Vísir - 03.07.1944, Page 3
VlSIR
Brasilinfararnir!
« X
Einhver hugðnæmasta og skemmtilegasta skáldsaga, sem út hefir komið hér á landi, Brasilíufararnir, eftir vestur-íslenzka rithöfundinn
Jóhann M. Bjarnason, er nú komin út í nýrri og vandaðri útgáfu. Fyrri útgáfan kom út um aldamótin á forlagi Odds Björnssonar,
Akureyri, og varð metsölubók síns tíma. Hún hefir verið ófáanleg í mörg ár og eftirspurnin jafn þrotlaus. Það mun óhætt að fullyrða,
að fáar skáldsögur hafi náð jafn óskertri hylli lesandans, sem hún, enda fer þar saman afburða skemmtilegt lesefni og snilld i frásögn.
Látið ekki undir höfuð leggjast að eignast þessa viðburðaríku og heillandi bók. Takið hana með í sumarfríið; betri bók fáið þér ekki.
Hin vinsæla skáldsaga Jóhanns M. Bjarnasonar
EIRÍKUR HANSSON
kemur út bráðlega.
Aðalumboð:
Bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar
Lækjargötu 6 A. — Sími 3263.
UNGLINCA
vantar frá næstu mánaðamótum til að bera út blaðið um eftir-
greind svæði:
LAUGAVEGUR NEÐRI
SÓLVELLI
SOGAMÝRI
Talið við afgreiðsluna. — Sími 1660.
DAGBLAÐIÐ VlSIR.
Baick-hjólkoppur 1941
tapaðist fxá Þiitgvöilum til Revkjavilkwy. —
Shilist gegu fundarlaunum k sknfstofu
forseta islands.
Alþingishúsinu,
Kaupamaður -
matreiðslukona.
Vanur heyskaparmað-
ur, sem hefði verkstjórn
á hendi að nokkru leyti,
getur fengið atvinnu við
búið að Belgsholti í
Melasveit. Sömuleiðis
óskast matreiðslukona.
Uppl. á Laugavegi 43.
HtMRBIiD ViSIS
Ennþá fást nokkur eintök af þjóðhátíSarblaði Vísis.
Þeir, sem ætla sér aS eignast blaSiS, ættu aS snúa sér
strax til afgreiSslunnar.
DAGBLAÐIÐ VlSIR.
Saltkjötið þrýtur næstu daga.
Síldveiðiskip og aðrir, sem eiga eftir
að kaupa kjöt til sumarsins, þurfa
að gera það nú þegar.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ungui piltui
getur komizt að sem
trésmíðanemi nú þegar.
Tilboð merkt „Smiðs-
efni“ sendist Vísi fyrir
föstudagskvöld.
Chevrolet
vörubifreið
til sölu. Uppl. hjá verk-
stjóranum hjá Jóh. Ól-
afssyni & Co. í dag og
næstu daga.
Gæfa fylgir
trúlofunar-
hringunum
frá
SIGURÞÓR,
Hafnarstr. 4.
Nokkrar stúlkur
óskast til að leysa af í sumarfríum. —
Um lengri atvinnu gæti verið að ræða.
Kexverksmiðjan ESJA h/f.
Stúlku
vantar strax á
Elli- og hjúkrunarheimilið
G R U N D.
Upplýsingar gefur yfirhjúkr-
unarkonan.
Eldíast
GLER.
HOLT
• Skólavörðustíg 22.
Háseta
vantar á síldveiðibát.
Uppl. á Austurgötu 7, Hafnarfirði.
Stónósótt
gluggatjalda-
eíni.
VERZL.C
sextugur í dag.
Svona líður tíminn fljótt. Mér
finnst þó stutt síðan eg liitti
Felix Guðmundsson fyrst, en
það var reyndar fyrir 31 ári.
Við vorum samskipa til Isa-
fjarðar á Stórstúkuþing. Þá
þegar var hann orðinn dugandi
starfsmaður innan vébanda
Reglunnar. Áhuginn inn sami
fyrr og síðaL Eg kynntist hon-
um enn betur síðar, er við átt-
um sæti saman í framkvæmda-
nefnd Umdæmisstúkunnar nr.
1, en hann var þá formaður
liennar. Þegar eg var lormað-
ur Reglunnar hér á landi (1924
-—27), var Felix mín önnur
hönd hér syðra, og mun eg
aldrei gleyma þeirri ágætu sam-
vinnu, er með okkur var þá.
Síðan hefi eg hitt Felix á hverju
ári, og alltaf er hann samur við
sig. Einstakur áhuga-, dugnað-
ar- og kjarkmaður, hugkvæm-
ur og vel máli farinn. Bind-
indis- og bannmálið hefir alltaf
verið honnm hjartfólgið. Starf
hans er orðið langt og farsælt í
Reglunni. Samfleytt 12 ár átti
hann sæti í framkvæmdanefnd
Stórstúkunnar. Rækti hann
starf sitt þar afburða vel, en
hann er svo mikill hardagamað-
ur, að samherjum hans þótti
mörgum nóg um, og fyrir því
var starfið stundum þreytandi
fyrir Felix. En honum var og er
alltaf ljóst, að enginn sigur fæst
án stríðs. Striðsmaðurinn Felix ;
Guðmundsson naut sín ágætlega ;
sem ritstjóri Sóknar, en hann 1
gegndi því starfi alltof stuttan
tima. — Andstæðingar hans
virða hann, af því að þeir vita,
að barátta hans, oft hlífðarlaus,
er óeigingjörn. Honum er mál-
efnið fyrir öllu.
Eg er einn þeirra manna í
Reglunni, sem harma það, að
l>essi ágæti forystumaður skuli
ekki hafa fengið að njóta krafta
sinna við stjórnvöl Reglunnar
í landinu, og eg lít svo á, að
Reglan liafi beðið tjón við það.
Felix Guðmundsson lærði
múraraiðn á ungum aldri. Vann
hann við húsagerð og verk-
stjórn ú árunum 1907—1919, en
ums j ónarmaður kirk j ugarðs
Rvikur varð hann 1919, og
gegnir hann þeirri sýslan enn í
dag. Ráðunautur og leiðbein-
andi um framkvæmd laga um
kirkjugarða varð hann árið
1935. Er hér um brautryðjanda-
stai'f að ræða, mjög nytsamlegt,
og hcfir Felix gegnt því með
góðum árangri.
Einn af forystumönnum um
sjúkrasamlög má telja hann, og
hefir hann verið í stjórn Sjúkra-
samlags Reykjavíkur 1920 og
-síðan.
I hindindismálaráði Islands
liefir hann átt sæti frá 1938 og
formaður áfengisvarnanefndar
Höfum enn nægar birgðir af:
Fiosnu kálía- og nautakjöti,
Frosnu svínakjöti.
Fáum öðru hvoru:
Nýslátrað nauta- og kálfakjöt.
FRYSTIHÚSID HERÐUBREIÐ
Sími 2678.
5085.
Efnagerð
í fullum gangi, með góðum sykurskammti, er til sölu.
Upplj'singar ekki gefnar í síma.
Sölumiðstöðin
Klapparstíg 16.
Móðir okkar,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Vitastíg 11,
lézt sunnudaginn 2. júlí á Landsspítalanum.
Ólafur og Sigurður Sigurðssynir.
Reykjavíkur. Hann hefir rit-
að margar greinar í blöð og
flutt fjölda erinda í útvarp vurt
bindindi og bann, skipulag og
starfrækslu kirkjugarða og nm
sjúkrasamlög.
En Felix hefir komið enn víð'-
ar við. Hann er einn af elztu
og áhugasömustu forkólfum
Alþýðuflokksins og var í mið-
stjórn hans um hríð. I niðup-
jöfnunarnefnd Reykjavíkur var
hann 7 ár og í byggingarnefnd
8 ár. Formaður Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis hefir
hann verið um hríð
Kvæntur er Felix Sigurþóru
Þorbjarnardóttur, hónda í Mjó-
sundi Sigurðssonar, og eiga þau
tvö efnileg börn. Er heimili
þeirra ið prýðilegasta, og
þakkar sá, er þessar línur ritar,,
þeim hjónum margar ánægju-
stundir á heimili þeirra.
Felix er fæddur á Ægissíðu
í Holtum 3. júlí 1884. Voru for-
eldrar hans Guðmundur Felix-
son, síðar verzlunarmaður, og
kona hans Guðný Jónsdóttir
bónda í Steinstóft Jónssonar.
Afi Felixar og alnafni, merkis-
hóndinn Felix Guðmundsson á
Ægissíðu, var sonur Guðmund-
ar bónda þar, Felixsonar í
Vatnskoti í Þykkvabæ, Guð-
mundssonar í Arahæ í Flóa, Ás-
mundssonar í Svíðugörðum Ás-
mundssonar. Kona Felixar á
Ægissiðu og amma afmælis-
barns vors var Helga Jónsdótt-
ir bónda í Hfíðarendakoti Ól-
afssonar prests í Ásum Pálsson-
ar. Fn kona sr. Ölafs var Helga
Jónsdóttir prófasts á Prests-
bakka Stcingrímssonar, svo að
Felix Guðmundsson kirkju-
garðsvörður er 5. maður frá sr.
Jóni Steingrímssyni. — Kona
Jóns í Hlíðarendakoti var Ingi-
björg Guðmundsdóitir frá
Fljótsdal, Nikulássonar sýslu-
manns Magnússonar, Benedikts-
sonar, Pálssonar, Guðbrands-
sonar biskups Þorlákssonar.
Bróðir Jóns i Hlíðarendakoti
var sr. Páll i Guttormshaga. er
fórst á Mýrdalssandi með öe-
fjord sýslumanni 1823, faðir sr.
ólafs dómkirkjuprests og Guð-
rúnar, konu sr. Jóns á Stóra-
Núpi Eiríkssonar, en meðal
barna þeirra hjóna voru þær
Helga, móðir Páls á Ásólfsstöð-
um, og Kristín, móðir dr. Jóns
yfirkennara Ófeigssonar. Eru
þeir því fjórmenningar Felix,
Páll og dr. Jón.
Eg árna afmælisbarninu allra
heilla og þakka honum ið bezta
vináttu um þrjá tugi ára.
Brynleifur Tobíasson.
Nýlega
hafa eftirgreind fyrirtæki verið
sektuð seni hér segir fyrir brot á.
verðlagsákvæðum: Heildverzhm
Jóns Ileið'berg. Sekt og ólöglegur
hagnaður kr. 8808,83, fyrir of hátt
verð á glervörum. — Vélsmiðja
Siglufjarðar. Sekt kr. 300,00 fyrir
of hátt verð á vélavinnu. — VcrzL
Guðmundar Agnarssonar, Rcykja-
vvk. Sekt og ólöglegur hagnaður kr.
x993-3°, fyrir keðjuverzlun með
byggingárvörur. — Reykjavík, 29.
júní X944. — Skrifstofa vcrðlags-
stjóra.