Vísir - 02.05.1945, Side 1
Íþróttasíða er í
blaðinu í dag
— á bls. 2.
Hershöfðingjaskipti
hér á landi.
Sjá bls. 3.
35. ár.
Miðvikudaginn 2. maí 1945.
97. tbl.
Dönitz ISotaforinsi
ur hans.
Hann ætlar að berj-
ast álram.
i
IJtvarpiS í Hamborg til-
kynnti í gær, að Hitler
hefði dáið þá um eftirmið-
dagmn í kanzlarahölhnni í
Berlín. Dönitz flotaforingi
hefir tekið við sem eftir-
maður hans og gefið út á-
varp til þýzka hersins og
sagt honum að halda áfram
að berjast gegn bolsivism-
anum.
Áður en útvarþið las upp
tilkynninguna um láí Hitlers
voru leikin sorgarlög í eina
klukkustund og hlustendum
við og við sagt að von væri á
mikilsverðum tíðindum.
Strax þegar tilkynningin
um lát Hitlers Iiafði verið
lesin upp, var lesin tilkynn-
ing frá Dönitz flotaforingja
þess efnis, að Hitler liefði
daginn áður útnefnt liann
sem eftirmann sinn.
í ávarpi til hermannana
sagði Dönitz, að haráttunni
yrði lialdið áfram gegn bolsi-
vismanum og jáfnframt
gegn Bretum og Bandarikja.
mönnum, ef þeir reyndu að
hindra Þjóðverja i að sigrasl
á honum.
Hetjudauði?
Ekki er Ijóst hvérnig dauða
Ilitlers bar að höndum því
annað veifið
er talað um
hetjudauða
eins og hann
hefði fallið í
bardögunum
um kanzl.
arahöllina. _
Brezka út-
varpið htur
svo á, að í rauninni sé ekk-
crt liægt að segja um, hvort
Hiller sé dauður eða ekki
og gæti þessi tilkynning al-
veg eins verið gefin út til
þess að gefa honum tækifæri
til að hverfa.
Dönitz.
Eftirmaður Hitlers, Dönitz
flotaforingi, er 53 ára að aldri
og var kafbátsforingi í síð-
asta stríði og var tekinn til
fanga, en gerðí sér upp geð-
veiki og var þá lálinn á geð-
veikráhæli. Hann gerðist
snemma æstur fylgismaður
nazisla og handgengin Hitler.
Dönitz er sérfræðingur á
sviði kafbátahernaðar og
Framh. á 3. síðu.
Kortið hér að ofan gefur góða hugmynd um helztu hverfin í Berlin. Nyrzt sjást ein-
hverjar mikilvægustu verksmiðjur, sem í borginni voru, eign Rheinmetall-Borsig. Þá sést
ög Tiergarten, Unter den Linden, járnbrautastöðvarnar umhverfis miðja borgina, Temp-
elhof flugvöllurinn o. fl. staðir. Kortið er fengið að láni hjá „Hvíta fálkanum“.
Bandamannalið sett á land létt
íyiir sunnan Rangoon.
Landaganga á Borneo og skotið á Nicobar-eyjar.
Bardögum um Bttrma og
höfuðborgina þar, Rangoon,
er nú alveg að verða lolcið.
í gær létu bandamenn fall-
hlífalið svífa til jarðar
skammt frá Rangoon, en í
morgun var frá því skýrt,
að lið hefði verið flutt sjó-
Ieiðis að ósum Rang'oon-ár-
innar og hefði það gengið á
land beggja vegna við þá og
sæki nú að henni.
Japanir hafa misst úr
liÖndum sér marga ameríska
ogbrezka fanga, sem geymd-
ir voru í borginni og liafa
þeir komizt til stöðva banda-
manna.
Þýzldi iangai 3
milljónii.
Fangar þeir, sem banda-
menn hafa tekið, síðan
gengið var á land í Frakk.
landi fyrir tæpum 11 mán.
uðum, eru nú næstum 3
milljénir að tölu. Til jafn-
aðar hafa bandamenn.því
tekið rúmlega 250.000
fanga á mánuði eða 8—
9000 á dag.
í útvarpi Breía til þýzka
hersins í gær voru lesin
upp nöfn ýmissa þekktustu
hershcfðingjanna, sem
bandamenn hafa tekið.
Meðal þeirra voru von
Rundstedt, Kleist, Leeb og
Liszt, auk margra annara
þekktra foringja._____
SKOTIÐ Á
NICOBAR-EYJAR.
í morgun var tilkjmnt í
Tokyo, að flotadeild, sem i
væri orustuskip af gerðinni
Queen Elizabetli, hefði í þrjá
daga haldið uppi skotliríð á
Nicobar-evjarnar, sem eru
alllangt suður með Malakka-
skaga að vestan.
LANDGANGA
Á BORNEO.
1 Canberra í Astralíu liefir
verið frá því skýrt, að ástr-
alskar hersveitir hafi geng-
ið á land á austurströnd
Borneo. Landgangan var
framkvæmd á Tarakan-
svæðinu, en þár eru auðugar
olíulindir. Bardagar eru
liarðir.
FILIPPSEYJAR.
Þaðan er nú helzt eitt-
livað frétta frá Mindanao
sem er stærsta eyjan i sjnðri
hluta klasans. Sækja banda-
menn til Davao — höfuð-
borgarinnar — og voru i ga
aðeins 10 lan. frá henni.
OKINAWA.
Þar er enn barizt af mik
illi grimmd, en Bandaríkja-
menn vinna þó jafnt og þétt
á. Þeir liafa nú síðast tekið
borgina Nalia, stærstu borg
eyjarinnar.
Ribbentrop farinn
Bernadotte náði
ekki faii af
Himmler aftur.
Baitdaríkj'ameim
taka Braimau, læð-
ingarborg iltlers.
Sænska utanríkismála-
ráðuneytið hefir til-
kynnt, að Bernadotte
greifi, sem kom til Svíþjóð-
ar frá Þýzkalandi í gær-
morgun, hafi ekki verið
með nein frekari skilaboð
frá Himmler, og sjálfur
sagðist Bernadotte ekki
hafa hitt Himmler að máli
í þessan för sinm. Ennfrem-
ur var tilkynnt, að öll frek-
ari málamiðlun færi í gegn-
um sænska utanríkismála-
ráðuneytið eitt, án aðstoð-
ar Bernadotte.
Tilkynnt var í útvarpi frá
Þýzkalandi í morgun að skipt
hafi verið um utanríkismála.
ráðherra og hafi von
Schwerin-Krosigk greifi ver-
ið skipaður í embættið. Ekk-
ert var minnst á von Ribben-
trop fyrrverandi utanríkis-
ráðherra í þessu sambandi.
Bandamenn og
Tito ná saman.
Hersveitir Titos og banda-
manna hafa náð saman við
Adriahaf.
Tengslin milli þeirra urðu
við borgina Monfaleone, 20
ltm. norðvestur af Trieste.
Voru það Ný Sjálendingar úr
8. liernum, sem hittu menn
Titos og liöfðu þcir farið 90
km. austur fyrir Piave-ána á
einum sólarhring, er þcir
hittust.
Bandamenn liafa tekið
borgina Udine við rætur
Alpafjalla, en Þjóðverjar
virðast aðeins reyna að verj-
ást við Garda-vatn, til að
vernda Brennerhraulina.
30 logarar afhentlr
Brezka flotamálaráðuneyt-
ið hefir tekið ákvörðun um
að losa fleiri brezka togara
frá herþjónustu.
Ráðuneytið hefir tilkvnnt
félagi brezkra togaraeigenda,
að það megi vænta þess, að
eigi færri en 30 togarar verði
látnir af hendi við eigend
urna mánaðarlega á næst
unni.
Ræða Churchill.
Churchill sagði í ræðu sem
Iiann flutti í neðri málstofu
brfezka þingsins, að liann
myndi undireins og emhverj-
ar mikilvægar fréttir bærust
tilkynna það málstofunni.
Hann gaf einnig í skin að
líklegt væri, að það yrði ein-
hverntíma í þessari viku.
Berlín.
Rússar tijkynna að þeir
liafi tekið tvö liverfi til við-
bótar i Berlín, Charlotten-
burg og Schöneberg, og þar
að auk yfir liundrað liúsa-
þyrpingar. Hersveitir þeirra
nálgast Tiergarten úr þrem
áttum. Heita má að öll Berlin
sé á valdi Rússa, nema
fáeinar liúsasamstæður í
Wilhelmsstrasse, þar sem
helztu stjórnarbyggingarnar
eru. Rikisþinghúsið og innan-
ríkisráðuneytið í Wilhelms-
s'trasse er þó á valdi Rússa.
Sókn Rússa fyrir
norðan Berlín.
Rússar sækja nú fram á
samfeldri víglínu milli Ber-
línar og Eystrasalts og hafæ
að meðaltali sótt fram um 40
km. á síðastliðnum sólai-„
liring. Þeir tóku Stralsund.
við Eystrasalt í gær og nálg-
ast óðum Rostock hersveitir
þeirra voru i morgun taldar
50 km. frá borginni. Þeir
hafa einnig tekið Branden-
burg i Brandenburgarfylki.
í gær bárust þær fréttir að
sjóliðar í Kiel liefðu gertj
uppreist og væri víða í borg-
inni liáðir bardagar milli sjó-
liða og SS-liðsmanna. Einnig
Framh. á 3. síðu.