Vísir - 22.08.1944, Side 2

Vísir - 22.08.1944, Side 2
VISIR í VISIR DAGBLAÐ Útgefandi: BIADAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritatjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólf.ostræti). Símar: 166 0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Eftir stríSiS V. Þátttaka í afiakstrinum. IWIesta ógæfa Kvers þjóðfé- lags er innbyrðis barátta'. Sú barátta er nú að hefjast hér af meiri hörku en nokkru sinni áður og mun sigla at- vinnumálunum í strand, ef mönnum vex ekki skilningur á því, hvaða leið sé vænlegust til hagsældar. Þær deilur, sem nú eru í uppsiglingu, munu til lykta leiddar á einhvern hátt, en hvernig sem þær fara í þetta skipti, verður ekki komizt fyrir rætur meinsins nema reynt sé að nema það burtu, sem meininu veldur. Innbyrðis barátta orsakast venjulega af tortryggni og óánægju um skiptingu gæð- anna. Framtíð þjóðarinnar er undir því komin, að stéttir og einstaklingar geti unnið sam- an af góðvild og skilningi. Þess vegna verður það þjóð- félag, sem ekki vill sundrast, að ná því takmarki. Aðeins sameigmleg þátttaka í af- rakstri atvinnuvega og starfs- greina, getur útrýmt tor- tryggnmni og úlfúðinni og veitt mönnum þann jöfnuð, sem þeir sækjast eftir og gera kröfu til. Einstaklingarnir verða að gerast þátttakendur í velgengni þess atvinnurekst- urs, sem þeir starfa við. Þeir verða að geta vænzt þess, að með auknum afköstum, sam- stilltari vinnu eða bættum vinnuaðferðum, beri þeir. meira úr býtum, hlutfallslega við það, sem þeir leggja til starfsins. Þetta mundi skapa meiri jöfnun, almennari vel- gengni og þess vegna almenn- ari vmnu. Það mundi útrýma tortryggni og veita þjóðinni það, sem henm er nauðsyn- legast, vinnufrið. Atvinnutryggingar. Þjóðfélagstryggingar eru hvorttveggja í senn sjálfs- hjálp einstaklmgsins og sam- hjálp þegnanna. Hér eru þær skammt á veg komnar og ná aðeins til sjúkra-, örorku- og ellitrygginga. Þessum trygg- ingum þarf að koma í það horf hér á landi, að þær verði svo öflugar og víðtækar, að þær veiti almenningi öryggi gegn þeim vandræðum, sem flestum valda jafnan þyngst- um áhyggjum, en það eru elli, sjúkdómar, slys og atvinnu- Ieysi. Tryggingarnar eiga með fímanum að koma í stað sveit- arstyrks. Hið ófullkomna og auðmýkjandi form sveitar- og bæjarfélaga á styrkveit- ingum til nauðstaddra þarf að hverfa. Hátt á 2. hundrað börn eru á Sumargjafar í sumar, en verða yflr hálft hundrað í vetur. Vesturbopg veröur eftirleiðis upp- tökuheimili barna. Jarnavinafélagið Sumargjöf hefir í sumar haft yfir 180 börn að meðaltali á dag í barnaheimilum sínum, Tjarnarborg, Grænuborg, Vesturborg og Suðurborg, en í vetur munu um eða yfir hálft þriðja hundrað bör nverða á þessum heimilum. Á tímabilinu maí—ágúst í sumar hafa börnin skiptzt niður á heimilin, svo sem hér segir: I Tjarnarborg liafa 58 börn dvalið á dagheimihnu, en 12 i leikskóla. í Vesturborg hafa 16 börn dvalið á vistarheimili og í Suðurborg (með Grænuborg se msumarskála) hafa 46 börn dvalið á dagheimili, 14 i leik- skóla, 16 í vöggustofu og 20 á vistarheimili, eða samtals 182 börn á öllum heimilunum. Flest börnin eru á aldrinum li/2 árs til 5 ára, en stöku eru þó eldri. Hefir fyrirkomulag við heimilareksturinn að því leyti breytzt, að síðan landið var her- numið hefir börnum fækkað á þeim, og eru það einkum eldri börnin, sem komið hefir verið i sveit, en þau yngri lialdizt. í sumar hafa börnin þó verið með flesta móti frá því er her- námið fór fram. Á þessu sumri voru í fyrsta sinn gerðar tilraunir með að Hér vantar atvinnutrygg- ingar, sem verða að koma í sambandi við breytta skipun á notkun vinnuaflsins og stað- setningu atvinnurekstursins. Þessar tryggingar ættu fyrst um sinn að verða þeim til að- stoðar, sem missa vinnuna um stundarsakir, meðan þeir leita sér að nýju starfi. Þessar tryggingar eiga ekki að tryggja langvarandi atvmnu- leysi og hjálpa mönnum til að draga fram lífið í vesæld og aðgerðarleysi. Slíkt genr menn að auðnuleysingjum. En atvinnutrygging í hendi hins opinbera á að vera meira en fjárframlag. Hér þarf að setja upp at- vinnustofnun ríkisins, er á að hafa á hendi miðlun á allri vinnu í landinu, sem þörf er að hafa nokkur afskipti af. Þessi stofnun ætti að safna eða fá í hendur fullkomnar skýrslur og upplýsingar um alla starfrækslu og atvinnu. einstaklinga frá mánuði til mánaðar. Hún ætti að vera til aðstoðar jafnt vinnuveitend- um sem starfs- og verkafólki, í hvaða atvinnugrein sem er, hvar sem er á landinu. Hún hefði yfirlit um hvar á landinu starfrækslu skorti vinnuafl eða vinnuafl starfrækslu á hverjum tíma og gerði ráð- stafanir til bóta samkvæmt því valdi, er henni væri veitt eða í samráði við hið opin- bera. Vinnuskólar gætu verið undir hennar umsjá og at- vinnutryggingar yrðu að starfa í sambandi við hana. Hún ætti að vera ráðunautur ríkisvaldsins um fjárfram- lög til opinberra fram- kværrida, er gerðar yrðu til að afstýra atvinnuleysi eða kreppu. Slík stofnun hefði mörg verkefni og hqn mundi betur en flest annað ryðja brautina, svo að náð yrði því marki, að útrýma atyinnuleysi. nú öll komin í fastara og betra horf en áður hefir verið. Örð- ugleikarnir, sem félagið á nú i höggi við, er skortur á auknu húsnæði, því að enn er mikil þörf fyrir heimili barna hér í bænum. Að vísu eru vistarlieim- ilin fyrir börn ill nauðsyn, því Suðurborg. starfrækja leikskóla, bæði í Tjarnarborg og Suðurborg með samlals 26 börn, en í vetur munu um 70 börn bætast í þann hóp. Leikskólarnir eru aðeins starfræktir hálfan daginn, eða eftir hádegi, en þar fá börnin ekki mat. Þrátt fyrir þessa aukningu sem verður í vetur í leikskól- unum, vantar enn tilfinnanlega dagheimili og leikskóla fyrir börn. En bæði er það að hús- næðisleysi og fólksekla veldur, að ekki verður í bili Iiægt að reka heimilin í stærri stíl en orðið er, og auk þess er mikil vöntun á leiktækjum. Leik- tækjagerð er á mjög frum- stæðu stigi enn sem komið er hér á landi, en binsvegar erfitt að afla þeirra erlendis á þess- um tímum. Það dregur nokkuð úr starf- semi Sumargjafar, að í einu heimilinu, Suðurborg, eru tvær íbúðir í einkanotkun sem ekki hafa fengizt laus- ar enn sem komið er, og er það hin hrýnasta nauðsyn fyrir starfsemina, að fá þær lausar þegar í stað, auk þess sem það er af ýmsum öðrum ástæðum mjög ólieppilegt að hafa einka- íbúðir í sama húsi og barna- heimili er rekið. Sumargjöf hefir nú starfað um 20 ára skeið og starfsemin æskilegra væri að þau gætu al- izt upp á heimilum foreldra sinna eða annarra aðstandenda, en þau eru nauðsyn samt, sem úr þarf að bæta. Aftur á móti slíta leikskólarnir og dagheimil- in hörnin ekki úr sambandi við foreldra sína né heimili, heldur eru þau sem einskonar skólar, sem börnin sækja. Annar örðugleiki, sem Sum- argjöf á við að stríða, er liinn gífurlegi rekstrarkostnaður, sem alltaf er að aukast. Og þó eru daggjöldin mikið undir kostn- aðarverði. Kostar dvöl barns þar 7 kr. á dag á vistarheimili, 5 kr. á dagheimilum og 2 kr. á leikskóla, en þess má þó geta, að margir , hlutaðeigendur greiða ekki fullt verð. Heimilin eru öll rekin árið um kring nema Grænaborg, sem leigð er undir skóla að vetr- inum. Þess má loks geta að frá kom- andi hausti verður Vesturborg gerð að upptökuheimili barna. Er það barnaverndarnefnd, sem ráðstafar þangað börnum fyrir hönd bæjarins, en Sumargjöf annast rekstur heimilisins eftir sem áður. Næturlæknir. Læknavarðstofan, sími 5030. Næturvörður / er í Reykjavíkur apóteki, sími 1760. r Scrutator: o /&aAAi)t cdlinejwwfys Morgunfréttirnar. Frá fyrrverandi Scrutator, Bjarna Guðmundssyni, hefir mér borizt þessi orðsending: „Eg get ekki orða bundizt urn útvarpið okkar, sjálfsagt af þvi að eg hefi lengi fengizt við gagnrýni á útvarpi í Vísi. Það sem mér ligg- ur helzt á hjarta núna eru morgun- fréttirnar, sem eg veit að mörgum vinum mínum eru mjög kærkomn- ar. Eg ]>akka þær Axeli Thorsteins- syni fyrst og fremst, af þvi að hann er þeirra fyrsti þulur, en auðvitað á Jon Magnússon fréttastjóri þar einnig óskilið mál. Þess er þá fyrst að geta, að sú aðferð að nota sér- stakt einkennislag fyrir fréttalest- urinn er mjög góð og heilbrigð, og mætti bæta mjög um meðferð frétta oftar að deginum með því að nota sömu aðferð. Hins er rétt að geta, að það er fallegra að gera eins og Axel, að leika helming lagsins fyrst, Iáta það deyja út og hef ja svo frétta- lesturinn, en leika lok lagsins á eft- ir. Er þetta áð vísu smávægileg at- hugasemd, en þess ber að gæta að það er með slíkum smáum og ein- földum meðölum að stíll skapast. Hitt er miklu lákara að leika allt lagið í einu, eins og nú er gert, meðan Axel er í fríi. En bezt er þó hugmyndin að hafa sérstakar mórgunfréttir, og er eg viss um I- Garðsskagavitinn fluttur einnig. Vitinn, sem var á Vatnsgeym- inum, hefir nú verið fluttur í turn Sjómannaskólabyggingar- innar. 1 tilkynningu frá vitamála- stjóra um þetta segir svo, að Ijóshorn vitans, ljósmagn og einkenni sé óbreytt, en staða hans er örlítið breytt og hæð hans er nú orðin 71 m. yfir sjó. Þann 7. þ. m. var slökkt á Papeyjarvita sakir bilunar, en nú liefir verið kveikt á honum aftur. Flutningur mun fara fram á Garðsskagavita næstu daga, og verður því slökkt á honum til 30. þ. m. að margir væru fegnir, jafnvel þótt aðeins væri lesið fréttayfirlit, en ítarlegar fréttir er auðvitað ekki að forsmá. Fréttayfirlit. Að því er mikil bót, sem nýlega hefir verið upp tekið, að ljúka fréttalestri með því að endurtaka aðalatriði fréttanna. Er það saft að segja hin mesta furða að þetta skuli ekki hafa verið gert fyrr. Á það einkum viÖ um hádegisfréttir, því að margir missa þeirra, jafnvel eftir að þær eru komnar á fastan tíma, en eru ekki lengur hornreka milli 12.20 og 12.30 eins og oft áður. Þó sýnist mér heppilegra að hafa þær á minútunni 12.30. og innleiða þær með 'sama einkennislagi og morgunfréttirnar. Lagið má gjarna koma á undan tímamerkmu, 'en tveim sekúndum áður en tímamerk- ið er gefið ætti að stöðva lagið og kynna tímamerkið og fréttirnar. Þétta væri í samræmi við þraut- prófaða venju brezka útvarpsins, sem öllum ber saman um að vel hafi gefizt. Eg ætlazt ekki til að þessi nýbreytni verði tekin upp strax, ep mér þætti vænt um ef forráðamenn útvarpsins myndu eftir henni og sæu sér fært að taka hana upp, þegar allir hafa gleymt að einhverjum öðrum varð það á að stinga upp á henni. Fjárxnálaráðstefnan í Bretton Woods. Framh. af 1. síðu. ekki bindandi eða teknar upp í reglugerðum stofnana. Var ís- lenzka ríkinu áætlað einnar milljónar dollara framlag til sjóðsins og einnar milljónar dollara hlutafé til bankans og voru 2—4 þjóðir lægri. Þess ber að gæta, að hér er aðeins um tillögur að ræða, en enga skuldbindingu, eins og áð- ur er bent á. Og einnig ber þess að gæta, að af þessum fram- lögum fellur ekki til útborgun- ar í uppbafi nema 25% til sjóðs- ins, allt í gulli eða gullsígildi, og 20% til bankans, þar af 2% í gulli eða gullgildum gjald- ejæi. Framlögin eru að öðru leyti ncrkkurskonar tryggingar- fé, sem innkalla má eftir sett- um reglum. Fimm hæstu framlögin til Gjaldeyrisjöfnunarsjóðsins eru 1. Bandaríkin ... $2750 millj. 2. Bretland . ... .... 1300 — 3. Rússland .......... 1200 — 4. Ivína ......... 550 — 5. Frakkland .... 450 — og til Alþjóðabankans: 1. Bandarikin . .t. $3175 millj. 2. Bretland .......... 1300 — 3. Rússland ..... 1200 — 4. Kína ............... 600 — 5. Frakldand .... 450 — Á fundinum voru fulltrúar fyrir allar hinar Sameinuðu þjóðir og þær þjóðir, sem með þeim vinna. Reglur voru sett- ar um síðari þátttöku annarra 'þjóða og er þá heimild til að hækka stofnfé sjóðsins og bankans, hvors um sig, upp í 10.000 milljónir dollara. Ríkisstjórnin mun síðar leggja skýrslu sendinefndar- innar fyrir Alþingi, ásamt til- lögum sínum um þátttöku. Iþrótta- og ungmenna- samband stofnað í V. Barðastrandrsýslu, Einkaskeyti til Vísis. Patreksfirði í dag. Föstudaginn 18. ágúst var stofnað að Sveinseyri við Tálknafjörð ungmenna- og í- þróttasamband Vestur-Barða- strandarsýslu. Formaður var kosinn Albert Guðmundsson, ka upfélagss tj óri. Sambandið hélt íþróttamót á sunnudaginn var með keppni í frjálsum íþróttum, sundi og handknattleik. Iþróttafélag Bílddælinga sigraði og hlaut 69 stig, Drengur í Tálknafirði 26 stig, Hörður á Patreksfirði 21 stig og Umf. Morgun í Ketils- Nýkomið: Svart og dökkblátt Pilsaefni. ísgarnssokkar, svartir og mislitir, verð frá 3.95. Silkisokkar, svartir, verð frá 6.35 parið. Barnasokkar, svartir og mislitir, verð frá 3.40. Sporthárnet í öllum litum. Hvítar Dömublússur. Hvítar Uppvartningssvuntur. Gamarchebuxur, * þrír litir. Stormblússur á dömur, herra og börn. Hvít Dívanteppi, tvær breiddir, verð frá 31.50. Damask-rúmteppi, tvær stærðir. Dömutöskur, mjög smekldegt úrval. Bútar seldir í dag og á morgun. Verzl. Anna Gunnlaugsson, Laugavegi 37. Nýkomið: E i n 1 i t Kjólaeím og ljósleitt Flauel. H. T0FT Skólavörðust. 5. Sími 1035. 2 kolaofnar óskast. — Sími 5228. Hænuungar. Nokkrir hænuungar á 5. mánuði eru til sölu. Uppl. í Laugarási við Múlaveg. Stangaveiði í Haukadalsá til leigu 27. ágúst til 2. sept. (7 daga). Heimilt að veiða á 3 stengur. — Upplýsingar í síma 1280 Matsveinn í millilandásiglingum óskar eftir herbergi sem fyrst. Ein- hver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Tilboð, ásamt leigu- kjörum, sendist afgreiðslu blaðsins, merkt „Matsveinn“, fyrir fimmtudagskvöld. — dalshreppi 5 stig. Þessi 4 félög stofnuðu sambandið. Bílddæl- ingar unnu einnig handknatt- leikinn, með 5 stigum. Hörður hlaut 4 stig, Drengur 2 og Morg- un ekkert stig. — Fréttaritari.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.