Vísir - 04.08.1944, Síða 3
VISIR
Minkaplágan.
Að Silimgapolli eru nú 77
börn, flest ung, og fer vel um
þau. Heilbrigði er þar góð og
aðbúnaður ágætur, undir stjórn
bánnar velþekktu konu, frú Yig-
dísar Blöndals. Börnin þar eru
nú, eins og nokkur ár að undan-
förnu á vegum Bauða kross Is-
lands, og hafa Odd-Fellowar léð
honum bús og áhöld öll í þessu
skyni. Það er enn sem fyrr á-
nægjulegt að koma þangað og
sjá þar allt með eigin augum.
Sá Ijóður er þar þó á þessu,
og hann ógeðslegur mjög, að
þar í hrauninu og pollinum
sjálfum ,er minnkamergð svo
mikil, að eigi verður tölu á kom-
ið. Eru þeir þar í stórum höp-
um og nærgögulir mjög við
barnahælið og vatnsbólið.
Engin ástæða er þó til, að ótt-
ast neina hættu af þessu fyrir
börnin: Þau ganga til náða kl.
7 að kveldi og á kreik fara þau
kl. 8—9 að morgni, enda ávallt
i fylgd með fullorðnum mönn-
um og undir nálcvæmri umsjá
þeirra, úti sem inni. Hinsvegar
er það ömurlegt mjög að vita
meindýr þessi, minkana svona
nærr hælinu og mega helzt ekki
við þeim stugga né nein ráð til
þess hafa, að bægja þeim brott.
Til skamms tíma var þarna
fjölbreytt fuglalíf; nú sézt þar
naumast nokkur kráka! Húð-
flettar beinagrindur fuglanna
liggja eins og hráviði um hraun-
ið, skinin beinin og ber eru þar
eftir. Silungapollur og lækir
þeir, er i hann renna og úr hon-
um voru „fullir af fiski“, silungi,
smáum og stórum, enda var þar
klaki fyrir lcomið við ágæt skil-
yrði; nú sézt þar engin branda!
Landið þar efra er friðhelgt og
bannað að skjóta þar og veiða.
Minnkarnir einir hafa þar yfir-
ráðin „til lands og vatns“, ærið
nóg æti og eru þar naðurlausir
með öllu. — Virðist hér, sem
víða annarsstaðar mega sjá ár-
angurinn af því„ að meindýr
þessi, minnkarnir, voru fluttir
inn í landið, þrátt fyrir aðvar-
anir og mótmæli annars eins
manns sem Magnús sál. Einars-
son dýralæknir var. Mega þeir
nú, er að því stóðu og mestu
um það réðu, vera hreyknir af
og upp með sér fyrir þessar og
þvílíkar þjóðþrifaframkvæmd-
ir(!) sínar, sem þeir hafa talið
að þjóðin hafi milljóna-hagnað
af á ári hverju. Skárri er það nú
hagnaðurinn! Síðustu 4 ár hefir
héildarútflutningur minka-
skinna numið 3791/2 þús. króna
að iheðaltali! Þannig segja hag-
skýrslurnar frá þessu.
En menn sakna skýrslna um
tvö atriði önnur um þennan
„hágnað“, sem menn tala um:
1. Hvað kostar fóður, hirð-
ing og húsnæði allt árið fyrir
meindýr þessi?
2. Hvað kostar eyðilegging
sú, er þau valda í varplöndum
manna, veiði í ám og vötnum,
lambadauða o. s. frv.?
Hagfræðilegar skýrslur um
þetta minnist eg ekki að hafa
séð og væri líklegt, að þær væri
eigi lagðar í lágina, ef til væri
og verulegan hagnað sýndu.
Þeirra er e. t. v. von síðar og
mætti þá slá þeim saman í eina
heildarskýrslu og sýna „hagnað-
inn“ af innflutningi karakúl-
hrútanna um leið og „ábatinn“
af minkaeldinu væri sýndur.
Mætti þá ekki gera ráð fyrir
margra 'milljón króna hagnaði
og ábata af þessu hvoru tveggja?
Bændurnir, sem mestan skað-
an hafa liðið undan mæðiveik-
inni gæti þá átt kröfu á hendur
eigendum minkanna og hlut-
deildar þeirra í ábatanum af
þeim. Gæti þá hugsazt, að kostn-
aður einhver kæmi til greina við
framtalið og að þá yrði eitthvað
dregið úr þessari 379% þús.
meðaltals-upphæð heildarút-
flutningsins.
Mæðiveikin hefir þegar sýnt
það, hversu mkil plága hún er
og vond; því miður á hún enn
eftir að sýna sig, en margt bend-
ir til þess að minkaplágan verði
þó enn verri og því frekar sem
lengra líður um að eitthvað sé
gjört til útrýmingar lienni. Hún
er og verður landsmönnum til
Ijtilla nytja, enginn „plógur“ í
fjáröflunum þeirra.
Sennilega halda þó einhverir
menn uppi áróðri sínum í þessu
máli, menn, sem hvorki geta né
vilja sýna „ábata- og hallareikn-
ing“ sinn, en hann hlýtur að
koma frani og sýna það liversu
varanlegur liann er og viðhlít-
andí.
Reykjavík, 31. júii 1944.
Jón Pálsson.
Drepið í Happdrættf
Frjálslynda safnaðarins
15. ágúst.
Blaðamðnnom sýntllr
vinningarnlr.
í gær var blaðmönnum boðið
að skoða sumarbústað þann,
sem Frjálslyndi söfnuðurinn í
Reykjavík hefir látið reisa við
Elliðavatn og dregið verður um
15. ág. n. k. Stendur liann sunn-
anvert í Vatnsendalandi við
suðvesturenda vatnsins. Bústað-
urinn er lilaðinn úr 4 tommu
steini, einangrun er tvöföld
grind með pappa á milli, og á
það klætt trétex. Herbergi eru
veggfóðruð að innan, málaðir
gluggar, hurðir og listar. Gólf
eru einangruð með rauðamel og
þéttiefni, steypt og dúklögð. I
húsinu eru 2 stór herbergi,
ágætt eldhús með miðstöðvar-
eldavél og rúmgóðum skápum.
Þá er og geymsla eða búr í hús-
inu. Húsið er hið snotrasta að
utan og vel er frá öllu gengið
að innan, eins og sjá má af und-
anfarandi lýsingu. Húsinu fylg-
ir 3000 m2 gróðurland. Bygg-
ingu húsins er nú nýlokið og er
það því tilbúið til íbúðar.
Byggingu hússins hefir ann-
azt Halldór Björnsson, múrara-
meistari, Háteigsvegi 24.
í sama drætti og sumarbú-
staður þessi er einnig 5 manna
Adlerbifreið. Fylgir henni mik-
jð af varahlutum og lijólbörð-
um. Bifreiðin er með útvarpi
og hitunartæki.
Eins og kunnugt er er efnt til
happdrættis þessa til ágóða fyrir
kirkjubyggingu frjálslynda
safnaðarins. Sala happdrættis-
miða hófst í maímánuði og átli
upphaflega að draga í happ-
drættinu 5. júlí, en drætti var
frestað til 15. ág. með leyfi við-
komandi yfirvalda.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinbcrað trulofun
sína ungfrú H.erdís Jónsdóttir,
Meðalholti 9, og Haraldnr Arnason,
Túngötu 33..
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinbenið trúlofun
sína ungfrú Hulda Hakansson,
Vesturg. 20, og Jóhannes GuÖ-
mundsson, Bárugötu 17.
RÚSlNUR
Klapparstíg 30. - Sími: 1884.
Ungur og
duglegur maður
óskast — helzt fagmaður í
eldsmíði. Framtíðar atvinna
í fínum iðnaði. Þeir, sem
vildu sinna þessu, leggi nöfn
sín og heimilisfang á afgr.
Vísis, auðkennt „Smiður“. —
Afgieiðslustúlka
óskast.
HEITT & KALT.
GARÐASTR.2 SÍMI 1899
Við höfum fyrirliggjandi:
VIKURHOLSTEIN
og ýmissa aðra steina í mörgum litum,
til húsabygginga.
Steinar þessir eru framleiddir í nýtizku amerísk-
um vélum, og eru mjög áferðarfallegir og þægi-
legir til hleðslu.
Melgi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19 — Simi 3181
Heiðursmanni þeim,
sem stal dekki á felgu á bíl mínum við Eiríksgötu 21 síðast-
liðna nótt, skulu veittar þær upplýsingar, að dekkið er kant-
rifið, og því lítt nothæft, en felgan er mér mikilsvirði. Þess-
vegna vil eg vinsamlegast mælast til þess, að heiðursmaður
þessi skili að minnsta kosti felgunni aftur, og helzt öllu þýfinu,
því það var eina varadekkið, sem eg hafði. Það má skila þessu
að næturlagi á sama hátt og tekið var. Vænti árangurs. —
Gunnar Bjarnason, Eiríksgötu 21.
Nokkrir góðir
verkamenn
óskast nú þegar. Uppl. í verksmiðjunni, Höfðatúni 4, í dag.
Steinstólpar h.f.
Gleymið ekki
að taka með yður
Tómata
1
í sveitina. Borðið meiri Tómata á með-
an þeir eru á lága verðinu.
Rúðugler
Höfum fengið enskt rúðugler, 3, 4, 5 og 6 mm. að þykkt.
JÁRN 0G GLER H/F
Laugavegi 70. Sími 5362.
Frídagur verzlunarmanna
um helgina.
Kaupið nesti
m
1
Krossviður og þakpappi
f y rirliggj andi.
Á. EINARSSON & FUNK
Ungrlingfa
vantar til að bera VÍSI um
Norðurmýri.
Dagblaðið VISSR
Hjartkær dóttir okkar
SIGURBORG ÞORLAUG KÁRADÖTTIR
andaðist að Vífilsstöðum 4. þ. m. Jarðarförin verður aug'
lýst síðar.
Júlíana Stígsdóttir. Jón Kári Kárason.
Maðurinn minn, faðir og sonur,
Jóhann B. Ágúst Jónsson,
andaðist í nótt.
Fanney Friðriksdóttir,
Edda Ágústsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir.
íþróttamót í Dölum.
Héraðsmót Ungmennasam-
bands Dalamanna var haldið að>
Sælingsdalslaug sunnudaginn
23. júlí.
Form. Sambandsins, Halldór
Sigurðsson bóndi að Staðarfelli,
setti mótið og stjómaði því.
Þá fór fram keppni í eftir-
töldum íþróttagreinum og urðu
þessir hlutskarpastir:
50 m. bringusund, drengja:
Einar Jónsson (Unnur djúp-
úðga) 46,4 sek.
100 m. sund karla (frjáls aðf.):
Ki-istján Benediktsson (Stjarn-
an) 1,22,3 min.
80 m. hlaup, drengja:
Bragi Húnfjörð (Dögun) 10,4
sek.
3000 m. hlaup:
Gísli Ingimundarson (Stjarnan)
10,40,7 mín.
100 m. hlaup, karla:
Kristján Benediktsson (Stjarn-
an) 12,7 sek.
Langstökk:
Kristján Benediktsson (Stjarn-
an) 5,65 m.
Hástökk:
Kristján Benediktsson (Stjarn-
an) 1,55 m.
2000 m. hlaup, drengja:
Stefnir Sigurðsson (Dögun))
7,16 mín.
Stigahæsta félagið var UMF
Stjarnan með 47 stig, næst var
„Dögun“ með 19 stig.
Stigahæsti einstaklingur á
mótiriu var Kristján Benedikts-
son með 16 stig.
Ræður fluttu: Þorleifur
Bjarnason námsstj. og Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi,
sem mætti á mótinu í boði
U.M.S.D.
Ávörp fluttu: Jón Emil Guð-
jónsson, form. Breiðfirðingafé-
lagsins og Guðmundur Einárs-
son.
Ungfrúrnar Anna Þórhalls-:
dóttir og, Kristín Einarsdóttir
sungu einsöngva og tvísöngva:
Jóliann Tryggvason aðstoðáði.
Mótið var mjög fjölmennt og
fór hið hezta fram.
(Samkv. uppl. frá form. U.'
M. S. D.).
Eftirlitsför til
slysavarnadeilda
Þær eru oi sparar á.
rakettur til æfinga-
Jón Bergsveinsson, eríndreki
Slysavarnafélags Islands, er ný-
kominn til bæjarins úr eftirlits-
för til slysavarnasveita norðan-
lands.
Fór hann fyrst til Hvamms-
tanga og síðan austur á bóginH
til hverrar sveitar alla leið til
Akureyrar. Hafðar voru æfing-
ar með deildunum, þar sem því
varð við komið pg fannst Jóni,
sem sumar þeirra hefði verið
helzti sparar á raketturnar í æf-
ingum sínum. Á einum stað not-
aði Jón rakettu, sem var frá ár-
inu 1934 og var hún enn með'
öllu ógölluð, þótt ekki sé ör-
uggt, að hægt sé að nota þær
eldri en 2ja ára. Hingað til hefir
ekki verið liörgull 4 rakettum,
svo að óhætt hefir verið að
lialda tíðari æfingar vegna
þess.
Á næstunni mun Jón fara í
eftirlitsferð austur á sanda.
Skoðar hann strandmannaskýl-
in þar, og athugar að allt sé
þar eins og það á að vera. Slysa-
varnadeildirnar hafa smíðað 5
skýli og það sjötta er í smíðum,
en auk þess á vitamálastjórnin
tvö eða þrjú.
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins hér á eilt skýli og annað
í smíðum, kvennadeildirnar í
j Hafnarfjrði og Keflavík eiga
; hvor sitt, og loks á Slysavarna-
félag Islands tvö. Slcýli það, sem
í smíðum er, er á Skéiðarár-
sandi.