Vísir - 13.09.1944, Blaðsíða 4

Vísir - 13.09.1944, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 13. sept. 1944. VISIR skuldað, því að það gæfi til kynna að þeir stæði öðrum mönnum að baki um þjóðholl- ustu. Slíkt væri mjög fjarri sanni. Sumir halda því fram, að frv. sá kúgunarlög á hendur verka- lýðnum, gerð i þeim tilgangi einum að skerða laun Kans. Það er venjulega auðvelt að þyrla moldviðri upp í kringum alvar- leg málefni, svo að sumir menn missi alveg sjónar á kjarna málsins. Sú kaupskerðing, er hér er um að ræða, er engin kúgunartilraun, enda mundi hún ekki miklu valda í þá átt. .Hún er aðeins liður í ráðstöf- unum til að stöðva hina hættu- legu þróun dýrtíðarinnar, sem aðeins getur endað í langvar- andi atvinnuleysi, ef ekkert er að gert og hún er látin halda áfram. Þetta er framlag verka- mannsins til þess að tryggja það, að atvinnan geti haldizt, til þess að tryggja afkomuna fyrir sig og sína, i stað þess að láta upplausnarástand vaxandi dýrtíðar stöðva atvinnutækin. Hið raunverulega kaup verka- mannsins byggist ekki á tölu krónanna, sem hann fær, held- ur á gildi þeirrar krónu, sem honum er greidd. Framlag verkamannsins, sem áður fer greint, hindrar verðlækkun krónunnar, þeirrar krónu, sem honum er greidd í laun. 1 þessu sambandi tala sumir um fórn. Hver mundi kalla það fórn af manni, sem hefir ofhlaðið skip sitt, að kasta út litlu broti af •farminum, til þess að ná landi heilu og höldnu með það, sem eftir er, í stað þess að láta allt fara i kaf. Tvær leiðir í vandamáli. Það má snúast á tvennan hátt gegn vandamáli verðbólgunnar. Það má gera það á þann hátt sem stjórnin stefnir að, með því að minnka verðhólguna og þannig hækka gildi króunnar, auka kaupmátt hennar og gildi hins paraða fjár i landinu. Það er einnig hægt að gera það með því, að fella gengi krónunnar og þannig lögfesta verðbólguna og' þá rýrnun sparifjár, sjóða og trygginga, sem nú er orðin. Slikt væri að kippa stoðunum undan þeim fjárhagsgrundvelli sem þjóðin hyggir nú á. Hin siðari leiðin er auðveldari í framkvæmdinni, eins og jafnan þegar slegið er undan og gefist upp. Það er hægara að fljóta undan straumnum en synda á móti honum. Að fella gengi krónunnar væri ekkert annað en uppgjöf, uppgjöf þreyttra ráðlausra manna. Gengisfelling til þess að gera framleiðsluna samkeppnisfæra yrði skammgóður vermir. Með einu pennastriki væri kaup- gjaldið í landinu lækkað um þriðjung, ekki í krónutölu held- ur að verðmæti. Allar innflutt- ar nauðsynjar mundu hækka að sama skapi í verði. Verkamað- urinn mundi fá sömu krónu- tölu og áður, en maturinn, fatn- aðurinn, eldiviðurinn mundi kosta miklu fleiri krónur en áður. * j Sparifé almennings mundi verða lítils virði. Opinberir sjóð- ir sömuleiðis. Tryggingafé sem fjöldi manna hefir lagt til hlið- ar á langri æfi, mundi fara sömu leiðina. Ef um er að ræða þær tvær leiðir sem eg nú hefi nefnt, þá getur engum skynsömum manni við nánari athugun dulizt, að vér eigum að synda á móti straumnum i þessu efni og sigra erfiðleikana. Gengisfall í stór- um stíl eins og nú standa sakir, væri þjóðarógæfa, það væri upp- gjöf og vonleysi, vesællegur flótti frá ábyrgðinrti og gæfi frið meðan gengið væri frá öskunni til eldsins. Stöðvun er nauðsynleg. Þetta frumvarp er aðeins stöðvun, eins og áður er fram tekið. Og þjóðinni er hrýn nauð- syn að stöðvun geti nú orðið. Reksturskostnaður framleiðsl- unnar og allt verðlag í landinu er að komast út í öfgar. Vér seljum í dag fiskafurðir vorar fyrir hátt verð, en um næstu áramót, eftir aðeins hundrað daga, getum vér húizt við að samningar falli niður og verð afurðanna fari stórum læklc- andi. Um leið og verðið lækkar, vferður reksturskostnaður út- gerðarinnar að lækka í réttu ldutfalli til þess að atvinnu- vegurinn geti lialdið í liorfinu. Ef söluverð aflans er ekki nægi- legt til þess að standa straum af kostnaðinum við framleiðsl- una, stöðvast reksturinn mjög fljótlega, þangað til jafnvægi er náð milli framleiðslukostn- aðar og söluverðs. Það er von- laust til lengdar fyrir einstakl- inga eða þjóð, að afneita þess- um staðreyndum. Menn geta alveg eins afneitað flóði, og fjöru, og sagt að aldrei fjari út. Vér verðum pinnig að gera oss grein fyrir þvi, að sam- keppni á fiskmarkaðinum getur komið fjrrr en nokkurn varir. Hugsanlegt er að eftir 1—2 mánuði fari að herast fiskur á markaðinn í stórum stil frá löndum sem nú eru lokuð. Einn- ig er ástæða til að ætla að vegna breyttrar liernaðaraðstöðu, sé nú verið að útbúa skip til fisk- veiða i stórum stíl, sem til þessa hafa verið bundin við hernað- inn. Fullyrt er að nokkrar gerð- ir hinna smærri varðskipa séu þannig útbúin, að hægt sé að breyta þeim í fiskiskip með stuttum fyrirvara. Það verður því að liafa það hugfast, að af- koma útgerðarinnar getur hreytzt mjög skyndilega og áð- ur en langt um líður. Ef reksturskostnaðurinn í landinu verður enn látinn vaxa stórum og verðlagið hækka 'mikið, með þvi að gefa verð- hólgunni lausan táuminn, þá fjarlægjumst vér stöðugt það mark að geta haft atvinnu fyr- ir alla þjóðina eftir strið. En vér nálgumst með óhugnanleg- um hraða það ástand, að at- vinnugreinarnar geti ekki stað- ið undir kostnaðinum með þvi að engirin vilji greiða það verð sem þær þurfa að fá. Verkföllin og framleiðslan. Verkfall er nú í iðnaðinum vegna þess að krafizt er hærri Iauna sem enn mupdi hækka verð iðnaðarvaranna. Þó eru þær fleslar í miklu hærra verði en samskonar erlendar vörur. Smjörlíki er hægt að flytja inn frá Ameriku, greiða af því 30% toll og selja það á sama verði og hið íslenzka er selt nú. Is- Ienzk veiðarfæri eru allt að 25—30% dýrari en erlend. Dúkar og skófatnaður stenzt ekki samkeppni við samskonar erl. vörur, þrátt fyrir háan verð- toll. Húsgögn eru hér allt að helmingi dýrari en innflutt þrátt fyrir hátt flutningsgjald og 50% verðtoll. I járniðnaðinum er einnig verkfall og skipaviðgerðir hafa stöðvazt. Ástæðan er krafa um hærri laun. Þó er vafasamt að skipaviðgerðir séu nokkursstað- ar i heiminum jafn dýrar og hér. Uhdanfarið hefir íslenzkum járnskipum gengið hetur en áð- ur að fá viðgerðir í Bretlandi og viðgerðarkostnaðurinn er þar aðeins lítill hluti af þvi sem hann er hér. Eitt skip fékk þar nýlega viðgerð er kostaði um tíu þús. kr., en mundi að líkind- um hafa kostað hér um 40 þús. kr. Þegar stríðinu er lokið, má húast við að hvert skip sem þess óskar geti fengið viðgerð í brezkum skipaverkstæðum. Á sömu stundu lilýtur mestöll við- gerð járnskipa að hverfa úr höndum ísl. járniðnaðarmanna, yegna þess að kostnaðurinn er kominn úr liófi fram. Þó er enn farið fram á að liækka hann. 'Það mun sannast hér hið forn- kveðna, að skamma slund verð- ur liönd höggi fegin. Hvert tonn i tréskipum sem hér eru smíðuð kostar nú um 10—11 þús. kr. Það er líklega helmingi hærra en það, sem hæst er annarsstaðar. Ef íslend- ingar yrði að kaupa fiskiskip slíku verði eftir stríðið, þá mundi vélbátaútvegurinn fljót- lega verða að leggja árar i bát. Það sem eg hefi nú talið eru aðeins fá dæmi um það livernig íslenzk iðja og framleiðsla er komin vegna lrins mikla fram- leiðslukosnaðar sem er hein af- leiðing dýrtíðarinnar. En þótt þetta sé napur sannleikur, þarf enginn að undrast að svona er komið. Ef vér berum saman að- stöðu • nágrannaþjóðanna, þeirra sem íslendingar hafa rnest skipti við eftir stríðið, er ljóst, að framleiðslukostnaður þeirra kemst hvergi í námunda við kostnaðinn hér á landi. Síð- an í ófriðarbyrjun hefir verð- lag hækkað i Bretlandi um 29 stig, í Bandaríkjunum um 25 stig og í Svíþjóð um 54 stig. En hér á landi er hækkunin 166 stig. Getur nokkrum dulizt hvaða erfiðleika. Islendingar eiga fyrir höndum ef þeir fá ekki skilið í tíma, að atvinnu- vegir þeirra eru háðir viðskipta- lögmáli umheimsins? Ráðstaíanir annara þjóða. Þessar þjóðir sem eg nefndi og haldið liafa verðhólgunni i skefjum, hafa gert það á svip- aðan hátt og núverandi ríkis- stjórn hefir framkvæmt eða lagt til. En það sem liér skilur á milli feigs og ófeigs er að þess- ar þjóðir hófu aðgerðir sinar strax í hyrjun verðbólgunnar í stað þess að hér var það ekki gert að nokkru ráði fyrr en á- standið var orðið lítt viðráðan- legt. I Bretlandi var strax í byrjun ófriðarinris sett strangt verð- lagseftirlit og jafnframt var verð lækkað á ýmsum nauð- synjavörum með framlagi úr rikissjóði. Framlag ríkissjóðs í þessu skyni er lalið að nema nú um £200 milljónum árlega, en það er um 113 kr. á hvern íhúa á ári. Það samsvarar að hér á landi væri varið rúmlega 14 millj. kr. til verðlækkunar á ári. í Bandaríkjunum hefir verið heitt líkum aðferðum. Ilá- marksverð liefir verið sett á landhúnaðarafurðir sem aðrar vörur og talsvert fé hefir verið greitt úr rikissjóði til verðlækk- unar, þótt ekki liggi fyrir tölur i því efni. I Svíþjóð liafa verldýðsfélög- in og samband atvinnurekenda gert samninga um að ekki skuli greidd full dýríðarupphót á laun. Vegna vísitöluhækkunar, sem nú er 54 stig, fá verkamenn nú aðeins 21 % hækkun á laun sín, i stað 54% ef full upphót væri greidd. Fer þetta eftir föst- um en nokkuð marghrotnum reglum. Hér á landi má slíkt ekki heyrast nefnt og er lalið kúgun ef fram er fært. Svíarnir hafa þó sýnt öllum heiminum að þeir kunna að stýra húi sínu. ,J4ér veltur í rauninni allt á því að verkamenn og launþegar á Is- landi sýni sama skilning og fé- lagsþroska og verkamenn Sví- þjóðar. Auk þessa voru í Sví- þjóð settar mjög strangar regl- ur um vöruverð, og sett hann við ýmiskonar hækkun, þótt kostn- aður hækkaði. Pólitískir beinverkir. VerkföIIin sem nú dynja yfir, er pólitískir heinverkir í fjár- málasjúku þjóðfélagi. Allir vita að núverandi ástand i atvinnu- málunum getur ekki staðið til lengdar, en þrátt fyrir það er haldið áfram að spenna bogann meðan hann hrestur ekki. Þetta er einn þátturinn í kapphlaup- inu um skiptingu gæðanna, lcappldaup sem þreytt er án fyr- irhyggju. Sanngjörn og eðlileg skipting afraksturs atvinnuveg- anna er sjálfsögð, en liún getur aðeins hyggst á því hvað at- vinnuvegirnfr gefa af sér. Þeir ,eru háðir sama lögmáli og hæn- an sem verpti gulleggjunum. Ef þeir fá að starfa i friði og með eðlilegum liætti, flýtur gullið frá þeim úl til þjóðarinnar. En sé þeim slátrað er hætt við að fljótlega verði þröngt í búi. Er þetta aðeins barlómur? Sumir munu nú ef lil vill segja, að óþarfi sé að vera með þennan barlóm, þvi að þrátt fyrir aðvaranir og hrakspár undanfarin tvö ár, hafi allt gengið vel og velgengnin hafi aldrei verið meiri en nú. Er því nokkur ástæða til að ælla, að farsældin geti elckí enn lialdið áfram að vaxa, þótt dýrtíðinni sé engar skorður settar? Eftir síðasta ófrið var ástand- ið í Bandaríkj unum ekki ósvip- að því sem hér er nú. Af völdum ófriðarins streymdi gullið þang- að og verðbólga magnaðist. Hin falska velgengni var meiri en nokkurn tíma hafði áður þekkst. Þjóðin var farin að trúa, að vel- sældinni væri engin takmörk sett og menn hlógu að þeim sem vöruðu v.ið ástandinu. Á noklcr- um dögum lirundi spilaborgin og þá hófst fjárhags- og at- vinnukreppa hin mesta sem heimurinn hefir séð til þessa. I Ameríku varð eitthvert liið mesta fjárliagshrun, sem komið hefir þar í landi og leiddi af sér almennar þrengingar og at- vinnuleysi. Það verður sama lögmálið sem endurtekur sig hér með nokkrum öðrum hætti vegna ó- líkra staðhátta en með svipuð- um árangri, ef ekki verður tek- ið í taumana nógu snemma. Verðíallið hlýtur að koma. Verðfall á ísl. afurðum og framleiðsluvörum hlýtur að koma þegar friður er fenginn og viðskiptin leita í eðlilegan farveg. Þess vegna eru þau átök, sem nú eru gerð um hælckun launa og þar með alls fram- leiðslukostnaðar, eins og glíma við skuggann sinn. Þessi átök gela ekki fært nokkrum aukinn hagnað raunverulega, vegria þess, að sjálft ástandið, hin ó- umflýjanlega rás viðhurðanna, hlýtur að þurrka slíkt í hurtu. Vér getum að sjálfsögðu setl hvaða verð sem oss sýnist á eig- in afqrðir og vinnu, en vér liöf- um ekkert vald lil þess að skipa nokkrum að greiða þetta verð. Þess vegna er síreitan til einkis. Hún fer í hága við lögmál við- skipta og atvinnu. Atvinnu- greinarnar geta ekki horið koslnaðinn. Þeim, sem nú herða róðurinn í þessu efni, fer eins og manni sem sáir vorkorni sinu að hausti. Sáðkorriið þolir ekki hreytingu árstriðanna og það gefur enga uppskeru. Svo verð- ur um allar kauphækkanir sem nú kunna að hætast við kostnað vorrar ósamkeppnishæfu fram- leiðslu. Þær gefa enga uppskeru, hera engan ávöxt. Vegna þeirrar breytingar á standinu i heimin- um, sem nú stendur fyrir dyrum og ekki verður umflúin en vér fáum ek-ki við ráðið. Ritað á vegginn. Það gengur því hrjálæði næst og væri fjörráð við framtíðar- heill þjóðarinnar, ef nú ætti að láta allan framleiðslukostnað í landinu stórhækka, nokkrum vikum áður en rás viðburðanna gefur irierki um lækkandi verð á öllum sviðum. Viðvörunin hefir verið rituð á vegginn nú þegar. Straumhreytingin er framundan. Hvernig mundum vér.líta á hyggindi þess manns, sem klifrað liefði hátt en reyndi þó að klifra enn hærra vitandi þess, að fallið væri óumflýjan- legt og yrði þvi þyngra og átak- anlegra sem hann færi hærra. \rér mundum álíta að honum væri ekki ljóst hvað hann væri að gera. Núverandi ríkisstjórn hefir jafnan talið það aðalhlutverk sitt, að liakla dýrtíðinni i skefj- um. Þá tuttugu mánuði sem hún hefir starfað hefir dýrtiðin staðið í stað. Nú er svo komið, að nýr þungi hætist við, og i dag verður ekki séð að stjórn- inni verði mögulegt að halda verðhólgunni í skefjum nema Alþingi fái henni þau vopn i , hendurnar sem henni eru nauð- synleg i baráttunni. Ef Alþingi synjar um þetta, eða hefst ekk- ert að, er ekki útlit fyrir að rik- isstjórnin hafi tök á að sporna móti flóðhylgjunni. Flóðið verð- ur þá að skella yfir. Alþingi eitt liefir valdið til að hindra þetta og það her því eilt ábyrgðina af afleiðingunum. Hvað verður, ef ekkert er gert? Ef hætt verður öllum aðgerð- um í dýrtíðarmálunum 15. sept. liækkar vísitalan eftir næstu mánaðamót upp i 297—300 stjg. Næstu tvo mánuði á eftir liklega um 10—15 slig í viðhót. Þegar svo er komið að vísitalan er orð- in yfir 300 stig er mest aliur iðnaðurinn í landinu dauða- dæmdur, enda væri þá hein skylda að heimila innflutning hverskonar erlendra iðnaðar- vara til þess að útvega lands- mönnum ódýrari vörur. I byrj- un næslu vertíðar mundu frysti- Iiúsin að líkindum slöðvast. Bátaútvegurinn mundi hera svo skarðan hlut frá borði, að mjög vafasamt er um reksturinn. Sildarafurðirnar mundu ekki seljast á næsta ári fyrir það verð er riæmi framleiðslukostn- aðinum, enda þyrfti verð á injöli og lýsi að hækka mikið frá því sem nú er. Sildarútgerð- in gæti því slöðvast alveg næsta sumar með sama áframhaldi. Þetta eru ekki glæsilegar horfur. En hér stoðar ekkert annað en gera sér grein fyrir hvað framundan er. Skylda alþingis. Ríkisstjórnin leggur fram •þessar tiljögur vegna þess að 'iiún telur skyldu sína að benda á leiðir sem geta stöðvað dýrlíð- ina. Hún er reiðuhúin að ræða aðrar tillögur, að ræða aðra lausn á málinu. Aðalatriðið er ekki formið eða það hver til- Jögurnar ber fram, heldur ár- angurinn sem næst, hvaða leið sem farin verður. Ríkisstjórnin lieldur því ekki fram að hennar tillögur séu eina rétta leiðin. En hún heldur því fram, að Alþingi heri skjdda til, ef það vill ekki aðliyllast þessar lillögur, að hera fram og samþykkja aðrar, sem tryggi ekki lakari árangur. Alþingi getur ekki lengur látið undir höfuð leggjast að stöðva verðbólguna með enihverjum ráðum ef það vill ekki algerlega bregðast skyldum sínum og trausti þjóðarinnar. Ef það vegna innhyrðis sundrungar treystist ekki til að koma i veg fyrir það öngþvciti í ]>jóðfélag- inu sem er að skapast, þá er það ekki hlutverki sínu vaxið og öngþveitið mun halda áfram að vaxa meðan svo stendur. Á engu er nú lrinu unga lýð- veldi meiri þörf, en að hin elzta og virðulegasta stofnun liennar, Alþingi, skipi þann sess i lífi þjóðarinnar sem lil er ætlazt og framkvæmd hennar frelsi og framtíðarheill er undir komin. Myndlistarsýning Mazteins Guðmunds- sonar og Jóhanns Briem. Listamennirnir Marteinn Guð- mundsson, myndhöggvari, og Jóhann Briem, málari, opnuðu myndlistarsýningu á laugar- daginn er var. Sýnir Marteinn J8 höggmyndir og Jóhann 26 olíumálverk, en auk þess vatns- litamyndir og litaðar þjóðsögu- teikningar. Sýningin velcur mikla athygli og hefir fjöldi sýningargesta sótt Iiana. Á hak við liana ligg- ur mikið starf og gott af hálfu beggja listamannanna. Mörg ágæt verk eru þarna til sýnis °g þeim svo haganlega fyrir komið, að þau njóta sín til fulls. Áður hafa þverveggir skipt myndilstarsalnum á sýriingum en nú nýtur salurinn sín til fulls og verk listamannanna njóta sín betur en ella. Að þessu sinni eru ekki tök á að lýsa sýningunni nánar, en lnin á það fullkomlega skil- ið, að henni verði gerð betri skil af hálfu sérfróðra manna í listinni. Náttúrufræðing-urinn, 2. hefti 14. árg. er nýkominn út. Efni: Fuglalíf í Borgarfirði. — Flórunýjungar 1944 — FjölbreyUni litareinkenna íslenzka sauðfjárius o. fl. — „Allt er í heiminum hvei f- ult“. — Austan af Síðu og Mýr- dalssandi. — Nýíslenzk grasateg- und. — Sitt af hverju. — Kötlu- gosið 1918. Sjómannablaðið Víkingur, II. árg., er nýlega komið út. At' • efni blaðsins má nefna m. a.: Eitt er nauðsynlegt eftir Halldór Jóns- son, Ósigur, þýdd saga, Oft eru kröggur í vetrarferðalögum eftir Hallgrím Júlíusson, Mennt er mátt- ur eftir J. E. B., Fiskinaðarvél, Mit- suru Toyama, þýtt, Um hvað er talað ?, Örlög briggskipsins Polly, Ms. Edda, Svíþjóðarbátarnir, Gróði Eimskipafélags íslands, Slysavarna- málefni o. fl. Hallgrímskirkja í Reykjavík. Framhald af fyrri tilkynningum um gjafir og áheit, afhent á skrif- stofu „Hinnar almennu fjársöfn- unarnefndar“ kirkjunnar, Banka- strætiii. E. E. (áheit) 100 kr., N. N. (á- heit) 50 kr., J. G. (áheit) 50 kr., V. B. (áheit) 30 kr., N. N. (áheit) 500 kr., Jói J. (áheit) 50 kr. J. B. (áheit 100 kr„ Kona (áheit) 50 kr„ Kona (áheit) 25 kr„ Finnbogi Finnbogason (gamalt áheit) 20 kr„ Ásta (áheit) 5 kr.„ J. B. (áheitj roo kr„ N. N. (áheit) 50 kr„ S. M. (áheit) 500 kr„ Guðrún (áhe.it) 20 kr„ J. B. (áheit) 100 kr„ Ó- nefndur 100 kr. Jóhann Pálsson, stýrim., Isafirði (áheit) 100 kr„ Kona (áheit) 50 kr„ Jóna (áheit) 100 kr„ J. B. (áheit) 100 kr„ S. G. (áheit) 25 kr„ Ónefnd kona (áheit) 35 kr„ Tryggvi (áheit) 20 kr„ M. H. (áheit) 10 kr„ M. H. (áheit) 10 kr„ Elín Sigurðardóttir (áheit) 50 kr„ J. B. (áheit) 100 kr„ Á. P. (áheit) 30 kr. Bernhard Petersen stórkaupm. 500 kr„ G. B. 10 kr„ V. B. 25 kr„ G. H. (áheit) 30 kr„ J. B. (áheit) 100 kr„ — Afhent af hr. biskupi Sigurgeir Sigurðssyni 20 kr. — Samtals: 3.165 kr... — Áður birtar safnanir: kr. 117.319.46 eða alls kr. 120.484.46. Kærar þakkir. — F.h. „Hinnar al- mennu f jársöfnunarnefndar“, — Hjörtur Hansson, Bankastræti 11. Tímaritið Straumhvörf, 3. hefti, 2. árg. hefir blaðinu borizt. Efni þess er sem hér segir: Alþingi á Þingvelli (sr. Sigurbjörn Einarsson), Nýtt viðhorf i upp- eldi íslenzkrar æsku (Sören Sör- ensen), Nokkur orð um stjórn- arskrána (Þorsteinn G. Símonar- son), Þess skal getið, sem gert er (Ástríður Eggertsdóttir), Heilindi? (sr. Sigurbjörn Einarsson), Joch- ums-nafnið í ætt Matthíasar (Lúð- vík Kristjánsson), Hneykslið á Lögbergi (Egill Bjarnason), Þjóð- arbúskapur á áætlunargrundvelli (Klemens Tryggvason), og loks grein um Sambandsríki Norður- landa (Atos Wintanen).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.