Vísir - 01.08.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 01.08.1944, Blaðsíða 1
Hltstjórar: Kristján Guðlaugssop ' Hersteinn Pátsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3.«hxð) Ritstjórar Blaðamenn Auglýsingar Gjaldkerl Afgreiðsla Slmli 1660 S llnur 34. ár. Reykjavík, þríðjndaginn 1. ágúst 1944. 171. tbl. Enn reynt að fá Finna úr stríðinu. Andstæðingar finnsku stjórn- arinnar eru aftur byrjaðir á til- raunum til að koma henni frá. Umræður fara fram á hverj- um degi og oft á dag milli stjórnmálamanna í Helsinki og nefndir hafa einnig gengið á fund stjórnarmeðlima, til að at- huga, hvort stjórnin hafi ekki breytt afstöðu sinni eftir lnnar miklu hrakfarir þýzku herjaima á öllum austurvígstöðvunum. Sendiherra Finna í Berlin, sem Kivimáki heitir, er farinn þaðan á leið til Helsinki. Hann fór í gærkveldi um Málmey til Stokkhólms. Finnska þingið kemur saman til fundar í dag. Er búizt við hörðum átökum milli friðar- sinna og Þjóðverjavina. Nýr yfirmaður Asíufiota Breta ■ Sir Bruce Frazer hefir verið gerður yfirmaður Asíu-flota Breta. Frazer stjórnaði heimaflota Breta, er Scharnhorst var sökkt um síðustu jól, en hann tekur við af Sir John Summerville, sem var um langt skeið næstur Sir Andrew Cunningham á Miðjarðarhafi, þegar floti Itala fékk sem versta útreið. Meðlasr með óskil- sretnnoa köroana. I síðasta Lögbirtingablaði birtir Félagsmálaráðuneytið auglýsingu um meðalmeðgjöf með óskilgetnum börnum frá í dag til 31. júlí 1945. Meðgjöfin er hæst í Reykja- vík, eins og venjulega. Til fjög- urra ára aldurs og aftur á 7 —15 ára aldri er meðgjöfin 680 kr. fyrir árið. Fyrir hörn 4—7 ára er meðgjöfin 570 kr. og á sextánda ári 340 kr. 1 öðrum kaupstöðum er með- gjöfin lægri, allt niður í 440 kr. í hæsta aldursflokki. Sýslurnar allar — nema Gullbringu- og Kjósarsýsla — eru í sérflokki, þar sem hæsta greiðsla er 370 kr. á ári fyrir börn til fjög- urra ára og 7—15 ára aldurs, en lægri á öðrum aldri. í Gull- bringu- og Kjósarsýslu eru með- lögin hærri. Churchill talar. Churchill mun halda ræðu fyrir þingheimi á morgun og ræða stríðshorfur. Gert er ráð fyrir því, að hann ræði um baráttu Breta gegn rakettusprengjum Þjóðverja, en auk þess má búast við því, að hann minnist á Tyrki og af- stöðu þeirra til styrjaldaraðila. Loftsóknin á Kyrrahafi. Þótt lítið sé getið um hern- aðaraðgerðir á Kyrrahafi um þessar mundir, er þó ekkert Mt á árásum á stöðvar Japana. Flugvélar bandamanna hafa gert margar árásir upp á síð- kastið á ýmsar helztu eyjar, sem Japanir hafa gert að mikl- um bækistöðvum. Meðal þeirra eru Nauru, Palau, Ponape og Yap. Hafa árásir verið gerðar á hverjum degi á sumar þess- ara eyja. Þelr ætla að nota flota Þjóðverja Bandamenn ætla að taka flota Þjóðverja í notkun eftir að stríðinu í Evrópu er lokið. Glassford varaflotaforingi í ameríska flotanum hefir látið svo um mælt við blaðamenn, að bandamenn muni ekki hika við að nota allt, sem nýtilegt er úr þýzka flotanum — bæði skip og hugmyndir — þegar þeir verða búnir að ná honum, og snúa sér af alefli gegn Japön- um. Göring, Keitel og Dönitz fara til A.-Prússlands. óduKii fyrir Bn§§a tíl li,i§tra§ait§ ©gr A.Pni§§Ian«l§. Sænskar fregnir herma í morgun, að þrír af æðstu her- mönnum Þýzkalands, Göring, KeiteJ og Dönitz hafi verið á ferð í A.-Prússlandi um síðustd helgi. Förin var farin til þess að at- huga möguleika á því að stöðva Rússa, áður en þeir komast inn í Austur-Prússland, því að það vilja Þjóðverjar forðast um- fram allt og eru reiðubúnir til að leggja mikið í sölurnar. Fóru þremenningarnir um vígstöðv- arnar næst A.-Prússlandi og sátu ráðstefnur með helztu for- ingjum liersins þar. I Þrjár aðalsóknir. Rússar sækja nú fram af mestu lcappi á þrem stöðum. Þeir eiga 30—40 km. leið til sjávar við Riga og tóku í gær hrautarstöðina Jelgava, sem var ein mikilvægasta samgöngu- miðstöðin, sem enn var á valdi Þjóðverja í Eystrasaltslöndum. En þarna her að athuga, að stór- slcotalið Rússa skýtur á helm- ing þess svæðis, sem enn er milli þeirra og sjávar. 1 gærkveldi var talið, að Rúss- ar ætti um 25 km. ófarna til A.- Prússlands. Höfðu þeir þá farið 50 km. leið á tveim dögum, síð- an þeir hófu sókn sína á nýjan leik. Tóku þeir m. a. horgina Marienpol, sem er skammt frá landamærunum. Loks munu Rússar hafa >verið um 15 km. frá úthverfum Var- sjár í gærkveldi. Eru þeir því komnir í skotfæri við borgina. 2000 bæir. Rússar sóttu fram nær alls staðar milli þessara aðalsóknar- svæða. Auk þess nálguðust þeir enn eitt skarðið í Karpata- , fjöllum. Þeir tóku alls 2000 hæi í gær og hafa aldrei tekið fleiri á einum degi. Möguleikar bandamanna til einangrunar Bretagne. Ný landganga á Nýju-Guineu. 15.000 Japaxair kóaðir ixmi. Hersveitir MacArthurs hafa framkvæmt nýja landgöngu á vestasta odda Nýju-Guineu. Landgangan átti sér stað 100 km. fyrir norðaustan þorpið Sorong á sunnudagsmorgun og tóku bandamenn jafnframt tvær eýjar, sem eru undan ströndinni þar um slóðir. Með þessu móti hafa bandhtnenn króað inni 15,000 manna jap- anskt lið, sem á sér ekki undan- komu auðið. Amerísk og áströlsk beitiskip vernduðu landgönguna, sem var framkvæmd án þess að Japanir gætu að gert. Barátta gegn kali í háloftsfiugi Lælcnar bandamanna hafa unnið mjög á í haráttu sinni fyrir að verja flugmenn kali í árásarleiðöngrum. Fyrir einu ári kól 60 menn af liverjum 10.000, sem sendir voru í leiðangra, þar sem nauð- synlegt var að fljúga í mikilli hæð. Siðan hefir svo mikið á unnizt með bættum klæðnaði og öðrum tækjum, að nú kelur aðeins fjóra menn af hverjum 10.000. Gjöf til björgunar- skútu Vestfjarðar. Formanni Stysavarnadeild- arinnar á Þingeyri hefir verið færð rausnarleg gjöf. Er það fjárhæð, 3000 krónur, sem verja á til smíði björgun- arskútu fyrir Vestfirði. Er mik- ill áhugi á Vestfjörðum fyrir því, að skútan verði smiðuð sem fyrst og liafa margar veg- legar gjafir verið gefnar til hennar. Nýr skólastjóri Málleysingaskólans. Brandur Jónsson málleys- ingjaltennari hefir verið settur forstöðumaður Málleysingja- skólans frá 1. næsta mánaðar. Frá sama tíma hefir for- stöðukonu skólans, frú Mar- gréti Rasmus, verið veitt lausn frá embætti. Hefir hún unnið við skólann um langan aldur og getið sér góðan orðstír í því starfi. Erkibiskupinn af Westminst- er gekk í gær á fund páfa í Rómaborg. ★ Áróðursnefnd húlgarska rík- isins hefir verið sett af. ★ Japanir segjast hafa hrakið ])andamenn úr Myitkyina með gagnálilaupi og fellt 1000 menn í síðustu hríðinni. k leið sv&ðux Cherbouxg-skaga, Bandaríkjamenn sækja nú fast á hæla Þjóðverjum suður Cher- bourg-skaga. Myndin hér að ofan s>Tnir amerískan skriðdreka- bana fara um borgina Carentan á skaganum. Hreingerningin gengnr vel. Hreinsun á allslíonar rusli umhverfis hús hér í bænum heldur áfram og ber mikinn ár- angur. Fólk tekur því að vonum vel, að hreinsað er til í umhverfi þeirra og má segja, að ýmsir staðir hafi tekið algerum stakkaskiptum við þessa „her- ferð“ lögreglunnar. En nú verða menn að gæta þess framvegis, að láta ekki allt fara í sama farið. Þá er verr farið en heima setið. Hnefaleikaíör Ármenninga norður í land Flokkur hnefaleikamanna úr Glímufélaginu Ármann fór áleiðis norður í land í gær. 1 gærkveldi sýndi hann á Ákra- nesi, en á morgun mun liann sýna á Akureyri og siðan á Húsavík. Sýningunni stjórn- ar Peter Vigelund, en fararstjóri Ármenriinganna er Guðmundur Arason. Meðal annara eru í för- inni 4 af núverandi Islands- meisturum í hnefaleik og er einn af þeim fararstjórinn, Guðmundur Arason, sem er nú- verandi meisari í þungavigt. Milljón §mále§ta nauð§^nja nm Periin. Á laugardag höfðu banda- menn flutt milljón smálesta af nauðsynjum til Rússlands um Persíu. 1 tilefni af þessu rita blaða- menn, sem hafa bækistöð í Te- lieran, langar greinar um afrek verkfræðinga bandamanna, sem hafa lagt fullkomna vegi og járnbrautir um einhver torfær- ustu héruð, sem til eru í vestur- liluta Asíu. Þykir það liið mesta þrekvirki, sem áunnizt hefir þar eystra, síðan liaustið 1941. Drengjameistaramót L S. I. — Tvö drengamet sett. Drengjameistaramót 1. S. 1. var háð sl. laugardag og sunnu- dag. Á mótinu voru sett tvö drengjamet, bæði í þristökki. Fyrra metið, 13,19 m., setti Halldór Sigurgeirsson (Á.), en síðar í sömu keppni bætti Þor- kell Jóhannesson úr Fiml.fél. Hafnarfjarðar það upp í 13,22 m. Gamla drengjametið, 13,17 m., setti Slcúli Guðmundsson, K. R„ árið 1942. Urslit í einstökum greinum urðu sem hér segir: 100 m. hlaup: 1. Bragi Friðrikss. KR 12,6 sek. 2. Halld. Sigurgeirss. Á 12,6 — 3. Gunnar Melgas. Umf. R. 12,7 Hástölck: 1. Þorlc. Jóhanness. FH 1,60 m. 2. Árni Gunnlaugss. FH 1,60— 3. Ásgeir Einarsson KR 1,55 — 1500 m. hlaup: 1. Óskar Jónsson IR 4:30,0 mín. 1 2. Gunnár Gíslason Á 4:37,6 — 3. Helgi Steinsson IR 5:17,0 — Kringlukast: 1. Bragi Friðrikss. KR 41,95 m. 2. Sigurj. Á. Ingas. Hvöt 33,90 3. Halld. Sigurjónss. Á 31,05 m. Langstökk: 1. Þorlc. Jóhanness. FH 6,23 m. 2. Halld. Sigurgeirss. Á 5,93 — 3. Björn Vilmundars. KR 5,92 Frh. á 3. síðu. Bandaríkjamenn búast um í Avranches. Vínarbúar ekki á móti nazistunr Vínarbúar eru frekar á móti Prússum en nazistum, segir í grein, sem birzt hefir í sænska blaðinu Dagens Nyheter. Blaðið hefir látið fréttaritara 1 ferðast um landið til að lcynn- ast högum manna. Hann segir, að matvælaástandið í Vín sé hetra nú en á öðru ári stríðsins, horgin sé óslcemmd eftir loft- árásir, en í Wiener Neustadt hafi 5000 manns farizt af völd- um loftárása. Bretar stækka sixm fleyg um helming. Me3 því að komast alveg að rótum Cherbourg-skaga hafa bandamenn skapað sér margvíslega möguleika til hættulegrar sóknar á hendur Þjóðverjum. Bandarílcjamenn virðast vera að búa um sig í Avranches og þeim borgum, sem þeir hafa telcið undanfarna daga, styrlcja þar aðstöðu sína og búa sig undir næstu hríð. Virðast mest- ar líkur til þess, að bandamenn reyní þá að brjótast þvert yfir Bretagne-skaga, sennilega til Leiru-ósa, og vel er líklegt, að um leið verði gerð tilraun til landgöngu þar á suðurströnd skagans, þegar sóknin verður komin í algleyming. Þetta virðist vera girnilegasti möguleilcinn, sem bandamenn hafa nú, en þeir geta líka beint sókn í ýmsar aðrar áttir. Þó virðist þessi einna líklegust til sigurs, elcki sízt vegna þess að þarn^ verða Þjóðverjar nú að koma sér upp vörnum frá grunni. i Bretar halda áfram. í morgun er þess eklci getið, að Bandarílcjamenn liafi sótt fram suður fyrir Avranches, en hinsvegar segir tilkynning her- stjórnarinnar frá þvi, að 2. her Breta hafi vílclcað og lengt fleyginn, sem hann var búinn að relca í varnir Þjóðverja suð- ur af Caumont, svo að hann er nú tvisvar sinnum stærri en í gærmorgun. Hafa Bretar meðal annars hrotizt yfir á eina um 13 km. fyrir sunnan Caumont og l)æ- irnir Torigny og Cahagnes eru á þeirra valdi. Ógerningur án flugvélaverndar. Flugvélahópar handamanna halda uppi sífeldum árásum á stöðvar Þjóðverja til að „mýkja“ þær fyrir skriðdrelc- ana og fótgönguliðið. Hefir Bradley, yfirmaður Bandarikja- manna, sent flugliernum þalclca- skeyti og sagt, að sólcn banda- manna liefði verið óframkvæm- anleg, ef flughersins liefði elcld notið við. Eisenliower ánægður. Síðastliðinn laugardag fór Eisenhower til Frakklands og fylgdist með hernaðaraðgerð- um. Hann sagði við blaðamenn, að hann væri mjög ánægður með gang málanna og fram- sólcn bandamanna hefði greini- lega sýnt, að þeir hefði valið réttu leiðina, þegar sókn Banda- rílcjamanna var hafin. „Við erum á byrjunarstiginu ennþá,“ sagði hann ennfremur, „en óðum líður að því, að Þjóð- verjar fái að finna allan þunga orlcu olclcar.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.