Vísir - 23.08.1944, Side 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁTAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötn 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
FélagsprentsmiSjan h.f.
Eftir stríðið VI.
ViSsldpti
og samgöngui.
ITerzlun og viðskipti eru
samkvæmt eðli sínu ópóli-
tísk. Þeir, sem hafa þau störf
á hendi, verða að geta skipt
við hvern sem er, án tillits til
pólitískra skoðana, annars er
sú stétt ekki hlutverki sínu
vaxin. Verzlunin á þess vegna
að standa utan við pólitískar
deilur og sinna hlutverki sínu
innan þeirra vébanda, sem
henni eru sett og bezt sam-
rímast hagsmunum heildar-
innar. Nytsemi hvers verzlun-
arforms eða skipulags verður
dæmt eftir þeirri þjónustu,
sem það veitir. Samvinnu-
verzlun og séreignarverzlun
eiga að hafa jafna aðstöðu til
þróunar, hvor á sinn hátt.
Samkeppni þeirra á að bein-
ast að því, hvor geti betri
þjónustu innt af hendi og bet-
ur séð borgið hagsmunum
neytendanna, en ekki því,
hvor aðilinn geti með virkn
þátttöku í stjórnmálunum
skapað sér sterkari efnalega
aðstöðu. Þess vegna er nauð-
synlegt, að verzlun landsins
hætti að vera snar þáttur í
stjórnmálabaráttunni. Það
mundi hreinsa loftið.
Á gjaldeyrisráðstefnu
þeirri, sem nýlega var haldin
í Bandaríkjunum, samþykktu
44 þjóðir að vinna að því eft-
ir ófriðinn, að afnema öll höft
á gjaldeyri í sambandi við við-
skipti þjóða í milli. Þetta gef-
ur von um að bætt verði úr
því öngþveiti, sem ríkjandi
var í alþjóðaviðskiptum í heil-
an áratug fyrir ófriðinn. Að
sjálfsögðu verður ísl. verzl-
un jafnan háð því ástandi,
sem ríkir í viðskiptum ná-
grannalanda okkar hverju
sinni. En strax og ófriðnum
lýkur verður að hefja hér
undirbúning þess, að losa
verzlunina úr hinu núverandi
ófrjálsa skipulagi. Hún þarf
að geta þróazt með eðlilegum
hætti. Öll höft, sem standa
til lengdar, leiða af sér óeðli-
lega þróun. Um leið þarf að
leysa annað vandamál, og
það er að þessi starfsgrein
verði ekki fjölmennari en
bezt samrímist þörfum við-
skiptanna og hagsmunum al-
mennings.
Samgöngurnar við útlönd
verðá jafnan eitt af mestu
bagsmunamálum þjóðannnar.
Afkoman í landinu er mikið
undir því komin, að vér get-
um flutt afurðirnar út og er-
lendu vörurnar inn á hag-
kva^man og ódýran hátt. Of
dýrir flutningar geta lamað
Hefur útilegumannabyggð
fundizt í Vonarskarði?
Frá ferð uíu BeykfíkÍDga um
aðalöræfi Iand§ins.
Jíðari hluta júlímánaðar fóru níu ferðalangar héðan úr
Reykjavík ríðandi um Landmannaafrétt til Veiðivatna,
þaðan yfir öræfin um Illugaver, Jökuldal við Tungnafells-
jökul, Vonarskarð og Sprengisand niður í Bárðardal. I Von-
arskarði fundu þeir ágætt haglendi á miklu hverasvæði, og
þar rákust þeir á þrjár þústur, sem hugsanlegt er að væru
leifar mannvirkja frá útilegumannabyggð.
Ferðalangarnir 'voru Ásgeir Ásgeirsson skrifstofustjóri frá
Fróðá, Friðrik Ólafsson skólastjóri, Guðmundur Albertsson for-
stjóri, Hafliði Jónsson vélstjóri, Halldór Gunnarsson kaupmaður,
Kornerup-Hansen stórkaupmaður, Ölafur Gíslason stórkaupmað-
ur, Óskar Þórðarson læknir, og Páll Skúlason ritstjóri. Fylgdar-
menn þeirra voru Kristinn á Skarði og Teitur á Flatbjarnar-
holti, en alls höfðu þeir ferðalangar 25 hesta. Vísir átti tal við
þá Friðrik Ólafsson skólastjóra og Óskar Þórðarson lækni, og
skýrðu þeir svo frá för þessari:
Þann 20. júlí fórum við frá
Reykjavík að Skarði á Landi
og áfram að Landmannahelli,
en þaðan daginn eftir til Veiði-
vatna. Þar vorum við um kyrrt
22. júlí og veiddum þann dag
nokkuð af silungi. 23. júlí var
haldið í Illugaver. Var leiðin
þungfær, sandur, gróðurlaus
með öllu og sandorpið hraun.
Var ætlun okkar að á við Þór-
isvatn, af því að þar vissum við
af haglendi, en er til kom var
svo hratt niður að vatninu, að
okkur þótti ekki taka því að
staðnæmast þar, enda hefðum
við orðið að taka klyfjar af öll-
um hestum uppi á brúninni og
teyma þá eftir bröttum sand-
bökkum niður að haglendinu.
Héldum við þvi sem leið liggur,
í Illugaver. Þar voru hagar .góð-
ir og all víðáttumiklir. Kalda-
kvísl var ekki í teljandi vexti og
hittum við á gott vað rétt við
leitamannakofann í Illugaveri.
Annars getur hún verið illur
farartálmi, þegar vöxtur er í
henni.
Árla morguns 24. júlí lögðum
við af stað áfram norður. Áð-
um í Svörtubotnum, sem erú
grasgeirar meðfram lækjar-
seytlum alllangt vestan við Há-
göngur. Um kvöldið komum við '
svo í Nýjadal eða Jökuldal, sem
er vestan í Tungnafellsjökli og
komum þangað kl. 2 um nótt-
ina. Höfðum við þá haldið á-
fram 16 klst. samfleytt.
Þann 25. júlí fórum við út úr
dalnum aftur og suður í Voriar-
skarð. Þar inni í fjöllunum,
suður af Tungnafellsjökli, fund-
allt atvinnulíf og gert fram-
leiðsluna ósamkeppnishæfa.
Flutningana verðum vér sjálf-
ir að annast og ríkið verður
að búa svo í haginn fyrir ein-
staklingsframtakið, að það
vilji stuðla að þessum fram-
kvæmdum. I samvmnu við
ríkisvaldið og með aðstoð
þess ætti Eimskipafélagið að
geta fullnægt þörfum lands-
manna um almenna vöru-
flutninga á eins hagkvæman
hátt og frekast verður á kos-
ið. Ekkert millistig í því efni
er fullnægjandi. Ríkið er nú
hluthafi í félaginu að litlu
leyti og viðsjár virðast vera
talsverðar milli þess og hins
opinbera. Ef deilur rísa á Al-
þingi um félagið, sem vel get-
ur orðið bráðlega, gæti það
haft þær afleiðingar, að skatt-
frelsi félagsins yrði afnumið
og það þyrfti að starfa við
önnur og verri skilyrði en til
þessa. Til þess að tryggja fé-
laginu þann frið og þau fríð-
indi, sem því er nauðsynlegt
til fullkomlega viðunandi
reksturs, þarf að semja nú
þegar um víðtæka samvinnu
milli ríkisins og félagsins eftir
stríðið. Ríkið ætti að eiga
helming hlutafjárins, en
leggja hins vegar félag-
inu til strandferðaskipm og
láta það annast allar strand-
ferðir. Skipaútgerð ríkisins
mundi þá hætta.
Loftleiðir.
Það er engin lausn á flug-
málum landsins, þótt stofnuð
séu nokkur smáfélög. Það er
öfug þróun við það, sem ætti
að vera og skapar alltof mik-
ið öryggisleysi. Hér þarf eitt
sterkt félag að annast flug-
ferðir innanlands og starfa
samkvæmt lögum, e.r gæfi því
sérstök réttmdi og ákveðnar
skyldur. Ríkið hlýtur að eign-
ast við stríðslokin þá 'flug-
velli, sem hér hafa verið
byggðir, og verður því að láta
þessi mál mikið til sín taka,
ekki síður en aðrar samgöng-
ur. Æskilegast væri að eitt
félag gæti haft öll þessi mál
að öllu leyti með höndum, í
samvinnu við ríkisvaldið.
Nauðsynlegt væri nú þegar
að undirbúa framtíðarskipun
þessara mála, svo að vér vær-
um ekki alveg óviðbúnir, þeg-
ar stórveldin fara að skipa
alþjóðaflugmálum eftir stríð-
ið. —
um við ágæta haga, sem við
nefndum Laugaver, vegna þess
að þar eru heitar laugar og
hverir. Ekki sáuin við nein
merki þess, að þar væru gos-
hverir, en hinsvegar nokkuð af
leirhverum.
Hefðum við vitað af þessu á-
gæta haglendi í Vonarskarði,
myndum við ekki hafa farið í
Jökuldal, heldur haldið beint í
Vonarskarð úr Illugaveri, því
að vegalengdir virðast vera
svipaðar á hvorn staðinn, sem
farið er. Var það ætlun okk-
ar, hefðum við ekki hitt á gras-
lendi i Vonarskarði, að gefa
liestunum þar brauð, en halda
síðan áfram gegnum skarðið og
síðan norður með Skjálfanda-
fljóti í Fljótsha^a. Vorum við
8 klst. úr Jökuldal í Laugaver.
Á hverasvæðinu, þar sem við
tjölduðum í Laugaveri, voru 3
stallar, hver upp af öðrum, sem
hugsanlegt er að gerðir væru af
mannahöndum. Ekki þorum við
samt neitt um þetta að fullyrða,
því að verksummerki af manna-
völdum sáum við engin, nema
ef vera kynni þessi.
26. júlí fórum við gegnum
Vonarskarð og norður i Fljóts-
haga. Þar voru sæmilegir hag-
ar. Þá, nóttina eftir, var kald-
asta nóttin i ferðinni. Var jörð
alhvít af hélu um morguninn og
allmikið frost.
27. júlí fórum við úr Fljóts-
haga á Sprengisandsveg og áð-
um i Kiðagili í svo nefndri
Áningabrekku, niður með gilinu
að austanverðu. Fórum við síð-
an yfir Kiðagilsá fyrir neðan
gljúfrið og svo sem leið lá nið-
ur að Mýri í Bárðardal. Komum
við að Mýri kl. 3 um nóttina,
eftir 20 klst. ferðalag, og var
öræfaferðinni þar með lokið.
Fengum við ágætar viðtölcur
að Mýri.
Veður var alla leiðina mjög
hagstætt, enda var það gott, því
að leiðin er þungfær og ekki
annað en erfiði, ef veður er
slæmt. Enda þótt fylgdarmenn-
imir hefðu ekki farið nema
nokkurn hluta leiðarinnar áður,
reyndust þeir í hvívetna hinir
prýðilegustu og sömuleiðis hest-
arnir.
Við höfðum góðan útbúnað,
svo að einu áliyggjurnar, er við
höfðum í þessari ferð, voru af
hestunum, ef við næðum ekki
Lagt upp frá Landmannahelli.
JZ
Scrutator:
O V,
QxudAúL a^jnemm^s
Iceland (Denmark).
Það eru nú liðnir meira en tveir
mánuðir síðan við stofnuðum lýð-
veldi og löngu áður var raunar vit-
að, að það mundi gert. Víða um
heim var þessa merkisatburðar S
minnzt og vart mun hann hafa farið
framhjá þeim mönnum, er fylgj- ■
ast vilja með því, sem gerist i hin- .
um frjálsa hluta heimsins.
En þó virðast þeir harla margir,
sem gera sér ekki enn grein fyrir
Jjví, hver breyting hefir hér á orðið,
enda þótt einmitt þeir aðilar ætti
að vita betur. Eg á hér við ýmis
blöð og tímarit úti í heimi.
Iðulega kemur það fyrir, að þessi
tímarit eða blöð birta landabréf,
þar sem ísland fær að „vera með“,
en sá galli er á gjöf Njarðar, að þáð
munu vera undantekningar-tilfelli,
þar sem aftan við nafn Islands er
oft skeytt nafni Danmerkur, sem
á að tákna það, að enn sé ísland
hluti danska ríkisins.
Mér finnst sjálfsagt, að aðstand-
endu þessara rita sé upplýstir um
það, hvernig högum sé háttað og
ætti vitanlega utanríkisráðuneytið ,
og þess sendimenn að sjá um það. '
Burt með gaddavírinn.
,Vegfarand'i um Skúlagötu“ hefir j
sent mér eftirfarandi pistil:
„Eg á stundum leið um Skúla-
gotu hjá Sænska frystihúsinu og
þegar eg fór þar um í gærmorgun
sá eg að búið var að rífa að mestu ;
virkið, sem verið hefir við krikann,
þar sem holræsið liggur út í sjó.
Eg fagnaði þessu með sjálfum
mér, því að eg verð alltaf feginn
í hvert sinn, er eg sé eitthvert hern-
aðarmannvirki hverfa úr bænum.
En eftir á fór eg að hugleiða þetta
nánar og þess vegna sendi eg þess-
ar línur.
Meðfram allri Skúlagötunni hef-
ir árum saman verið gaddavirsslitur,
sem sett var þarna til að verjast
yfirvofandi innrás, meðan banda-
menn áttu í vök að verjast. Siðan
hefir það verið látið vera þar ó-
hreyft — eða var það að minnsta
kosti, er eg átti leið þarna um fyr-
ir fáeinum dögum, en eg tók ekki
eftir því gær, hvort það hefir verið
látið fara sömu leiðina og virkið.
Fallega gangstétt með sjónum.
Eg vil láta þennan gaddavír fara
veg allrar veraldar, ef hann er þarna
•ennþá, en síðan á bærinn að taka
rögg á sig og gera þarna snyrtilega
gangstétt, því að á fögrum sumar-
Wöldum er varla til betri stað-
ur til skemmtigangna en einmitt
þarna meðfram sjónum. Mig minn-
ir, að einhver hafi minnzt á það,
að þarna mundi gaman að láta gróð-
ursetja tré meðfram götunní, en
hræddur er eg um, að reynast mundi
erfitt að halda í þeim lífinu, vegna
þess hvað svæðið er opið fyrir norð-
anáttinni. En ef hægt væri, mundi
það síður en svo verða tll Iýta.“
Tungná riðin. (Myndirnar tók Öskar Þórðarson).
í graslendi fyrir þá, því að langt
er milli áningarstaða og ó-
skemmtilegt að lenda í þoku eða
villum á þessari reginauðn.
Við höfum hinsvegar haft
mjög mikla ánægju af þessari
för og fannst hún margborga
sig, vegna hinnar undraverðu
og tignríku náttúrufegurðar,
sem hvarvetna getur að líta á
leiðinni/
Bær brennur.
í fj'rrinótt brann bærinn
Neðri-Gufudalur í Gufudals-
sveit í Barðastrandarsýslu. Var
þetta gamall torfbær og fuðraði
Iiann upp í einu vetfangi, en
fólk, sem verið hafði í fasta
svefni, er eldurinn kom upp,
slapp nauðulega út um glugga
á bænum á náttklæðum einum
og missti allt sitt í eldinum.
Ábúandi jarðarinar Neðri-Gufu-
dals heitir Bergsveinn Finssson.
Hefir.hann og heimafóllc hans
orðið hér fyrir stórkostlegu
tjóni, þar eð allt, sem brann
þarna var óvátryggt.
Gunnar Stefánsson
meistari í tugþraut.
I gærkveldi fór fram síðari
liluti tugþrautarkeppni Meist-
aramótsins og lauk mótinu með
þessari keppni.
Leikar fóru svo í þessari
lceppni, að meistari varð Gunn-
ar Stefánsson frá Vestmanna-
eyjum. Hlaut hann 4999 stig.
Annar varð fyrrvcrandi meist-
ari í tugþraut, Jón Hjartar úr
K.R. með 4820 stig og þriðji
Ingólfur Arnarson frá Vest-
mannaeyjum með 4555 stig.
Afreksbikar fyrir mesta af- >
rek Meistaramótsins hlaut að
þessu sinni Gunnar Huseby,
K.R. fyrir kúluvarp sitt, 15.40
m. Annað bezta afrek mótsins
var hástökk Skúla Guðmnuds-
sonar, K.R., 1.94 m., en þriðja
langstökk Oliver Steins, F.H.,
7.08 m.
S. I. B. S.
vantar aðstoðarstúlku að
Reykjum í Mosfellssveit. —
Uppl. á skrifstofu Lækjar-
götu 10B, milli ld. 2 og 4
daglega.
V*».r ^ - -v <.$
1
rvr
«gPPI» J.iþL 3,1 »1
jni lffcH l^~*
Þór.
Tekið á móti flutningi til
Ingólfsfjarðar, Norðurfjarð-
ar og Djúpavíkur, Drangs-
ness og Hólmavíkur til há*
degis á morgun.
Dömu og herra
INNISKOR
vEfa.<?
.2285.
Gray’s Anatomy,
nýjasta útgáfa, óskast nú
þegar. Sími 4833 eða 5004. —
Tækifærisverð
á eldri bifreið.
Til sýnis í dag í Miðtúni 18
frá ld. 4—8.
Brauchitsch hefir ritað greín
í dagblað i Berlin, þar sem hann
lætur í ljós mikla ánægju yfir
því, að Himmler skuli hafa tek-
ið við stjórn heima fyrir.
Bezt ú angljsa í Vísl