun með árós stórra amer-
ískra flugvéla á/N.-Frakkland.
Moskito-vélar réðust á Köln
í nótt.
Skákeinvígriö
lieklnr áfraiiB.
önnur einvígisskák þeirra
Árna Snævarr og Ásmundar Ás-
geirssonar fer fram í kveld.
Teflt verður í Thorvaldsens-
stræti 2, húsi sjálfstæðisfélag-
anna, og er áhorfendum beimill
aðgangur. Eins og menn muna,
vann Árni fvrstu skákina.
Slys á skíðnm.
I gær var allmargt fólk á
skíðum í Henglafjöllum, Blá-
fjöllum og Skálafelli. I Innsta-
dal vjldi það slys til að einn
skíðamanna, Leifur Kaldal gull-
smiður, datt og fótbrotnaði.
Færi var nokkuð hættulegt
vegna misrennslis, því að nýr ;
snjór, sem var hingað og þang-
að ofan á gamla snjónum, var
mjög stamur. Aftur á móti var
sæmilegt-i'ennsli á gamia snjón-
um og mun slysið hafa viljað
til, er Leifur kom af gömlum
snjó á nýjan og féll við.
Brotnaði Leifur á hægra fæti
rétt fyrir ofan ökla. Var hann
dreginn á sleða á meðan snjór
leyfði, en síðan borinn úr
Sleggjubeinsskarði og niður á
Kolviðarhól. Var hann síðan
fluttur í sjúkrabíl á Landspítal-
ann, þar sem hann liggur nú.
M ftlÉiíili um
Frá Moskva og New Yorlc
MoskVablaðið Pravda birti
10. maí skeyti frá New York um
þátttöku í þjóðaratkvæði. Skýr-
ir blaðið síðan frá því að sam-
bandsíögin bafi gill til ársloka
1943, en þingið bafi þá ákveðið
að skilja við Danmörku og ;
stofna lýðveldi 17. júni, sem
staðfest verði með þjóðarat-
kvæði.
Bæði Pravda og Izvestia
birtu 11. maí boðskap konungs
og svar ríkisstjórnar og flokka,
samkvæmt skeyti frá London.
Frásögn þeirra var hutlaus.
Flest blöð í Englandi bafa að-
eins birt aðalefni boðskapar
konungs og svar rikisstjórnar
og flokka, án frekari umsagnar.
Vikublaðið ,,Time“ í New
York birtir i morgun grein
undir fyrirsögninni „Island,
boðskapur konungs“.
„Hinn aldni konungur Dan-
merkur, Kristján, sem er fan^i
Þjóðverja í Kaupmannahöfn,
frétti að þegnar lians á íslandi,
sem hernumið er af Banda-
ríkjaber, væri að undirbúa
stofnun sjálfstæðs lýðveldis.
Hann sendi jjeim jíegar ávítun-
arbréf, þar sem enginn munur
er gerður á bernómi Þjóðverja
og Bandaríkjamanna. Kristján
konungur segir: „Ákvarðanir
sem liafa i för með sér, að rofin
eru um aldur bönd milli is-
lenzlui þjóðarinnar og konungs
bennar, ætti ekki að taka, með-
an bæði ísland og Danmörk eru
bernumin af erlendum ríkjum.
Vér getum ekki viðurkennt
stjórnarskrárbreytingu þó, er
Alþingi og íslenzka ríkisstjórn-
in hafa ákveðið, án samninga
við oss.“
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Sýning
í Landakotsskóla á uppdráttum
og hannyrðum á sunnudaginn frá
kl. r—7.
Jðiep mdír eM Nazism&ns",
Bók eftir próf. Jacob S. Worm-Mölier kemur út 17. maí.
jyj iðvikudagur, 17. maí, er
þjóðhátíðardagur Norð-
manna, Eiðsvalladagunnn.
Efna Norðmenn Kér í bæ til
Kátíðahalda, eins og að und-
anförnu.
I tilefni dagsins gefur Blaða-
mannafélag íslands út vandaða
bók eftir próf. Jac. S. Worm-
Miiller, sem nefnist „Noregur
undir oki nazismans“.
Uppistaða bókárinnar eru
fyrirlestrar, sem próf. Worni-
Múller flutti hér i Revkjavík
fyrir almenning sumarið 1942.
Hann talaði blaðalaust, og voru
fyrirlestrarnir braðritaðir upp
eftir bonum. Síðan gekk liann
frá handritinu til þýðingar.
Ragnar Jóhannesson, cand.
mag., þýddi bókina á íslenzku.
Var liandrit fullbúið til prent-
unar á árinu 1942, en erfitt var
að fá bókina prentaða vegna
annft í prentsmiðjum. Af ýms-
um ástæðum hefir útgáfan
dregizt lengur en eðlilegt var,
og. því var próf. Worm-MiUler
beðirin að semja eftirmála,
•sögu hernáms Noregs til árs-
loka 1943.
Bókin er prýdd fjölda mynda
úr Noregsstyrjöldinni og fró
‘bernáminu. Frágangur hennar
er mjög vandóður.
Bókin verður seld ódýrt, mið-
að við alme’nnt bókaverð, og
fer ekki lijá því, að marga fýsi
að eignast liana.,
Nokkur tölusett eintök eru
prentuð á vandaðan pappír, og
verða þau seld á hærra verði.
17. maí hátíða-
höld Norðmanna.
Norðmenn hafci í hyggju að
efna til hátíðahalda hér 17. maí
eins og að undanförnu og ann-
ast sérstölc nefnd um undir-
búning hátíðahaldanna.
Nefndin liefir skýrt blaða-
mönnum frá helztu liðum dag-
skrárinUar og tilhögun.
Að morgni þess 17. koma
Norðmenn saman við kirkju-
garðshliðið í Fossvogi. Verður
gengið undir fána að leiðum
norskra flugmanna og sjó-
manna, og lagðir blómsveigar,
á leiðin. Kl. 10 f. b. verður
hátíðáguðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni. Síra Bjarni Jónsson
predikar. Kl. 11,45 koma norsk
börn og islenzk börn af norsk-
um ættum saman í norslca
sendiberabústáðnúm við Fjólu-
götu. Þaðau ganga þau í skrúð-
göngu að Listamannaskálan-
um og kl. 1.30 liefst samkoma
þar. Verða þar m. a. sýndar
um 120 mvndir úr lífi Norð-
manna. Auk þess verða ræðu-
böld og upplestur. Dagskránni
verður útvarpað.. Kl. 3 verður
sýni’ngin opin fvrir almenning.
Kl. 4—6 verður móttaka hjá
norska sendilierránum. Kl. 8
um kvöldið befst veizla að Hót-
el Bórg. Auk þess verða sam-
komur í liúsi Hjálpræðishers-
ins og á Hverfisgötu 116.
Vegurinn frá
Cassino til sjávar
undir skothríð.
Bjarni Chiðmimdsson
ráðinn biaðaSuIHrúi
ríkisstjérnarinnar.
lijarni Gúðmundsson hlaða-
maður hefir verið ráðinn
blaðafulltrúi utanríkisráðu-
negtisins.
Er þetta í fyrstá skipti, sem
sérstakúr maður er ráðinn til
stjórnarinftar til þess að hafa
þetta starf ó höndum einvörð-
ungu, og Iiefir þó verið full þörf
á því lengi, að slíkt upplýsinga-
starf væri ei iiaft í hjáverkum.
Er það þess vegna einnig mik-
ilvægt, að bláðamaður liefir
veí’ið valinn til starfans og er
í samræmi við þær tillögur, sem
fram h^fai komið um þetta
mál frá Blaðamannafélagi ís-
lands. ,
Bjarni Guðmundsson er hið
bezta til þessa starfs fallinn.
Hann befir langa blaðamanns-
reynslu að baki sér, liefir viða
,farið og er málamaður góður,
en allt er það ómissandi skil-
yrði, til þess að geta leyst starf
iþetta viðunandi af hendi.
Síðan á öndverðu síðasla
ári Iiefiú Bjairni Guðnrunds-
son starfaði við Vísi, ritað með-
al annars pistla „Scrutators"
að staðaldri og óska starfs-
bræður lians við Vísi Iionum
allra beilla í binu nýja starfL
ifa|)aiiir koiimii' •
inu 1 Lo^aiis:.
Japanir hafa brotizt inn í kín-
versku lorgina Loyang á þrem
stöðum.
Herstjórnin í Cbungking ger-
ir ekld ráð fyrir því, að setulið-
inu iakist að verjast öllu lengur,
ekki sízt vegna þess, að ekki er
unnt að senda nein bergögn til
borgarinnar, þvi að Japanir
bafa rófið aðflutninga.
Kínverjum miðar betur i bar-
dögunum um Hankow-Peking-
brautina, þvi að þeir liafa stökkt
Japönum úr einni borginni við
liana og umkringt aðra.
Setulliðið.
Tvær deildir ameríska hersins
er viðskipti hafa víð Islenciinga
hafa, frá því í dag, flutt skrifstof-
ur sínar. Sú deild er annast atvinnu-
mál og kröfur, og einnig sú, sem
hefir með höndum ritskoðun og
veitingu vegabréfa fyrir inn-
göngu á hersvæði, eru nú i Camp
Tripoli, nálægt aðalhliðinu á Mela-
vegi, fyrir sunnan íþróttavöll.
1 \ ^
Nætúrakstur:
B. S. 1. Sínri 1540.
Hjúskapur.
Á laugardag gaf síra Sigurbjörn
Einarsson saman frú GuSrúnu
Eggertsdóttur Briem og dr. Per
yarvinn, yfirlæknr norska flotans
hér á landi.
Takmarkaðar birgðir
Þjóðverja.
T> andamenn eru búmr að
^ brjóta skarð í víggirð-
íngar Þjóðverja á Ítalíu, qg
þótt þeir sé ekki enn kommr
í gegnum virkjabeltin, er þó
það mjög mikilvægt, sem þeg-
ar hefir á unmzt.
Það voru ameriskar hersveit-
Ir, sem unnu einna mesta sig-
nrinn í gær. Þeim tókst að
hrekja Þjóðverja af mikilvægri
bæð og úr þorpinu Santa Maria
Infante. Voru það amerískir
skriðdrekar og fótgönguliðar,
sem tóku hæðina og bæinn.
Með því að ná þessari hæð
hafa bandamenn stöðn til að
skjóta á veginn, sem liggur frá
Cassino til Formia við Gaeta-
flóa. Er ágætt útsýni af hæð-
inni yfir stöðvar Þjóðverja í
kring.
Þúsundir flugvéla fóru í árás-
ir í gær, meðal annars rúmlega
500 stórar sprengjuflugvélar á
| flugvelli og samgöngumiðstöðv-
ar á Norður-ltalíu.
Hvert virkjabeltið
af öðru.
Brezkur blaðamaður, seni
fylgist með sókn bandamanna,
segir, að ekki megi gera lítið úr
því, þótt sókn bandamanna sé
eidci liröð. Þárna sé ekki barizt
á jáfnsléttu, þar sem liægt er að
bruna áfram, ef virkjabelli befir
verið vrofið, beldur taki þarna
i við livert virkjabeltið af öðru,
j bvert öðru sterkara.
1 Frakkar geta sér sérstaklega
góðan orðstír i bardögunum
þarna. Þeir liafa teldð tind
Majo-fjallsins og er hann þó svo
snarbrattur, að -ekki er hægt
öðrum en fjallgöngugörpum að
klífa bann.
Hvað endast
birgðir Þjóðverja.
Ymislegt kemur til greina,
þegar reynt er að gizka á, bversu
lengi Þjóðverjar mlínu geta
varizt sókn bandamanna. Sú
spurning, sem einna mestu mun
ráða, er hversu miklar birgðir
Þjóðverjar böfðu flutt suðnr á
bóginn fyrir sjö vikum, þegar
bandamenn bófnsi fyrir alvöru
lianda um að eyðileggja sain-
göngunet þeirra. Siðan hefir
ber Þjóðverja aðeins fengið lit-
inn liluta þeirra birgða sem ber-
inn þarfnast, þegar um stóror-
ustu er að ræða. Gera banda-
menn sér vonir um að birgða-
skortur geti ráðið nokkuru um
það, liversu fljótt orustan verð-
Ur útkljáð.
Landsbókasafnið.
Þeir, sem hafa undir höndum
hækur frá Landsbókasafninu, eiga
að skila þeim hið fyrsta. Þeir, sem
ekki hafa skilað lánsbókum til safn-
ins fyrir 20. þ. m., mega búast við
því, að þær verði sóttar heim til
þeirra á þeirra kostnað. Þeir, scm
skuldá safninu bækur frá fyrri tíð,
fá ekki bækur að láni, nema beir
geri full skil.