Vísir - 01.08.1944, Blaðsíða 2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar: 16 60 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Færeyingar
pæreyingar, sem hér dvelja um
þessar mundir, héldu Ólafs-
vöku síðastliðinn sunnudag að
færeyskum hætti. Frá því er
styrjöldin hófst hafa viðskipti
Islendinga og Færeyinga aukizt
til mikilla muna, og hefir það
beinlínis leitt af erfiðleikum
þeim, sem styrjöldin hefir vald-
ið fyrir þessar eyþjóðir báðar.
Færeyingum hefir veitt öllu
erfiðar en okkur, að því er hezt
verður séð, og hingað sendu
þeir nefnd manna í fyrra til
þess að semja við okkur um
viðskipti og fyrirgreiðslu. Því
miður munum við ekki hafa
getað greitt úr málum þeirra
svo sem við hefðum óskað, en
þó gert það, sem við varð kom-
ið. Er það mjög ánægjulegt, ef
við gætum orðið þessari frænd-
þjóð okkar að verulegu liði,
enda er saga eylendanna beggja
nátengd og að ýmsu leyti hin
sama, þótt okkur hafi tekizt
fyrir atburðanna rás að þoka
málum okkar nokkuð lengra
áleiðis.
Færeyingar ala ríka sjálf-
stæðisþrá í brjósti engu síður
cn Islendingar, en eyjarnar eru
nú taldar óaðskiljanlegur hluti
Danayeldis, þótt heimastjórn
hafi þær fengið að nokkru.
Þióðin er fámenn, en við ýmsa
crfiðleika að etja frá iláttúr-
unnar hendi. Framfarir hafa þó
orðið miklar í eyjunum það
r-em af er jæssari öld og fram-
farahugur er mikill með þjóð-
inni. «öfðu Færeyingar komið
sér upp myndarlegum togara-
flo.ta. og fjölda annara fiski-
skipa, en af styrjaldarorsökum
hafa þeir goldið mjög mikið af-
liroð bæði á mönnum og skip-
um, en livorttveggja eru þung-
ar raunir lítilli og fátækri þjóð,
scm vifl fram. Enn fremur mun
hafa dregið verulega úr at-
vinnu í eyjunum og fyrir for-
göngu mætra manna þar og hér
hafa Færeyingar komið all-
margir hingað til sumaratvinnu
og nokkrir dvalið hér að stað-
aldri síðustu fjögur árin.
Færeyingar hafa ávallt sýnt
okkur Islendingum mestu vin-
semd. Stafar það sumpart af
frændsemi, sameiginlegri sögu
þjóðarinnar og loks sennilega
öllu frekast af hinu að báðar
þjóðirhar eru svo smáar að þær
geta átt vinsamleg skipti sam-
an án þess að önnur hvor eða
báðar þurfi að óttast yfirráða-
ráðatilhneigingar hinnar. Svo
ætti það að vera í sambúð þjóða
í milli, en margur misbrestur
hefir á því orðið, svo sem dæm-
in sýna. Islendingum er ekki að-
eins rétt að hjálpa frændþjóð
sinni, Færeyingum, eftir í'rek-
ustu getu nú á erfiðleikatíma-
bilinu, heldur er það beinlínis
skylt og sjálfsagt að gera, sé
okkur ekki meinað það eða
vegna ómöguleika. Vinsamleg
sambúð Færeyinga og Islend-
inga má aldrei undir lok líða.
enda mun engin þjóð eiga auð-
vcldara en við að skilja sögu
Færeyínga og viðhorf nú í dag,
og það eitt er víst, að almenn-
ingur hér í landi mun fylgjast
af miklum áhuga með baráttu
.... ' .4
ÁlyktaniF StóFstúkuþings:
Lokun áfengisútsala, héraðabön
löggæzla og bindindisfræðsla í
n, aukin
skólum.
Þingid var kaldid á Akureyri"
Jtórstúkuþingið var haldið á fundum, þar sem tillögur eru
Akureyrí í lok júnímán-
aðar. Vegna þess, að það var
haldið utan Reykjavíkur, hafa
höfuðstaðarbúar ekki eins átt
þess kost, að kynna sér sam-
þykktir þess.
Meðal samþykktra tillagna
þingsins voru þessar:
1. Þar sem séð er og sannan-
legt að áfengisneyzla, og áfeng-
iskaupj Iandsmanna fer stöðúgt
vaxandi, þrátt fyrir alla hind-
indisstarfsemi margra góðra
krafta í landinu, á meðan sala
'og afgreiðsla á áfengi er eins
og nú á sér stað, þá felur Stór-
stúkuþingið framkvæmdanefnd
sinni að vinna kappsamlega að
því sem allra fyrst, að bæjar-
stjórnir landsins fari að dæmi
hæjarstjórná Reykjavíkur og
Isafjarðar og samþykki áskor-
anir til ríkisstjórnar og Alþing-
is um algera lokun áfengisút-
salanna.
2. Stórstúkuþingið felur
framkvæmdanefnd sinni að
halda áfram samstarfi við rík-
isstjórnina um það, að lögin
um héraðabönn komi til fram-
kvæmda sem allra fyrst. Enn-
fremur sjái framkv.nefndin
um, að á öllum stjórnmála-
þessarar ' frændþjóðar okkar
fyrir framþróun og sjálfstæði.
• 1
Bruxi rauða hersins.
jþjóðviljanum verður tíðrætt
um sókn rauða hersins rúss-
neska þessa dagana, og er það
að vonum. Skal ekki gerð hin
minnsta tilraun til að rýra af-
rek rússneska hersins, er hon-
um hefir nú tekizt að reka
þýzku innrásarherina af hönd-
um sér, allt til hinna fyrri
bækistöðva sinna. En taka
verður tillit til ýmissa stað-
reynda, sem meðal annars hafa
áhrif á brun rauða hersins nú.
Menn muna, að fyrir 3 árum
átti sér stað annað þrun —
brun Þjóðverja í austurátt inn
í Rússland. En síðan hefir
margt gerzt. M. a. það, að eitt
fjölmennasta og mesta fram-
leiðsluríki veraldarinnar bætt-
ust í hóp bandamanna Rússa.
Ógrynni matvæla og hergagna
tók eftir það að streyma frá
Bretlandi og Bandaríkjunum til
Rússlands, og hefir kveðið svo
mikið að þeim sendingum, að
Stalin játaði það á ráðstefn-
unni í Teheran, að án þessarar
hjálpar hefðu Rússar beðið ó-
sigur fyrir Þjóðverjum. Um
þetta er Þjóðviljinn að sjálf-
sögðu sagnafár. Og nú brunar
rússneski herinn inn í lönd, sem
sovjetstjórnin segist ekki ásæl-
ast, og enn fremur að hún
muni ekki skipta sér af þjóð-
slcipulagi íbúanna, en setur
samt á laggirnar bolsévikka-
stjórn í trássi við útlagastjórn
þessara sömu landa, sem aðset-
ur hefir í landi bandamanna
Rússa og minna með þessu her-
námi á skyldleika Kommún-
ismans og Nazismans, sbr.
Kvislingastjórn Nazista í Nor-
egi og fleiri löndum, er þeir
liafa hernumið.
En meðan rauði herinn sæk-
ir fram með meira og minna af
amerískum hergögnum, gerist
það norður á Islandi, að full-
trúar Kommúnisla á Alþingi
sitja sem fastast, er allur j)ing-
heimur, að jieim undanskildum,
rís úr sætum að gefnu tilefni
í virðingarskyni við Bánda-
ríkjaþing.
samþykktar til Alþingis, verði
borin fram tillaga um að skora
á ríkisstjórnina að láta lögin
um héraðabönn koma þegar til
framkvæmda.
3. Þar sem það er á allra
vitorði, að allmikil hrögð séu
að leynisölu áfengis og lög-
gæzlan hvergi nærri nægilega
vel framkvæmd, þá felur Stór-
stúkuþingið framkv.nefnd
sinni að vinna að því, að hert
verði sem allra mest á löggæzl-
unni, svo að tekið verði fyrir
þetta vandræða ástand.
4. Stórstúkuþingið felur
framkv.nefnd sinni, að vinna
að því, að hert verði sem mest
á þeirri kröfu bindindismanna
í landinu, að stjórnarvöld þjóð-
arinnar sjái til þess, að em-
bættismenn liennar og aðrir
menn í ábyrgðarmildum stöð-
um, svo sem: skipstjórar, stýri-
menn, loftskeytamenn og vél-
stjórar séu bindindismenn.
5. Stórstúkuþingið beinir
þeim tilmælum til áfengismala-
ráðunauts ríkisins, að hann
hvetji alla forstöðumenn skóla
í landinu, til að láta bindindis-
fræðslu fram fara í skólum
sínum, svo sem Iög standa til,
og sjái jafnframt um, að allir
kennarar fái í liendur handbók
um bindindis fræðslu, þeir sem
ekki hafa þegar fengið hana.
Tillögurnar voru samþykkt-
ar í einu hljóði.
Kosin voru í framkvæmda-
nefnd Stórslúkunnar fyrir
næsla kjörtímabil:
Stór-templar: Kristinn Stefáns-
son, cand. theol.
Stór-kanslari: Árni Óla, blaða-
maður.
Stór-varatemplar: Þóranna
Símonardóttir, frú.
Stór-ritari: Jóhann Ögm. Odds-
son, kaupm.
Stór-gjaldkeri: Jón Magnússon,
yfirfiskimatsmaður.
Stór-gæzlum. unglingastarfs:
Hannes J. Magnússon, kenn-
ari.
Stór-gæzlum. löggj.starfs: Pét-
urSigurðsson, erindreki.
Stór-fræðslustjóri: Eiríkur Sig-
urðsson, kennari.
Stór-kapelán: Sigfús Sigur-
hjartarson, alþm.
Stór-fregnritari: Gísli Sigur-
geirsson, verkstjóri.
Fyrrv. stórtemplar: Friðrik Á-
Brekkan, rithöfundur.
Umboðsm. hátemplars næsta
ár, var mælt með Jóni Áma-
syni prentara.
Næsti þingstaður var ákveð-
inn í Reykjavík.
Reykjavíkurmótið:
Víkingur vann
K.R. með 3:0
3. kappleikur Reykjavíkur-
mótsins fór fram í gærkveldi.
Kepptu ])á K.R. og Víkingur.
Leikurinn var að mörgu leyti
skemmtilegur og lauk honum
svo, að Víkingur vann K.R. með
3:0.
Dómari í gærkveldi var Guð-
mundur Sigurðsson. — I kvöld
keppa Valur og Fram og hefst
leikurinn kl. 8,30 að vanda. —
Dómari verður Guðjón Einars-
son í kvöld.
Forsetinn var í
Bnðardal í gær.
Forseti Islands kom til Búð-
ardals kl. 2 í gær. Sýslumaður
Dalamanna, Þorsteinn Þor-
steinsson, hafði ekið til móts við
hann og fylgdi honum heim.
Var síðan setzt að snæðingi hjá
sýslumanni. Að máltíðinni lok-
inni kom fólk saman hjá sýslu-
mannshúsinu og bauð sýslu-
maður þar forseta velkominn.
. Börn stóðu heiðursvörð og lítil
telpa afhenti forseta blómvönd.
Forseti jrakkaði hinar hlýju
móttökur. Sýslunefndin hélt í
gær kvöldboð í hóteli Búðardals
og fluttu jrar ræður þeir Þor-
steinn Þorsteinsson sýslumaður,
Sigtryggur Jónsson hreppstjóri,
Hrappsstöðum og Jón Sumar-
liðason, hreppstjóri á Breiða-
bólsstað.
Að lokum mælti forscti nokk-
ur orð til samkomunnar. For-
seti og fjdgdarlið hans gisti hjá
sýslumanni sl. nótt, en í morg-
un lagði hann af stað áleiðis til
Blönduóss.
Mat á nýjum fiski.
Síðan 7. júní hefir farið fram
mat á nýjum fiski, er hrað-
frystihúsin hafa tekið til vinnslu.
Reglugerð um þetta og opinbert
eftirlit með vinnslu í húsunum
hefir verð í gildi síðan. Hafa
þeir Sveinn Árnason og Berg-
steinn Bergsteinsson verið að
skipuleggja þessi störf, en mats-
menn liafa verið skipaðir við
öll starfandi liraðfrystihús í
landinu, eftir tillögum fiski-
matsstjóra og yfirfiskimats-
manns, en jieir hafa á hendi eft-
irlit með matinu og stjórna því.
I sambandi við þessa nýskip-
un matsins var haldinn fundur
og námsskeið hér í Reykjavík
í síðast liðinni viku. Tilefni
þessa fundar var upphaflega
það, að nokkurir verkstjórar
hraðfrystihúsanna boðuðu til
hans á síðast liðinni Vetrarver-
tíð og hugðust að bindast sam-
tökum um betra samræmi um
vöruvöndun og vinnslu í húsun-
um.
Á móti þessu mættu á fjórða
tug verkstjóra og matsmanna
liraðfrystihúsanna.
Heimildin er frá skrifstofu
fisldmatsstjóra.
Enskt mótorhjjól
með ‘fótskiptingu, til
sölu. Uppl. í síma 3910,
eftir kl. 8 í kvöld og
annað lcvöld.
Stúlka
óskast í Valhöll á Þingvöll-
um. — Uppl. í Hressingar-
skálanum.
Héraðslæknir í „kríl"sínum.
Brynjólfur Dagsson, héraðs-
læknir í Búðardal, var nýlega á
ferð hér í bænum og hitti tíð-
indamaður blaðsins hann
snöggvast að máli.
Eins og kunnugt er var Brynj-
ólfur annar þeirra lækna hér á
landi sem fékk „jeep“-bíl frá
amerísku herstjórninni til
reynslu. Brynjólfur kvað þenn-
an bíl hafa reynzt sér mjög vel
til læknisvitjana um hérað sitt,
og telur hann að þeir eigi mikla
framtíð fyrir sér hér á landi,
elcki sízt þar sem vegagerð er
enn skammt á veg komin.
Brynjólfur skýrði frá einu
tilfelli þar sem hann var sóttur
til lconu í barnsnauð. Um illan
veg var að fara og telur hann
vafasamt livort hann hefði náð
í’tæka tíð, ef jeepsinS hefði eldd
notið við.
Myndin sýnir Brynjólf lækni
vera að stíga út úr „krílnum“.
Jón Þórarinsson vinnur
verclaun við tónlistar-
skóla í D.S.A.
Utvarpsstjóra hefir nýlega
borizt bréf frá Jóni Þórarins-
syni, sem nú stundar nám við
Yale School of Music í New,
Haven í Bandaríkjunum.
Jón fór vestur um haf í byrj-
un þessa árs, eins og áður hefir
verið getið, til þess að stunda
tónlistarnám. Hann er fyrsti
starfsmaðurinn, sem Ríkisút-
varpið styrkir lítillega til sér-
fræðináms, með því skilorði, að
hann gerist starfsmaður stofn-
unarinnar og starfi að tónlistar-
vali og tónlistarfræðslu fyrir
Ríkisútvarpið að námi loknu.
Jón er gæddur miklum hæfileik-
um i þessari grein. Stundar
hann námið af kappi og sækist
það ágætlega. Sem dæmi má
nefna það, að að loknum vor-
prófum, þar sem J. Þór. tók
mjög háar einkunnir, eftir j
þriggja mánaða nám, fór fram
verðlaunakeppni meðal nem-
enda í fúgu-námskeiði um svo-
nefndan „Frances E. Osborn
Kellogg Prize“. Fengu nemend-
ur 3 Idukkustundir til þess að
semja fúgu um ákveðið tónstef,
án þess að nota hljóðfæri eða
önnur hjálpartæki. Meðal dóm-
endanna var eitt af þekktustu
tónskáldum Ameríku um þessar
mundir, Paul Hindsmuth, og
felldu þeir einróma þanri dóm,
að Jóni Þórarinssyni bæri verð-
launin.
Jón lætur allavega vel af dvöl
sinni vestra og lýkur miklu lofs-
orði á skólann, kennara hans
og neméndur og kveður alla
boðna og búna til þess að greiða
götu sína.
Strax og Jón Þórarinsson
kom vestur um haf kvæntist
hann og gekk að eiga Eddu
Kvaran, dóttur þeirra Ágústs
Kvaran og Soffíu Guðlaugsdótt-
ur, leikkonu.
Til söln
veiðileyfi
í Miðfjaiðaiá.
Aðsetur Staðarbakka
fyrir þrjár stengur frá
hádegi á morgun til há-
degis næstkomandi
laugardag.
Upplýsingar í síma
5980 og 3440.
5 manna bíll.
gamalt mödél, til sýnis-
og sölu við strætis-
vágnahús, milli kl. 8—9.
Húseigendur.
Okkur vantar ca. 50 fer-
metra iðnaðarpláss, 1—
2 herbergi, fyrir sauma-
stofu.
Allskonar húsnæði kem-
ur til greina. Upplýsing-
ar gefnar í síma 5818,
eftir kl. 6.
DÖMU
SP0RTBUXUR
0G BLÚSSUR.
VERZL.C!
Reykjavíkurmótið
I íullum gangi
I kvöld kl. 8,30.
Fram - Valur
Spenningurinn eykst með hverjum leik!
AUir út á völl!