Vísir - 31.08.1944, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur;
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
1
Rltstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingat* 1660
Gjaldkerl S Ilnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 31. ágúst 1944.
196. tbl.
Bandamenn aðeins 30 km. frá Amiens.
Tékkar rísa upp
gegn Þjóðverjum
Slovakia hefir verið sett
undir herlög.
1 fyrradag hélt þýzkt herlið inn
í Slovakiu og hóf hernám lands.
ins, til að styrkja aðstöðu Þjóð-
verja gagnvart sókn Rússa vest-
ur á bóginn frá Rúmeníu.
Slóvakia hefir verið verndar-
ríki Þjóðverja, síðan árið 1939,
þegar Tékkoslóvakia var troðin
undir fótum. Hafa Slóvakar
orðið að veita Þjóðverjum lið-
veizlu á austurvígslöðvunum.
1 gær hárust svo fregnir um
það, að föðurlandsvinir í aust-
urhéruðum Téldtóslovakiu — þ.
e. Slóvakiu hefði nú risið
upp gegn Þjóðverjum og væri
barizt í grennd við þi’jár helztu
borgir landsins.
Inger hershöfðingi, sem er
hermálaráðherra tékknesku
stjórnarinnar í London, hefir
birt ávarp til Tékka og sagt, að
hver sá sem berjist gegn Þjóð-
verjum teljist í lier Tékka og
krafðist þess af Þjóðverjum, að
þeir taki tillit til þess.
Ráðizt á Kastrup-
flugvöllinn.
Moskito-vélar, sem voru í eft-
irlitsferð, réðust á Kastrup-flug-
völlinn hjá Kaupmannahöfn í
gær.
Þjóðverjar áttu sér einskis
ills von, og höfðu þeir skilið eft-
ir fjórar flugvélar á vellinum,
sem voru ekki í sandpokaskýli.
Moskito-vélarnar gerðu þegar
vélbyssuskothríð á þær og
kveiktu í tveim og löskuðu hin-
ar talsvert líka.
Framleiðsla
bre^tt I IJ. S. A.
Bandamehn búa sig nú úndir
að breyta að nokkru leyti fram-
leiðslu sinni, þegar stríðinu lýk-
ur í Evrópu.
I Bandaríkjunum mun fram-
leiðsla á ýmsum vörum til al-
menningsþarfa verða aukin um
þriðjung, en hergagnafram-
leiðslan verður minnkuð um tvo
fimmtu hluta. Þær vörur, sem
fyrst munu verða framleiddar,
eru kæliskápar, ryksugur, raf-
eldavélar, saumavélar ó. s. frv.
Gashernaður í aðsigi,
segja Bretar.
Bretar segjast hafa fengið
fregnir af því, að Þjóðverjar
flytji nú mikið af eiturgashylkj-
um til Belgíu og Hollands.
Fregnir hafa horizt um það
frá Genf í Sviss, að unnið sé af
miklu kappi að þvi að framleiða
eiturgasgrímur í Þýzkalandi.
í jjessu sambandi minnir
brezka útvarpið á aðvörun
Churchills í maí 1942, þar sem
hann heitir því, að Þjóðverjum
skuli goldið í sömu mynt, ef þeir
noti gas.
Walterskeppnin
hefst n.k. sunnd.
Waltherskeppnin svonefnda
liefst n. k. sunnudag kl. 5 á
Iþróttavellinum með leik milli
Yals og Fram. Knattspyrnumót
þetta, sem kennt er við bikar
þann, sem um er keppt, er háð
á hverju hausti og er það síðasta
mót á árinu, sem meistaraflokk-
ur félaganna tekur þátt í.
Iíeppt er um bikar, sem ekkja
Walthers heitins Sigurðssonar
gaf til minningar um mann sinn.
Valur hefir unnið mót þettá
tvisvar sinnum en K.R. einu
sinni.
Rúsiar sagðir komn-
ii* inn a Bnbarest.
Ploesti—lindipnaF teknar i
Snemma í morgun hélt sókn
Rússa suður eftir Rúmeníu
áfram og um hádegi eftir rúss-
neskum tíma símuðu erlendir
blaðamenn í Moskva, að fram-
sveitir Rússa væri komnar inn
í úthverfi Bukarest.
í gærkveldi höfðu Rússar ver-
ið aðeins 27 km. frá borginni,
en vörnin var lítil fyrir norðan
horgina, enda hefir liún verið á
valdi Rúmena sjálfra í nokkura
daga. En fyrir austan Bukarest
voru Rússar komnir miklu
sunnar. Þar áttu þeir víða að-
eins um 45 km. ófarna til landa-
mæra Búlgaríu.
Skrúfað
fyrir olíuna.
í gær unnu Rússar mesta sig-
ur sinn, síðan þeir hröktu Þjóð-
verja út úr Rússlandi og jafn-
vel enn lengra. Þeir tóku olíu-
svæðið Ploesti, sem hefir verið
mesta uppspretta Þjóðverja af
olíu. Þaðan hafa þeir fengið um
tvær milljónir smálesta árlega
af hreinsaðri olíu.
Fyrir ári var byrjað að gera
árásir á heinsunarstöðvarnar og
þær eyðilagðar liver á fætur
annari, en Rúmenar áttu þó eft-
ir allmargar stöðvar.
Birgðir til
fáeinna vikna.
Sérfræðingur í olíumálum
ritar um töku Ploesti í Times í
morgun . Ilann segir, að Þjóð-
verjar muni hafa noklcurra
vikna birgðir af olíu, en svo
komi að þvi, að þeir geti aðeins
nolazt við olíuna, sem fram-
leidd er úr kolum. Þá munu þeir
verða að slcera notkun sína nið-
ur um tvo þriðju eða þrjá
fjórðu hluta. "
6. stríðsárið hefst á morgun.
Aðf aranótt 1. sept.
1939 réðust Þjóð-
verjar á Pólverja
Fimm ára strfðs-
yfirlit.
Á morgun hefst sjötta ár
þessa mesta stríðs, sem háð hef-
ir verið í heiminum.
Það var aðfaranótt 1. sept-
ember 1939, þegar Pólverjar
voru í fasta svefni sem Hitler
sendi sprengjuflugvélar sínar
af stað til að láta rigna eldi og
dauða yfir borgir Póllands, með-
an herinn ruddist inn yfir
landamærin á leiðinni til Var-
sjár.
Hitler ætlaði að leggja undir
sig heiminn. Hann liafði gert
samning við Stalin. Hann trúði
því, að Bretar og Frakkar
mundu ekki berjast, því að þeir
voru blauðar lýðræðisþjóðir,
svo að liann gæti síðan gengið á
röðina, unz veldi hans væri orð-
ið svo mikið, að enginn gæti
staðizt lierskara hans. En hann
reiknaði dæmið skakkt, því að
bandamennirnir í vestri stóðu
við gerða samninga — sögðu
honum slríð á hendur 3. sept.
— enda þótt þeir heita mætti
vopnlausir og gælu ekki hjálpað
Pólverjum, enda var rýtingur-
inn einnig rekinn í hak þeim af
handamanni Hitlers í svívirð-
ingunni.
Vestur-Evrópa.
Svo kom röðin að Norður-
löndum. Danir og Norðmenn
fengu næst að kenna á valda-
fíkn Hitlers og síðan var -ráðizt
á Belgíu, Holland og Luxem-
burg, jafnframt því sem sótt var
inn í Frakkland.
Allt gekk eins og í sögu. Eng-
inn stóðst hersveitum Þjóðverja
snúning, enda liöfðu þeir einir
búið sig undir stríðið og varla
til nokkur lier í þeim löndum,
sem Hitler liafði ráðizt á. Þegar
Frakkar höfðu verið brotnir á
bak aftur, liélt Ilitler að Bretar
mundu sjá sitt óvænna og gefast
upp.
En ]já var Churchill kominn
gær.
Löng dagleið.
Rússar fóru um 70 km. í gær
í sókn sinni til Ploesti. Þeir
tóku alls um 200 bæi. Undan-
farna daga liafa Rússar yfirleitt
farið mjög hratt yfir í Rúmeníu.
Norðar á vígstöðvunum hafa
hreytingar orðið litlar. Hafa
Rússar enn hrundið öflugum á-
hlaupum Þjóðverja í grennd við
Varsjá og norður í Eystrasalts-
löndum.
Bráðabirgðastjórnin franska
er að sögn farin frá Alsír áleiðis
til Parísarhorgar.
Grasaferð upp
í Kjós.
Hið íslenzka náttúrufræðifé-
lag gengst fyrir fræðsluferð í
grasafræði upp í Kjós næstkom-
andi sunnudag, 3. sept.
Lagt verður af stað héðan úr
bænum kl. 8 árdegis og farið
með áætlunarhílum frá Bif-
reiðastöð Rejdíjavikur. Steindór
Steindórsson, menntaskóla-
kennari frá Akureyri, verður í
förinni og mun hann og fleiri
leiðbeina þátttakendum.
Yæntanlegir þátttakendur
gela fengið nánari upplýsingar
um ferðina í símum 5869 og
5487.
Náttúrufræðifélagið efnir ár-
lega til kynnis- og fræðsluferða
um nærsveitir Reykjavíkur og
eru þær hinar fróðlegustu. Þetta
er önnur för félagsins á þessu
ári.
Forseti situr veizlur í New York,
Hefir m. a. verið gestur „International
Chamber of Commerce".
til sögunnar. llann hafði lengi
varað við hættunni af Þjóðverj-
um, en verið eins og hrópand-
inn í eyðimörkinni. Þegar Eng-
lendingar sáu, að hann hafði
liaft á réttii að standa, var hon-
um falin stjórnin. Hann lofaði
engu — nema blóði, svita og
tárum.
Nú var ekki liugsað um annað
en að styrkja varnirnar, svo að
Þjóðverjar gæti ekki gert innrás
í Bretland, og jafnframt að und-
irbúa innrás á meginlandið, sem
yíst var, að yrði að gera, ef
átti að sigra Þjóðverja. Ilitler
greip lil flugvélanna og ætlaði
að eyðileggja flugher Breta, en
þótt Þjóðverjar liefði margar
flugvélar, stóðust þær þó ekki
fyrir flugvélum Breta, þótt þær
væri fáar, því að gæðin réðu.
t
Suður-Evrópa.
Meðan Hitler hélt uppi loft-
sókn gegn Bretlandi veturinn
1940—1941, gerðiát sitt af
hverju suður við Miðjarðarliaf.
Eilt var það, að Mussolini þótti
hernaðarfrægð ítala vera helzt
Frh. á 3. síðu.
Á mánudag sat forseti Islands
hádegisverð hjá International
Chamber of Commerce og voru
þar viðstaddir um níutíu menn,
sem framarlega standa hver á
sínu sviði. Voru þar margar
ræður fluttar fyrir minni Is-
lands og forseta, og jjakkaði
hann með glæsilegri ræðu, sem
hefir verið víða getið í blöðum
og útvarpi. Lagði hann nieðal
annars áherzlu á, að vér vænun
norræn þjóð og myndum halda
áfram sambandi voru við hin
Norðurlöndin strax og stríðið
hefir verið unnið.
Þá hefir forseti flutt tvö stutt
ávörj) í útvarpi, annað á dönsku
til Norðurlanda, og hefir það
þegar verið hirt í blöðum hér,
en hitt á ensku.
I síðdegisboði aðalræðis-
mannsins og konu hans að Wal- |
dorf Astoria hótelinu voru hátt ,
á þriðja lnindrað manns. Að- j
alræðismaðurinn fagnaði for-
seta með ræðu, en hann svaraði
og sagði meðal annars:
„Það er vorlíugur í íslenzku
þjóðinni, það finn eg bezt á
ferðum mínum um landið, þar
sem margir sögðu, að ferðalag
mitt hefði verið áframtiald af
17. júní. Nú finn eg hversu 17.
júní á djúp ítök með þjóðinni,
eg finn líka hve stórt Island
er, þegar eg sé yður öll hér,
og mér er Ijóst, að för mín
hefði verið ófullkomin, ef eg
hefði eigi séð yður.“
Aðalræðismaðurinn ávarpaði
síðan utanríkisráðherra, en
liann svaraði meðal annars á
þessa leið:
„Góðir landar, mér eigi síður
en forsetá en ánægja að því að
vera hér í þessum stóra hópi
Islendinga. Þegar eg átti heima
hér í borg, mátti telja Islend-
inga á fingrum sér. Áður slitn-
uðu höndin við þctta land, en
])egar þér komið heim aftur,
vona eg að yður megi takast
að varðveita þau, efla þau og
styrkja.“
Um hádegi á þriðiudag var
forseta, utanríldsráðherra og
föruneyti ekið til ráðhússins í
New York, þar sem fjöldi fólks
var saman kominn í boð La
Guardia borgarstjóra, til að
fagna gestunum. Þegar komið
var til ráðhússins var leikinn
þjóðsöngur Islands og Banda-
ríkjanna. Borgarstjóri bauð
forseta velkominn með snjallri
ræðu og lauk máli sínu á ís-
lenzku á þessa leið orðrétt:
„Herra forseti. Viljið þér bera
kveðju fólksins hér í borginni
til þjóðar yðar. Skilið til þeirra,
að það beri vinsemdarhug í
hrjósti til hennar og óski henni
alls hins bezta. Lengi lifi ís-
lenzka lýðveldið."
Fréttatilkynning
frá utnarítSsráðuneytinu:
t? §kipnm NÖkkt
fyrip •Bnpönum.
Amerískir kafbátar hafa enn
höggvið allmikið skarð í skipa-
stól Japana.
I gær var tilkynnt i Pearl
Harbor, að sökkt liefði verið
fyrir Japönum 17 skipum. Með-
al þeirra voru tveir tundurspill-
ar, níu flutningaskip af meðal-
stærð og tvö olíuflutningaskip.
Flugvélar bandamanna hafa
einnig gert siglinguni Jajjana
talsverðar skráveifur, því að
þær hafa laskað þrjú fljótaskip
á Jangtse-ánni i Ivína og stórt
flutningaskip í Amoy. Auk þess
hefir verið ráðizt á nokkur skip,
sem voru á siglingu í Kuril-
eyjum. Þar var ef tirlitsskipi
söklct, annað laskað og kveikt í
olíuskipi.
Landsmót 1. íl.:
KR og Akurnesingar
— úrslif á laugardag.
Síðasti leikur í 1. fl. lands-
mótinu, sem staðið hefir yfir
nú að undanförnu, fer fram n.
k. laugardag ld. 4,30. Keppa þá
KR og Akurnesingar, en þessi
félög eru þau einu, sem ekki
hafa verið sigruð í þessu móti.
Leiðin styttist
lika óðum til
Belgíu.
19 þýzki herinn í
úlfakreppu.
^andamenn fara með gríðar-
legum hraða norður frá
Signu til Somme og hafa á
einum stað farið 40 km. leið
á aðeins 24 klukkustundum.
Það var frá brúarstæðinu við
Vernon, sem brezkir og kanad-
iskir hc^'menn í 2. brezka hern-
um sóttu fram þessa löngu leið,
en hún er tæpur helmingur leið-
arinnar til Somme. Síðar í gær
fréttist um töku borganna
Beauvais og Gournay og loks í
morgun var sagt, að
2. herinn mundi ekki vera
nema um 30 km. frá Ami-
ens og hann sækir þangað
gegn lítilli nrótspyrnu.
Til Belgíu.
Hersveitir Pattons, sem tekið
hafa Soissons og fleiri borgir á
leiðinni til Belgíu, eru að kom-
ast til Laon og í morgun var á-
æltað, að þeir fremstu væri að-
eins 60 km. frá Sedan, sem er
rétt fyrir sunnan landamæri
Belgíu.
Þessi sókn hefir raunverulega
gert vörn Þjóðverja i Calais-
héraði vonlausa, en þó er lítið
gert til að stöðva liana, því að
mótspyrna þýzku hersveitanna
er hvarvetna hverfandi .
Til Italíu.
I Suður-Frakklandi hafa
bandamenn sótt austur fyrir
Nizza, svo að þeir eru nú aðeins
20—- 25 km. frá landamærum
Italiu. Þótt Þjóðverjar verjist
þarna af talsverðu kappi, geta
þeir ekki stöðvað ofurefli
bandamanna.
1 Rón-dalnum eru Þjóðverjar
í hinni verstu úlfakreppu. Hafa
bandamenn sótt langt norður
fyrir Montélimar, en þýzku her-
sveitirnar hafa tafizt á undan-
haldinu við það, að brýr hafa
verið sprengdar í loft upp á
])verám þeim, sem renna í Rón.
Við eina slíka tálmun gereyddu
bandamenn baksveit Þjóðverja,
sem hafði meðferðis flutninga-
tæki, er tóku samtals 5 km.
langan vegarspotta.
Islenzk bifreið ekur á
brezkan flugmann.
I gær ók íslenzk bifreið á
brezkan flugliðsmann og hélt
síðan áfram án þess að skifta
sér af hinum særða manni. —
Flugmaðurinn særðist allmikið,
en þó ekki lífshættulega, að tal-
ið er.
Þetta atvikaðist með þeim
hætti, að tveir hrezkir flugliðs-
menn gengu suður Melaveg og
héldu sig vinstra megin á vegin-
um. Skámmt fyrir norðan
gatnamót Fálkagötu kom bif-
reiðin R 410 á eftir þeim, ók á
þann flugmanninn, sem innar
gekk á veginum, svo hann féll
í götuna og slasaðist verulega.
Bifreiðin hélt síðan áfram
Frh. á 2. síðu.