Vísir - 21.08.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 21.08.1944, Blaðsíða 1
 'r- *** '**£*>. Tlltstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: * Félagsprentsmiðjan (3. ,hæð) Ritstjórar Blaðamenn Slmti Auglýsingar 1660 Gjaldkert 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, mánudaginn 21. ágúst 1944. 187. tbl. Brotizt yfir Signu beggja vegna Parisar. Rakettubyssur í notkun. Rakettubyssna er getið í fréttum á hverjum degi. Þessi mynd er tekin að næturlagi við London. Ráltirnar koma af því að myndin er tekin „á tima“, þegar verið er að skjóta af nokkr- um rakettubyssum, sem notaðar eru til loftvarna.__________ Hjá Argentan stendur síðasta blóðbaðið yfir. Bremen útleikin eins og Hamborg. Bremen hefir nú fengið jafn- slæma útreið og Hamborg í loft- árásum bandamanna. 1 síðustu árás sinni á borgina vörpuðu Bretar niður samtals um 70.000 ílcveikjusprengjum og hefir síðan komið í ljós að iiver bygging er í rustum á þriggja km. svæði frá höfninni upp í miðhverfin og er þetta eydda svæði um liálfur annar kílómetri á breidd. \ Flugstöðvarskipi og tveim beitiskipum var hleypt af stokkunum í Fíladelfíu í gær. ★ Liberator-vél sökkti jap- önsku beitiskipi í árás hjá Hong Kong síðasta laugardag. Japanir eru byrjaðir að flytjá flugvélar sínar frá Hal- mahera í Moluccaeyjum, til að forða þeim frá loftárásum bandamanna. Italía: Þjóðverjar láta undan síga við Adriahaf. Brazilíumenn berjast með 5. hernum. Þjóðverjar hafa látið lítið eitt undan síga við Adríahaf síðustu dagana. í tilkynninguni frá ítaliu í gær er frá því sagt, að banda- menn hafi náð borginni Pergola og þorpum þar í grennd. Á Arno-vígstöðvunum er aðeins um aðgerðir njósnaflokka að ræða. Haldið er að Þjóðverjar búi sig undir að flytja eitthvað af liðinu norður á hóginn, til að bægja frá hættunni af innrás- inni í S.-Frakkland. Hersveitir frá Brasilíu eru farnar að berjast með fimmta hernum á Ítalíu. Austar hörfa Þjóð- verjar til Signu. Dandamenn munu fyrst hafa getað lokað Falais-hlið- inu í Normandie í gær, er DÓlskar og amerískar her- sveitir tóku höndum saman hjá Argentan. Þjóðverjar eiga sér nú engr- ar undankómu auðið úr hringn- um þarna, en þó mun mikill hluti liðsins, sem var upphaf- lega í hættu þar, hafa komizt undan síðustu dagana. Á laugardag gerðu Þjóðverj- ar tilraun til þess að koma í veg fyrir það, að þandamenn lokuðu hringnum, er hersveit- irnar áttu skamma leið eftir til að ná Saman, en sú tilraun var gerð að engu eftir ægilegt blóð- bað. ^ f gær gerðu þeir svo tilraun til að brjótast út, en þar fór á sömu leið. Bandamenn hafa hvað eftir annað varpað flvig- miðum yfir hið innikróaða lið og livatt það til uppgjafar, en þar sem það hafnar því, er ekki eftir nema „síðasta 'slátrun“ á því, eins og segir í fregnum blaðamanna. f gær tóku bandamenn 7500 fanga á Falais-svæðinu og felldu mikinn fjölda. Undanhaldið til Signu. Þjóðverjar eru á undanhaldi á öllu svæðinu frá Signuflóa suður til Argentan. Eru brezk- ar hersveitir konmar talsvert austur fyrir mynni Orne og hafa tekið bæina Cabourg og Dives, sem eru þar á strönd- inni. Fjær sjó hafa þeir farið yfir ána 'Vie á að minnsta kosti ] þrem stöðum. Mikill hluti þýzka liðsins er Frh. á 3.'siðu. t \ Bandamenn fara á snið við Toulon og Marseilles. Komnir að borg: 25 km. norðnr a€ Har§eilles. Epu komnip lengst 50 km. upp í land. jjandamenn ætla sér ber- sýnilega að fara á smð við Toulon og Marseilles í Suður-Frakklandi, til þess að spara sér tíma og erfiði, sem mundi í því fólgið, að gera beinar árásir á þessar borgir. Framsveitir liandamanna eru komnar að úthverfum borgar- innar Aix, sem er höfuðborg Provence-héraðs og um 20 km. ir norðan hafá þeir brotizt að ánni Durance, sem er mest af hinum syðyi þverám Rón og rennur í fljótið skammt fyrir neðan Avignon. En ekki er það látið uppskátt, livar farið hefir verið yfir Durance. Harðir bardagar. Herstjórnartilkynning banda- manna frá Róm í morgun segir, að skæðir bardagar sé liáðir í •úthverfum Toulon, en þar höfðu bandamenn búizt'við að Þjóð- verjar mundu leitast við að verj- ast um skeið, þótt þeir liafi að- eins lítið lið. Austast á innrásarsVæðinu, hjá Cannes, eru einnig talsvert harðir bardagar og bandamenn eiga skamma leið ófarna til Grasse. 5000 ferkm. og 13.000 fangar. f gær var talið, að banda- menn liafi náð 5000 ferkm. lands i Suður-Frakklandi, en 60.000 ferkm. eru taldir örugg- lega á valdi þeirra í N.-Frakk- landi. En jafnframt er fangatalan í S.-Fralcklandi komin upp i 13.000 manns og er það furðan- lega hátt, er þess er gætt, að bandamenn telja sig ekki liafa orðið vara við nema 3 þýzkar herdeildir til þessa og virðast þeir þvi liafa tekið allt að þriðj- ungi allra manna í þeim. Ötrúlegur hraði. Þótt sagt sé áð bandamenn sé komnir lengst 50 km uþp i land er þó látið í veðri vaka í aðal- stöðvunum, að þeir sé raun- verulega komnir miklu lengra, en eklci sé vert að gera Þjóð- verjum aðvart um ferðir þeirra. Þýzku hersveitimar, sem tekn- ar liafa verið, hafa stundum haldið, að bandamenn væri óra- leiðir í burtu. • Parisarbnar gera nppreiit gegn Þjoðverjnm. Þýzka herstjórnin hotar að hæfa taana i bloði. J^aust eftir klukkan tíu í gær var sendmg stöðvuð í Parísar- útvarpinu til þess að tilkynna, að ýmsir hópar manna í París hefði gripið til vopna gegn setuliði Þjóðverja í borginni. Borgarbúar voru hvattir til að vera hinir rólegustu og láta ekki uppreistarseggi fara með sig í gönur. Því næst var sagt, að uppreistin mundi verða barin niður með harðri héndi' og hefði þegar verið gerðar ráðstafanir til þess. Umferðar- bann hefir verið sett á og gildir það frá kh 9 að kveldi tii kl. 7 að morgni. öllum kvikmyndahúsum, kaffihúsum og öðrum samkomustöðum hefir verið lokað og fleiri menn en þrír mega hvergi sjást saman í einu. Hver, sem óhlýðnast, verður tafarlaust skotinn, segir tilkynningin að endingu. Hún er undirrituð af foringja setu- liðs Þjóðverja í París. Thor Thors gerður heiðursdoktor í lögum. Herra Thor Thors sendiherra Islands í Washington var á laugardag útnefndur heiðurs- doktor í lögum við Rider Col- lege, Trenton, ásamt lierra Walter Edge, ríkisstjóra New Jersey. Þýzkar herdeildir upprættar hjá Sandomierz. Rússar hafa upprætt þrjár þýzkar herdeildir, sem um- kringdar voru hjá Sandomierz fyrir vestan Vistulu. Herdeildir þessar voru um- kringdar siðari hluta vikunnar sem leið og buðu Rússar þeim góða meðferð, ef þær vildu gef- ast upp, en þær neituðu. Var næstum hver maður felldur. Gagnáhlaup Þjóðverja héldu áfram í gær fyrir austan Praga, austurhverfi Varsjár, en þeim var hrundið, og síðan sóttu Rússar fram lítið eitt. Norður í Lettlandi halda þýzku hersveitirnar áfram gagnáhlaupum sínum, og hafa þeir unnið lítið eitt á, en enn- þá norðar, í Eistlandi, hafa Rússar þokazt nær Tartu fyr- ir vestan Peipus-vatn og Valke sunriar. Ri§aflng:virki ráða§t :í Japan. Amerísk flugvirki hafa enn gert árás á Japan. 1 fregnum Japana af þessu segir, að árásin hafi verið hörð, en nokkurar fluvélanna ' liafi verið skotnar niður. Var ráðizt á borgina Yawata, sem er á evnni Kyushu, svðstu heima- eynni japönsku. Þar eru stærstu stálverksmiðjur Japana og starfa í þeim tuttugu þúsundir manna. Bandarikjamenn hafa nú gert fjórar árásir á þessa borg. í Flugvélar Flug- félagsins fluttu 850 farþega r • r m m 1 jUll. 1 júlimánuði fluttu tvær flug- vélar Flugfélagsins 850 farþega samtals. Er það hæsta farþega- tala eins mánaðar, sem þekkzt liefir áður. Ferðir flugvélanna skiptust þannig þennan mánuð: Til Hornafjarðar 4 ferðir. — Akureyrar 58 ferðir. — Borgarfjarðar 10 ferðir. Alls 'var flogið 190 klukku- stundir. 225 kg. af pósti voru flutt þennan mánuð og auk þess nokkuð af ýmiskonar flutningi, sem ekki er vitað um þyngd á. Flugveður í júlímánuði var ó- venju gott og var flesta daga mánaðarins flogið frá morgni til kvölds. Eins og kunnugt er, hefir nú Flugfélaginu bætzt ein flugvél í viðbót, svo að nú hefir það yfir 3 flugvélum að ráða. Fór flugvél þessi í reynsluflug s.l. föstudag og reyndist ágæt- lega. Flugvélin nefnist T.F.I.S. O. og er snriðuð í De Havilland verksmiðjunum í Englandi, en verksmiðjur þessar smíða m. a. hinar frægu Mosquito- flugvél- ar. Bæjop fréttír Hjónaband. 1 gær voru gefin saman í hjóna- band af síra Bjarna Jónssyni Ólöf SigurSardóttir, Bræðraborgarstíg 15, og Sigui'jón Ingibergsson,' tré- smiÖur, Bjarkarg. 10. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Hljómplötur: Nelson Eddie syngur. 20.30 Þýtt og endur- sagt (Bárður Jakobsson lögfræÖ- \inguír). 20.50 Hljómplöjtur: Lög leikin á saxófón. 21.00 Um daginn og veginn (Gunnar Benediktsson rith.). 21.20 Útvarpshljómsveitin: Lög eftir Hartmann og Gade. Ein- söngur (frú Nína Sveinsdóttir): a) Lög eftir Foster (íslenzkir text- ar). b) „Ljúfar, ljósar nætur“, eft- ir Jón Laxdal. c) „Á gróðrarstöð", eftir sama höfund. d) „Sólskins- skúrin“- eftir Árna Thorsteinson. Næturakstur. Bifröst, sími 1508. Milli Mantes og Ver- non að norðan — hjá Melun að sunnan Barizt hjá Fontaine- bleau og Versailles. tajóðverjar tilkynntu í gær, að Bandaríkjamenn væri komnir austur yfir Signufljót á svæði milli borganna Man- tes og Vernon. I morgun var svo sagt í sum- um þýzkum útsendingum, að hraðsveitir Baudarikjámanna væri einnig komnar yfir Signu fyrir suðaustan París, milli þorganna Melun og Corbeil. Bandaríkjamenn sendu öfl- ugt fallhlifalið til jarðar á hægri bakka Signu, áður en þeir brutust yfir ána milli Man- tes og Vernon, og i gærkyeldi sögðu Þjóðverjar, að Banda- ríkjamenn ynnu. af kappi að því áð stækka brúarstæði sitt. Við Versailies og Fontainebleau. Um leið og blaðamönnum við lierstöðvar bandamanna var leyft að síma, að framsveitir Pattons væri komnar að fljót- inu, þvi að það hefir ekki enn verið opinberlega staðfest, að þeir sé komnir yfir það, sím- uðu þeir að barizt væri í grennd við Versailles og Fontainebleau, sem er skammt frá Signu, litlu fyrir ofan Melun. Loftárásirnar. Það eru flugsveitir banda- manna, sem skapa að miklu leyti skilyrðin fyrir þessari öru framsókn, því að þær tilkynna óðmn, hvar Þjóðverjar eru veikastir fyrir, eða hvar þeir muni sízt búast við árásum af hálfu bandamanna. Hinsvegar I hafa flugvélar Þjóðverja varla i látið sjá sig síðasta hálfan mán- uð og hafa engar gætur á ferð- um bandamanna. Bandaríkjamenn í vesturhverfum Parísar. Þýzka fréttastofán hefir skýrt frá því í morgun, að njósnasveitir Bandaríkja- manna sé komnar inn í vest- urhverfi Parísarborgár. Churchill hefir verið í heim- sókn hjá fimmta hernum á Italíu. ★ Daily Express i London vill að konur hermanna, sem vinna í verksmiðjum, verði leystar frá störfum áður en menn þeirra koma heim frá vígvöll- unum. ★ Manville, auðkýfingur í Bandaríkjunum, sem grætt hef- ir á asbest-framleiðslu, ætlar að lcvænast í 8. — áttunda — sinn á næstunni!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.