Vísir - 15.06.1944, Síða 4
VlSIR
Fimmtudagurinn 15. júni 1944.
Ð Æ.
háÉíðahaldanna
17. JONÍ:
I Reykjavík:
Kl. 9,00: Forseti sameinaðs Al-
þingis leggur blómsveig við
styttu Jóns Sigurðssonar á
Austurvelli og í'lytur ræðu.
Lúðrasveit leikur: „ó, guð
vors lands“. Stjórnandi Al-
bert Klahn.
Á Lögbergi.
Kl. 1,15: Ríkisstjóri, ríkis-
stjórn og alþingismenn ganga
til þingfundar að Lögbergi,
niður Almannagjá. Um leið
og gengið er að Lögbergi leik-
ur lúðrasveit: „öxar við ána“.
Kl. 1,30: Forsætisráðherra set-
ur hátíðina.
Guðsþjónusta. Sálmur: „Þín
miskunn, ó, guð“. Biskupinn
yfir Islandi flytur ávarp og
bæn. Sálmur: „Faðir and-
anna“.
Kl. 1,55: Þingfundur settur.
Forseti sameinaðs Alþingis
lýsir yfir gildistöku stjórnar-
skrár lýðveldisins.
Kl. 2,00: Kirkjuklukkum um
allt land hringt í 2 mínútur.
Einnar mínútu þögn á eftir
og samtímis umferðarstöðv-
un um land allt.
Þjóðsöngurinn.
Kl. 2,10: Forseti sameinaðs Al-
þingis flytur ræðu.
Kl. 2,15: Kjör forseta Islands.
Forseti íslands vinnur eið að
stjórnarskránni. *
Forseti Islands ávarpar þing-
heim.-----Þingfundi slitið.
Sungið: „Island ögrum skor-
ið“.
Kveðjur fulltrúa erlendra
ríkja.
Fánahylling: „Fjallkonan“ á-
varpar fánann.
Sungið: „Rís þú, unga Island
merki“.
Hlé.
Á völlunum:
Kl. 4,30: Formaður Þjóðhátíð-
arnefndar flytur ávarp.
Fulltrúi Vestur-Islendinga,
próf. Richard Beck, flytur
kveðju.
Lúðrasveit leikur: „Þótt þú
langförull legðir —“ (Steph.
G. Stephansson — Sigvaldi
Kaldalóns).
Þjóðhátíðarkór Sambands ísl.
karlakóra syngur. Stjórnend-
ur: Jón Halldórsson (aðal-
söngstjóri), Sigurður Þórðar-
son, Hallur Þorleifsson og R.
Abraliam.
Emil Thoroddsen: „Hver á
sér fegra föðurland“ (Hulda).
„Island farsælda frón“, ísl.
tvísöngslag.
Svbj. Sveinbjörnsson: „Móð-
urmálið“ (Gísli Jónsson).
Þórarinn Jónsson: „Ár vas
alda“ (úr Völuspá).
Svbj. Sveinbjörnsson: „Lýsti
sól“ (Matth. Joch.).
Sigfús Einarsson: „Þú ólfu
vorrar“ (Hánne's Hafstein).
Kl. 5,20: Benedikt Sveinsson,
fyrv. forseti neðri deildar Al-
þingis, flytur ræðu.
Kl. 5,15: Þjóðkórinn syngui*
undir stjórn Póls Isólfssonar
tónskálds eftirfarandi ætt-
jarðarljóð:
„Ég elska yður, þér Islands
fjöll“.
„Fjálladrottning, móðir mín“.
„Þið þekkið fold með blíðri
])rá“.
„Ég vil elska mitl land“.
Kl. 5,25: Ifópsýning 170 fim-
leikamanna undir stjórn
Vignis Andréssonar leikfimis-
kennara.
Kl. 5,40: Þjóðkórinn syngur
undir stjórn Páls Isólfssonar
tónskálds eftirfarandi ætt-
jarðarljóð:
„Nú vakna þú, lsland“,
„ó, fögur er vor fósturjörð“,
IKRA
lV. ogr 18. júní.
„Lýsti sól, stjörnustól“.
Kl. 5,50: Flutningur kvæða.
Brynjólfur Jóhannesson leik-
ari i'lytur hátíðarljóð Huldu.
Jóhannes úr Kötlum flytur
hótíðarljóð sitt.
Kl. 6,00: Islandsglíman, undir
stjórn Jóns Þorsteinssonar
fimleikakennara. Að henni
lokinni verður sigurvegaran-
um afhentur verðlaunabikar
ríkisstjórnarinnar og glímu-
belti I.S.I.
Kl. 6,30: Þjóðhátíðarkór Sam-
bands islenzkra karlakóra
syngur.
Stjórnendur: Jón Halldórsson,
Sigurður Þórðarson, Hallur
Þorleifsson og R. Abrabam.
Jón Laxdal: „Vorvísur“
(Hannes Hafstein).
Bjarni Þorsteinsson: „Ég ,vil
elska mitt land“ (Guðmund-
ur Magnússon).
Björgvin Guðmundsson:
„Heyrið vella“ (Grímur
Thomsen).
Sigvaldi Kaldalóns: „lsland
ögrum skorið“ (Eggert Ólafs-
son), einsöng syngur Pétur Á.
Jónsson óperusöngvari.
Kl. 6,45: Fimleikasýning, úr-
valsflokkur 16 kvenna, undir
stjó’rn Jóns Þorsteinssonar
fimleikakennara.
Kl. 7,00: Þjóðkórinn syngur
undir stjórn Páls lsólfssonar
tónskálds:
„Þú nafnkunna landið“,
„Drottinn, sem veittir“,
„Island ögrum skorið“.
Lúðrasveit og þjóðkórinn
leika og syngja:
„Ó, guð vors lands“.
Kl. 7,00: Fimleikasýning 16
karla, undir stjórn Davíðs
Sigurðssonar íþróttakennara.
Lúðrasveit leikur.
Kl. 9,00-r-12,00: Dans og hljóð-
færasláttur.
18.J0N1:
1-Reykjavík:
Kl. 1,30: Skrúðganga hefst við
Háskólann. Haldið verður um
Hringbraut, Bjarkargötu,
Skothúsveg, Frikirkjuveg,
Vonarstræti, Templarasund,
fram hjá Alþingishúsinu,
Kirkjustræti, Aðalstræti,
Austurstræti og staðnæmzt
fyrir framan stjórnarráðs-
húsið.
Á svölum Alþingishússins tek-
ur forseti lslands kveðju fylk-
ingarinnar.
Lúðrasveit gengur í farar-
broddi og leikur ættjarðar-
lög.
Kl. 2,00: Lúðrasveit leikur
nokkur lög fyrir framan
stjórnamjðshúsið.
Kl. 2,15: Forseti Islands flytur
ræðu til þjóðarinnar.
Að henni lokinni leikur lúðra-
sveit: „Island ögrum skorið“.
Ávörp formanna þingflokk-
anna.
S j álf stæðisflokkurinn:
Ólafur Thors alþm.
Framsóknarflokkurinn:
Eysteinn .Tónsson alþm.
Sameiningarflokkur alþýðu --
sósíaíistaflokkurinn:
Einar Olgeirsson alþm.
Alþýðuflokkurinn:
Har. Guðmundsson alþm.
Á eftir hverju ávarpi verður
lcikið ættjarðarlag.
Að lokum leikur lúðrasveitin
þjóðsönginn.
KI. 3,30—4,30: Þjóðhátíðarkór
■ Sambands íslenzkra karla-
kóra syngur í Hljómskála-
garðinum.
Kl. 10,00—11,00: Lúðrasveit
leikur í Hljómskálagarðinum.
KI. 4 verður opnuð, í húsa-
kynnum Menntaskólans sögu-
sýning úr frelsis- og menn-
ingarbaráttu Islendinga á
liðnum öldum.
Frjálsir menn.
Frjálsir menn, í frjálsu landi,
frelsið elskum vér.
Yfir vog og eyja-bandi,
yztu strönd og sker,
yfir jökulbungum breiðum,
byggð og klettastól
sldni æ, frá háum, heiðum
himni frelsissól.
Stefnum fram til stórra dáða,
starf er margt um Frón.
Enn þarf bót á ýmsu að ráða
oss er vinnur tjón.
Fyrir kæra fósturjörðu
fylkjumst, hennar börn.
Og móti böli heiftarhörðu
hefjum sókn og vörn.
Áar vorir fornu, fróðu,
frjálsir listamenn.
Á vegi okkar varða hlóðu,
vel sem leiða enn.
Þessi verkin vandað gátu
— voru þeim efnin kunn —
því hjá Eddu og Óðni sátu
oft við Mímisbrunn.
Þar er okkur gullið góða
geymt í helgum sjóð.
Mannvit glæst og menntin ljóða
mun á framaslóð
okkur lýsa, okkur verja,
okkar styrkja þor,
þegar illu öflin herja
andans ríki vor.
Orka er nóg í okkar landi,
eilíf, þrotlaus gnótt:
Ár og hverir óteljandi
oss sinn bjóða þrótt.
Vindar, títt sem ólmir æða,
aflið liafa nóg,
allar byggðir ökrum klæða,
eyðidali skóg.
Sesam Ægis út á sviði
yfir gnægtum býr.
Þangað stór, með sterku liði,
stefni floti nýr. —
Nái ógna-öldur rjúka,
og i þrotum, bú,
munum orðin upp er ljúka:
„Opnist, Sesam, þú!“
Nýr er heimur afls og anda.
Ótal bíða störf.
Neytum vits og hraustra handa,
hér er efni og þörf.
Oss sé leiðin öllum skemmri,
efst sé markið fest:
Islendingur öllum fremri!
Island foldin bezt!
Frjálsa landið, fræðalandið,
fósturlandið vort!
Allt þitt buga auðnugrandið
æðst sé heitið vort.
Efldu með oss bræðrabandið,
blessað landið vort.
Fjallalandið, fossalandið,
fagra landið, — landið vort.
Sigurður Árnason.
360-70 börn á vegum
sumardvalanefndar
Strax upp úr þjóðhátíðinni
verður farið að senda börn þau
í sveit, sem verða á vegum sum-
ardvalarnefndar.
Vísir hefir fengið þær upplýs-
ingar hjá Gísla Jónassyni, fram-
kvæmdarstjóra nefndarinnar, að
360—70 börn verði send í sveit
í sumar fyrir tilstilli nefndar-
innar. Flest barnanna verða á
harnaheimilum, en þau eru 7,
einu færri en í fyrra.
Það hefir reynzt erfitt af fá
starfsfólk á barnaheimilin og
þau taka ekki til starfa fyrr en
eftir lýðveldishátíðina, vegna
þess hversu margt af starfsfólk-
inu langar til að vera viðstatt
hana. Nú um miðja vikuna
verður birt i blöðunum auglýs-
ing um brottfarartíma barna-
hópanna og ætti foreldrar að
klippa hana úr blöðiinum og
treysta ekki á minnið.
Islandsljóð.
" *
Lag: Vormenn Islands.
Sjáið fagran frelsis roða
falda gulli tindastól,
bjart er yfir borg og landi,
bjart um Ingólfs höfuðból.
Vökudraumar vorsins rætast,
vonardegi fagna ber.
Þú ert Island, drottning dagsins,
d>Tðarvættir heilsa þér.
- »
Gegnum ár og aldaraðir
oft var leiðin þyrnum stráð.
Is og hungur, eld og kulda
áttu að baki fósturláð.
Rek þó ekld raunir þínar,
renndu sjón um farinn stig.
Yfir feiknir, fár og voða
forsjón drottins leiddi þig.
Þú ert helg og hjartabundin
hverjum dreng í sæld og þraut.
Arason með eld i hjarta
ólstu við þitt móðurskaut.
Snorra list og Egils óður
eins og stjarna i húmi skín.
Málið fagra söngs og sögu
sífellt geyma börnin þín.
Vonarglöð hin mikla móðir
mælir til vor nú í dag.
Frelsið bendir fram til dáða
framtíð boðar sigurhag.
Látum heitar Helduglóðir
herða biturt viljans stál,
þá er ekki þörf að kvíða,
þó að skyggi’ í tímans ál.
Meðan æskueldar loga
innst í hjarta sérhvers manns.
glæð þú lslands fagri fáni
framavon og manndóm hans.
Heitin þau, sem alþjóð unnum,
undir glæstu merki í dag,
skulu flytja fram til sigurs
frelsi vort og bræðralag.
Haltu jafnan hreinum sldldi
hugumkæra fóstra mín.
Andans fornu aringlóðir
auðgi og styrki börnin þín.
Sittu heil und heiðum faldi,
há og fríð og tignarleg,
móðir frægðar, söngs og sögu
sólu kysst í norðurveg.
Guðrún Magnúsd.
Frú Gerd Grieg
á förum
Leikur í ISnó annað kvöld
í síðasta sinn.
Leikfélagið boðaði blaðamenn
á sinn fund í gær til að eiga tal
við frú Gerd Grieg en frúin er á
förum héðan.
Frúin lét í ljósi.ánægju sína
yfir að hafa tækifæri til að
dveljá hér. Ilún lét það álit í
ljós, að íslenzkir leikarar væru
búnir sérstölcum hæfileikum.
„En slæm vinnuskilyrði gera
þeim erfitt fyrir. Samt ná þeir
ótrúlegum árangri,“ sagði frúin.
Frúin sagðist óska eftir að
henni gæfist kostur á að koma
aftur hingað til landsins, en
fyrst sagðist hún óska eftir að
íslenzkir leikarar ættu þess kost
að hemsækja frjálsan Noreg og
sýna þar íslenzka leiki. Frúin
fór mörgum þakklætisorðum
um liversu lienni hefði verið vel
tekið liér.
Leikritið Tora Parsberg og
Paul Lange, en þar leikur frú
Gerd Grieg aðalblutverkið,
verður leikið anna ðkvöld í sið-
asta sinn.
Gæfa fylgir
trúlofunarhringunum
frá SIGURÞÓRI.
Hafnarstræti 4.
Haínf í rðingar!
Hér með er íastlega skorað á alla húseigendur að
hreinsa nú þegar allar lóðir sínar og iendur og
verði þv^ verki lokið fyrir 17. júní n. k. Jafn-
framt et stranglega bannað að fleygja rusli eða
öðrum óþverra í lækinn, éða á óbyggðar lóðir,
og varðar sektum ef út af er brugðið.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
13. júní 1944.
Bergur Jónsson.
Tilboð óskast
í danspall og veitinga- og sælgætisskúr á Eiði við
Gufunes.
í tilboðinu er innifalið að rífa nefnd mannvirki
og flytja efnið burtu.
Tilboð sendist til Magnúsar Þorsteinssonar á bæj-
arskrifstofunum fyrir 17. b. m., er veitir allar
nánari upplýsingar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
N e f n d i n.
Auglýsing
um skoðun bifreiða og bifhjóla í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og Hafnarfjarðarkaupstað.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að liin
árlega skoðun bifreiða og bifhjóla fer á þessu ári fram sem
hér segir:
I Keflavík: Þriðjudaginn 20. júní, miðvikudaginn 21. júní,
fimmtudaginn 22. júni og föstudaginn 23. júní
kl. 10—12 árdegis og 1—6 síðdegis. Skulu all-
ar bifreiðar og bifhjól úr Keflavíkur-, Hafna-
Grindavíkur-, Miðnes- og Gerðahreppum koma
til skoðunar að húsi Einars G. Sigurðssonar
skipstjóra, Tjarnargötu 3, Keflavík.
1 Hafnarfirði: Mánudaginn 3. júli þriðjudaginn 4. júh, mið-
vikudaginn 5. júh og fimmtudaginn 6. júlí.
Fer skoðun fram við vörubílastöð Hafnar-
fjarðar, og skulu þangað koma til skoðunar
allar bifreiðar og bifhjól úr Hafnarfirði og
enn fremur úr Vatnsleysustrandarhreppi,
Garða- og Bessastaðahreppum, svo og bifreið-
ar og bifhjól úr Kjósarsýslu.
Þeir, sem eiga farþegabyrgi á vörubifreiðar, skulu koma
með þau til skoðunar ásamt bifreiðum sínum.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni eða bifhjóli til
skoðunar, verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bif-
reiðalögunum.
Bifreiðaskattur, sem féh í gjalddaga þann 1. apríl síðast-
liðinn (skattárið 1. júlí 1943—1. apríl 1944), skoðunargjald
og iðgjöld fyrir vátryggingu ökumanns verður innheimt um
leið og skoðun fer fram.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í lagi.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máh,
til eftirbrejdni.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, sýslumaðurinn i Gullbringu- og
Kjósarsýslu, 12. júní 1944.
BERGUR JÖNSSON.
Frá Sumardvalarnefnd
Þau börn, sem dvelja eiga á heimilum nefndarinnar í
sumar, mæti við Miðbæjarskólann, til brottferðar, eins og
her segir:
Þriðjudaginn 20. júní kl. 9:
Sama dag kl. 14:
Miðvikudaginn 21. júní kl. 9:
Sama dag kl. 14:
Fimmtudaginn 22. júni kl. 9:
Sama dag kl. 9:
Samá dag kl. 8:
Börnin að Brautarholti
Börnin að Silungapolli
Börnin að Reykholti
Börnin að Menntaskólaselinu
Börnin að Staðarfelli
Börnin að Sælingsdalslaug
Börnin að Löngumýri
Nauðsynlegt cr að farangri harna að Reykholti, Staðar-
felli og Sælingsdalslaug sé skilað að Miðbæjarbarnaskólanum
kl. 14 degi áður en börnin fara.
Sumardvalarnefnd.