Vísir - 07.12.1944, Blaðsíða 1
Rltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur.
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Slmi
1660
S linui
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 7. desember 1944.
248. tbl.
Heizt breytingar í Eisass á Fyrrverandi ráðherrar reyna að
vesturvigstoðvunum. ná. sættum við grísku stjórnina.
Bandamenn 8 km. frá Colmar.
Bandamenn hafa aðallega sótt
fram á syðri hluta vesturvíg-
stöðvanna síðasta sólarhring-
inn.
Hersveitir úr sjöunda hern-
um, sem sækja til Colmar úr
norðurátt, eru í 8 km. fjarlægð
frá borginni, en franslcar her-
sveitir, sem náð hafa á vald sitt
hæstu tindum Vogesa-f jallanna,
hafa einnig nálgazt borgina.
Þær stefna að henni úr vestri.
Þú hefir 3. ameríski herinn
unnið töluvert á í Saar-héraði
og þar fyrir austan. Á svæðinu
frá Sarreguemines, sem Banda-
ríkjamenn hafa að miklu* leyti
á valdi sínu, og austur að Rin,
hafa staðið þroflausir skrið-
drekabardagar í nærri 36 klst.,
en nú eru Þjóðverjar farnir að
láta undan síga. Eru horfur á
því, að þeir verði hraktir úr síð-
ustu stöðvum sínum innan
frönsku landamæranna þarna
næstu daga.
Austur af landamærum Belgíu
og Hollands, þar sem 1. og 9.
her Bandarílcjanna og 2. brezki
herinn berjast, er allt frekar ró-
legt.
Loftárásir.
Bandaríkjamenn gerðu í gær
harðar loftárásir á oliustöðvar
Þjóðverja hjá Leipzig og járn-
brautarstöðina í Bielefeld. Eng-
ar þýzkar orustuflugvélar
gerðu vart við sig og fórust að-
eins sex flugvélanna.
Bretar fóru svo í leiðangri í
nótt — 1300 stórar flugvélar.
0rm®k lokað fyrlr
Höfninni í Ormok á Leyte
hefir nú alveg verið lokað fyrir
Japönum.
Flugvélar Bandaríkjamanna
eru í sífellu á sveimi yfir flóan-
um og herskip liggja fyrir ut-
an, rétt fyrir utan skotfæri
strandvirkja Japana. Hafa Jap-
anir nú engar vonir um að geta
komið liði eða birgðum til setu-
liðs síns þar á eynni, en í því
eru um 25,000 menn. Er þeim
þjappað saman jafnt og þétt á
minna svæði. Verjast Japanii
þó af harðfylgi.
Flugvélar bandamanna hafa
enn gert árásir á Vulcan-eyjar
og fleiri eyjar á Kyrrahafi. —
Flugvélar, sem hafa bækistöðv-
ar i Kína, hafa ráðizt á hafnar-
•mannvirki í Kowloon, andspæn-
is Hong Kong, og skip undan
Shanghai.
Horfur í Kína æ
ískyggilegri.
Japanir sækja enn lengra í
áttina til Kweiyang og hafa tek-
ið borg 110 km. þaðan.
Herstjórn Japana hefir einnig
skýrt frá því, að hersveitir
hennar hafi byrjað sókn norð-
ur frá Indó-Kína, til að ná sam-
bandi við hersveitirnar í Suð-
ur-Kína.
Wedemeyer, formaður for-
ingjaráðs Kína, hefir skýrt frá
því, að horfur sé nú mjög al-
varlegar fyrir Kínverja, en þó
Rúisaf aðems 50 km.
stóns: af Bndapd5t.
Rússar eiga nú aðeins um 50
km. ófarna í sókn sinni til
Budapest norður eftir vestur-
bakka Dónár.
Þeir hafa ennþá hvorki stað-
fest né mótmælt þeim fregnum
Þjóðverja, að lokasóknin til
höfuðhorgar Ungverjalands sé
hafin, en halda áfram sókn bæði
fyrir norðan hana og sunnan.
Þeir hafa þegar slcapað sér góða
aðstöðu til að fara' á snið við
hana úr suðri og munu halda á-
fram tilraunum í þá átt. ,
| I Júgóslavíu tóku Rússar í
gær rúmlega 100 bæi. Gerðu
Þjóðverjar tilraun til að stöðva
Rússa á bökkum Drava-fljóts,
en tókst það ekki.
Flugvélar handamanna flugu
frá Italíu til Austurríkis og
gerðu þar usla í samgöngutækj-
um, til að hjálpa Rússum.
| T
I sé ekki ástæða til að örvænta,
ef allir leggist á eitt og sýni
sömu djörfung og Bretar 1940
—41.
Jóhann Briem ráðinn til að
skreyta Laugarnesskólann.
Jóhann Briem listmálari hefir verlð ráðinn af bæjarstjórn
Reykjavíkur til þess að annast skreytingu Laugarnesskóla.
Er ætlazt til að Jóhann máli
í forsal skólans myndir úr ís-
lenzku þjóðlifi og þjóðsögum
og hefir hann fengið frí frá
kennslustörfum á ineðan. Hér
er um mikið og vandasamt
verkefni að ræða, og fletirnir,
sem mála þarf, stórir, en Jóhann
er prýðilegur málari, auk þess
sem hann hefir lagt sig sérstak-
lega eftir þjóðlegum viðfangs-
efnum í málaralist sinni, svo að
honum er vel treystandi til þess
að leysa þetta verk vel af hendi.
Jóhann hefir þegar byrjað á
hinu nýja verkefni, en það mun
að sjálfsögðu taka langan tíma
þar til því verður lokið.
Þegar skæruliðar komu heim.
Þannig var útlits í mörgum
^grískum horgum fyrif noklc-
uru. Mannfjöldinn er að
fagna skæruliðum — á hest-
haki — sem eru komnir heim
eflir þriggja ára baráttu við
Þjóðverja. En nú er þetta
breytt, því að nú berjast
Grikkir innbyrðis.
íétsr Jóiissoii óperu-
songvari efu r til
a'mæli liljómleika.
Pétur Jónsson óperusöngvari
mun að tiíhlutun ýmissa vina
sinna og velunnara efna til
hljómlelka í sambandi við sex-
tugsafmæli sitt, sem er 21. þ.m.
Þar mun Pétur syngja hæði
íslenzk lög og ýmsar aríur úr
óperum, sem hann hefir sungið
erlendis.
I sambandi við þessa hljóm-
leika verður gefið út sérstaklega
vandað ,prógramm‘ með fjölda
mynda af Pétri í ýmsum óperu4-
hlutverkum. Verður það 24 bls.
að stærð og prentað á fallegan
myndapappír.
UiEÍð aS tsikiingim á
Það eru alls 22 myndir, sem
.Tóliann málar í forsalinn, þar
af 2 á neðstu hæð, en 10 á hvora
efri hæðanna. Á neðstu hæðinni
verða skápar meðfram veggjuin
svo að þar rúmast ekki nema 2
myndir.
Hér er tekin upp rett stefna,
að láta listamennina oklcar
skreyta opinberar hyggingar.
Þetta er menningarmál og von-
andi verður þessari stefnn hald-
ið áfram í svipaðri mynd i öðr-
um byggingum þessa lands,
hvort heldur það eru bæir eða
ríkið sem í hlut á.
I velur verður unnið að teikn-
ingum á íþróítasvæðinu í Laug-
ardalnum.
Málið kom fyrir bæjarráð á
mánudaginn og voru þar lögð
fram bréf frá „Laugardals-
nefnd“ varðandi skipulag svæð-
isins og staðsetningu svæðis
fyrir Skátafélag Reykjavíkur.
Telur hæjarráð rétt, að hið
fyrsta verði gcrðir uppdrættir
af útisundlaug í dalnum, án
þess að fastákveða þegar stað
hennar. En frekari aðgcrðir tel-
ur bæjarráð ekki tímabærar,
fyrr en nákvæmari mælingar
liafa verið gerðar.
Bernhöftsbakarí
framleiðir nýja
brauðtegund.
Bernhöftsbakarí hefir hafið
framleiðslu á nýrri brauðteg-
und, sem nefnist Soyabrauð.
Eru brauð þessi framleidd úr
hveitiklíði og soyamjöli og eru
talin mjög auðug af B-vítamíni,
ásamt öðrum efnum, svo» sem
fosfór, járni og kalki.
Er gott til þess að vita, þegar
þeir, sem fást við matvælafram.
leiðslu sýna áhuga fyrir að
koma liollari fæðutegundum en
áður hafa þekkzt á markaðinn.
Soyabrauðin verða seld á ýms-
um stöðum i bænum.
M.s. Laxfoss dreginn
í Slipp.
I morgun var verið a'ð flytja
M.s. Laxfoss af stað þeim vest-
an Ægisgarðs, þar sem hann
hefir legið síðan lionum var
náð af skerinu við Örfirisey.
Ekki er enn búið að þétta skips-
skrokkinn, og var honum þ\í
haldið á floti með dælum meðan
I á flutningi stóð. Eins og mönn-
um er kunnugt var nýlega á-
kveðið að hefja viðgerð á skip-
inu, og á henni að verða Iokið
um miðjan april næstkomandi.
Sir Edward Spears, sendi-
lierra Breta í Sýrlandi og Li-
banon, hefir sagt af sér. Eng-
in stefnubreyting verður hjá
Bretum gagnvart þessum lönd-
um.
Georg Bretakonungur hefir
sæmt Kirk, amerískan flotafor-
ingja, riddaratign fyrir þátttöku
í innrásinni-
★
I febrúar verður haldið í
London þing verklýðssamtaka
hinna sameinuðu þjóða.
★
1 dag eru þrjú ár liðin frá á-
rás Japana á Pearl Harbor.
★
Risaflugvirki Bandaríkja-
manna gerðu í morgun árás á
stöðvar í Mukden.
8cBÍaP
frétt
l.O.O.F. 5 = 12612781 /2 =
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, sím
5030-
Næturvörður
er í Laugavegs Apoteki.
Næturakstur
annas: AÖalstóö'm, srui 1303.
Hallgrímssókn.
í kvöld kl. 8.30 fer fram biblíu-
lestur í Austurbæjarskóianuai
(gengið inn um leikfimissalsdyru
ar), sr. Jakob Jónsson.
Fundur bæjarstjórnarinnar
verður í Kaupþingssalnum i dag
kl. 5-
Prestskosningar
tii Tialigrímssóknar fara fiam 17
þ. m. Kosið verður í Austurbæjar-
skólanum, og hefst kosningin kl. 10
f. h. þann 17. des. næstk.
Boðsundkeppni
lögreglumanna fór fram í Sund-
höllinni i gær. Keppt var í 16 mann:
sveitum og bar vaktsveit Pálm:
Jónssonar sigur úr býtum á 7:52.1:
mín. 'Önnur verðlaun hlaut sveit
Alagnúsar Sigurðsonar, en sveit
Matthíasar Sveinbjörnssonar, sem
unnið hefir tvö undanfarin ár, va
dæmd úr leik vegna smávægilegr
mistaka eins keppandans. Annar
hafði hún næstbezta tímann.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30: Dönskukennsla, 1. fl.
— 19.00: Enskukennsla, 2. fl. —
19.25: Þingfréttir. — 19.40: Lesin
dagskrá næstu viku. — 1945:
Auglýsingar. — 20.00: Fréttir. —
20.20: Útvarpshljómsveitin JÞór-
arinn GuSnrundsson stjórnar).
a) Forleikur að óp. „Orpheus í
undirheimum" eftir Offenbach.
b) Lorelei — vals. eftir Joh.
Strauss. c) Spánskur dans eftir
Moszowski. — 20.50: Lestur Is-
lendingasagna (dr. Einar Ól.
Sveinsson háskólabókavörður). —
21.20: HTjómplötur: Lög leikin r
orgel. — 21.30: Frá útlöndum
(Björn Franzson). — 21.50
Hljómplötur: Lotte Lehmanr
syngur. — 22.00: Fréttir. — Dag-
skrárlok.
Hjúskapur.
1. des. s. I. voru gefin saman í
hjónaband af síra Sigurbirni Ein-
nrssyni dósent ungfrú Sigurlaug
Sigurjónsdóttir og Kjártan Gísla-
son skáld fra Mosfelli. Heimili
ungu hjónanna er á Laugaveg 161.
Slysavarnafélag íslands I
biður Vísir að flytja öllum þeim
er aðsto'ðuðu við hlutaveltuna á
sunnudaginn var hjartanlegar
þakkir.
Senda marni á fuxtd
hennar.
En hán krefst tafarlausrar
afvopnunar.
i/ommúmstar og aðrir vinstri
menn í Grikklandi vilja nú
komast að samningum við
stjórn Papandreous.
Samkvæmt fregnum frá
Aþenu í morgun liafa ráðherr-
arnir sex, — sem af sér sögðu
um síöustu helgi og komu þar
með af stað því öngþveiti, sem
þeir virðast nú orðnir hræddir
við — sent mann til stjórnar
Papandreous og leitað sátta við
hann fyrir hönd flokka sinna
og skærusveitanna, sem þeir
liafa uppi.
Úr herbúðum stjórnarinnar
er það að* frétta af þessu, að
hún muni ekki fáanleg til við-
ræðna við andstæðinga sína,
fyrr en þeir hafi fallizt á að
'cggja niður vopn, því að öðrum
kosti geti þeir hyrjað sama leik-
inn á ný, þegar stjórnin uggir
ekki að sér.
Barizt áfram.
En þrátt fyrir þessar sátta-
ímleitanir kommúnista er bar-
izt af kappi í Aþenu, og hafa
Bretar beitt fallhlifaheysveitum
í hardögunum til aðstoðar
stjórninni. Er viðureignin mjög
grimmileg og víða barizt um
hvert hús, en annars er ekki til
það liverfi í Aþenu, þar sem allt
er með kyrrum kjörum.
Bardagar þessir inunu hafa
ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fj7rir borgarbúa, ef þeir standa
lengi. Matvæli voru af mjög
skornum skammti í borginni,
þegar byrjað var að berjast og
nú hefir alveg tekið fyrir mat-
vælaflutninga ,svo að hungur
vofir yfir.
Lið á leið
til Aþenu.
ELAS-sveitirnar eiga von á
liðsauka til Aþenu á næstunni,
en Bretar og hersveitir stjórn-
arinnar munu að sjálfsögðu
.eyna að liindra ferðir liðsins.
Meðal fanga þeirra, sem teknir
liafa vei'ið af ELAS-liðinu eru
„fýrrverandi þýzkir hermenn“,
eins og sagt er í fréttum. Ekki
er frá því skýrt, hvort hér sé
um Þjóðverja að ræða eða
Grikki, sem voru á mála hjá
þeim, meðan á hernáminu stóð.
Kyrrð í Pireus.
Þótt barizt sé í Aþenu er allt
með kyrrum kjörum i Pireus.
Brezka flotastjórnin hefir þó
gripið til þess ráðs að flytja öll
■ kip frá bryggjum, til þess að
engin hætta verði á því, að á
þau verði ráðizt.
jöundi vinstri-
íaðurinn fer.
I fyrradag sagði af sér sjö-
ndi ráðherrann í grísku stjórn-
nni. Ileitir hann Sarijanis og
r vinstrimaður. Var liann eini
'instrimaður grísku stjórnar-
nnar, sem sagði ekki af sér á
sunnudag. Hann var varaher-
málaráðherra. c