Vísir - 13.12.1945, Blaðsíða 2
2
V I S I R
Fimmtudaginn 13. desember 1945
Gamið hefir Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Ræktun
arfélags Norðurlands. — Bókin er í bremur stcrum bind
um, samtals 1282 blaðsíður. Þrjú hundruð fallegra mynda,
og fjölda korta yfir svæði Ódáðahrauns. — Pappírinn er
f 'oeztu fáanlegu gerð. Allt band er handunnið. Frágangur
Hur sá glæsilegasti, sem hér hefir sést,
Ævintýraland allra Islendinga. Landið, sem vex af töfr-
um því meir, sem vér kynnumst því. Landið, sem um aldir
hefir átt meiri eða minni ítök í huga hvers íslendings.
Landið, sem út um víða veröld hefir brugðið mestum
töfraljóma yfir ættjörð vora, en jafnframt leikið hana
harðast. Landið, sem allir Islendingar, sem komnir eru
til vits og ára, hafa heyrt nefnt — Ódáðahraun.
Landlýsing — ferðalög — könnunaleiðangrar — svaðil
farir — jarðmyndunarsaga — eldgos — tröllasögur
útilegumannasögur — eyðibýli — hestagöngur — hrakn-
ingar — slysfarir —eftirleitir — saga Fjalla-Bensa —
fjárgæzla á öræfunum — allt, sem vitað er um Ódáða-
hraun að fornu og nýju. —
E*jjó ð ís Í4i »#/ í/ Sivsils tti /ó Uiijjöíita