Vísir - 15.05.1944, Qupperneq 2
. VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Ljós í myrkri.
Svenska Morgonbladet hefir
nýlega ritað um sambands-
slit Islands og Danmerkur, og
kemst m. a. svo að orði,
að mönnum á Norðuriönd-
um þyki miður, að breytingin
skuli eiga sér stað meðan á ó-
friðnum stendur, en menn skilji
að sjálfsögðu baráttu íslend-
inga. Það sé áreiðanlegt, að ó-
friðurinn hafi ekki hraðað úr-
slitum málsins. Skilnaður við
Danmörku hefði engu að síður
átt sér stað, eins og gert var
ráð fyrir 1918. Þetta er rétt og
skynsamleg afstaða, þótt á-
stæðulaust sé að menn telji
miður farið að skilnaðurinn
eigi sér stað nú, enda hefir ald-
rei annað komið til greina af'
Islendinga hálfu, og mátti það
öllum Norðurlöndum Ijóst vera.
Þrátt fyrir styrjöldina hlýtur
viðleitni þjóðanna, i innanrík-
is- og utanríkismálum, að bein-
ast að því fyrst og fremst, að
koma í veg fyrir að styrjöldin
valdi óþarfa röskun í starfi eða
stefnu þeirrav I samræmi við
þetta og ófrávíkjanlega stefnu
í sjálfstæðismáþnu hlaut ís-
lenzka þjóðin að endurheimta
rétt' sinn við fyrsta og bezta
tækifæri, hvort sem ófriður
geysaði eða ekki. Islendingar
hafa aldrei viljað semja af sér
fullt og óskorað sjálfstæði og
sjálfsforræði í eigin málum út
á við sein inn á við, og í slík-
um málum er bið ekki réttlæt-
anleg frá hvaða sjónarmiði,
sem séð er, hvorki fyrir Islend-
inga né aðrar þjóðir.
Upp hafa komið raddir um
það í hlöðum Norðurlanda, að
með þessu væru Islendingar að
snúa baki við Norðurlöndum.
Þetta er á engan hátt rétt, en
ef dæma má eftir ýmsum;blaða-
ummælum og öðrum ummæl-
um áhrifamanna, mætti frekar
orða þetta svo, að Norðurlönd
væru að snúa baki við Tslnndi.
Hér hafa engar raddir, aðrar
en vinsamlegar, heyrzt í garð
Norðurlandaþjóðanna, þótt
svarað hafi verið á viðeigandi
hátt óviðeigandi ummælum
blaða þeirra, en það mótar á
engan hátt stefnuna gagnvart
])jóðarheildum þeim, sem
Skandinavíu byggja. Islending-
ar vilja eiga góða samvinnu við
allar aðrar þjóðir og þá ekki
sízt þær, sem þeim eru skyld-
astar. Hinsvegar ráða þeir ekki
einir hvernig slík samvinna má
takast eða haldast, heldur öllu
frekar hinar þjóðirnar, sem
beinlínis móta nú framtíðar-
afstöðu sína til Islands með við-
horfi sínu til hins heilaga máls
islenzku þjóðarinnar, — sjálf-
stæðismálsins. Þeir, sem vilja
neita þjóðinni um sjálfstæði
eða láta hana skjóta því á frest,
tala gegn íslenzkum hagsmun-
um og réttindum, og þess er
ekki að vænta að íslenzka þjóð-
in finni ekki eins og hver önn-
ur þjóð hvað að henni snýr.
Norrænir blaðamenn og
stjórnmálamenn verða að vera
raunsæir í þessu máli, — taka
það eins og það liggur fyrir án
misskilinnar tilfinningasemi
eða fordóma. Þeir verða að
skilja, að því aðeins geta Is-
lendingar átt þátt í norrænni
Byggíng Þjóðminjasafns
aðkallandi.
15.000 krónum heitíð fyrir teikningu.
M atthías Þórðarson þjóð-
mmjavörður flutti í gær
erindi um sögu og aðbúnað
Þjóðminjasafnsins á fundi
Blaðamannafélags Islands.
„Þjóðminjasafnið befir eig-
inlega alltaf verið í liúsnæðis-
vandræðum,“ sagði Þjóðminja-
vörður. „Það var fvrst geymt
á dómkirkjuloftiilu, þar sem
stiftsbókasafnið (síðanr Lands-
bókasafn) var til húsa, síðar
í Alþingishúsinu, enn síðar í
hegningarhúsinu og loks i liúsi
Lahdsbankans, þar til það var
flutt í Safnaliúsið, þá nýbyggt,
1908.“
fíráðabirgðahúsnæði.
„Þetta var álitið bráðabirgða-
húsnæði þá, og var mikil fram-
för frá þvi, sem áður hafði ver-
ið. En hrátt kom í ljós, að safn-
inu var full-þröngur stakkur
skorinn. Auk þess kom það í
ljós, að Lahdsbókasafninu
veitti ekki af öllu húsinu fyr-
ir sig. En Þjóðminjasafnið er,
sem kunnugt er, ennþá í hús-
inu, og eru nú þrengslin orð-
in til mikils baga fyrir alla að-
ilja.“
Söfnum fjölgar.
„Þjóðminjasafnið er nú orð-
ið svo stórt, að það skiptist í
ýmsar deildir: Þjóðmenning-
arsafn (forngripasafn), lista-
safn, myndasafn, manna-
myndasafn, ljósmyndasafn,
sjóminjasafn. Auk þess er ver-
ið að undirbúa stofnun iðn-
minjasafns, og nýlega hefir
samvinnu, að þeir séu þar öðr-
um þjóðum jafnréttliáir og
njóti þar fullrar viðurkenning-
ar sem slikir, en séu þar livorki
hornrekur eða ölmusumenn.
Samvinna réttlætir hvorki yfir*
ráð einnar þjóðar á annari né
forréttindaaðstöðu í innbyrðis
samtökum. Norrænar þjóðir
eiga að skilja sérstöðu Islend-
inga vegna legu landsins, at-
vinnuvega og landshátta, jem
allt er gerólíkt því, sem á
Norðurlöndum tíðkast, og sem
leiðir aftur af sér að Islending-
ar einir geta stjórnað málum
sínum af fullri þekkingu og fyr-
irhyggju, — jafnt inn á við sem
út á við. öll saga þjóðarinnar
sannar þetta Ijóslega, og um
það á ekki að þurfa að derln.
Það er leitt, að raddir skuli
hafa heyrzt í norrænum blöð-
um, sem Islendingum eru lítt
vinsamlegar og byggðar á al-
gerum skilningsskorji á afstöðu
og réttindum þjóðarinnar. Þess-
ar raddir eiga ekki að móta
norræna samvinnu framtíðar-
innar, með því að þær eru af
öðrum rótum runnar en þeim,
sem slík samvinna hlýtur að
byggjast á, cn þær geta spillt
fyrir heilbrigðri norrænni sam-
vinnu og gert hana tortryggi-
lega í augum Islendinga, sem
annara norrænna þjóða, er
sögu sína muna. Árið 1918 voru
sambandsslitin nú í ár fyrir-
'fram ákyeðin söguleg stað-
reynd, — viðburður, sem hlaut
að verða. Það máttu allar rior-
rænar þjóðir vita og aldrei láta
sér til hugar koma að slíkur
viðburður mundi ekki eiga sér
stað, þrátt fyrir stríð og böl
eða hvers kyns óáran. Það ætti
enginn að amast við Ijósi í
myrkrinu. Þótt smá])jóð öðlist
fullt sjálfstæði meðan allar aðr-
ar þjóðir berjast fyrir frelsi
sínu, er það fyrirboði betri tíma
og þess, sem verða vill.
safnið keypt svonefnt Ásbúðar-
safn, eign Andrésar hárskera'
Johnson i Hafanrfirði. Er það
merkilegt safn og óvenjulegt."
Verðlaunum heitið.
„I fyrra var félagi mynd-
listarmanna boðin fjárbæð, kr.
15.000,00, er veitt skyldi sem
verðlaun fyrir teikningu að
Listasafni rikisins. Með því að
Listas'afnið tilheyrir Þjóð-
minjasafninu, þótti rétt að
verja fénu að verðlaunum fyr-
ir teikningu að byggingu yfir
öll söfnin, en það skilyrði
fylgdi, að Safnahúsinu væri út-
hlutuð lóð, áður en keppni færi
fram. Sú lóð liefir enn ekki
fengizt, en hugur leikur á lóð-
inni suðaustan Skólavörðu-
hæðar, milli Eiriksgötu, Bar-
ónsstígs og Egilsgötu. Þar er
stórt, óhyggt svæði, handan við
Skólavörðuna gömlu.“
Packárd-bilreið,
sérstaklega sterk og góð í
ferðalög, eldri gerð í góðu
lagi, til sölu og sj'nis í Sliell-
portinu í kvöld kl. 5—7.
ísvél
til sölu (Icecream). Til sýnis
á veitingastofunni Laugáveg
81, milli 7 og 8 í kvöld. Fyr-
irspurnum ekki svarað í
síma.
Hag'itæðnr verzlnn-
Stúlka
óskast strax til að ganga um
beina í Mötuneytinu Gimli.
Hátt kaup og herbergi.
Uppl. hjá ráðskonunni.
Um 10.3 millj. kr.
Verzlunarjöfnuðurinn í aprílmánuði var hagstæður um rúmar
10 milljónir króna, en það sem af var árinu áður, þ. e. jan.—marz,
stóðst útflutningur og innflutningur á.
Alls nam innflutningurinn í
aprílmánuði 19,8 millj. krónum,
en útflutningurinn 30.5 millj.
kr. Alls hefir heildarinnflutn-
inguri jan.—apríl numið 07.8
millj. kr., en útflutningurinn
78.1 millj. kr. Verzlunarjöfnuð-
urinn er því hagstæður um 10.3
millj. kr. það sem af er árinu.
Á sama tíma í fyrra var verzl-
unarjöfnuðurinn óhagstæður
um rúmar 14 millj. kr. Þá nam
innflutningurinn 77.4 millj. kr.,
en útflutningurinn 63.2 millj.
kr. Verzlunarjöfnuðurinn er því
24V2 millj. kr. hagstæðari nú en
á sama tíma 1 fvrra.
Tónlistarfélagið
sýnir óperettuna ,,í álögum"
annað kvöld kl. 8. ASgöngumiðar
seldir frá kl. 4—7.
Bifreiðarstjórar!
B i f reiðast j óra f élagið H reý f i 11
heklur fund í dag, 15. maí kl. 11
e. h.' í Baðstofu iðnaðarmanna.. A
fundinum verður rætt um gúmmí-
málið. Fjölmennið á fundinn.
Stjórnin,
SæjaF
frétíír
I.O.O.F. =0Ii.P.=12651681/4
□ Helgafell '59445177—IV/V—R2
Hjónaefni.
Hinn 12. þ. m,- opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Rannveig Þórð-
ardóttir verzlunarmær, Eiríksgötu
15, og Guðmundur Arason járn-
smiður (hnefaleikákennari Ár-
manns), Bragagötu 22.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Einsöngur (Ólaíur
Magnúlson frá Mosfelli) : a) Mu-
stalaingn eftir Merikanto. b) Við
bálið eftir V. Capoul. c) Hvar sem
liggja mín spor, rússneskt lag. d)
'Svörtu augun, rússneskt lag. e)
Hnífúrinn, rússneskt lag. 20.45 Ein-
leikur á píanó (Fritz Weisshappel):
Tilbrigði um íslenzk þjóðlög'eftir
Raebel. 21.00 Um' daginn og veg-
inn (Bjarni Ásgeirsson, alþm.).
21.20 Útvarpshljómsveitin leikur
íslenzk alþýþulög.'
STÚLKA
óslcast á matsölu. — Upplí
Bröttugötu 3A. Hátt kaup
' og herbergi.
„Ægii'
SKIPAUTCERÐ
11
Ferð til Vestmannaeyja kl. 9
í fyrramálið. Tekur ])óst og
farþega.
Til dönsku flóttamannanna,
1 afh. Visi: 1770 kr. frá starfsfólki
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. 180 kr.
frá starfsfólki Veiðarfæragerð ls-
lands. 50 kr. frá síra Jóni Brands-
syni. 50 kr. frá S. G.
Aheit á Strandarkirkju,
afh., Vísi :.Frá N,. Ó. 20 kr., frá
B. G. 40 kr., frá Ægir 100 kr.,
frá T. B. 20 kr., frá D. P. 30 kr.,
frá R. E. 5 kr.
FLAUEL:
hárautt,
vínrautt,
millumblátt,
dökkbrúnt og'
svart.
N ý k o m i ð.
H. T0FT,
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Piægiog
Maður óskast til að vinna
við mótorplóg. Uppl. í dag
hjá Heildverzluninni Eddu,
Laugaveg 3.
4-5 manna bíll
a sem nýjum gummium,
niiðstöð og vökvabremsum,
til sölu nú þegar. — Uppl.
í síma 5593.
BORGARHLIÐIN ÞRJÚ
FORDYRI REYKJAVIKUR. -
Aðkoman að hverjum bæ eða
byggð, hlýtur jafnan að verða
þýðingarmesta gagnkvæm kynning
aðkomumannsins og þess byggða
bóls, sem hann leggur leið sína um,
og því hreint ekki sama, hvernig
sú ásjóna er, sem fyrst snýr að
vegfarendum.
Erlendis er þess mjög vandlega
gætt, að þessi fyrstu kynni verði
sem bezt og áhrifaríkust, þannig að
aðkoman frá þjóðbraut inn í þétt-
býli byggðarinnar, mégi opnast á
sem fegurstan hátt, og bjóða vel-
kominn hvern gest, sem að garði
ber.
Flestir marka sér nokkra skoðun
af fyrstu kynnum. Þegar við í fyrsta
sinni njætum önugum og óþýðum
manni, verður afstaðan ósjálfrátt
önnur en til þess, sem tekur á móti
o$s opnum örmum, með frjálslegu
og hlýju viðmóti.
Að fyrstu kynnum býr maður
oftast lengst, og svo er einnig í
bókstaflegri merkingu um fyrstu
kynni af byggð hvers bæjar — að-
komunni í fyrsta sinn.
*
Hér hjá okkur hefir það farið
mjög í handaskolum, að þess
væri gætt sem skyldi, þvernig að-^
koman að bænum — frá þjóðbraut
í þéttbýlið — hefir mótast.
Mynd sú, er hér birtist, sýnir
þetta ljóslega, eins og það mætir
manni, frá Suðurlandsbraut á
Laugaveg.
Samkvæmt skipulagstillögum mun
þetta verða annað tveggja fordyra
frá Suðurlandsbraut að bænum inn-
an Hringbrautar, og hlýtup jafnan
að verða mjög fjölfarin leið.
Húsin sem þar standa, eru óásjá-
leg, gatan alltof þröng, og ásjónan
til beggja handa allt annað en á-
rennileg. Þó er hér um að ræða,
eins og stendur, mest áberandi for-
dyri frá þjóðbrautinni í þéttbýlið,
sem innan fárra ára verða einhver
mest áberandi gatnamót umferðar-
innar til athafnasvæðanna og verzl-
unargatna bæjarins.
Er vissulega ástæða til þess að
bæjarfélagið láti, með samkeppni,
eða á annan heppilegan hátt, gera
tillögur um endanlega lausn og lag-
færingu þessara gatnamóta, og allr-
ar byggðarinnar, beggja vegna
Laugavegar, niður að torginu á
gatnamótum Hverfisgötu og Lauga-
vegar.
*
O* * nnur aðalbraut i bæinn úr sömu
átt, verður Miklabraut.
Ætlunin er, að sú gata liggi frá
krossgötum Hringbrautar syðst í
Norðurmýri, í beinu framhaldi, inn
að Elliðaárbrúm. Verður sú gata
breið og fögur, með skipulegri
byggð til beggja handa.
Mun að henni mikill fengur fyr-
ir alla umferð, því að hún tengir
allt bæjarlandið, miðsvæðis, frá Ell-
iðaánt að sjávarströnd vesturbæjar,
en skiptir umferðinni um hliðargöt-
ur til lægjga handa inn í byggðina.
Þar sem Suðurlandsbraut og
Miklabraut mætast í einu torgi við
Elliðaár, eru hin raunverulegu skil-
yrði fyrir eitt af þremur borgar-
hliðum Reykjavíkur. Verður á ein-
hvern hátt að marka þann stað á
fagran og áhrifaríkan hátt. Gæti
það orðið kærkomið verkefni húsa-
meisturum, listamönnum og garð-
yrkjufræðingum vorum.
*
ÁVnnur borgarhliðin hljóta svo að
vera á Reykjanesbraut.
Aðkoman þeim megin að bænum
er af náttúrunnar hendi sérstaklega
fögur, þegar komið er á hábrún
Öskjuhlíðar, og sér nærfellt yfir
allan bæinn í móðu hæfilegrar fjar-
lægðar. En ])egar nær kemur-, mæta
auganu ýmsar smekkleysur okkar
mannanna, sem einnig þurfa.mik-
ijla og skjótra lagfæringa.
Þótt bezt fari á því, að borgar-
hliðin frá Reykjanesbraut séu á há-
brún Öskjuhlíðar, þá eru hin réttu
mörk i Fossvogi, niðri i lægðinni.
Að minum dómi á þó að marka
sérstaklega Öskjuhlíðarbunguna,
Dugleg stúlka
eða konp óskast við eldhús-
störf. Vaktaskipti. Ennfrem-
ur vantar itúlku við af-
greiðslustörf
W e s t - E n d
Vesturgötu 45.
bæði vegna þeirra einstæðu mann-
virkja, sem þar hafa verið reist, svo
og vegna hinnar fögru útsjónar yf-
ir bæinn. öll byggð og mannvirki,
alveg niður undir Hringbrauf, verð-
ur svo að sníða eftir þvi; þannig, að
a'ðkoman verði höfúðborginni til
sóma, og skerði ekki það, sem að-
stæður náttúrunnar hafa lagt oss í
hendur.
*
■fjriðja borgarhliðið, eða fordyri
“ Reykjavíkur, er og verður
Höfnin. Eru þar enn ríkulegir
möguleikar á að vel megi talcast um
vandaða og snotra byggð, næst hafn-
argörðunum, og hefir tekizt vel, sem
af er.
Þess er einnig að vænta, að öllu
hinu ytra útliti næstu byggðar við
höfnina, verði sá gaumur gefinn,
sem þau borgarhlið eiga skilið, og
gefið geti aðkbmumanninum vonir
um framhaldandi góða viðkynningu,
þegar á land er stigið.
*
■pn svo er annað mál, hvernig við
getum uppfyllt skyldur, hinnar
fyrstu viðkynningar, og hvernig við
rækjum þá vandasömu og miklu
ábyrgð.
Þar er efnið óþrjótandi til um-
ræ'ðu, og mun eins og hingað til
tekið í smáskömmtúm hvern mánu-
dag — enda þótt á stundum verði
til mæðu.
,Borgarhlið“ Reykjavíkur frá
Suðurlandsbraut.
/
í