Vísir - 21.06.1944, Blaðsíða 3

Vísir - 21.06.1944, Blaðsíða 3
VISIR Otto Tulinius 75 ápa. OttoFriðrikTulinius er fædd- ur 20. júní 1869 á Eskifii’ði. Foreldrar hans, Carl Daniel Tulinius, kaupmaður þar, og kona lians, Guðrún Þórarins- dóttir prófasts á Hofi í Álfta- fírðí, gerðu garðinn frægan á Eskifirði. Carl Tulinius var fæddur i Slésvik, son samnefnds héraðslæknis þar. Stundaði hann verzlunarnám i Khöfn og geklc i þjónustu verzlunarhúss- ins 0rum & Wulff þar í borg- inni, en þeir ráku þá og lengi síðan verzlun á Austfjörðum. Fluttist Carl rúmlega tvitugur til Djúpavogs og var verzlunar- maður þar um hríð. Verzlunar- stjóri 0rum & Wulffs á Eski- firði varð hann skömmu síðar, en kunni ekki við sig í þeirri ■töðu. Gerðist hann kaupmað- ur þar á staðnum og rak þar verzlun samfleytt í 40 ár. Lærði hann brátt íslenzku og samdi *ig að siðum Islendinga. Rómuð var rausn þeirra hjóna og mannlund. Á þjóðhátiðarsam- komu Eskfirðinga 1874 var hann i fylkingarbrjósti og sýndi mikinn höfðingsskap. Synir þeirra hjóna urðu þjóð- kunnir merkismenn og góðir Is- lendingar: Otto, Axel sýslumað- ur og Þórarinn stórkaupmaður og skipaútgerðárstjóri. Allir voru þeir hræður stórhuga og dugandi, hver á sínum stað. Otto Tulinius ólst upp á Eski- firði með foreldrum sínum og þótti snemma vænn sveinn og líklegur til mikilla átaka. Utan fór hann ungur til verzlunar- náms í Khöfn og stundaði það 3 ár og fékkst siðan við skrif- stofustörf um hríð þar i borg- inni. Að því búnu hvarf hann heim og var um skeið verzlun- armaður hjá föður sínum. Gerð- ist kaupmaður á Papós og var þar tvö ár. Því næst hóf hann verzlun að Höfn í Hornafirði og hóf þar byggð og verzlun fyrstur manna. Rak hann kaup- sýslu þar 4 ár, en fluttist til Akureyrar árið 1901 og var þar kaupmaður til ársins 1920. Rak hann á þeim árum jafnframt útgerð, bæði þorsk- og síldveið- ar. Var hann einn af mestu at- hafnamönnum Akureyrarbæjar þessi árin og meðal stærstu vinnuveitenda þar. Allir þeir, sem voru í þjónustu Tuliniusar, báru honiun söguna svo vel, að þar varð varla betur á kosið. Hann er maður í stóru broti (folio), enginn áttbíöðungur! Innanhúss þilborð (Tentest) 4x8 fet V2” n ý k o m i n. MJÚLKURFELAG REYKiAVfKUR. Til sölu: Bílskúrshurðir, notað þakjárn og timburbrak. Upplýsingar gefur GUNNAR VILHJÁLMSSON c/o Egill Vilhjálmsson. Stúlku vantar á Sjúkrahús Hvítabandsins. Iiúsnæði fylgir. — Uppl. hjá yfirhjúkrunarkon- unni. Röskur og gervilegur vaskleika- maður, fullur áhuga og dugn- aðar, ljúfur og glaður við hvern sem var, manna hjálpfús- astur og lætur sér einkar annt um verkameim sína og við- skiptamenn. Það var alltaf hressandi að hitta Tulinius. Honum var sannarleg nautn að standa í stórum framkvæmd- um, Hann leit ekki fyrst á það, hvað hann gæti grætt á fyrir- tækjunum, heldur á nauðsyn athafnanna, og þess vegna varð hann aldrei auðugur að fé. En vinsældir hans voru miklar og verðskuldaðar. Tulinius tók mikinn þátt í bæjarmálum. Sat hann 13 ár í bæjarstjórn Akureyrar og var fyrsti forseti hennar 1919 og einn af áhugasömustu og merkustn bæjarfulltrúum þar. Vísikonsúll Svía var hann mörg ár á Akureyri og er sæmdur riddarakrossi Vasaorðunnar. Risna þeirra hjóna er rómuð að maklegleikum. Hús þeirra stóð öllum opið. Er kona hans lionum samhent í öllum grein- um, Valgerður Friðriksdóttir, póstafgreiðslumanns Möller. Hafa þau verið saman í hjóna- bandi hart nær 50 ár (gift 3. ágúst 1895). Börn þeirra: Ragna, dó í blóma aldurs 1920, efniskona mikil; Guðrún, gift Kristjáni Arinbjarnar, héraðslækni í Hafnarfirði; Carl, útgerðarmað- ur á Akureyri, kvæntur; Jako- bína, gift í Reykjavík; Signý, dáin, var gift dönskum manni, og Nanna, gift Tómasi Stein- grimssynl, heildsala á Akureyri. Akureyringar héldu þeim hjónum skilnaðarsamsæti, er þau fluttust til Khafnar, 17. sept. 1920. Orti þá síra Matthias kvæði til þeirra. Árin 1920—1929 átti Tulini- usar-fjölskyldan heima í Khöfn. Rak Tulinius þau árin útgerð þaðan við Island og annaðist sölu síldarafurða, bæði fyrir sjálfan sig og aðra, þessi árin. En 1929 fluttist hann aftur til Akureyrar og hefir átt þar heima siðan og rekið útgerð. Fyrir nokkrum árum kenndi hann fótaveiki og varð hann að liggja rúmfastur árum saman, en er nú nokkuð í afturbata. En hvorki hefir þetta mótlæti né annað fengið brotið né bresta látið inn bjartsýna áhuga- og athafnamann. Athafnaþráin og áhuginn er óbilandi. Allir vinir Otto Tulinius, og þeir eru marg- ir, óska honum til hamingju hálfáttræðum og biðja þess, að ævikvöldið megi verða honum fagurt og friðsælt. B. T. Bridge-keppnin á Akureyri. Einstök úrslit í keppninni milli Akureyringa og Reykvík- inga urðu þessi: 1. umferð: Sveit Sveit Mism. Rvík. Hald. Ásgeirss. 11820 — 6860 — 4960 2. umferð: • Sveit Sveit Mism. Rvík. St. Steinsen. 9580 — 8030 — 1550 3. umferð: Sveit Sveit Mism. Rvík. Jón Sólnes. 11600 — 9780 — 1820 4. umferð: Sveit Sveit Mism. Rvík. Vemh. Sveinss. 16980 — 10610 — 6370 5. umferð: Sveit Sveit Mism. Rvík. Drval. 9610 — 8600 — 1010 59590 — 43880 — 15710 Leikar fóru því þannig, að Reykvíkingar sigruðu í öll skiptin, en þó að svo hafi farið, þá skyldi enginn ætla, að það hafi alltaf verið leikur einn að glima við Akureyringana, því að þeir sýndu oft góð tilþrif og gátu verið hættulegir. Hættast voru Reykvíkingar komnir, er þeir kepptu við sveit St. Stein- sen. Eftir fyrri lotu (16 spil) stóðu leikar þannig, að Akur- eyringar höfðu 2270 yfir, og horfði því ekki vænlega fyrir Reykvikingum. Með gætni hefðu Akureyringar átt að geta gætt þessa fengs, a.m.k. ef ekld komu stór spil. Einkum voru það tvö spil, er urðu þeim að fótakefli. Fyrra spilið var þannig, að við borð nr. 1 fóru Reykvíkingar í 3 lauf i vörn, en Benedikt Jó- hannsson doblaði, og töpuðu þeir 1100. Við borð nr. 2 fór spilið þannig, að Akureyring- arnir spiluðu 3 hjörtu og töp- uðu 200. Þar var Guðmundur Guðmundsson frá Reykholti í vöminni, en fór varlega og sagði aldrei 3 lauf, sem Stein- sen beið eftir að fá að dobla. Hitt spilið var allsnúin slemm, er Reykvíkingar unnu, með því að spila rétt úr spilunum, en Akureyringar töpuðu. Þetta var skemmtilegasta spilið í keppn- inni og sýndi einkar vel, hve varlega maður verður að fara með veika liti og eins hitt, að nota innkomuna rétt. Þó að Akureyringar hafi orð- ið undir, þá leyndl það sér ekki, að þeir eiga marga góða bridge- spilara og suma ágæta. St.Stein- sen her þó af, enda er hann af- burða spilamaður. Þeir Vern- liarður Sveinsson, Þórður Sveinsson, Fr. Hjaltalín, Árni Sigurðsson, Stefán Árnason og Þorlákur Jónsson mundu allir sóma sér vel í meistaraflokki hér. Wið Reykvíkingarnir, er norð- ur fórum, kunnum ykkur Ak- ureyringum alúðar þakkir fyrir rausnarlegar og hlýjar móttök- ur og vonumst til að fá tæki- færi til að mæta ykkur við græna borðið hér í höfuðstaðn- um áður en langt líður. Á. KolviSarhóIL Tekið á móti dvalar- gestum í lengri og skemmri tíma. Einnig veizlur og sam- kvæmi. Veitingahúsið Kolviðarhóll. Stúdentasanband íslands stofnað. Landsmóti íslenzkra stúdenta er nú lokið, en það stóð dagana 18. og 19. júní. Var við þetta tækifæri stofnað Stúdentasam- band Islands. Mótið hófst í Tjarnarbió þ. 18. júní með því, að Ölafur Lár- usson prófessor flutti mjög snjallt og fræðandi erindi um þátt íslenzkra stúdenta í sjálf- stæðisbaráttu íslenzku þjóðar- innar. Síðan talaði Ásgeir Ás- geirsson bankastjóri um sjálf- stæði Islands og afstöðu lands- ins til annara þjóða í framtíð- inni. Gylfi Þ. Gíslason dósent ræddi því næst um viðnám gegn erlendum áhrifum, Páll S. Páls- son form. Stúdentaráðs flutti erindi um stofnun Stúdenta- sambands og Ágúst H. Bjarna- son próf. ræddi um skólamál. I málin, sem um var rætt, voru skipaðar nefndir og skil- uðu þær tillögum í gær. — 24 manna fulltrúaráð var kosið fyrir Stúdentasambandið. Héfðinglegaz gjafir til barnaspítalasjóðs Hringsins. Stór-höfðingalegar gjafir bár- ust til barnaspítalasjóðsHrings- ins þ. 17. júní: Hr. Othar Ellingsen, f. h. O. Ellingsen h.f. gaf 25 þús. kr. Hið íslenzka steinolíufélag 5000 kr. og hr. P. L. Mogensen lyf- sali 1000 kr. Stjórn Hringsins biður blaðið að færa gefendunum sínar inni- legustu þakkir fyrir gjafirnar. Gliman: Guðm. Ágústsson sigraði. Orslit Islandsglímunnar, sem fram átti að fara 17. júní að Þingvöllum, en var frestað vegna veðurs, fór fram í fyrra- kvöld í húsi Jóns Þorsteinsson- ar við Lindargötu. Guðmundur Ágústsson úr Ár- manni bar hæstan hlut og hlaut hann 8 vinninga og felldi alla keppinauta sína. Fékk Guð- mundur bæði fegurðarverðlaun- in og bikar þann, sem ríkis- stjórnin gaf til þess að keppa um, auk glímubeltis I.S.I., sem fylgir glímukonungsnafnbót- inni. Voru verðlaunin afhent strax að glímunni lokinni. Næst- flesta vinninga hlaut Finnbogi Sigurðsson, eða 7. Þriðji varð Einar Ingimundarson úr Ung- mennafélaginu Vöku. Bæjar fréttír Sögnlega sýningin var opnuS í gær, aÖ viSstöddum forseta Islands, ríkisstjóra, fulltrú- um erlendra ríkja, alþingismönnum og fleiri gestum. Próf. Ólafur Lár- usson lýsti tilgangi þessarar sýning- ar, en nenni er ætlaS aS bregSa upp myndum af frelsis- og menningar- baráttu íslenzku þjóSarinnar. — Er þarna ýmislegt aS sjá og sumt af því nokkuÖ snoturt. Næturakstur: B. S. í. Sími 1540. Útvarpið í kvöld. Kl. 20.30 Útvarpssagan (Helgi Hjörvar). 21.00 Hljómplötur: Is- lenzkir einsöngvarar og kó^ar. 21.15 Upplestur: „Úr byggSum Boi’gar- fjaröar", bókarkafli eftir Kristleif Þorsteinsson (Þorsteinn Jósepsson blaSamaSur). 21.35 Hljómplötur: Lagaflokkur eftir Coleridge-Taylor. Lúðrasveit Reykjavíkur (30 manns) leikur í Hljómskála- garSinum í kvöld kl. 9, ef veSur leyfir. Stjórnandi Albert Klahn. — Aug/ýsingar sem birtast eiga í laugardagsblöðunum í sumar, verða að vera komnar til blaSsins fyrir kl. 7 á föstudagskvöldum, vegna þess, að vinna í prentsmiðjunni hættir kl. 12 á laugardögum. DAGBLAÐIÐ VISIR. B í 1 s t j ó r i. Bílstjóri með meira prófi, sem búinn er að keyra í sjö ár, óskar eftir atvinnu við að keyra vörubíl eða stóran bíl. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 24, þ. m., merkt: „Framtíð“. Nokkrar duglegar stúlkur óskast nú þegar. Kexverksmiðjan Frón hi. Sími 3162. AKRANES - ÖLVER. Áætlunarferðir í ölver alla daga kl. 12,30, nema laugardaga 13,30. Þ. Þórðarson Sími 17 — Akranesi. AKRANES - HREÐAVATN. Áætlunarferðir hef eg 22. þ. m. alla daga eftir komu m/s Víðir kl. 12,30 frá Akranesi, — kl. 15,30 frá Hreðavatni, nema laugar- daga, þá 15,30 frá Akranesi og 18,30 frá Hreðavatni. Þ. Þórðarson Sími 17 — Akranesi. Frelsi og menning, Sýning úr frelsis- og menningarbaráttu Is- lendinga verður opin daglega kl. 1—10 e. h. í Menntaskólanum. Aðgöngumiðar á kr. 5,00 seldir við innganginn. Þjóðhátíðarnefnd. Jarðarför mannsins míns og föður okkar, Vilhjálms Ásmundssonar frá Vogsósum, fer fram frá Fríkirkjunni og hefst með húskveðju frá heimili hins látna, Seljavegi 5, föstudaginn 23. þ. m. kl. 1 yz. Blóm eru afbeðin, en þeir, sem vilja heiðra minningu liins Iátna með gjöfum, eru beðnir að láta þær renna til Slysa- varnafélagsins. Hólmfríður Snorradóttir og börn. ■ . c Ekkjan Sigríður Þorbjörg Daníelsdóttir frá Fáskrúðarbakka andaðist á heimili mínu, Sólbergi við Langholtsveg, aðfaranótt þriðjudags 20. þ. m. Vandamenn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.