Vísir - 07.06.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl S tlnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, miðvíkudaginn 7. júní 1944.
126. tbl.
Bandamenn segjast hafa náð fótfestu;
Þjóðverjar segjast eyða þeim víðast.
Innrásarævintýrið
verður Churchill-
Roose velt-klí kunni
að falli — segja
Þjóðverjar.
Quisling tekur til máls.
J|jóðverjar segjast hafa
upprætt alla herflokka
bandamanna eða rekið í sjó-
inn, nema á einum stað — í
grennd við Caen vestan
Signuósa.
En Þjóðverjar gera ráð fyrir
því, að bandamenn muni gera
tilraun til landgöngu á öðrum
stöðum á ströndinni, svo að þeir
eru alls staðar viðbúnir.
Þýzka fréttastofan birtir
fregn um það, að komið hefði
til harðra bardaga á eyjunum
Guernsey og Jersey, þegar fall-
hlífalið var látið svífa þar til
jarðar. Lauk viðureigninni svo,
að sögn Þjóðverja, að banda-
menn voru stráfelldir.
1 gærkveldi sögðu Þjóðverjar,
að 30 skip bandamanna sæist
brennandi eða stöðvuð vegna
skemmda fyrir norðurströnd
Frakklands.
Verður að falli.
Ziindermann, einn af yfir-
mönnunum í ráðuneyti Göbbels,
hefir látið svo um mælt við
blaðamenn, að eins og Gallipoli-
ævintýrið í síðasta stríði varð
upphafið að endinum á ferli
Churchills þá, eins muni innrás-
in nú verða Churchill—Roose-
veltklíkunni að falli, eins og
hann orðaði það.
Þjóðverjar segja einnig, að
Quisling hafi tekið til máls um
innrásina. Sagði hann, að allir
yrði að gera sér ljóst, hvað nú
sé að gerast. Nú sæki f jandmenn
Evrópu að henni og allir verði
að leggjast á eitt til að hindra
fyrirætlanir þeirra.
Fyrsta loftárás Banda-
ríkjamanna frá
Rússlandi.
Amerísku sprengjuflugvélarn-
ar, sem hafa bækistöðvar í
Rússlandi, hafa farið fyrstu á-
rás sína.
Flugvélarnar réðust á rúm-
ensku hafnarborgina Galatz í
gær og var sprengjum einlcum
varpað á flugvöll borgarinnar,
en einnig á olíugeyma við höfn-
ina og önnur mannvirki þar.
Tjón varð mjög mikið í árás-
inni og lítið varð um varnir af
hálfu Þjóðverja.
Skákeinvígið:
Árni Ásmundur 2:3
Fimmta skákin í einvígis-
keppninni fór þann veg, að Ás-
mundur vann.
Biðskákin var tefld í fyrra-
dag og vann Árni hana.
Standa leikar því þannig nú
að Ásmundur hefir 3 vinninga,
en Árni 2 og eina skák eiga þeir
óteflda.
Menn þessa þýzka hershöfð-
ingja hafa verið aðgerðarlitlir
gegn bandamönnum. Hann lieit-
ir Ádolf Galland og stjórnar or-
ustuflugvélum Þjóðverja í V,-
Evrópu. Hann hefir 1500—2000
flugvélar til umrúða.
Þjóðverjar fá
ekki wolfram.
Portúgalar hafa nú loks beygt
sig fyrir bandamönnum í wol-
framsölumálunum.
Það var gert uppskátt í
Washington í gær, að stjórn
Salazars hefði fallizt á að banna
Útflutning á wolfram til Þýzka-
lands. Wolfram-vinnslu verður
líka hætt. Hafa samningar
bandamanna við Portugala,
sem staðið hafa yfir um langt
skeið, þvi loksins borið tilætl-
aðan árangur.
Nífelld áhlanp
Þjóðverja við
Jas§y.
Þjóðverjar halda áfram árás-
um sínum á Jassy-svæðinu í
Rússlandi.
Þeir segjast hafa unnið nokk-
uð á, en Rússar segjast hins-
vegar hafa hrundið öllum árás-
um þeirra og hafi þeír orðið
fyrir miklu tjóni. Rússar segjast
hafa eyðilagt 49 þýzka skrið-
dreka og skotið niður 42 þýzk-
ar flugvélar. Annars staðar á
austurvigstöðvunum er mjög
lítið um að vera.
Rússar gerðu stórárás á Jassy
í fyrrinótt.
Islandsmótið:
Leiknum var
frestað í gær.
Kappleiknum, sem átti að fara
fram í gærkveldi mili Vals og
Víkings, var frestað vegna óhag-
stæðs veðurs, og fer hann fram í
kvöld kl. 8,30.
'Báðir flokkarnir hafa æft af
kapþi að undanförnu, má því
búast við skemmtilegum og
góðum leik, því Vikingar liafa
mikinn hug á að vinna Islands-
meistarana.
Það varð að
fresta inn-
rásinni veð-
urs vegna.
Samt var flogið
meira en nokk-
uru sinni.
andamenn voru búnir að
® ákveða að hefja innrás-
ina í fyrradag, 5. júní, en þeir
frestuðu henni um einn dag,
vegna veðurs.
Þótt veður væri betra i gær
en í fyrradag, var það þó ekki
eins gott og bandamenn hefði
óskað. Báðir aðilar tala mjög
um það, hversu skyggni hafi
verið slæmt og segja Þjóðverj-
ar, að það hafi gert þeim mjög
óhægt um vik í vörninni.
En þrátt fyrir þetta voru
gerðar fleiri loftárásir í gær en
nokkuru sinni áður. Á átta tím-
um eftir miðnætti i gær fóru
flugvélar bandamanna í 7500 á-
i rásir og vörpuðu niður samtals
I 10,000 smálestum sprengja.
! Talið er að um 31,000 flugmenn
hafi verið þátttakendur í þess-
um árásum, en herir og skip
bandamanna nutu verndar
hvarvetna á Ermarsundi og
langt upp á land.
I '
Churchill vongóður.
I Síðdegis í gær gaf Churchill
aðra skýrslu sina í neðri mál-
stofunni. Sagði hann, að banda-
menn hefði sótt talsvert upp á
land á breiðu svæði og væri
barizt í borginni Caen, sem er
við ána Orne, um 15 km. frá
ósunum. Þeir hefði náð mikil-
vægum brúm, sem Þjóðverjar
' hefði ekki sprengt í loft upp.
Bandamenn mega vera á-
nægðir með fenginn árangur,
því að margvislegir erfiðleikar
eru að baki og tjónið hefir ver-
ið minna en vænta mátti.
En næstu daga munu Þjóð-
verjar leggja sig alla fram um
að hrekja bandamenn í sjóinn,
sagði Churchill einnig, og bar-
dagar munu halda áfram meðan
báðir senda sem óðast lið á vett-
vang, unz úr verður skorið um
styrkleikann. „En við horfum
. til framtíðarinnar vongóðir og í
góðri samvinnu við bandamenn
vora.“"
Amerískir kafbátar liafa und-
anfarnar vikur sökkt 16 jap-
önskum skipum á Kyrrahafi.
★
Pólski forsætisráðherrann er
nú í Washington og mun ræða
við Roosevelt cinbvern daginn.
★
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings hefir fellt að veita
UNRRÁ það fé, sem talið er
nægilegt. Er hætt við að starf
nefndarinnar tef jist um ár þess-
vegna.
★
Þjóðverjar segjast hafa fellt
um 6200 Jugoslava, er þeir tóku
aðalstöðvar Titos.
Nii peynip á þá
Nú reynir fyrir alvöru á herstjórnarhæfileika þremenninganna
á myndinni. Þeir eru, frá vinstri: Montgomery, Eisenhower
Tedder.
|3. herstjórnartilk^DDÍng:: i
■ ■
Herflutningar halda
áfram til Frakklands
með fullum krafti.
Þjoðwcrfar rcyna ckki að Iiinelra |»á.
JJ erflutningar bandamanna yfir Ermarsund héldu áfram
af fullum krafti í gær, og segir í 3. herstjórnartilkynn-
ingu bandamanna, að Þjóðverjar hafi ekki reynt að hindra
flutningana á sundin.
Aðalatriðin í tilkynningunni
eru sem hér segir:
„Flutningar á herliði lialda á-
fram og bardagar ganga að ósk-
um. Þeir eru allsstaðar harðir
og sumsstaðar mjög harðir.
Hefir Rundstedt sent varalið sitl
á vettvang og er það þegar kom-
iðí hardaga.
Víkingasveitir Breta og
Bandaríkjanna taka þátt í bar-
dögum.
Engar árásir hafa verið gerð-
ar á skip, en i gær gerðu 12
Junkers-vélar tilraun til að ráð-
ast á herlið, sem var nýkomið á
land, en 4 flugvélanna vom
skotnar niður.
Flugsveitir bandamanna fóru
samtals 13,000 ferðir frá því í
dögun í gær til jafnlengdar i
dag. Var ráðizt á brýr, vegi,
járnbrautastöðvar og allskonar ;
samgöngumiðstöðvar aðrar. f
einni árás stórra sprengjuvéla
voru 26 flugvélar Þjóð,verja
skotnar niður, en þeir grönduðu
einn sprengjuvél og 17 orustu-
vélum. Eru flugvélar Þjóðverja
nú farnar að gera vart við sig,
en sáust ekki fyrst.“
Hundruð svifflugna hafa ver-
ið notaðar til flutninga ýfir
sundið og hefir þeim verið lent
hingað og þangað að baki Þjóð-
verjum, en Iiermennirnir, sem
í þeini voru, eru horfnir út í
buskann, lil að vinna verk þau,
Ploesti-fram-
leiðslan minnkar
um %
4500 smál. varpað á
2 mánuðum.
Yfirstjóm flughers banda-
manna á Ítalíu segir að gríðar-
legt tjón hafi verið unnið á olíu-
stöðvunum í Ploesti.
Herstjórnin segir, að á tveim
mánuðum hafi 4500 smálestum
sprengja verið varpað á þessar
stöðvar og sé nú svo komið, að
afköst þeirra sé ekki nema brot
af því, sem það var áður en lofl-
sóknin var liafin.
Aðeins ein olíulireinsunar-
stöð er enn í næstum fullum
gangi, en heildarframleiðslan
hefir fallið svo, að bandamenn
áætla að nú sé hún aðeins um 2
milljónir smálesta árlega, en
var 9 milljónir smálesta, áður
en sóknin liófst.
sem þeirn liafa verið ætluð. Vei/
herstjórn bandamanna, að þess-
ar sveitir hafa unnið mikið tjón,
því að árangurinn er þegar far-
inn að korna i ljós:
Tveir flotar
fluttu herinn
yfir sundið.
Tjónið furðanlega lítið.
'ET erstjórnartilkynning nr.
2 frá höfuðstöðvum
bandamanna var gefin út rétt
eftir miðnætti (br. tími) í
nótt.
Þar var sagt, að innrásin hefði
byrjað með því, að stórhópar
sprengjuflugvéla hefði ráðizt á
strandvirki Þjóðverja. Vörpuðu
1300 brezkar flugvélar um 5000
smál. sprengja á aðeins 10
strandvirki og voru þau jöfnuð
við jörðu.
Síðan fóru fallhlífahermenn,
en þá tveir herskipaflotar, sem
vernduðu skipalestirnar. Voru
þeir undir stjórn brezka flota-
foringjans Vians (sem stjórnaði
Cossack í Altenfirði) og amer-
íska flotaforingjans Kirks.
Hundruð duflaslæðara opnuðu
þeim leiðina, en þess var gætt að
koma að landi, þegar lágsjávað
var, til þess að verkfræðinga-
sveitum veittist sem auðveldast
að gera óskaðleg dufl, þegar þau
væri hæst í sjó. . .
Tjón varð nokkurt, en þó
furðanlega lítið, þegar þess er
gætt, hversu hernaðaraðgerð-
irnar’voru stórkostlegar. Roose-
velt forseti skýrði frá því í
gærkveldi, að Bandaríkjamenn
liefði misst tvo tundurspilla og
eina skriðdrekaferju.
Bandamenn urðu aðeins varir
við þrjá þýzka hraðbáta og
nokkra vopnaða togara, sem
reyndu að hindra landgönguna,
en þeim var stökkt á flótta, eft-
ir að einum togaranna hafði ver-
ið sökkt.
Allan daginn í gær voru flota-
deildir á sveimi undan Cher-
bourg-skaga og skutu þar á
standvirkin. Voru oriistuskip í
þeim deildum og fóru þau
stundum mjög nærri landi. Var
það nauðsynlegt, vegna þess
hversu veður var slæmt og
skyggni lítið.
Brctar rciðir
Tyrklum.
Bretar eru nú mjög reiðir
Tyrkjum fyrir að leyfa Þjóð-
verjum flutning fýrrverandi
herskipa um Dardanella-sund.
Segja Bretar, að skip þessi
j muni eiga að nota til hemaðar
gegn bandamönnum og hafi
þau aðeins verið afvopnuð, með-
an siglingin um sundið stóð
vfir. Það sé þvi ekki hægt að líta
öðruvísi á þau en sem herskip,
þótt þau Iiafi ekki verið vopnuð
nokkura klukkutíma.
Bretar segja, að þetta sé
freklegt brot á Montreux-satt-
málanum, sem ákveður, að her-
skip megi ekki fara um sundið.
Pétur Gautur
verður sýndur kl. 8 í kvöld í
næstsíðasta sinn. Aðgöngmiðasalan
opin frá kl. 2 í dag.