Vísir - 27.11.1944, Síða 1

Vísir - 27.11.1944, Síða 1
Ritstjórar: kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjörar Blaöamenn Slmii Augiýsingar 1660 Gjaldkerl 5 linur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, mánudaginn 27. nóvember 1944. 240. tbl. Alexander yfirmaður við Miðjarðarhaf. Wilson sendur til Washington. Sir Harold Alexander, hers- höíðingi bandamanna á Ítaiíu, hefir veriö geröur yí'irmaður allra herja bandamanna við Miðjaröarbaf. Georg iiretakonungur hefir jafnframt gert hann að mar- skáiki frá 4. júni s^l. að telja, en þann dág tóku hersveitir hans Homaborg. Aiexander tek- ur við yfirherstjórninni við Miðjarðarhaf af Sir Henry Maitland-Wilson, sem nú fer til Washington og verður yfirmað- ur herforingjasendinefndar Breta þar í borg i stað Johu Dill, sem andaðist íyrir skemmstu. Jafnfram’t verður hann einkafulltrúi Churchills forsætisráðlierra lijá Roosevelt forseta. Mark Clark hershöfðingi, sem hingað til hefir stjórnar 5. bandamannahernum á Ítalíu, en þessir herir hafa jafnan ver- ið nefndur 15. herliópur banda- manna. Þjóðverjar kalla heim sendiherra í hlut- lausum löndum * Þjóðverjar hafa nú kallað heim flesta sendiherra sína í hinum hlutlausu löndum Ev- rópu. Sendiherrar þeir, sem kallað- ir hafa verið heim siðustu vik- urnar, eru sendiherrarnir í Svi- þjóð, Portúgal og á Spáni. — Þjóðverjar hafa þá aðeins sendi- herra í tveimur hlutlausum ríkjum í Evrópu, Eire og Sviss. U%it bók um öryg:a:i«málin. Brezka stjórnin hefir gefið út „hvíta bók“ um öryggismála- ráðstefnuna í Dumbarton Oaks í haust. Þar segir meðal annars, að hin sigruðu ofbeldisríki muni um langan tíma verða að hlíta sérstökum reglum og takmörk- unum á fullveldi sínu og þau muni ekki geta skotið máli sínu til réttindaskrár öryggismála- samtaka þjóðanna. ítalska itjórnin farin frá. ltalska stjórnin hefir sagt af sér vegna mikils ósamkomu- lags. Bonomi hefir að undanförnu átt í baráttu við ýmsa ráðherra sína, vegna. ósamkomulags þeirra. Hefir hann jafnan gert sér vonir um að geta jafnað deilurnar með því að skipa em- bættum niður á nýjan hátt með- al flokkanna. En í gærmorgun var haldinn stjórnarfundur og kom þá í ljós, að sættir voru vonlausar og tók Bonomi þá þann kost að segja af sér. Viðræðum Súhasitch, forsæt- isráðherra Jugoslava, og Stahns er lokið. „Mesta orusta í sögunni,“ manna og véla segja Þjóðverjar. Hull vill segja af Er heilsuveill. Þrálátar sögur hafa gengið um það í Washington upp á síðkastið, að Cordell Hull utan- ríkisráðherra hafi sent Roose- velt forseta lausnarbeiðni sína. Sögurnar segja, að Hull sé orðinn svo heilsuveill, að liann trcystist ekki til að gegna em- bælti sínu, svo að vel sé. Hann er nú orðinn 73 ára að aldri og mun vera elzti maður stjórn- arinnar. Blaðamenn hafa spurt em- bættismenn i utanrildsráðu- neytinu, hvað satt sé í þessum orðrómi, en það hefir hvorki viljað staðfesta hann né bera til baka, segir að þetta sé einka- mál forsetans og Hull. Önnur árás áTokyo. Lika ráðizt á Bangkok og stöðvar á Luzon. Hin stóru flugvirki Banda- ríkjamanna gerðu í morgun aðra árás sína á Tokyo á þrem dögum. Flugvirkin gerðu árásina frá bækistöðvum á Saipan, eins og þá fyrstu. Meðan árásin var gerð á Tokyo, voru önnur flug- virki yfir Bangkok í Siam og flugu þau frá bækistöðvum i Indlandi. Flugvélar frá flugstöðvar- skipum Bandaríkjamanna hafa er.n gert árásir á skip Japana við Luzon, stærstu ej^ju Pilips- eyja, og flugvélar á völlum eyjarinnar. Sextán skipum var sökkt, þar á meðal stóru beiti- skipi og tundurspilli. AIls voru 72 japanskar flugvélar eyði- lagðar. Blici agiib notud til kælingai*. Björgvin Frederiksen reyndi í gær á Reykjum í Mosfellssveit Frystikerfi þetta er að því leyti smíðað í vélsmiðju hans hér í bæ. Frysikerfi þetta er að því leyti frábrugðið öðrum, sem hér á landi hafa áður verið notuð, að einasti orkugjafinn er hvera- gufa eða heitt vatn ásamt köldu valni. Má ælla að frystikerfi af þessari tegund eigi framtíð fyrir sér á hverasvæðum lands- ins, þar sem gróðurhúsarækt er, því að nota má jarðhitann bæði til framleiðslu og eins til geymslu á frámleiðsluvörunum. Telur Björgvin að tæki af þessari tegund megi • framleiða hér á landi af ýmsum stærðum, sem henta hverjum stað. Kommúnistar ein- ráðir í stjérn Alþýðu- sambandsins. Kommúnistar og verkfæri þeirra eru nú einráðir í stjórn Alþýðusambands íslands. Kosið var í stjórnina í nótt, eftir að samkomulagstilraunir höfðu staðið yfir lengi dags, en reynzt árangurslausar. Eftir því sem Visir hefir heyrt á skot- spónum gerði Alþýðuflokkur- inn það að tillögu sinni, að kos- ið yrði um forseta sambands- ins, en síðan tilnefndi hvor flokkanna, Alþýðuflokkurinn og kommúnistar, fjóra menn, svo að sá sem fengi forsetann hefði meiri hluta stjórnarinnar, sem skipuð er níu mönnum. Þetta vildu kommúnistar ekki fallast á ,nema þeir fengi að hafna hverjum þeirra manna, sem Alþýðuflokkurinn tilnefndi og þeir vildu ekki að væri í stjórninni. Það vildi Al- þýðufl. ekki samþykkja, enda hefði það raunverulega þýtt, að kommúnistar réðu allri stjórn sambandsins, þvi að þeir hefði áreiðanlega hafnað öllum mönnum öðrum en þeim, sem þeir teldu sig geta haft í vasan- um. Guðgeir Jónsson vildi held- ur ekki vera í kjöri, ef berjast ætti um hann, þótt hann liefði ekki á móti því að vera odda- maður í stjórn sambandsins. Var svo gengið til kosninga og var Hermann Guðmundsson kosinn af kommúnistum með 108 alkv. ,en Helgi Hannesson hlaut 104, en einn seðill var auður. Þegar kjósa skyldi aðra stjórnarmenn neituðu allir Al- þýðuflokksmenn að taka kosn- ingu svo að kommú'nistar hafa alla mennina. iTIorðiiig jar leika BaiiMiBin hala. Bretar eru hræddir um að enn leiki margir bófar úr „Stern“-félaginu lausum hala í löndunum við botn Miðjarðar- hafs. Gyðingarnir, sem myrtu Moyne lávarð, hafa sagt frá þvi, að þeir og fleiri meðlimir þessa bófafélags, hafi verið sendir út af örkinni til að ráða ýmsa ráðamenn Breta í þessum löndum af dögum. Fer nú fram rannsókn í máiinu víða um lönd. Kvikuar í bíl. Á laugordaginn var kviknaði i bíl R—2396 sem var staddur neðst á Vesturgötu og var á leið- inni frá benzínstöðinni. Kom brunaliðið á vettvang og reyndi að slökkva eldinn með hand- slökkvitækjum, en tókst ekki og varð þess vegna að nota vatns- slöngur til að Ijúka við slökkvi- starfið. — Urðu töhtverðar skemmdir á bilnum. Eigandi bifreiðarinnar er Marteinn Stefánsson, Njálsgötu 35. Bókasýning í Reykjavík. Verður haldin í byrjun næsta mánaðar. 1 byrjun næstu viku verður opnuð bókasýning, sem ýmsir bóka- útgefendur standa að, og verður þar sýnt I stórum dráttum þróun bókagerðar á Islandi, bæði hvað snertir prentlist og bókband. Verður þarna sýnt í stórum dráttum það helzta markverða í sögu og þróun íslenzkrar bóka- gerðar, þar verða sýndar gaml- ar bækur, gömul handrit, fyrsta prentvélin, sem fluttist hingað til lands og siðan tæknileg þró- un eftir þvi sem við verður komið. M. a. verður sýnt hand- rit, próförk, örk, sem búið er að prenta, og siðan bókin sjálf eins og liún lítur út fullgerð. Þá verða þarna sýnd hókbandstæki og annað er að bókbandi lýtur. Á sýningunni verða sýndar nýjustu bækur, þar verður og sýnt með tölum og línuritum hvernig bólcaútgáfan hefir þró- ast á undanförnum árum, hvern- ig afköstin hafa aukizt, upplög- in hafa stækkað og annað þar fram eftir götunum. Bókasýningin verður á Hótel Heklu, þar sem byggingamála- sýningin hefir að undanförnu verið til liúsa, og er ætlazt til að hún verði opin fram eftir mán- uðinum. Telja má víst að sýn- ing þessi verði hin merkasta og að þarna megi margvíslegan fróðleik fá, sem ahnenningur á annars ekki greiðán aðgang að. Fjöldi innbrota. Mörg innbrot voru framin um helgina en litlu stolið nema á einum stað, þar sem farið var inn í herbergi og stolið þaðan 1500 krónum í peningum. I fyrrinótt var hrotizt inn i Efnalaugina Gtæsi, en líklega hefir engu verið stolið þaðan. Sömu nótt var tilraun gerð til þess að brjótast inn í verzlun Amunda Árnasonar á Hverfis- gölu, en þjófurinn komst ekki inn og varð að hverfa aftur að svo búnu. í nótt var brotizt inn i Sápu- búðina á Laugavegi 36, en senni- lega engu stolið. Þá var einnig i fyrrinótt brotizt inn i verzlun- ina Nonna á Laugavegi 18. Þar var stolið 70 krónum í pening- um. Og loks var' í gærkveldi far- ið inn i herbergi á Hvefrisgötu og stolið þar 1500 krónum. Hættuleg sókn Japana í S.-Kína. Þeir berjast eins og óðir austan Aachen Komust ekki til Saarebourg. JJm helgina hefir verið víðast hvar um hæga framsókn bandamanna að ræða og nyrzt á vígstöðvunum hafa bardag- ar verið harðástir eins og undanfarið. Þjóðverjar berjast eins og óð- ir milli Aachen og Kölnar. Bandamenn hafa komizt svo langt austur á bóginn, að þeir sjá niður á Kölnarsléttuna og er það nú lífsnauðsyn f yrir Þjóðverja að -koma í veg fyrir, að bandamenn komist á slétt- una. Bandamenn eru um 6 km. frá Duren og þar segja Þjóð- verjar í útvai’psfréttum, að háð sé mesta orusta manna og véla, sem sagan þekki. Sóknin hefir einnig borið bandamenn nær Júlich, en sú borg og Dúren eru nú eins kon- ar miðstöðvar fyrir fremstu varnir Þjóðverja. Þó er ekki rétt að kalla þetta borgir, því þarna er raunar aðeins um húsarústir og veggjabrot að ræða. L Jll' Fjalakötturinn sýnir í kvöld revýuna „Allt í lagi, lagsi“ kl. 8 e. h. 60 ára er á morgun frk. Halla Ragn- heiður Jónsdóttir frá Smiðjuhóli. Hún er nú til heimilis á Hverfis- götu 28 í Reykjavík. 50 ára afmæli. Frú Guðrún Eiriksdóttir, Linn- etsstíg 2, Hafnarfirði, verður 50 ára á morgun. Háskólafyrirlestur. Símon Jóh. Ágústsson flytur fyr- irlestur á morguií kl. 6.15 í 1. kennslustofu háskólans. Efni: Sál- arfræði námsins. Öllum heimill að- gangur. Ársrit Skógræktarfélagsins hefir borist blaðinu. Er heftið efn- ismikið 0g smekklegt að frágangi. í jjað skrifa m. a.: Hákon Bjarna- son skógræktarstjóri. Ingvar Gunn- arsson, Bergur Jónsson og Guð- mundur Marteinsson. Er ritið prýtt mörgum fallegum myndum. Minningarspjöld Barnaspítalasjóðs Hringsins eru seld í Verzlun Ágústu Svend- sen, Aðalstræti 12. Næturakstur. Litla Bílastöðin, simi 1380. Næturvörður er í Ingólfs Apóteki. Næturlæknir. Læknavarðstofan, sími 1530. Gamla Bíó sýnir kvikmyndina „Það byrjaði í dansi“. Aðalhlutverkin leika Nor- ma Shearer og Melvyn Douglas. Leiðinni lokað til beztu landbúnaðarhéraðanna. Sókn Japana í Suður-Kína heldur áfram og verður æ hættulegri fyrir Kínverja. 1 tilkynningu frá Chungking- stjórninni í gær segir, að Jap- anir Hafi sótt 70 km. leið norð- vestur eftir Lung-kiang-daln- um frá Liuchow. Aðrar her- sveitir hafa tekið Nanning í sókn frá Liuchow. 1 sókn frá Kweilin hafa Jap- anir sótt 80 km. leið á einni viku og tryggt með því að- stöðu sína. Með þessu eru Japanir að opna fyrir sig landveg frá iðn- aðarhéruðunum í hinum norð- lægari hlutum Kína suður til herja sinna í Indó-Kína. Jafn- framt loka þeir leiðinni frá Mið- Kína austur til frjósömustu landbúnaðarhéraða landsins, svo að erfitt fer að verða að afla matvæla í Chungking og viðar. \ Rússar taka járn- brautastöðvar. Rússar hafa tekið þrjár mik- ilvægar járnbrautarborgir í Ungverjalandi og Slóvakíu. Sú borgin, sem tekin var í Ungverjalandi heitir Hatvan og er vi'ð járnbrautina til Budapest úr norðausturátt í 40 km. fjar- lægð. Hinar borgirnar tvær eru við eina aðaljárnhrautina frá Póllandi suður til Ungverja- land, en auk þess tójku Rússar 60 aðra bæi. 500 m. til Hurtgen. Fyrsti ameríski herinn á að- eins hálfan kílómetra eftir til Húrtgen og er að mestu búinn að hreinsá Húrtgen-skóginn, sem orðið hefir legstaður :fleiri hermanna en flestir aðrir 'jafp- stórir staðir í Vestur-Evrópu. Næst fyrir sunnan 1. amer- íska herinn er sá þriðji. Hann naut í gær stuðnings 2000 léttra sprengjuvéla og tók meðal ann. ars þorpið Oberesch, sem er 7 km. fyrir suðaustan Merzig, en sú borg stendur við Saar. Þjóðverjar gera mikil gagnáhlaup. I fyrradag byrjuðu Þjóðverj- ar hörð gagnáhlaup í áttina til Sarrebourg með það fyrir aug- um að rjúfa veginn og járn- brautirnar, sem liggja um þá horg austur til Saverne-skarðs- ins og þaðan til Strassbourg. Þegar þeir voru stöðvaðir voru þeir 8 km. frá Sarrebourg. Lið er stöðugt flutt austur um Sa- verne-hliðið til Strassbourg og er búizt við þvi, að blaðamenn geti fljótlega hajið sókn suður á bóginn til móts við Frakka, sem eru í grennd við Colmar. Daufdumbir á vígstöðvunum. Clinton Conger, fréttaritari U.P. með fyrsta franska hern- um, hefir símað, að tekin hafi verið til fanga vinnusveit úr þýzka hernum, sem í voru ein- ungis daufdumbir menn. Voru þeir látnir vera við vinnu þar sem djöfulgangurinn var mestur, því að þeir skelfast ekki við sprengjugnýinn, eins og menn með fullri skynjun.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.