Vísir - 30.04.1945, Page 3
Mánudaginn 30. apríl 1945.
VISIR
3
Sprengiefnumog
skotfærum stolið
f gærkveldi var innbrot
framið í geymsluskúr ná-
Jægt Langholtsvegi og
stolið. þaðan skotfærum og
sprengiefnum.
Stolið var bæði riffil-
skotum og 12 dýnamit-
sprengjum. Var hver ein-
stök sprengja í látúnshylki
og með þræði tilbúin til
íkveikju.
Sást til 3ja drengja, á að
gizka 14—16 ára, sem
grunaðir eru um að vera
valdir að þjófnaðinum, en
þeir náðust ekki.
Af þessum sprengiefn-
um getur stafað stórkost-
leg hætta og eru allir þeir,
sem einhverjar upplsingar
geta gefið, beðnir að láta
Rannsóknarlögregluna
vita. —
Eldur í slnu í Skerja-
firði.
Um klukkan 3 í gær var
slökkviliðið kvatt út. Var
eldur í sinu á túnbletti við
Reykjavikurveg í Skerjafirði.
Nærliggjandi húsum gat
stafað hætta af eldinum, ef
ekki var aðgætt. Var eldur-
inn slökktur fljótlega, og
varð ekki tjón af þessu.
Sundmeistaramótinu
lýkur I kvöld.
Sundmeistaramótinu lýkur
í Sundhöllinni í kveld og má
búast við spennandi keppni.
Þeir nafnar Sigurðar Jóns-
synir eiða aftur saman hesta
sína, að þessu sinni á 400 m.
hringusundi. Þar verður
spennandi 'keppni og alveg ó-
víst um sigurinn.
Þá verður og keppt í 400
m. skriðsundi, auk þrísunds,
3kl00 m. Er mjög vafasamt
mn úrslitin, og Í.R. sendir
þarna fram sveit í fjTsta
sinn.
Stúlkurnar keppa svo í 100
m. skriðsundi og 200 m.
bringusundi og þá verða og
drengjasund.
Dauðaslys í Biesa-
gróf.
Maður verður undir
móhellu og bíður
bana.
Stefán Þórðarson til heim-
ilis að Aðalstræti 8 hér í bæ
beið bana í gærkvöldi, er
sandbakki hrundi yfir hann
í sandnámi bæjarins inni við
Blesagróf.
Á sjötta timanum i gær-
kvöldi voru 5 menn áð taka
sand á vöruhifreið inni í
sandgryfjunum i Blesagróf.
Tóku þeir sandinn úr holu,
sem húið var að grafa inn
undir móhellulag. Mun liafa
verið um þriggja metra hæð
upp á móhellubrúnina. Ste-
fán heitinn var að moka sandi
á bifreiðina úr gryfjunni og
stóð við moksturinn inn und-
ir móhellubrúninni.
Allt í einu hrundi móhellu-
barmurinn niður og lenti
Stefán undir henni. Félagar
lians ruku þegar til og grófu
hann út úr hyngnum og tókst
að ná honum eftir fremur
slutta stund. Var lífsmark
með Stefáni, er hann náðist
úr gryfjunni.
Sjúkrahifreið var þegar
komin á vettvang og varmað-
urinn fluttur samstundis á
Landspítalann, en áður en
þangað kom var hann and-
aður. Stefán heitinn var 25
ára að aldri.
Bogey-keppni í golfi
íór fram í gær.
í gærdag kl. 2 e. h. fór fram
svokölluð „Bogey“ keppni í
gólfi. Fór keppnin fram á
velli Golfklúbbs fslands á
öskjuhlíð. Þetta var mjög
skemmtileg keppni, og voru
keppendur 34.
Keppni fór þannig að bezl-
um árangri náðu þeir Ewald
Berendsen + 11, Geir Borg
+ 5, Jón Tliorlacius + 1 og
Ásgeir ólafsson + 1.
Næsta keppni fer fram
þann 6. maí. Er það svoköll-
uð „Blindkeppni“, og 13. maí
fer fram undirbúningskeppni
undir Hvítasunnukeppnina.
Vígstöðvarnar.
Framh. af 1. síðu.
BRETAR.
Brezkar hersveitir hafa
sótt yfir Saxelfi fvrir sunnan
Hamhorg og tóku i fyrradag
Lauenburg. í gær var sagt
að þær sæktu Íiratt fram og
stefndu til Liibeck og ætluðu
sér að líkindum að reyna að
slíta allt samband herjanna
í Danmörku við Þýzkaland.
Aðrar liersveitir sækja að
haki varnanna í Hamborg,
með því að sækja að horg-
inni úr norðri og vestri.
RÚSSAR.
Hersveitir Rússa sem tóku
Stettin fyrir nokkrum dög-
um eru komnar 100 km. vest-
ur fyrir horgina og sækja
þar hratt fram. Þær hafa
tekið Neubrandenhurg í
Mecklenhorgarfvlki 50 km.
fvrir vestan Uckermúnde,
milli Uckermúnde og Ang-
ermúnde, sem þær tóku á
laugardag eru harðir bar-
dagar háðir. Bilið milli 2.
liers Breta og Rússa, sem
komnar eru inn i Mecklen-
borgarfylki erú ekki nema
100 km.
BERLÍN.
Rússar eru farnir að herj-
ast í miðri horginni og hafa
síðasta sólarhring hætt við
sigmörgum hverfum. í frétt-
um frá Rússum segir, að 177
liúsaþyrpingar Iiafi fallið
þeim í liendur einnig mikið
herfang. Mikið er farið að
hera á þvi, að hermenn naz-
ista í Berlín reyni að losa
sig við öll einkenni nazista,
sem þeir hafa áður horði og
sjást slík merki allsstaðar
á götunum.
Talið er að ekki geti liðið
nema fáir dagar eða enn
skemmri tími þangað til Ber-
lín sé alveg á.valdi Rússa.
Díikaitamask
og servíettur.
Húseigendur
í lögsagnaiumdænti
leykjavíkur.
Gjalddagi á brunatrygginganðgjöldum var, sam-;
kvæmt útsendum gjaldseolum, 1. apríl s.l.
Dráttarvextir falla því á ógreidd gjöld 1. maí n. k.
Þeir húseigendur, sem greiða gjöld sín fyrir 4. maí
n. k., þurfa ekki að greiða dráttarvexti.
ALMENNAB TRYGGINGAR H.F.
Austurstræti 10, 3. hæð. Símar 2704 og 5693.
Tvær stúlkui óskast til eldhússtarfa nú þegar. ‘ Matstofan Gullfoss, Hafnarstr. 17. Ekki svarað í síma. Nýkomið: Einhólfa olíuvélar. Stálull. Verzl. Ingólfur, Hringbraut 38. Sími 3247.
LEIKFÖNG— Flugmodel, Flugvélar, Bíl- ar, Dúkkur, Dúkkuvagnar, Skip, Sippubönd, Rellur, Kubbar, Myndabækur, Nælur, Töskur, Húsgögn, Eldhússett, Þvottabretti, Símar, Eldavélar, Strau- járn, Hjólhörur, Hlaupa- hjól, Byssur, Mótorhjól, Skriðdrekar, Flautur, Ur, Lúðrar, Gúmmídýr, Spil ýmiskonar o. fl. K. Einaisson & Bjömsson.
STÚLKA óskast. Gildaskálinn, Aðalstræti 9.
Beztu úrin frá BARTELS, Veltusundi.
Gluggaútstilling- r Konnr og
arpappr. Pensillinn. Sími 5781. stúlkur! Sníðanámskeið hefst hjá mér. 7. maí. Get bætt við nemendum í eftirmiðdagstím- ána. — Væntanlegir nemendur tali við mig sem fyrst. Athugið, að hjá mér eru fáar hafðar í flokki. Sigríður Sveinsdóttir, meistari í kvenna- klæðaskurði. Reykjavíkurveg 29 (Garði).
Camel-ullarefni, ljósbrúnt. Glasgowhúðin, Freyjugötu 26.
Hús og einstakar íbúðir
i og utan bæjar til sölu.
Málaílutningsskrifstoía
Kristjáns Guðlaugssonai HiL
Haínarhúsinu. — Sími 3400.
Stúlka úskast i Tjarnarcafé h.f.
nú þegar. Uppl. á skrifstofunni.
Sími 5533.
I. S. I. — S. R. R.
SUNDMEISTARAMÓT I.S.Í.
Síðarí bluti mótsins íer fram í kvöld kl. 8,30 í Sundhöllinni.
Keppt verður í: 400 m. frj. aðf. karla, 400 m. bririgusuridi karla,
200 m. hringusundi kvenna, 100 m. frj. aðf. kvenna, 50 m. hjörg- -
unarsundi, 100 m. bringusundi og 3x100 m. boðsundi.
Aðgöngumiðar seldir í Sundhöllinni.
Mjög spennandi keppni. — Allir upp í Sundhöll.