Vísir - 27.08.1946, Side 8
Næturvörður: Lyfjabúðin
Iðunn. — Sími 1911.
Næturlæknir: Sími 5030. —
VISIR
Þriðjudaginn 27. ágúst 1946
Lesendur eru beðnir að
athuga að smáauglýs-
i n g a r eru á 6. síðu. —
Hafin bygging
Norrænu hallarinnar.
Geerf ráð fyrir &M kjaliar-
inn verði fniigerður
Fyrstu framkvæmdir við
byggingu Norrænu hallar-
innar í Kárastaðanesi eru nú
hafnar, en ráðgert er að
kjallarinn að byggingunni
verði fullsteyptur í haust.
Svo sem kunnugt er hefir
verið ákveðið að reisa full-
komið ferðamannahótel í
Kárastaðanesi er rúmi 60
gesti í einu og verður fyrir-
komulag sniðið eftir því, sem
hezt þekkist á ferðamanna-
hótelum á Norðurlöndum,
Er ekki vánþörf á slíku
gistihúsi, því að hér á landi
er ekkert fullkomið gistihús
til utan kaupstaðanna, enda
dregur það mjög úr ferða-
mannastrauminum til lands-
ins að útlendingar fá hér
ekki gistingu.
Að því er ritari Norræna
félagsins, Guðlaugur Rósen-
kranz hefir tjáð Visi er veg-
urinn í Kárastaðanes full-
gerður og er nú unnið að því
að grafa fyrir grunni húss-
ins og kjallara. Strax og
því vcrki er lokið verður
Iiyrjað að steypa húsið upp
og gert ráð fyrir að kjallar-
anum verði lokið í haust.
Hús þetta, á auk þcss, scm
þaö er hótel fyrir innlenda
sem útlenda gesti að vera
samkomustaður og dvalar-
staðúr fyrir gesli norrænu
lelaganna, allskonar mót
þeirra, ráðstéfnur og nám-
skeið.
Guðlaugur Rósinkranz er
nýkominn frá Svíþjóð, þar
sem hann sat, ásamt Stefáni
Jóh. Stefánssyni alþm., mót
norrænu félaganpa. Sagði
Guðlaugur að mikil áherzla
væri nú lögð á aukið sam-
starf milli félaganna og þá
ekki hvað sízt í því að auka
í rðamannastrauminn milli
I indanna. Gera Norðurlönd-
iii, einkum Svíar og Norð-
memi mjög mikið til þess að
draga ferðamannas lraum i nn
til sín, enda hefir þeim orðið
verulega ágengt í þeim efn-
um.
Likur eru til þess að Nor-
ræna félagið hér muni einnig
leggja sinn skerf til land-
kynningar strax og búið er
að koma Norrænu höllinni
upp.
Haukar unnu
hraðkeppnis'
mófið.
Hraðkeppnismótinu í
Hafnarfirði lauk á sunnudag
með sigri Hauka.
Hafa þeir nú unnið Hrað-
keppnismótið 3vár i i'öð og
]iar með Hraðkeppnisbikar-
inn lil eignar.
Mótið liófst á laugardag og
flutti formaðurmótanefndar,
Garðar Gislason, þá stutt á-
varp, en strax að því búnu
fór fram keppni milli b-liðs
Hauka og Ffam. Fram sigr-
aði með 2:1. Þá kepptu sam-
an a- og b-lið F.H. og sigraði
a-liðið 2:0. Loks keppti a-Iið
Ilauka við Ármann, er ljTkt-
aði með sigri Hauka 5:2.
A sunnudag kl. 3 héll mót-
ið áfram. Fyrst kepptu Fram
og a-lið Hauka, og unnu
Haukar 2:1 eftir framlengd-
an leik. En um kvöldið fór
fram úrslitaleikur milli a-
liða beggja Iiafnarfjarðarfé-
laganna og unnu Ilaukar svo
sem fyrr greinir.
Það má segja Hafnarfjarð-
arfélögunum til mikils liróss,
að þau sendu bæði tvöfalt
Iið, en Reykjavíkurfélögin,
sem liafa margföldum mann-
afla á að skipa, sendu aðeins
eitt lið hvert.
V f s i r.
Nýir kaapendur fá blaSið ó
keypis til næstu mánaðamóta. —
Hringiö f BÍma 1660.
Síldveiði sama
og engin.
Sama og engin síldveiði
hefir verið siðustu dagana og
í nólt komu aðeius 5 skip
með sild til Siglufjarðar, þar
af samtals með 200 mál i
bræðslu og lililshátlar í sölt-
un.
Ekkert hafði frétzt um síld
eða veiðihorfur í morgun.
Alls nemur bræðlusíldar-
aflinn rúmlega 1.1 millj. hl.
A sama tíma í fyrra var hann
454.099 hl., cn árið 1944 var
hann 1.6 millj. hl. — S. 1.
laugardag var búið að salla
129.492 lunnur, en á sama
tíma í fyrra var búið að salta
17.303 tn.
Aflahæstu skipin eru Dag-
ný frá Siglufirði, er afli þess
skips 13.622 mál i bræðslu og
685 tunnur af saltsild. Þá er
Ólafur Bjarnason frá Akra-
nesi mcð 10.399 mál og Fagri-
kletlur frá Hafnarfirði með
10.381 mál til bræðslu, en
350 lunnur saltsildar.
ftleisii, féiag
hifi’eiðastjóre
stofnað
í Ifafnarfirði.
Rifreiðastjórar á fólks-
flulningabifreiðum í Hafiiar-
firði hafa myndað með_ sér
sléttarfclag sem verður deild
innan verkamannafélagsins
Hlifar.
Verða í þessu félagi allir
bifreiðastjórar sem stunda
fólksakstur sem aðalatvinnu
jafnt sjálfseignarbílstjórar
sem aðrir. A slofnfundinum
gengu 16 meðlimir og var
Bergþór Albertsson kosinn
formaður þess.
Félag þetta lifaut nafnið
Neisli.
— Í>/'. Petict —
Þannig lítur franski lækn-
irinn út, sem dæindur var.til
dauða fyrir að myrða 21
mann í París. Hann gerði það
undir því yfirskyni, að allt
hefðu verið föðurlandssvik-
arar.
V.-Ís!endmgamir
Varmahlíð í gær.
Ves t u r-íslendi ngar ni r í
boði Þjóðræknisfélagsins og
rikisstjórnarinnai’, voru á
Ilólum í Iljaltadal í gær og
tóku þátt í samkvæmi cr
þar fór fram. Var messað í
kirkjunni. Síra Helgi Ivon-
ráðsson á Sauðárkróki mess-
aði, síra Gunnar Gíslason i
Glaumbæ þjónaði fvrir altari.
Kirkjukórar Reynistaðar og
Glaumbæjarsókna sungu
undir stjórn Jóns Björnsson-
ar á Hafsteinsstöðum. Að lok-
inni messu flutti Pétur Sig-
urgeirsson cand. teol. erindi.
Síðar var samkoma úti.
Sýslumaður Skagfirðinga,
Sigurður Sigurðsson flutti
ræðu og bauð lieiðursgestina
velkomna (il Ilóla og' ániaði
þeim fararheilla. Þar fluttu
síðar j-æður Gretlir L. Jó-
hannsson ræðismaður, Einar
Páll Jónsson, Stefán Einars-
son og frú Lala Jóhannsson.
Á njilli raeðanna söng mann-
fjöldinn ættjarðarljóð. Vcð-
ur var hið fegursta og var
fjölmennt á Hólum, þar á
meðal þingjnenn sýslunnar.
Síðan var ekið lil Sauðár-
króks og þar gistu gestirnir í
nótt, eftir að hafa neytt1
kvöldverðar lijá sira Helga
Koni’áðssyni og síðan komið
heim til sýslumanns. Kl. niu
í morgun var lagt af stað og
komið við á Reynistað og
diukkið morgunkaffi hjá
Jóni alþingismanni og frú
lians. — (Frétlaritari).
Dr. Walter
Iwan látiim.
Eftir að frétlsl hafði, að
Dr. Gerliard Will, er fyrir ó-
friðinn var lektor við há-
skólann, fórst' við eina af
loftái’ásunum á Ilamborg,
barst nýlega sú fregn að Dr.
Walter Iwan, er áður einnig
var lektor við báskólann,
féll á vígvöllunum í Noregi
árið sem leið. Dr. Walter
er fyi'ir fyi’irlestra og skrif
um vísindalegu leiðangra
hans liér heima mörgum í
minni.
Páli ísólf§s^ni
boðið
til Sváþj«ídas°o
Norræna félagið í Svíþjóð
hefir boðið dr. Páli ísólfssyni
tónskáldi til Svíþjóðar í
hljómleikaferð.
Mun liann fara eftir næstu
áramót og lialda Iiljómleika
í Gautaborg, Stokkhólmi,
Málmey, Lundi og Uppsölum.
Esj« fer
frtk Möfn
tí wn€Þrgun~
M.s. Esja fer að öllum lík-
indum frá Kaupmannahöfn
áleiðis til íslands á moi’gun.
Upphaflega var gert ráð
fyrir, að skipið færi þann 25.
frá Höfn, en sökurn þess, að
taka þurfti skipið í þurrkvi,
liefir bi-ottför þess di’egizt.
Ef skipið fer á moi’gun,
verður það komið hinga'ð
þann 1. sept. n. k.
K.R.-ingar keppa við Þing-
eyinga í frjálsíþróttum.
Síðastl. föstudag fóru 10
frjálsíþróttamenn úr K.R. til
Húsavíkur í boði íþróttafé,-
lagsins Völsungs þar á staðn-
um.
Tilgangur þessarar farar
var að keppa i frjálsiþrótt-
um við Þingeyinga. A laug-
ardag var keppt í 100 m.
lilaupi; sigraði Bi’ynjólfur
Ingólfsson, K.R., á 11.8 sek.
í kuluvarpi sigraði Vilhj.
Vilmundarson, K.R., kastaði
hann 13.75 m. Gcta má þess,
að þetla er þriðji bezli á-
rangui’, sem íslendingur nær
í kúluvarpi. I hástökki sigr-
aði Jón Hjartar, K.R., stökk
1.70 m. í langstökki sigraði
Torfi Bryngeirsson, K.R.,
stökk 6.33 m. — Á sunnudag
var keppt í stangarstökki og
sigraði Torfi Bryngeirsson,
K.R., stökk 3.45 m. Er það
5 sentimetrum bctri árangur
en hann náði á meistarainót-
inu. í 800 m. hlaupi sigraði
Páll Hálldórssoh, K.R., hljóp
vegaíengdina á 2:09,2 mín.
í kringlukasti sigraði Frið-
rik Guðmundsson, K.R.,
kastaði 34.61 m. í 3000 m.
lilaupi sigraði Þórður Þor-
geirsson, K.R.. á 9:48.2 m.
í þrístökki sigfaði Óli P.
Kristjánsson, Þingeyingur,
stökk 13.51 m. I spjótkasti
sigraði Iljálmar Torfason,
Þingeyingur, kastaði hann
50.32 m.
Auk þessa fór fram
drengjakeppni í þrem köst-
um, — spjótkasti, kúluvarpi
og kringlukasti. I spjótkasti
setti Ásmundur Bjarnason,
K.R., nýtt drengjamct. Kast-
aði hann 55.00 m.